Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Lygamerðir

Þessir ráðherrar hvers lands þeir eru, víla það ekki fyrir sér að koma í fjölmiðla og ljúga upp í opið geðið á löndum sínum , Hvað sagði ég um dagin:  http://www.solir.blog.is/blog/solir/entry/940171/#comments  Þeir ljúga meðan volgt er í þeim hlandið. Íslenskir ráðherrar eru ekki hótinu betri en annara landa,hvað þetta snertir. Að þeirra dómi mega engir aðrir ljúga opinberlega. Kært kvödd
mbl.is Brown kúventi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantaði sápu???

Án þess að vera með neina kynþáttafordóma. Vantaði bara ekki sápu á þessum tíma ???.
mbl.is Hvíti maðurinn aðeins 5.500 ára gamall?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörundsár

Ekki ætla ég mér að mæla nafnleysingum á netinu bót. Og ætla mér ekki að blanda mér í þetta mál Björgvins nema að litlu leiti.

Mér finnst satt að sega þessir menn sem bjóða sig fram til þjónustu við fólkið( með misjöfnum árangri )verða að vera menn til að takast á við"svínaríið" sem því fylgir. Aðrir þingmenn (að vísu undir nafn) mega oftast dengja yfir þá alslags ósóma og skætingi.

 

 

Svo eru menn í okkar þjónustu (sem oftast gleyma því) að kalla menn "atvinnurógbera" bara af því að sá síðarnefndi samsamaði hinn við annan elsta stjórnmálaflokk landsins. Hverskonar andsk..... stærilæti er í svona mönnum. Sem í skrifum hafa oft látið menn fá það óþvegið.

 

Er það ekki enn komið inn í hausinn á fg þingmanni að það var almenningur nei kannske ekki hinn sauðsvarti heldur frekar einhverjir svokallaðir menntamenn sem kusu hann í vinnu fyrir okkur. Svo er það sem svokallaðir ráðamenn láta út úr sér og ætlast til að almenningur trúi. Og þar gruna ég þennan fv ráðherra um græsku.

 

 

Að hann hafi staðið andspænis þjóðinni á þeim tíma sem hún (þjóðin) virkilega þurfti á sannleikanum að halda og hreinlega logið upp í opið geðið á henni. Þá var ekki verið að hugsa um NN á netinu. þessir menn leyfa sér að koma ljúgandi í fjölmiðla og skirrast oft ekki við  að ljúga sama hlutnum ekki 2svar ekki 3svar heldur oft og mörgum sinnum.

 

Ef almenningur væri eins andsk... lýginn og margir af þessum mönnum þá þyrfir að nota alla Aðalvíkina sem fangelsi og bjóða út stóra byggingu þar til að hýsa allslags glæpalýð. En sem betur fer er íslenskur almenningur yfir höfuð heiðarlegur. Það er meira en hægt er að segja um, já ekki meir um það. Kært kvödd


mbl.is Björgvin G.: „Ný vídd í nafnlausu níði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferjuslys

það má enginn taka það þannig að að ég njóti þess að"velta"mér uppúr slysum hvað sjó eða vötn varðar. Ég vil bara með þessum færslum benda á að þeir sem leggja leið sína um vötn og sjói fari að öllu með gát.

Athugi sinn gang. Og þeir sem noti fg leiðir hvort sem um atvinnu eða ferðalög að ræða, gæti vel að öllum öryggismálum.

 

 

Í slysinu á Ohridvatni í Magedóníu var farþegabáturinn ofhlaðinn. Fréttum af því slysi ber ekki saman. En eftir þeim heimildum sem ég las voru,72 um borð. En báturinn hafði leyfi fyrir 43 farþega.Þar eru sagðir 22 látnir.

sf9 Supeferry 9sf94 Supeferry 9

En í öðrum heimildum er talað um 15 farþega látna.Þarna gæti verið um að tala skipverja og farþega 15 farþega og þá 7 úr áhöfn. En að þessu ferjuslysi á Philipseyjum. Hér eru myndir frá því http://gblsharing.app.aol.com/pop-up/ eða hérna http://news.aol.com/article/superferry-9-ferry-sinks-in-philippines/657659?feed=1.

 sf96 Supeferry 9

Það er eins gott að fólk sem er á ferðalagi í þeim löndum sem lítið  er farið eftir öryggisreglum kynni sér nokkra hluti áður en farið er um borð í farartæki sem eru notuð á sjá og vötnum. T.d hvað viðkomandi farartæki megi flytja marga farþega.

Því fégræðgin virðir engin lög eða landamæri. Það finnum við íslendingar á eigin skinni nú um stundir. Læt þetta duga í bili


mbl.is Ferja sökk með yfir 960 farþega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatnaslys

Það er með ólíkindum að 72 manns skuli vera hleypt um borð í þessa fleytu sem eftir reglugerðum mátti aðeins taka 43.En eftir Emportal  Júgóslavnesku fréttastofunni voru 72 manns um borðILINDEN Ilinden en svo hét báturinn var með 72 farþega Ship+Photo+ILINDEN þegar honum hvolfti og hann sökk á Ohridvatni í suðvesturhluta Makedóníu í morgun.22 ferðamenn létu lífið 50 björguðust þar af 5  særðir.

Ilinden hafði mætt hraðbát á mikilli siglingu þegar slysið varð. Ilinden var byggður 1924 í Regensburg Þýskalandi. Farþegarnir sem voru eldri borgarar voru frá smábæ hjá Pirdop Zlatitsa austur af Sofia höfuðborgar Búlgaríu. MACEDONIA BOAT SINK 246572cÞað er með endemum hvernig sumar þjóðir eru blindar á margar reglur hvað varðar mannslíf.MACEDONIA BOAT SINK 246573c Ilinden sokkin Og hvernig fégræðgin virðir engin landamæri Kært kvödd


mbl.is Farþegabátur sökk í Makedóníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíkniefni

Ég þvældist svolítið um Caribbean Sea fyrir nokkrum árum. Kom þá nokkrum sinnum til lítillar hafnarborgar sem heitir Cap Haitien á Haiti.

 

Þar lágu alltaf nokkrir svokallaðir Coasterar. Gömul dönsk og þýskættuð skip ef svo mætti að orði komast. Þessi skip litu virkilega vel út við fyrstu sýn. Svona í hæfilegri fjarlægð. En svo er maður kom nær sá maður að málað hafði verið yfir ryðið og skítinn.

 

Það sem vakti furðu, var að stundum virtust þetta vera sömu skipin og höfðu verið áður í höfnini þegar við vorum þar á ferð  en nú með breyttum  nöfnum og lit .

 

Ég spurði agentinn um þetta og sagði hann mér þá að skipin hyrfu nokkurn tíma en kæmu svo aftur. Þá væru þau máluð með nýjum litum, nafni og heimahöfn breitt.

 

"Svo geturðu notað ímyndunaraflið um  hvað þau væri notuð í" sagði hann. Það eru miklir peningar í eiturlyfjum. Skjótfenginn gróði ef vel til tekst.

 

Þetta leiðir hugan að sumu hér heima. Við höfum séð fégræðgina í sinni verstu mynd hér. Og út frá því er ég alveg viss um að hér er alltaf verið að" skjóta sendilinn "

Ég er viss um (og það eru engin áhrif af amerískum hasarmyndum) að einhverjir mjög áhrifamiklir menn hér standa að baki þessara" strámanna"

 

Maður þarf ekki að hafa mikið hugmyndaflug þegar ég segi að stundum sé 1 fórnað svo að aðrir sleppi í gegn. Athygli tollvarðanna beinist að einum og kannske 2 sleppa í gegn.

 

Stundum sleppa kannske allir. Án þess að vera að saka nokkurn um nokkuð  þá hefur mér alltaf þótt áherslan sem lögð var á að koma ötulusta smyglarabananum frá, nokkuð athygliverð

 

Ég hef litla trú á að þeir menn sem nú sitja í fangelsi séu aðalmenn í þessum málum hér. Þeir kannske skipuleggja þetta en þá fyrir góða greiðslu. Ég held að fégræðgin virði engin landamæri. Kært kvödd


mbl.is Fundu tæplega hálft tonn af heróíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lærin

Ég er ekki alveg samála þessu. Ég er viss um að það hefur verið margri konunni hættuminna að vera með mjó læri !!!! Ég held að flestir karlmenn skilji hvað ég meina. Kært kvödd
mbl.is Hættulegt að vera með mjó læri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læsir

Mér finnst það með  endemum hvernig bandaríkjamenn hafa hagað sér gagnvart Kúbu. Þetta andsk..... viðskiftabann þeirra hefur verið í öfugu hlutfalli við áætluð áhrif.  Það hefur bara kallað meiri fátækt yfir Kúbumenn en nokkur þörf var á.

 

Ég hef komið þangað nokkrum sinnum og líkaði það vel.  Maður var"drulluhræddur" í fyrstu að þeir væru með einhverja"stæla" eins og maður varð var við t.d. í A - Þýskalandi á "kalda"stríðsárunum. En það var öðru nær. Virkilega elskulegt fólk í allastaði.

 

 

Og Það má gamli Castró eiga þrátt fyrir allt að öll börn eru þar læs en það er annað en hægt er að segja um eyjarnar í kring sem margar hverjar voru undir "vernd" USA.  Kært kvödd


mbl.is Mega ferðast til Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og Ísland 2020 ???

Litháar líta til ársins  2013 - 2015 með Evruna. En Ísland 2020 ??  Eða kannske seinna ??

 

Samt held ég að ef vel verði haldið á málum hér þá vinni við okkur fyrr út úr okkar vandræðum. Þar held ég að lengd sjálfstæðis spili stórt hlutverk.  

Þeir lifðu í þjóðfélagi sem allt var á vegum ríkisins. Og verkamenn unnu kannske slæglega vegna þess. Og voru kannske félagar í allslags andspyrnuhreifingunm á móti þjóðfélagsskipuninni. Þessu er ekki breitt á einni nóttu þótt land fái sjálfstæði.

 

En við lifðum svona nokkurnveginn sjálfstæðir og við þessir eldri munum örlög "bæjarútgerða" t.d. En svo misstum við fótfestunnar í frjálshygguruglinu. þegar örfáir menn fengu fjöreggið til að leika sér með. 

En við eigum duglega verka og sjómenn sem munu reisa þetta þjófélag aftur og enn á lappirnar.  Ég er trúaður á það.  Við sjáum í dag að sjómaðurinn er t.d að komast aftur í tísku.  Kært kvödd


mbl.is Litháen taki upp evru um miðjan næsta áratug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært !!!

Maður getur ekki annað en tekið ofan fyrir þessari konu.  Sem sigraði heiminn með hjartanu, þó svo að hún hefði allt á móti sér  Dæmigerð hversdagshetja.  Sem lítið fer fyrir nú um stundir á tímum gevifegurðar.  Kært kvödd
mbl.is Susan Boyle slær í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband