"bókhaldvilla"???

Já bókhaldið virðist ekki alltaf ríða við einteyming frekar en fyrri daginn Hvað  má segja yfir þessu:" Þá þykir ýmislegt að ráðstöfun styrkja sem Danmörk hefur fengið frá ESB. Um 16 milljónir danskra króna (392 milljónir ÍKR) sem greiddar voru í styrki virðast hafa horfið.

 

Peningarnir áttu að fara í að styrkja útflutning á dönskum fiskiskipum til annarra landa. Samkvæmt dönskum yfirvöldum hafa engir styrkir verið greiddir til þess. Enginn veit hvert peningarnir fóru, hvort þeir lentu í röngum vösum eða hvort um er að ræða bókhaldsvillu."

 

Það er meinið við svona voldugar samsteypur að gildi peninganna virðist einhvern veginn minnka í augum þess fólks sem með þá fara. Nokkrir milljarðar ísl. kr til eða frá eru "peanuts" svo maður sletti nú aðeins. Kært kvödd


mbl.is ESB styrkti ofveiði á fiski
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

´"kátt í höllinni"

Ja nú verður kátt í höllinni. Og ekki veitir af. Á þessum síðustu og verstu tímum. Ef íslenskir "útrásarvíkingar" eru á bak við þetta fyrirtæki fer þeim kannske að fyrirgefast eitthvað smá. Kært kvödd
mbl.is Samheitalyf Viagra á markað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta til framdráttar ???

Einhvern veginn finnst mér þetta ekki til framdráttar þessum samtökum. Þó ég skilji að fólk láti reiði sína bitna á þeim sem stóðu að bankahruninu. En þessi maður fer bara eftir fyrirmælum stjórnvalda Eða er ekki svo ?. Spyr sá sem ekki veit. Kært kvödd
mbl.is Dyr límdar aftur og málningu slett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kettir og fl

Nú er komin Þjóðhátíð hér í Eyjum. Ég óska öllum gleðilegrar hátíðar. Ég eftirlæt nú öðrum Dalinn allavega í þetta sinn.Enda orðin lúinn í beinunum. Allavega þeim sem halda kallinum gangandi. Góð vinkona mín"skellti"sér til Svíþjóðar í staðinn fyrir Dalinn en eftirlét mér 2 ketti að passa. Í morgun hringdi svo dóttir hennar sem búsett er"fyrir sunnan" en  sem dreif sig hingað á þjóðhátíð og tilkynnti mér að ég væri undanskilinn kattarpössunni fram á mánudag.jeebus En af hverju þetta raus um ketti. Jú ég var að lesa um einn sem eins og svíar segja"Åker buss".Þ.e.a.s hann ferðast með strætisvagni. Og það hefur hann gert í 4 ár án þess að konan Susan Finden sem á hann hafi haft nokkurn pata af því. cat beerÞað er hinn 12 ára gamli Casper frá Plymouth. Hann hoppar inn í  vagn no 3 kl 10.55 á hverjum morgni. Á stoppistöð sem er beint fyrir framan hús Susan,. Í vagninum rúntar hann svo klukkutíma. 0%20drunken sailor 1977Fer svo út á sinni stoppistöð. En að sögn vagnstjóranna fær hann stundum hálp við útgönguna Enda orðin fullorðinn eða 12 ára sem fyrr sagði. "Hann leggur sig alltaf aftast í vagninn" segir vagnstjórinn Rob Stonehousecat money"Stundum lallar hann innan um fólkið en hann hefur aldrei verið til vandræða heldur Rob áfram. untitledÁ skrifstofu strætisvagnafélagsins er sett upp tilkynning til allra sem keyra leið 3 að taka tillit til Caspers og alls ekki rukka hann um fargjaldið.

Já kettir geta verið klókir. Kært kvödd

Sjómanna saknað

Enn og aftur er sjómanna saknað. En það kemur ýmislegt upp í hugan við lestur á þessu fréttum Þá á ég líka við slysið með Full City sem rak upp við Langesund. Þar um borð voru 23 menn,búið að bjarga 16. Olía lekur úr skipinu og sjór inn í það.  Á staðnum er 5-6 metra ölduhæð og vindur allt að 35 m/s, að sögn fréttavefjar Aftenposten. Ship+Photo+FULL+CITY Full City

Það er ekki rétt sem sagt var í fréttum að þetta væri olíuflutningaskip. Og olían um borð sem er diselolía sennilega bara sem bara til að nota á vélar skipsins.  Það sér í lagi eru góðar frérttir.

Langeland Langeland 

Og sex er saknað eftir að norska flutningaskipið Langeland sökk í Syðri- Kosterfjorden í Svíþjóð í morgun. Já Skagerak hefur því miður verið mörgum sjómanninum skeinuhætt.  Ég var einusinni með að vera koma út úr Langesundi með fulllestað skip í SV roki og eftir sólarhring á fullri ferð höfðum við farið 1.4. sml afturábak.

oih Frá langesund í morgun  

Ekki líkaði mér sú sjómennska en gat litlu um ráði. Skipperinn réði. Þrátt fyrir alla tækni ráðum við aldrei við veður, vélabilanir o.sv. fr. En við lestur þessarar fréttar hvarla að mér ýmsar hugsanir varðandi sjóslys. Og nú tek ég skýrt fram að ég ann hreinni náttúru en einhvernveginn læðist sú hugsun stundum að mér að áhyggur af fuglalífi og eða baðströndum séu meiri en af sjómönnunum.

2482097992 Full City á strandstað  

Af hverju er ég að halda þessu fram sem ábyggilega að margra mati er fáráðlegar ? Jú alltaf þegar skipströnd er byrjað strax og jafnvel áður en búið er að bjarga mönnum að tala um mengun. Og annað.  Ég sigldi mikið á svokölluðum "Costerum" Þ.e.a.s. litlum flutninga skipum. Við sigldum t.d.mikið með kartöflur frá Evrópu til Arabalandana á haustin og byrjun vetrar. image Með kartöflur uppí lúgur

Við vorum stundum í erfiðleikum( eftir skipum ) með stabilitetið og neyddumst oft til að taka meiri ballast inn er út í sjó var komið.  Og það gerði skipið stífara og leiðinlegra.  Biskayflóinn er ekkert skemmtilegur í að fara á litlu fulllestuðu flutningaskipi t.d. í SV roki..  Eða V- af strönd Danmerkur til Þýskalands með granítfarm  í SV stormi er enginn barnaleikur. Það hef ég reynt á eigin skinni.

   503x Full City á strandstað  

Hér áður gat maður í slæmum SV veðrum  skellt sér inn í St Malo flóann og legð bræluna af sér.Þegar út úr Enska-kanalnum var komið  Nú er þetta ekki hægt lengur, Nú verður maður að fara fleiri mílur (ég bara man ekki hvað) út frá I. D.Quessant og skella sér í úfinn Biscay flóa. Allt út af mengunarhættu. Mér finnst satt að segja náttúruverndin stundum vera fullmikil þegar mannslíf eru í hættu.. Nú veit ég að ég hef móðgað margan náttúru unnandan. En við skulum bara vona að ég sé einn um þessa skoðun

obelix 

Þó að Steinríkur hafi verið góður í að flytja grjót er það einn leiðinlegasti farmur sem hugsast getur. Það er nú svo þegar maður heyrir um skipstapa og sjóslys þá byrjar eitthvað að bærast í hjartanu á gömlum sjóara. Kannske líkt og ég get ímyndað með flugmenn sem heyra um flugslys og t.d bifhjólamenn við bifhjólaslys.

 Á ljósmyndinni er verið að lesta granít. Myndirnar eru flestar af netinu. Og þá aðallega  fengnar að "láni"af Shipspotter og úr fjölmiðlum dagsins á Norðurlöndum. En myndirnar af kartöflu og granítförmunum tók ég sjálfur  Læt þetta duga Kært kvödd


mbl.is Sex sjómanna saknað í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. júlí 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband