Hvað er dýpið ???

Það er von að frú Álfheiður tali um dýptarmælir. En ég að hann,þurfi hún ekki. Manni finnst einhvernveginn að það sé frekar grunnt á því góða milli þessara nv stjórnarflokka. Í Álversuppbyggingu og í Evrópumálum t.d. Kært kvödd
mbl.is Segir djúpstæðan ágreining á milli stjórnarflokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygi ???

Ég hallast nú að því að trúa þessari sögu. Það er á margra vörum að umsvif þjóðverja á stríðsárunum voru miklu meiri en menn héldu. Fyrir nokkrum árum var hópur eldri þýskra borgara á ferð hér í Eyjum.

 

Leiðsögumaður var að lýsa einum stað hér í Eyjunni þar sem aðdýpi var mikið. Þetta þekki ég vel sagði þá einn aldraður maður úr hópnum:

""Ég var kafbátasjómaður í stríðinu og við lágum hér oft langtímum saman og fylgdumst með skipaferðum og sendum veðurskeyti.

Lágum í djúpinu á daginn en komum upp á nóttinni til að hlaða rafgeyma og senda skeyti."" Ég heyrði sjálfur leiðsögumannin segja frá þessu. Kært kvödd


mbl.is Trúir engu í Lesbókargrein um ævintýralegan flótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindi!!!!

Ekki vil ég skifta mér af þessu einstaka máli. En mér finnst það einkennilegt að það virðist vera allt í lagi að brjóta mannréttindi á okkar eigin fólki án þess að það hlaupi hla.. fyrir hjartað á þessu 101 liði. Ég er ekki að gera lítið úr fólki sem vill að öðrum líði vel allstaðar í heiminum.

 

 

En svona snöggsoðnum frelsishópum sem byggðir eru á athyglissýki gef ég lítið fyrir. "Ný ríkisstjórn verður að sýna að hún starfi í anda mannréttinda, og án undanbragða". Svona skrifar þetta lið.  Ég styð baráttu fyrir mannréttindum hvar sem er í heiminum.

 

Og ég styð hælisveitingu hér á landi fyrir þá sem þess þurfa.  En ég styð einnig baráttu margra íslendinga fyrir gæslu mannréttinda okkar eigin þegna.  Og engan hef ég t.d vitað mótmæla miklum niðurskurði hjá Landhelgisgæslu Íslands. Enginn hefur farið í mótmælagöngu vegna þess og vegna áætlaðrar leigu á nýju skipi LHGÍ. Hvar er Hörður Torfa óg hans lið nú ? 

 

Hver króna þar spöruð setur líf sjómanns á spil. Þetta segir mér að þessu liði er skítsama um líf sjómanninn og störf hans.  Ég vildi sjá  Hallgrím Helgason sem hefur 267.000 á mánuði úr ríkiskassanum,meðan ég hef 60.000 froðufellandi við að mótmæla þessu.

Þyrlusveit LGH hefur staðið sig með slíkri prýði að maður var farinn að efast um áhyggur vegna brottfarar þyrlusveitar Varnarliðsins.  En nú eru dimm él á lofti hvað hana varðar.

 

Engin Hörður Torfason eða Hallgrímur Helgason að mótmæla því. Og manni finnst nú farið að slá í harða bakka þegar mikilvægara er að byggja höll við höfnina í  101 fyrir enhver örfá % af landsmönnum. En að bjarga nokkrum mannslífum ef þannig  ber undir.

 

Höll þar sem þetta"lið"mætir í síðkjólum og í kjól og hvítt"smælandi" í blossum blaðaljósmyndarana kannske á sama tíma og sjómaður er að týna lífinu vegna sparnaðar í rekstri þyrlusveitar LHG. Maður getur nefnd t.d. Goðaslysið í Vöðlavík . Nú Barðaslysið við Snæfellsnes. Já,fl og fl þar sem menn hefðu mjög sennilega týnt lífi ef ekki hefði komið til þyrlur. En þetta kemur ekki 101 liðinu neitt við. Ja sveiattan.

En að öðru. Það er þessi svokallaða naflaskoðun Sjallana. Hvaða nafna voru þeir eiginlega að skoða. Á Jóhönnu Sig eða kannske Margréti Hermans ? Allavega ekki á sínum eigin flokksmönnum. Læt þetta duga í bili.Kært kvödd 


mbl.is Segja Útlendingastofnun starfa á rasískum grunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allur sannleikurinn ???

Stjórnarflokkarnir hafa hælt sér af að þeir gangi til kosninga með sannleikan að leiðarljósi. Það getur verið að hluta. En hafa þeir sagt satt og rétt frá þeim skattahækkunum sem óhjákvæmilega hljóta að vera fyrir dyrum eftir kosningar. Ég held að það þurfi ekki djúpvitran mann til að sjá að það hlýtur að vera í farvatni atburðana undanfarið Kært kvödd


mbl.is Krónan heldur áfram að veikjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaldhæðni örlaganna

Já nú hlær mín pí.. sagði kerlingin. Og maður getur ekki annað en hlegið að kaldhæðni örlagana en nú fallast þau í Samfylkingarfaðma uppreisnarfólkið,Margrét Sverrisdóttir og Eiríkur Stefánsson. 

 

Ég óska Samfylkingunni innilega til hamingu með hina nýju liðsmenn. Mér finnst það góð býtti fyrir FF að fá nýjan liðsmann frá fg flokki til fylgis við sig  fyrir þessi 2. Fáir í FF sjá eftir þeim. Kært kvödd


mbl.is Margrét Sverrisdóttir í framkvæmdastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynslóða hvað ???

Nýr formaður XD talar um kynslóðabil í forustunni. Er ekki Þorgerður Katrín ekki af sama kyni og hún hefur verið og inni á sömu slóðinni og hún hefur verið. En án fíflaskapar, er það kynslóðaskifti að endurkjósa"gamlan"forustumann.

 

 

 

Þorgerður Katrín á mína dýpstu samúð vegna vissra aðstæðna í einkalífi. En á fólk að nota sér slíkar aðstæður sér til framdráttar. Sem mér finnst frúin hafa gert. Mér finnst þrátt fyrir fagurgala nýkörins formanns um"naflaskoðun"sem sjallarnir hefðu gengið í geng um þá sé frúin rækilega flækt inn í alvarleg mál. Fólk sem fer í pólitík verður að taka því að fá á sig, kannske grunaðar ásakanir og verða að axla ábyrgð á málum sem það er grunað um þáttöku í. Ef svo grunur reynist ekki réttur getur þetta fólk komið upprétt og hnarreist til baka. Heldur en að verða mögulega að hrökklast úr þeirri stöðu sem það er í.

 

 

 

En nú fer þetta að verða spennandi. Bæði Sjallarnir og Kratarnir farnir að taka baráttumál Frjálslynda flokksinsínn í sínar áherslur fyrir kosningar. T.d kratarnir um kvótan og sjallarnir um frítekjumark. Og kratarnir vilja inn í EBE en VG ekki. Ég vona sannarlega að FF taki afgerandi afstöðu gegn aðildinni. Hvað höfum við 300.000 að gera inn í bandalag þjóða með íbúa upp á milljónir. Þetta væri eins og  Árneshreppur á Ströndum sameinaðist stór Reykjavíkursvæðinsins.

 

 

Og telja hinum dugmiklu Strandamönnum að þeir myndu ekki tapa neinu af stöðu sinni. Öllum á stór Reykjavíkursvæðinu yrði heimilt að fara í varpið og nýta rekann og aðrar landnytjar . Án þess að íbúarnir geti rönd við reist. Sjallarnir gáfu ekki grænt ljós, allavega ekki beint á aðildarviðræður. Og Jóhanna sem fékk rússneska kosningu ( 97,9% atkv en Þ.K.G svona bara Euro 80.6 % )

 

 

Hvernig verður stjórnarmyndunin í vor. Sjallarnir róa lífróður til að ná völdum sennilega með Framsókn sem meðreiðardömu en hún nú virðist vera eins og alltaf opinn í báða enda. Samfylking vill VG vilja ekki í EBE. Læt þetta duga í bili


mbl.is Þorgerður Katrín fékk 80,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engeyjarættin

Jæja þá vitum við það.Engeyjarættin aftur formlega tekin við völdum hjá Sjöllunum. Eða hefur hún kannske stjórnað öllu í gegn um"strámanninn"Geir. Þarna held ég að Sjallarnir hafi misst af skipinu með landsbyggðarmanninn Kristján Þór við stjórnvölinn. Nú held ég að siglt verði innanskerja á skyrdalli með pungaprófsmann við stýri Kært kvödd 
mbl.is Bjarni kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miklir menn???

"Ja miklir menn erum við Hrólfur minn og fallega pissar Brúnka". Hann kann klæki stjórnmálanna þessi maður. Þvert ofan í afsökunarbeiðni eftirmanns síns snýr hann öllu á haus.

 

Nú á Samfylkingin alla sökina. Nú er hann kominn aftur í sviðsljósið þessi"Loki" nútímans og boðar Ragnarrök:"Bræður munu berjast  / og að bönum verðast, / munu systrungar / sifjum spilla. / Hart er með höldum, /hórdómur mikill, / skeggjöld, skálmöld, / skildir klofnar, / vindöld, vargöld / áður veröld steypist." .Þetta dugar í bili. Kært kvödd


mbl.is Víkingar með Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jesús Kristur eða ég ????

Ekki vantar suma sjálfstraustið. Líka sér við frelsaran sjálfan. Og nú tíðkast þau  hin"breiðu spjótin"  Ef marka má landsfund sjallana. Allavega uppgör fv flokksforinga við flokkinn, Líkir sjálfum sér við Krist sjálfan. Mér dettur samt í hug mitt uppáhaldsskáld sem kom úr hinni frægu"grasrót" Vilhjálms frá Skáholti.Ég held að"sumir"hefði frekar átt að taka orð hans sér í munn þegar hann kvað:

" Og um það mál við aldrei megum kvarta / Því uppi á himnum slíkt er kallað suð / En ósköp skrýtið er að eiga hjarta / sem ekki fær að tala við sinn guð. / Hver síðastur þú sagðir yrði fyrstur / en svona varð nú endirinn með þig / Og úr því þeir krossfestu þig Kristur / hvað gera þeir við ræfil eins og mig/"

Eða vísu Jóhanns bónda í Miðhúsum í Óslandshlíð ( 1891- 1972 ) er hann kvað:" Ég hef hlotið margt og misst /  marki náð og tapað,/  elda kveikt og einnig fryst / eyðilagt og skapað."

En einu hef ég tekið eftir af landsfundum þessara flokka sem mestu og bestu fríar auglýsingar og umfjöllum fá sérstaklega í svokölluðum"ríkisfjölmiðlana".

Enginn af þessum flokkum.(VG.Samfylking,Sjálfstæðismenn) hafa það á stefnuskrá sinni að kalla svokalla "útrásarvíkinga"" heim setja þá í farbann meðan Eva Joly rannsakar mál þeirra,

Ég man eftir baráttu sænskra skattayfirvalda við stórríkrar konu sem skuldaði milljónir í skatta en komst úr landi til Brasilíu og sænsk yfirvöld komu að öflugu rimlahliði og rafmagnsgirðingu í hring um hús hennar. Og komust ekki lengra. Þetta gætu þessir gæjar tekið upp. Greið leiði frá London..

Ég tek undir orð Önnu Mikkaelsdóttir sem hún sagði í fréttunum áðan.Eitthvað á þessa leið:"eitthvað vitlausasta sem ég heyri er:"að við tókum öll þátt í þessu"" En liðið í 101 tók kannske þátt í þessu en ekki hið sanna"grasrótar"fólk..

Ekki  lálaunafólkið. ekki öryrkar, og alls ekk eldri borgarar.Þetta fólk tók engan þátt í þessu"svalli"  Og nú ætlar VG að fara að fjölga fólki á"listamannalaunum" Og nefnir"skrímslið" baráttu gegna atvinnuleysi. Ja sveiattan og fussu svei. Setja fleiri iðjuleysinga á þennan letistyrk. Ekki að reyna að bæta hag fyrrgreindra hópa..Nei nei

Við í Frjálslyndaflokknum hér Vestmannaeyjum opnuðum kosningaskrifstofu í Valhöll Strandgötu 43 A.Þar verður opið eftir veðrum,vindi,þátttöku já og fleiri aðstæðum.

En þátttakan í gær lofaði góðu. Grétar Mar mætti til að"peppa"liðið upp. Síminn á skrifstofunni verður 4812919. Síma og tölvumál ekki alveg komin í lag.Læt þetta duga í dag.Það kemur meira,Kært kvödd


mbl.is Vilhjálmur: Ómakleg ummæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grasrótarmaður

Það er mikið talað um grasrót hinna ýmsu flokka. Eða réttara sagt talað um að sumt fólk komi úr grasrótinni. Hálf finnst mér nú það broslegt þegar sumir af þessu 101 liði kenna sig við grasrótina.

 

Eina sambandið sem það hefur haft við hana er að flatmaga á Austurvelli og þá þegar dagur er hvað lengstur sól hátt á lofti og hitastigið ekki undir 15°.Þetta fólk lítur svo niður á þá sem ekki kunna skil á Strindberg,Goethe og Schiller eða hvað þeir heita þessir gömlu svokallaðir snillingar.Að maður tali nú ekki um Ludwig van Beethoven,Mozart,Haydn og Bachs.

 

 

Alla þá hávaðaseggi. Í augum þessa fólks erum við sem aldir erum upp við að vinna fyrir okkur"Slordónar" eða"Sveitalubbar" Hve oft hefur maður ekki heyrt þessi orð. Það fer ekkert eins mikið í mínar fínustu taugar en fólk sem vegna menntunnar sinnar lítur niður á okkur hérna niðri á jörðinni. Þykist vera yfir okkur hafið og hreinlega skammast sín fyrir uppruna sinn. Af hverju er ég að býsnast þetta yfir þessum andsk..... snobburum jú af því að fyrir kosningar byrjar sumt af þessu liði að kenna sig við gras og rætur.

 

 

Það er oft með endemum hve fólk leggur sig lágt í skriðdýrshætti sínum fyrir kosningar. En til eru menn og konur sem eru hérna niður á jörðinni og kemur til dyranna eins og það er klætt. Og það á við um félaga minn og vin Georg Eið Arnarson trillukarl eins og hann kallar sig, hér í Eyjum. Sem nú skipar annað sætið á lista FF hér í Suðurkjördæmi.

 

 

Ég kynntist Georg ekki fyrr en í síðustu kosningum er leiðir okkar lágu saman eftir að ég féllst á að sitja á kosningaskrifstofu Frjálslynda flokksins hér í Eyjum  og hella á könnuna. Ég dáðist strax að eldmóði hann og dugnaði. Hann var eiginlega allt í öllu. Og þá er ég ekkert að gera lítið úr störfum Hönnu Birnu núverandi ritara FF. Sem líka vann af eldmóði fyrir framboðinu hér. Mér þótti mér stundum ofaukið enda lítið skift mér af pólitík.

 

 

Að vísu smávegis unnið á kosningaskrifstofu Borgaraflokksins sáluga í Reykjavík fyrir þær frægu kosningar 1987. En ef hægt er að tala um að maður komi úr "grasrótinni" það er það Georg Eiður. Mér er minnistætt þegar kjördæmaráð  flokksins hafði skipað hann í 2 sætið. Þá hringdi góður vinur minn sem var á fundinum og sagði mér frá því.

 

 

Ég sem hélt að frambjóðandinn nýji væri líka á fundinum fyrir sunnan hringdi í GSM síman ´ans til að óska honum til hamingu með sætið. Ég spurði hann svo hvenær hann kæmi til Eyja. Ja ég á svona 15 mín í hafnargarðana svaraði hann þá. Vinurinn var bara að koma af sjó og lét sig litlu varða um kosninguna um sætin á listanum.

 

Georg Eiður er kannske ekki sprenglærður á bókina en hann er sprenglærður í einum af  aðalatvinnuvegi landsins. Sjávarútvegi. Ég vona að sjómenn hér í Eyjum muni þetta nú í komandi kosningum. Nái Grétar Mar endurkosningu verður Georg Eiður varamaður hans.En ég læt fólk dæma sjálft dæma um skrif Georgs með að láta slóðina á bloggið hans fylgja hér með.

http://georg.blog.is/blog/georg/

Kært kvödd


Kosningaskrifstofa í Vestmannaeyjum

              Kosningaskrifstofa            

 Frjálslyndaflokksins

      Verður opnuð í Valhöll Strandgötu 43 A

                  Föstudaginn 27 mars kl 1600

Boðið verður upp á veitingar.Grillað,ef veður leyfir Frambjóðendurnir:Grétar Mar,Georg Arnar sitja fyrir svörum yfir léttum veitingum.Allir velkomnir

Mynd 0509623 (1) Grétar picture 011 135856 Georg

null Kaffibruggarinn

                


Hafró oc co

Það er alveg með ólíkindum að upplifa"vertíðarstemminguna"hér í Eyjum í dag. Hver báturinn siglir inn með fullar lestar af fiski.Netabátar draga 2-3 trossur til að fá fullfermi.

 

S2300042S2300047hér að ofan eru þeir að koma til hafnar í dag með fullfermi Brynjólfur t.v og Gandí t.h 

Ég heyrði í dag að þeir væru farnir að hafa það eins og á línuveiðum. Byrja fljótlega að draga eftir lagningu. Það er mikil umferð um höfnina og mikið líf..Skip af öllum stærðum og gerðum. Mér dettur í hug er Tómas orti um aðra höfn:" Hér heilsast fánar framandi þjóða / Hér mæla skipin sér mót, /sævarins fákar,sem sæina klufu / og sigruðu úthafsins rót./

 

S2300029S2300032

S2300037S2300013S2300011Stóru uppsjávarskipin liggja aðgerðarlaus 

Og höfnin tekur þeim opnum örmum / og örugg vísar þeim leið./ Því skipið er gestur í á hverri höfn / þess heimkynni djúpin breið./ Og byrjun á næsta erindi;" Hér streymir örast í æðum þér blóðið./ Það má segja um gamlan sjóara sem kannast við allsskonar sjómennsku.

S2300005 Wilson Heron var að losa salt í gær og fyrradag

S2300027 Damsterdijk losaði salt í morgun

 

WILSON+HERON Wilsson HeronDAMSTERDIJK Damsterdijk Vegna lélegrar kunnáttu minnar á myndavél fékk ég "lánaðar" mydir af þessum fallegu skipum skipum á http://www.shipspotting.com/modules/myalbum/

 

En eitt veldur manni hugarangri. Það fiskifræði sú  er stunduð er á Skúlagötu 4. Ég hef heyrt mikið talað um máttleysi vegna loðnuleitar. Margir halda því fram að þessi,nú sennilegasta óvinsælasta stofnum ríkisins síðan hin var rudd með lögum,hafi ekki staðið sig sem skildi í þeim málum. Nóg sé í hafinu af loðnu en hún hafi bara haft vistaskifti.

 

LonesomeMouse Kakan er til en enginn má ét´ana. Vinnubrögð Hafró í hnotskurn 

Hana sé að finna fyrir utan hefðbundnar loðnuslóðir. Ekki veit ég. En þrátt fyrir hraksspár Hafró er nægur fiskur um allan sjó.Sama um hvaða verstöð er að ræða. Hvað ætli sumum  takist að hafa mikla fjármuni af fólkinu í landinu áður en staðurinn verður ruddur.Það er komið fordæmi að henda mönnum út með lögum.ef þeir eru með einhverjar.Læt þetta nægja að sinni.Kært kvödd  


mbl.is Vertíðarstemmning í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úldin síld

Það ætti að setja 1 kassa af úldinni síl á hverja hæð hjá Hafró. Reyna að svæla þessa fræðinga þar til að leifa hreinsun á höfninni í Eyjum. Það þarf kannske fleiri lög til að losna við suma menn  úr sumum ríkisstofnunum. Svo er verið að tala um eflingu ferðamannaiðnaðar.
mbl.is Hafnarbotninn þakinn dauðri síld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" Bankarisar og arabískir furstar" !!!

Þau eru farin að skýrast helv.... svikin við sölu Búnaðarbankans. Mér finnst satt að segja það jaðra við föðurlandssvik að þetta fólk sem stóð að þessari sölu sitji á alþingi að ég tali nú ekku um að sumt af því sýnir almenningi þann helv.... dónaskap að bjóða sig fram til áframhaldandi setu þar.

 

Hvaða andsk..... afglapar hafa stjórna þessu landi undanfarin hlýtur maður að spyrja sig.Nú segir hver einasti núv og fv stjórnarherra að þeir hafi séð hættuna. En enginn á að hafa hlustað.Og nú er það tuggan.Hver hlustaði ekki á hvern ,hvenær og hvar.

 

Maður er steinhættur að botna í þessu. Hvaða andsk....anarkismi hefur eiginlega verið hér við lýði..Franskur bankarisi,þýskur banki ( sem svo kom í ljós að var miklu minni en Sparisjóður Strandamanna) arabískur fursti (sem sennilega aldrei var til) notað til blekkingar. Maður er búinn að hlusta á menn eins og Vilhjálm Bjarnason .Þorvald Gylfason of fl vara við þesu hruni í nokkur ár. En þeir bara afgreiddir með orðinu"Úrtölumenn"

 

Og sagan er að endurtaka sig víkingar óðu um lönd rænandi og ruplandi. Skildu allstaðar eftir sig rjúkandi rústir þar er þeir komu. Einusinni hétu þeir"norrænir víkingar"en núna hétu þeir"íslenskir útrásarvíkingar"Gömul vinkona mín sem stundum les bloggið mitt og hringir svo í mig yfirleitt til að skamma mig og þá aðallega yfir myndum hringdi í dag og skammaði mig fyrir orðbragðið á mér hér á blogginu.

 

 

"Þú sem alltaf hefur verið svo mikill rólegheita maður og frekar orðvar"sagði hún (hún var aldrei með mér til sjós) ert orðin svo orðljótur að bagi er af. Eiginlega áður en ég gat gefið skýringu sagði hún:"reyndu að vanda þig með orðfarið" og lagði á.Og ég fór að hugsa af hverju ég væri orðinn svona orðljótur.

 

Nú ég sjálfur hef talið mig "frekar"orðvar eða þannig. Nú fyrst datt mér í hug þessi 14 ár er ég sigldi með dönum og gat aldrei verið reiður. Að innibirgð,eiginlega dönsk reiði væri að fá útrás  Því ég gat aldrei verið reiður á dönsku.

 

Ég hreinlega"missti"málið og það í þess orðs fyllstu merkingu. En svo skildi ég málið maður er orðin svo yfir sig reiður yfir hvernig örfáir menn hafa komið stórum hóp í vanda.Það liggur við að maður geti hermt orð Winston Churchill upp á ástandið en með öfugum formerkjum þegar hann sagði:"Never in the field of human conflict was so much owed to so few"Læt mr Churchill  enda þetta hjá mér  að sinni en það kemur meir.kært kvödd   


mbl.is Pólitísk tengsl áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Liggum lágt

Ja nú er Bleik brugðið. Einusinni seldum við Færeyingum okkar fúa og ryðdalla. Þeir höfðu ekki efni á öðru enda fámenn þjóð og fátæk. Ég held að færeyingar hafi t.d.misst miklu fleiri skip og áhafnir í síðari heimstyrjöldinni en við, miðað við hausatölu.

 

Og við unnum þá alltaf í fótbolta. Þá og Grænlendinga. .En nú stendur dæmið heldur betur á haus. Engun kreppa hjá þeim, Þeir eiga sennilega miklu fullkomnari flota en við miðað við fyrrgreinda tölu. Nú lána þeir"stóra bróðir,sem er búinn að gera svo rækilega í buxurnar að"skítaslóðin"liggur þvers og kruss um heiminn,peninga.

Til að"stóri bróðir"eigi ofan í sig að éta. Og til að kóróna helv.... vitleysuna vinna þeir okkur í fótbolta.Ja detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði við þessi óskapartíðindi.

 

 

Við"jáararnir"verðum bara að taka ofan fyrir"Neggvunum"og hneigja okkur fyrir þeim. Ég er ekki að gera lítið úr færeyingum með þessu orði. Þeir eiga alla mína virðingu allavega eftir að maður komst til vits og ára. Ég er bara minnugur hvað við kölluðum þá hér áður fyrr og það með miklum hroka. Þeir hafa alltaf staðið fyrir sínu og vel það. Kært kvödd


mbl.is Skrifað undir lánasamning við Færeyjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skornir úr snöru.

Þeir voru skornir úr snörunni ekki á háls eins og ef til vill hefði átt að gera. En úr svona fíflaskap yfir í annan.Hver skar hvern úr hvaða snöru,hvernig og með hverju ?. Hver var nærri búinn að henga hvern hvar og með hverju. Hver batt hvaða hnút og með hvaða snæri . Spurningarna um ástandið virðast vera margar.

 

Steinn Steinar kvað eitt sinn m.a.:

" Þitt hús er voldugt og viðir sterkir/og veggir traustir, með saum og hnoð./ En hvassar tennur, sem naga og naga,/ þær naga í gegn um hverja máttarstoð./

Og bráðum tapast þitt gull og gengi,/ og gæfan hverfur, svo björt og hlý./ Þér finnst hann sár, slíkur sleggjudómur,/en slotið hrynur með kurt og pí./

 

Eins og ég hef margoft sagt þá tapaði ég engu á þessu bankahruni.Allavega ekki en, en að mér læðist sá grunur að að því komi.. Einhvern veginn held ég að ég komist ekki hjá því. Nema að einhver mein verði búinn að drepa mig. Það er sennilega eina leiðin til að sleppa frá þessum ósköpum. Ekki það að mér detti í hug eitthvað manualt í því sambandi . Er of mikil gunga fyrir svoleiðis. En annað eins hefur nú skeð að 7tugur kall hrökkvi upp af án eigin inngrips.

 

 

Maður er nú kannske þá þegar hrokkin upp af ýmsum stöndum en ekki öllum. Ég er  höfundur að öllu mínu lífi. En að tilveru minni foreldra mínir. Mér dettur ekki í hug að vorkenna sjálfum mér á neinn hátt.Enda á ég sennilega ekki svo langt eftir. Nema að helv.... hafragrauturinn sem Torfi á viktinni er búinn að koma mér uppá að éta á hverjum morgini hafi þau áhrif sem hann er að reyna að telja mér trú um .

 

Að ég tali nú ekki um göngutúrana sem hann er að reyna að troða mér til að fara taka. Ef ég færi eftir öllu sem Torfi á viktinni ráðleggur mér þá tóri ég sennilega í 10-20 ár enn. Nú svo er það ef þetta andsk..... ástand á eftir að versna mikið enn, sem ég er satt að segja skíthræddur um. Þá hætti ég hreinlega að hlusta á Torfa á viktinni. Sting bara fingrum í eyru  raula bara tralla la ef hann opnar kja..... um heilsufræði. Svo einfallt er nú það.

 

 

 

En ég ber ugg í brjósti fyrir hinu unga og myndarlega fólki sem á að erfa þetta land. Mér finnst satt að segja ástandið sé að verða þannig að eftir venjulega skólagöngu fari þetta fólk strax á einhverjar bætur og nái ekki þeirri fótfestu í atvinnulífinu sem það þarf. Það fer að verða minni þörf á öllum þessum fræðingum til alls. Skólarnir fyllast af fólki sem svo enga vinnu eygir í sínu fagi eftir setuna í þeim.

 

 

Fólkið slitnar úr tengslum við atvinnulífið, Og nú ekki nennunnar vegna heldur þess að það fær enga vinnu á unglingsárunum. Sem ég held að sé öllum nauðsynleg. Svo er sumt úr þessu"liði"sjálfskipaðra sér farið að predika ágæti hass t.d.. Ég hef því miður kynnst mönnum sem í dag mætti svo sannarlega kalla"hasshausa"og það er hreinlega óskemmtilega lífreynsla. Guð hjálpi því fólki sem svona skoðanir hafa.

 

En ef allt fer til fjan.... , sem ég vona nú ekki þá þyrfi kannske að leyfa þetta svo stór hluti þjóðarinnar sæti ekki uppi með langa dóma fyrir ræktun og notkun á hassi. Því ekkert er eins hættulegt ungu fólki og iðjuleysið. Ég get nú ekki annað en brosað þega ég sá viðtal við einn"fræðingin"um ljósmyndasýningu þar sem hún talaði um  barna þrælkun.

 

 

Myndirnar t,d teknar um borð í togurum rét fyrir miðbil síðustu aldar af  ungum drengjum sem fengu að fljóta með feðrum sínum eða frændum. Alveg furðuleg fáfræði um fortíð landsins og atvinnuvegi. Enda kannske ekki von því það hefur aldrei komið nálægt neinu sem ekki lyktar eins og Chanel 5 eða þessháttar.Hve oft þarf að minna þetta"lið"á að við erum komin af fólki sem lyktaði af slori og kúaskít. Það fitjar upp á nefið ef það finnur öðruvísi lykt en áðurnefnda 5. Læt þetta duga í bili en ekki hættur.Kært kvödd


mbl.is Glitnismenn heim auralausir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stútur við við stýrið

Áfengi og skipstjórn eiga ekki saman.Rússar virðast,með bestu virðingu fyrir þeirri þjóð oft erfitt að skilja þetta.alcohol1 Þetta á ekki heima um borð í skipum.

 

Stýrimaðurinn var"dauður"í brúnni og kapteinninn var dauðadrukkin er Gámaskipið Karin Schepers strandaði í Eyrarsundi milli Saltholm og Amager í morgun.

Ship+Photo+KARIN+SCHEPERS Karin Schepers 

0%20drunken sailor 1977 Þetta er allsekkert grín. 

Svona segir Berlingska Tidene frá atburðinum:

Styrmanden sov brandert ud på broen, da et containerskib i morges stødte på grund i Øresund mellem Saltholm og Amager Strandpark.

Det konstaterede lodsen, da han kom om bord på "Karin Schepers".

Lodsen tilkaldte politiet, som anholdt styrmanden for at "føre" skibet i spirituspåvirket tilstand. Da kaptajnen kom dinglende op på broen, blev han også anholdt, idet han ligeledes blev vurderet til at være beruset. Dette er strengt forbudt for en kaptajn, uanset om han står på broen eller ej.

 

image 12 Nú lætur þú renna af þér fylliraftur

 

Søværnets Operative Kommando havde forinden i en time forgæves forsøgt at få radiokontakt med besætningen, idet skibet var på sikker kurs mod grundstødning. Til slut blev en helikopter forgæves sendt i luften for at alarmere søfolkene.

Myndin af skipinu er fengin af slóðinni:

http://www.shipspotting.com/modules/myalbum/

Hinar annarstaðar af "Netinu".Kært kvöddur


mbl.is Allir fullir í brúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Að deyja út"

Ef þetta verður niðurstaðan spyr ég bara:" Er sjávarútvegurinn algerlega að verða aukaatriði í Norðvesturkjördæmi" ??? Eða slátraði Einar öllum sjómönnum sem kusu XD.  Sjallarnir vonandi á miklu undanhaldi í kördæminu. Kært kvödd
mbl.is Einar Kristinn í efsta sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófkosningar

Þó ég styðji ekki XD þá hefði ég viljað sjá Grím Gíslason ná hærra á listanum. Ég þekki mannin ekki neitt,en hef hitt hann nokkrum sinnum 

Og mér fannst hann bjóða af sér góðan þokka. En hann er kannske ekki nógu menntaður,fyrrverandi sjómaður. En allavega vélstjóramennt. Hvorki lög eða hagfræðingur..Bless


mbl.is Björk ekki á lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað nú ?

Hvar ætlar þessi ands...... vitleysa að enda. Sparisjóðir sem  borguðu mönnum ofurlaun, bónusa og jusu peningum í gengdarlausa græðgi komir á ríkisspenan. Maður er hreinlega orðin ringlaður í öllu þessu milljarðaþvaðri.

 

Lítið var vitið fyrir á þessum málum  allavega hjá mér en ekki batnar það við þetta . Og hvar ætlar ríkið að ná í alla þessa peninga. Ég hélt að við værum rétt skriðin yfir 300.000. hausa. Hækka skatta á hverjum ? .Það hefur ekki mátt gera það á þessum fíf....  Og nú er fátt um fína drætti hjá hinum almenna borgara . Lítið fær ríkið til baka af atvinnuleysisbótunum.Ja og  þetta réttarkerfi sem við búum við. Það er ófullkomnara en í mörgum ríkjum sem við þykjumst vera hafnir yfir. Þar væri búið að afhausa svona rumpulýð.

 

Hér er maður sendur í fangelsi fyrir endurtekinn þjófnað á einhverjum fja.....  tittlingaskít en stórþjófar sem eru að koma þjóðinni á hausinn ganga glottandi um götur London. Og svo rífa þessir andsk.... bara kja..  og tala um bankaleynd ef helv.... svindlið í þeim er kannske að sjá dagsins ljós. Ja drottin minn dýri. Sér er nú hver ands..... mafían ég segi nú ekki annað. Maður er orðin svo gáttaður á þessu að maður er hættur að kveðja almennilega og segir bara bless


mbl.is SPRON til Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Mars 2009
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 537312

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband