Sjómanna saknað

Enn og aftur er sjómanna saknað. En það kemur ýmislegt upp í hugan við lestur á þessu fréttum Þá á ég líka við slysið með Full City sem rak upp við Langesund. Þar um borð voru 23 menn,búið að bjarga 16. Olía lekur úr skipinu og sjór inn í það.  Á staðnum er 5-6 metra ölduhæð og vindur allt að 35 m/s, að sögn fréttavefjar Aftenposten. Ship+Photo+FULL+CITY Full City

Það er ekki rétt sem sagt var í fréttum að þetta væri olíuflutningaskip. Og olían um borð sem er diselolía sennilega bara sem bara til að nota á vélar skipsins.  Það sér í lagi eru góðar frérttir.

Langeland Langeland 

Og sex er saknað eftir að norska flutningaskipið Langeland sökk í Syðri- Kosterfjorden í Svíþjóð í morgun. Já Skagerak hefur því miður verið mörgum sjómanninum skeinuhætt.  Ég var einusinni með að vera koma út úr Langesundi með fulllestað skip í SV roki og eftir sólarhring á fullri ferð höfðum við farið 1.4. sml afturábak.

oih Frá langesund í morgun  

Ekki líkaði mér sú sjómennska en gat litlu um ráði. Skipperinn réði. Þrátt fyrir alla tækni ráðum við aldrei við veður, vélabilanir o.sv. fr. En við lestur þessarar fréttar hvarla að mér ýmsar hugsanir varðandi sjóslys. Og nú tek ég skýrt fram að ég ann hreinni náttúru en einhvernveginn læðist sú hugsun stundum að mér að áhyggur af fuglalífi og eða baðströndum séu meiri en af sjómönnunum.

2482097992 Full City á strandstað  

Af hverju er ég að halda þessu fram sem ábyggilega að margra mati er fáráðlegar ? Jú alltaf þegar skipströnd er byrjað strax og jafnvel áður en búið er að bjarga mönnum að tala um mengun. Og annað.  Ég sigldi mikið á svokölluðum "Costerum" Þ.e.a.s. litlum flutninga skipum. Við sigldum t.d.mikið með kartöflur frá Evrópu til Arabalandana á haustin og byrjun vetrar. image Með kartöflur uppí lúgur

Við vorum stundum í erfiðleikum( eftir skipum ) með stabilitetið og neyddumst oft til að taka meiri ballast inn er út í sjó var komið.  Og það gerði skipið stífara og leiðinlegra.  Biskayflóinn er ekkert skemmtilegur í að fara á litlu fulllestuðu flutningaskipi t.d. í SV roki..  Eða V- af strönd Danmerkur til Þýskalands með granítfarm  í SV stormi er enginn barnaleikur. Það hef ég reynt á eigin skinni.

   503x Full City á strandstað  

Hér áður gat maður í slæmum SV veðrum  skellt sér inn í St Malo flóann og legð bræluna af sér.Þegar út úr Enska-kanalnum var komið  Nú er þetta ekki hægt lengur, Nú verður maður að fara fleiri mílur (ég bara man ekki hvað) út frá I. D.Quessant og skella sér í úfinn Biscay flóa. Allt út af mengunarhættu. Mér finnst satt að segja náttúruverndin stundum vera fullmikil þegar mannslíf eru í hættu.. Nú veit ég að ég hef móðgað margan náttúru unnandan. En við skulum bara vona að ég sé einn um þessa skoðun

obelix 

Þó að Steinríkur hafi verið góður í að flytja grjót er það einn leiðinlegasti farmur sem hugsast getur. Það er nú svo þegar maður heyrir um skipstapa og sjóslys þá byrjar eitthvað að bærast í hjartanu á gömlum sjóara. Kannske líkt og ég get ímyndað með flugmenn sem heyra um flugslys og t.d bifhjólamenn við bifhjólaslys.

 Á ljósmyndinni er verið að lesta granít. Myndirnar eru flestar af netinu. Og þá aðallega  fengnar að "láni"af Shipspotter og úr fjölmiðlum dagsins á Norðurlöndum. En myndirnar af kartöflu og granítförmunum tók ég sjálfur  Læt þetta duga Kært kvödd


mbl.is Sex sjómanna saknað í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

nákvæmlega svona eins og þú segir svo vel frá - ég held það - þetta er líka að ské hér heima - nú geta td ekki lítil skip eða stór leitða skjóls hér við suður eða suðvestur hornið sökum reglna sem þessa - stundum finnst mér að þeir sem reglunar búi til sé ekki sjómenn, frekar pappírspésar sem ættu ekki að koma nálægt svona málum.

Jón Snæbjörnsson, 1.8.2009 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 535242

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband