"ljóta hringavitleysan"

Þetta er nú að verða ljóta hringavitleysan. Þetta er að vera þvílikt rugl að ég, einn af þessum heimsku sauðsvörtu komin yfir sjötugt er steinhættur að"botna" það og man eiginlega ekki eftir öðru eins. Kært kvödd
mbl.is Bensínverð hækkar um 4 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Svo viðrist eins og hækkanir komi oft rétt fyrir mánaðarmót þegar fólk fær útborgað og fyllir á tankinn. Skemmtilegar tilviljanir.

Tómas Waagfjörð, 30.6.2011 kl. 19:23

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll Tómas og ég þakka innlitið. Ja þú segir nokk. Þetta var áhugaverður puntur hjá þér. Sértu ávallt kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 30.6.2011 kl. 19:43

3 identicon

Það er líka stundum eins og þeir hækki fyrir helgar. Þessi hækkun kom á fimmtudegi, helgin að byrja. N1 alla vega lækkaði sitt ekki fyrr en á sunnudeginum síðasta. Helgin búin. Eg er svo sammála þér Ólafur. Maður er steinhættur að botna í þessu.

Katrín Klemenzardóttir (IP-tala skráð) 1.7.2011 kl. 00:55

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hefur eldsneytisverð ekki verið að LÆKKA á heimsmarkaði undanfarið???????????????

Jóhann Elíasson, 1.7.2011 kl. 07:02

5 Smámynd: Sandy

Góðan daginn! Jú ég var að lesa um lækkun á bensíni, en ég er eins og fleiri alveg hætt að botna í þessu rugli með bensínið.

Það er nokkuð til í þessu hjá þér Tómas! Ég þekki einstakling sem skiptir bara við Atlandsolíu og hann hafði orð á því um daginn að það væru ávallt góð lækkun á bensíni svona viku fyrir mánaðarmót og bölvaði mikið, því þá væri hann alltaf orðinn auralítill og gæti ekki nýtt sér þessi tilboð. Er það ekki rétt munað hjá mér að þegar Atlandsolía var stofnuð var það gert til að mæta þessu ósvífna okurverði hjá hinum olíufélögunum?

Sandy, 1.7.2011 kl. 08:35

6 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Nei, Hráolían hefur verið að hækka uppá síðkastið til að ná jafnvægi eftir að mörg ríki settu varabirgðir á markað fyrir ca. viku síðan (þegar verðið féll). Ég var allavega búinn að búast við því að olíufélögin myndu hækka bensínlítran til jafnvægis í dag eða á morgun,  hráolían hefur hækkað um ~5kr á lítrann frá því fyrir viku og ég efast um að sú hækkun eigi eftir að stoppa fyrr en eftir 2-3 vikur þegar það er búið að hækka um 3-6kr til viðbótar og náð markaðsjafnvægi.  Svo ef eitthvað þá eru olíufélögin of sein að hækka núna,  og hækka ekki nógu mikið

Jóhannes H. Laxdal, 1.7.2011 kl. 10:40

7 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Þú ert ungur enn... Rétt örfáum árum eldri en Forsætisráðherfan með þurrskreytinguna.

Óskar Guðmundsson, 1.7.2011 kl. 11:53

8 identicon

þetta er svona inn út inn út inn út inn út .... alveg eins og þegar maður er tekinn í r-gatið. Þjóðin er tekin í r-gatið á hverjum degi hjá olíufélögunum

Gunnar Hallberg (IP-tala skráð) 1.7.2011 kl. 14:59

9 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl öllsömul og ég þakka innlitið Ég hvet ykkur til að "kíkja" inn hjá Jóhannesii Laxdal hér að framan. Verið öll kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 2.7.2011 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband