Til einhvers ???

Ég skil vel hina miklu reiði í fólki. En er þetta bara ekki rögn aðferð ? Lendir þetta bara ekki á þeim sem síst skildi. Það kostar kannske stóra peninga að þrífa þetta. Og hvað þá með tryggingarnar. Verða þær ekki látnar borga brúsann.

 

Og svo verða tryggingarnar bara hækkaðar á fólki almennt. Þessir menn sem þetta  á að bitna á er alveg ands...... sama. Þetta verður bara þrifið eins og allur annar skítur frá þessum gæjum og almenningur borgar. Þannig er nú það. Kært kvödd


mbl.is Nágrönnum auðmanna líður illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver er rétta aðferðin???

Ráða sérstakan saksóknara? Kannski fá Evu Joly til liðs með sér? Finna hvað þessir menn gerðu rangt skv. lögum? Fá Joseph Stiglitz til að halda fyrirlestur í HÍ? Setja málið í nefnd? Finna kannski 3-4 blóraböggla sem verða sektaðir um nokkrar milljónir á meðan 100 aðrir kapítalistar hlada áfram að arðræna og skemma?

Ég veit ekki, en einhvernvegin grunar mér að hryðjuverk gegn kapítalistunum sé betri leið til að drepa kapítalismann en að fara eftir því kerfi sem kapítalistarnir bjuggu til til að verja sjálfa sig

Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 13:13

2 identicon

Sammála Rúnari.

Og varðandi kostnaðinn þá er það bara djók. Jú tryggingarnar þurfa að borga en hver á tryggingafélögin.... þessir menn!!! Ætli þeir þurfi að hækka tryggingar út af einhverjum málningarslettum? Ég efast um það.

Á móti mætti segja að þetta væri atvinnuskapandi og veitir ekki af að láta fólk þrífa þetta í því mikla atvinnuleysi sem nú ríkir. Þá fá þeir sem þrífa pening sem þeir geta þá eytt í mat eða föt eða raftæki og allt endar þetta aftur í vösunum á þessum aumingjum sem eru búnir að koma landinu í þrot. Þeim er enginn vorkunn og ég styð "málarana" 100%.

Diddi (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 13:19

3 identicon

Ættarnafn stúlkunnar sem síðast var rætt við í fréttinni hljómar kunnuglega, ekki satt? Stúlkan sú virkar frekar hrokafull á mig.

Óli Steina (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 13:29

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sælir félagar og ég þakka innlitið." Sínum augum lítur hver á silfrið" Þó ég sé ykkur ekki alveg sammála virði ég ykkar skoðanir, En mig langar að taka rvennt út. Diddi spyr hverjir eigi Tryggingarfélögin ? þessir menn sem um ræðir í þessu til felli eru búnir að missa sitt félag. Og hinir víla ekki fyrir sér að hækka tryggingarnar við hið minsta tilefni. Og atvinnan, það var talað um pólska og enska verkamenn. Sem sennilega er búið að flytja inn vegna sérþekkingar. Svo lítið ber ísleskur verkalýður úr býtum. vegna þessa  En við getum allavega verið sammála  um eitt ógeð á þeim mönnum sem komu okkur í þessar aðstæður sem við búum við í dag. Verið ávallt kært kvaddir

Ólafur Ragnarsson, 16.9.2009 kl. 13:57

5 Smámynd: Tinna Schram

Óli...

Hrokafull?

Hvað meinaru?

Tinna Schram, 18.9.2009 kl. 01:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 535039

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband