Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
16.9.2009 | 12:49
Til einhvers ???
Ég skil vel hina miklu reiði í fólki. En er þetta bara ekki rögn aðferð ? Lendir þetta bara ekki á þeim sem síst skildi. Það kostar kannske stóra peninga að þrífa þetta. Og hvað þá með tryggingarnar. Verða þær ekki látnar borga brúsann.
Og svo verða tryggingarnar bara hækkaðar á fólki almennt. Þessir menn sem þetta á að bitna á er alveg ands...... sama. Þetta verður bara þrifið eins og allur annar skítur frá þessum gæjum og almenningur borgar. Þannig er nú það. Kært kvödd
![]() |
Nágrönnum auðmanna líður illa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.9.2009 | 23:07
Skipstjórn og vodka
"Ja þér ferst flekkur að gelta" segir kannske einhver sem þekkir mína fortíð og byrjar lestur á þessu bloggi. En mig langar til að taka fyrir áfengisneyslu og skipstjórn, Og kannske út af þessum ummælum Rússlandsforseta. En rússar hafa alltaf verið frægir fyrir vodkadrykku Þeir hafa búið við einræði í margar aldir. Og maður breytir ekki svona þjóðfélagi á einni nóttu í des 1991.
Og eftir minni reynslu en ég hef komið nokkuð oft í rússneskar hafnir bæði fyrir og eftir 1991, finnst mér drykkjuskapurinn alltaf vera að aukast. En ég tek fram að þetta er bara mitt prívat álit. Og ég vil líka taka það skýrt fram að maður getur ekki dæmt heila þjóð eftir nokkrum slæmum einstaklingum. Einhver besti vélstjóri sem ég hef siglt með var rússi. Og hann bragðaði ekki vín
Og ég veit af nokkrum einstaklingum hér í Eyjum sem eru sjálfum sér og landi sínu til mikils sóma. Nú í sambandi við áfengisdrykkju og stjórn skipa þá hef ég setið begga vegna borðsins,ef svo mætti segja .
Petrozavodsk Fyrir nokkru,eða í maí sl strandaði flutningaskipið Petrozavodsk við Bjarnareyjar. Mannbjörg varð en bæði skipstjóri og stýrimaður voru síðan sakaðir um að hafa verið drukknir. Skipstjórinn mældist með 1.3 próm en stm með 0.3 próm. En hann (stýrimaðurinn) var einnig sakaður um að hafa verið sofandi þegar slysið varð.
Petrozavodskslysið Skipið kom oft hingað til Eyja. Ég tók einusinni af því mynd en finn hana ekki nú. En myndir frá slysinu og skipinu fyrir slysið (Shipspotter)eru af netinu.
Þarna var Bakkus einnig við stýrið.Við sem erum eldri en tvævetur munum tímana tvenna í þessum málum. Vera drukkin er stórhættulegt en var stundað það vitum við. En til að finna smáafsökun sem er eiginlega ekki sæmandi að orða svo. Þá mætti kannske segja (orðið dálítið langsótt) að tímarnir voru aðrir.
Yfirleitt 2-3 stýrimenn með vaktfrían skipstjóra. Og ég get hreinlega tekið undir með ónefndum alþingismanni sem ekki taldi sig drukkinn þótt hann væri það satt að segja. Ég drakk um tíma vodka og taldi mér trú um að enginn fyndi af mér vínlykt. Svona er afneitunin á sjálfan sig drukkin mikil. En nóg um það en vodkadrykkja á Rússum í siglingum er velþekkt. Og því miður fengið hörmulegar afleiðingar. En það er ábyggilega mjög erfitt verkefni fyrir Dmitrí Medvedev og Putin að ná tökum á ölum þessum smákóngum sem höfðu hreiðrað um sig á öllum sviðum þjóðlífsins bæði til sjós og lands. Kært kvödd
![]() |
Rússlandsforseti segir spillta embættismenn stjórna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.9.2009 | 01:13
Annað skipsrán???
Nú spyr maður verður öðru "timburskipi" rænt bráðlega ? Ekki geri ég ráð fyrir að CIA frekar en Mossad láti það viðgangast að "óvinurinn" fái rússnesk flugskeyti. Kært kvödd
![]() |
,,Af hverju ekki skriðdreka?" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2009 | 01:04
Hvað með ... ???
![]() |
Dorrit meðal litríkustu maka þjóðarleiðtoga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2009 | 00:54
Feill,sárasaklaus feill
Það eigilega með endemum hvernig þetta fólk haga sér. Og hvað þeir bera á borð fyrir okkur sauðsvartan(í þeirra augum) almúgan
Heldur þetta fólk að það sé tómur hafragrautur á milli eyrnana á okkur. það er alveg forkastanlegt hvað við hérna niður á jörðinni verðum að þola af þessu liði. Og það má eiginlega líkja þessu við einelti. Maður er aldrei látinn í friði.
Á manni dynur svo ótrúleg lygaþvæla sem bullast út úr kjaf..... á þessu liði. Það kemur svo brosandi framfyrir alþjóð og þykist alsaklaust sama hvaða andsk..... gloríur það hefu gert.
Þó það stæði með rjúkandi skammbyssu yfir líki af nýskotum manni myndu það halda sakleysi sínu af fullum krafti. Nú ef einhverjum dettur í hug að renga það er bara að fá sér "stjörnulögfræðing" Kært kvödd
![]() |
Tilgangurinn ekki að höndla með krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2009 | 23:29
Réttlæti í pípunum???





















![]() |
Efla þarf dómstólana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.9.2009 kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.9.2009 | 21:53
Beluga shipping
Þýska skipafélagið Beluga shipping er að mörgu leiti athyglivert skipafélag. Nú hafa 2 skip frá félaginu farið hina fægu NA-leið. Það eru skipin Beluga Fraternity og Beluga Foresight
Skipin voru aðstoðuð af
50 Let Pobedy. Kjarnorkuknúða ísbrjótnum 50 Let Pobedy (Sigur fyrir 50 árum)
Leiðin Mér finnst satt að segja umræðan um þessi mál hálf undarleg. Menn eru að hafa áhyggur af olíumengun ef illa fer með skip en hafa engar áhyggur af því hvernig fer með geislavirkni ef illa fer með ísbrjóta rússa.
50 Let Pobedy Jæja ég hef ekkert vit á hvernig þessum kjarnoruútbúnaði er háttað um borð í svona skipum og best að halda kja...
.Frá ferðinni En það er áhugavert hvað þetta útgerðarfélag er óhrætt með nýungar Hér eru nokkrar myndir af skipum þeirra í hinum ýmsu erindum og tilraunum.
Síðasta myndin er af einu af 1stu skipum félagsins. Læt þetta duga af grúski mínu um Beluga Shipping. Myndirnar fengnar hingað og þangað á "Netinu" flestar af Shippotting. Kært kvödd
![]() |
Söguleg ferð um Norðausturleið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.9.2009 kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.9.2009 | 01:38
Sýður á fólki !!!!
Það er alveg með endemum hvernig þetta fégráðuga fólk hefur hagað sér, Svo rífur það bara kja.. og þykist sára saklaust. Það sem mér finnst svívirðilegast í þessum málum er hvernig þessi lýður kemur í fjölmiðla og hreinlega lýgur upp í opið geðið á hinum almenna borgara.
Þetta lið sem stjórnar öllum þessum málum er gegnsýrt af áralangri spillingu í bönkum í lífeyrissjóðum og verkalýðsfélögum. Þessi lýður hreinlega sleikir rass,,,,, hvert á öðru. Að verkalýðshreifinginn skuli vera á móti versta óvini þess fólks nú berst fyrir sínu verðtryggingunni er með algerum endemum.
Og djöf... sukkið ofurlaunin og svínaríið í lífeyrissjóðunum er sólkerfismet.. Og það hreinlega sýður á fólki. Ég er minnugur þess er agentinn í Beirut sagði við mig fyrir 20 árum rúmum. Verið ekki úti á dekki í hvítum skyrtum þegar fer að skyggja, Þá verðiði svo auðveld skotmörk Sumir ættu kannske að hafa þetta í huga. Læt þetta duga í bili .Kveð ykkur kært
![]() |
Eiginkona sparisjóðsstjóra seldi stofnfjárbréfin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.9.2009 | 23:24
---------frelsi
Það er með ólíkindum hvað maður getur mislesið þegar maður verður að spara við sig gleraugnakaup. Hjarta mitt tók kipp áðan þegar ég með vitlausum gleraugu las inn á Mogganum: "Fylltu á pun.... fyrir 1490 kr". þarna var eitthvað fyrir blöðruhálskirtilslausan mannin.
Ég skifti með skjálfandi höndum í snatri yfir í sparigleraugun en þá blasti við mér orðið" pungfrelsi ".Þá fór mig að gruna að ekki væri allt með felldu. Enda vissi ég ekki til að menn misstu frelsið yfir þeim hluta líkamans. Allavega ekki að ástæðulausu.
Vissi náttúrlega um að menn yrðu fyrir skerðingu á því eins og .......Já ég fer ekki lengra út í þá sálma. En þarna var þá bara allt í plati frá Björgúlfi Thor eða þannig. Og hann getur mín vegna haft "frjálsar" hendur um eins marga punga og hann vill. Ekki á ég þannig pung sem fylla má á. Og kemur því þetta ekkert við.
Og nú er þessi fja..... pungauglýsing komin inn á síðuna mína. En mikið djöf.... væri gaman ef einhver finndi upp áfyllingar á venjulega pu.... Já ég fer ekki lengra út í það mál. En kveð ykkur kært
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.9.2009 | 19:36
Hnattsigling
Tilraun ungrar stúlku Jessica Watson 16 ára til að vera yngsta mannenskja til að sigla kring um hnötinn fékk óvænta seinkun í nótt þegar kínverska bulkskipið Silver Yang sigldi á skútu hennar;"Ella's Pink Lad", http://www.youngestround.com/ Heimasíða Watson. Jessica Watson um borð í skútu sinni. Kínverska skipið hélt ferð sinni áfram eftir að hafa haft samband við Watson eftir áreksturinn.Watson tókst að setja í gang vél skútunnar eftir atburðinn sem varð kl 0230 um 15 mílur austan við Point Lookout á Norður Stradbroke Island, út af af Queensland ströndinni og komst til hafnar
Jessica Watson um borð í skútu sinni eftir áreksturinn Watson hafði yfirgefið Mooloolaba nálægt Brisbane í gær til að sigla til Sydney um Lord Howe Island. En í Mooloolaba hafði Watson, stundað æfingar undanfarna 10 daga,
Silver Yang Skútan skemmdist á bol og reiða en Jessica gerir ráð fyrir að halda ferð sinni áfram eftir viðgerð.
Eftir áreksturinn. The Australian Transport Safety Bureau mun hafa haft samband við kínverska skipið og fengið þátt skipsins í slysinu staðfest.
Hin unga ævintýrakona Skipið er á leið til Kína með farm sinn. þar mun sjóréttur verða haldinn enda skipið skráð þar með Hong Kong sem heimahöfn.
Risar á hafinu og litlar fleytur Ég hef nú ýmislegt við þetta að athuga. Hvar eru foreldrar stúlkunnar ? eða barnaverndaryfirvöld ? Hvar eru siglingaryfirvöld ? Leyfa þau þetta ? Hver leyfir kornungri stúlku að "þvælast"aleinni um heimshöfin.
Risar á hafinu. Einfarar á höfunum eru oft stórhættulegir,
Oft og iðulega komst maður í kast við fleytur sem engan rétt virtu og enginn sást um borð. Ég gæti verið í allt kvöld að rifja upp sögur af slíku. Risarnir á úthöfunum eru margir, Og sjónhæðin í brúm þeirra há. Litla fleytu getur verið vont að sjá. Þetta mætti taka fastari tökum. En ég læt þetta duga í bili. Kært kvödd
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 8
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 537765
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar