Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"duglegu mann"

Þetta sýnir getu þessara duglegu manna sem starfa hjá LHGÍ þrátt fyrir ónógan tækjakost. Og ímyndið ykkur farkostinn á sjó 50-60 tonna bátur. En þetta lýsir nú hugarfari ráðamanna þessarar þjóðar til sjómanna. Og það er hreinlega stór skömm hvernig ráðherrar meðhöldla þessa duglegu starfsmenn LHGÍ. Verið öll kært kvödd
mbl.is Staðinn að meintum ólöglegum veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"heimsmetabók Guinnes "

Var það ekki í heimsmetabók Guinnes sem þetta stóð Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Tillaga Sivjar í TIME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tregara en tárum taki"

Mér finnst það tregara en tárum taki að við íslendngar skulum ekki eiga sjálfir skip undir íslensku fána til að sýna þetta fallega land okkar. Það væri nóg að gera fyrir svona skip (ekkert bílaferjuvesen bara skemmtiferða skip)

Sigla með útlendinga já og landsmenn á sumrum hér við land. Svo með íslendinga í Caribbean Sea á vetrum. Og það eru alger öfugmæli að vöntun íslenska fánans á skipum héðan útgerðum skuli bitna aðallega á sjómannastéttinni.

Sem framar öðrum stéttum lærði að virða og elska þennan heimsins fegursta þjófána. Hverjir sem það eru, sem stóðu í vegi fyrir að hann héldi áfram að blakta í skutum skipa gerðum héðan út, mega hreinlegs skammast sín inn að beini. Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Farþegum fjölgar með skemmtiferðaskipum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gát að vera í fyrirrúmi."

Í þessu máli verður gát að vera í fyrirrúmi. Vitaskuld er það geðveiki, morð og hreinlega virðingaleysi fyrir lífi að gera svona. En það verður á líta á hvaðan fólkið kemur. Þetta fólk hefur upplifað miklu harðari heim en við þekkjum. Hér hefur eitthvað "klikkað" í móttöku þess.

Það þyrfti að athuga niður í kjölin. Ég hef stundum bent á fáfræði íslendinga hvað varðar líf og kjör annara þjóða. Það vill svo til að ég var sjómaður í farmennsku í ófá ár. Og við sjáum oft raunveruleikan berari augum en ferða eða námsmaðurinn. Því fátækrahverfin eru alltaf upp af hafnarhverfunum. Ég hef séð með eigin augum stóra rottu togast á um eitthvað við smábarn á öskhaug í Indlandi.

Ég sigldi oft upp Mekong fljótið til Saigon í Víetnam. Það kom fyrir að við sáum barnslík á floti á fljótinu. Þegar maður spurði hafnsögumennina svöruðu þeir að "bátafólkið" sem lifði á fljótinu væri svo bláfátæk að stúlkubörn væru oft óvelkomnar í þenna heim og væri þeim þá bara fleygt í fljótið við fæðingu.

Ekki veit ég neitt um þessa vesalings Litháa sem lentu í þessu hér núna en eitthvað hefur farist fyrir í að taka á móti þeim og kynna þeim að svona geri maður allekki á íslandi þó svo barnið sé óvelkomið í þennan heim. Sem þrátt fyrir allt er með bestu heimum í alheimi Þ.e.a.s sá íslenski Hlúið vel að þessari aumnga konu Setið hana ekki í fangelsi. Kært kvödd


mbl.is Gæsluvarðhald og geðrannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Cat Ballou "

Ég vona að hestamenn og aðrir ekki síst Húsvíkingar fyrirgefi mér. En þegar ég sá þessa mynd datt mér í hug kvikmyndin Cat Ballou með hinum gleymanlega Lee Marvin í aðalhlutverki. Kært kvödd
mbl.is Himinblíða á Húsavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þessi listamaður"

Það hættu margir hreinlega að kaups Moggan þegar þessi listamaður var látin hætta þar. Þegar ég var í siglingunum var ég með hálfa áskrift að Mogganum Og blaðið var sent á útgerðuna sem svo sendi mér það í næstu höfn. Mikið höfðu danirnir gaman af teikningum Sigmunds.

 

Ég tala nú ekki um ef ég gat útskýrt tilefnið. Sigmund er einn af þessum alþýðulistamönnum sem við þessir sauðsvörtu hér niðri á jörðinni kunnum að meta. Og svo að þessari hátíð sem nú stendur yfir. Hér er að vísu hálfleiðinlegt veður en mikið af fólki í bænum er ég keyrði um hann áðan. Ekki gat ég séð vín eða neitt þvíumlíkt á einum einasta manni.

 

Ég get seint hætt að  lofa sjálfan mig fyrir að hafa haft rænu og vit á að flytja hingað eftir fimmtán ára sjálfskipaða útlegð. Hér er fagurt mannlíf og hér sér maður hlutina gerast. Og Vestmanneyingar eru upp til hópa frábært fólk. Mér datt í hug um daginn að gerast áskrifandi að bæjarblaðinu hér. Það var nú lítið mál. "Ertu búinn að fá blaðið sem kom í gær" var spurt

 

 

Nei svaraði ég. Ég "skutla" einu til þín á eftir var þá sagt Og blaðið á hurðarhúninum þegar ég kom heim . Þurfti ekki einusinni að opna póstkassan. Og í þessu síðasta blaði Frétta las ég þá fallegustu minningargrein um mann sem ég hef lesið. Já í Vestmannaeyjum er gott að búa og fagurt mannlíf. Kært kvödd


mbl.is Fjölmenni á goslokahátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"til hamingu"

Ég vil óska Eimskip til hamingu með þetta nýja skip í flotan. Um leið og maður óskar skipinu velfarnaðar á þessari mjög svo erfiðu siglingaleið Kært kvödd
mbl.is Nýtt skip í flota Eimskips
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ljóta hringavitleysan"

Þetta er nú að verða ljóta hringavitleysan. Þetta er að vera þvílikt rugl að ég, einn af þessum heimsku sauðsvörtu komin yfir sjötugt er steinhættur að"botna" það og man eiginlega ekki eftir öðru eins. Kært kvödd
mbl.is Bensínverð hækkar um 4 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"alveg út í hött"

Mér finnst þetta eins og flest sem sú tæra gerir alveg út í hött. Margur tekjuhár maðurinn hefur varla ofan í sig eða á vegna afborgana af lánum.

 

Verst fara sennilega þeir heiðarlegustu út úr svona fíflagangi.  Þetta er í svipuðum dúr og útreikningar Steingíms á bensínverðinu. Raunveruleikanum sleppt. Hvernig væri nú að afkomu tenga tannlækningarþ Tekjutengin er oft á tíðum bull og segir bara hálfa söguna. Kært kvödd 


mbl.is 1.000 börn fá endurgjaldslausar tannlækningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"til mikils sóma"

Þetta var Eimskipafélagi Íslands tl mikils sóma. Þarna fórust menn sem voru sendir eftir nauðsynjum. Ég held að hlutur farmanna hafi oft verið fyrir borð borinn í orðsins fyllstu merkingu.

 

Oft kallaðir "skiifstofusjómenn" "tuskubellir". og fleiri uppnefnum. En hvernig hefði þjóðinni reitt af án Farmanna. Þeir voru jafnvel meir í eldlínunni á stríðsárunum en fiskimenn. Sem ég þó, ætla alls ekki að gera lítið úr.

 

 

Athafnir eins og þessi í dag mættu vera feiri. Þjóðin má aldrei gleyma þeim mönum sem settu líf sitt að veði svo þessi þjóð gæti lifað á þessu út útnáraskeri sem við elskum þó öll. Landið okkar ÍSLAND 

Ég vil aftur vekja athygli á bloggi mínu á 123.is

http://fragtskip.123.is/

"Skrolla" aðein niður og þá kemur færsla um ES Heklu Kært kvödd


mbl.is Minnast þeirra sem fórust með Heklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 537732

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband