Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

AGS fjárlög

Ég tek orð Þórs Sari trúanleg þegar hann segir hagfræðina bak við fjárlögin runnin undan rifjum AGS

 

 Þ.e.a.s. International Monetary Fund; skammstafað IMF. Hvernig í húla helv... getur staðið á því að vnstrimaðurinn sem gegnir stöðu ráðherra fjármála fer eftir hörðustu frjálshyggustefnu sem meira segja seðlabanki USA er búinn að kasta fyrir róða.

 

 

Maður getur skemmt sér við að hugsa um orðaleppana sem VG myndu viðhafa um fg sjóð ef þau væru í stjórnarandstöðu. Þá myndi ekki vanta stóru orðin. Og það stór að"vítavert" yrði að orði í sunnudagaskólapredikun gagnvart þeim. Kært kvödd.


mbl.is Líst illa á fjárlögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til góðs???

Mér líst í alla staði ílla á þessi skifti. Mér þótti frúin hávaðasöm í stjórnarandstöðu en svo lágmælt komin í stjórnarmeirihluta.

 

Og eða afskifti hennar sem forseti alþingis á málflutningi eins stjórnaranstöðuþingmanns vegna orðsins"vítavert". Þar fannst mér manneskja sem hafði uppi stór orð um starf lögreglumanna við þá sjálfa á göngum alþingis ekki vera sjálfri sér samkvæm.

 

Mér finnst sumt af þessu"liði"taka sig of hátíðlega þegar kastljósum fjölmiðlanna er beint að þeim.  Og  sumt af þessu liði (þar í fg frú) rífur kja.. upp á háa C-inu í stjórnarandstöðu en móðgast svo ef þeirra manna störf eru gagnrýnd komnir í meirihluta.

 

Mér hefur satt að segja þótt frúin vanta allavega stundum, jarðteginguna. En ég tek ofan hattinn fyrir Ögmundi og Guðríði Lilju, Við höfum þá allavega 2 þingmenn sem hafa farið eftir sannfæringu sinni.  Kært kvödd


mbl.is Nýr ráðherra tók við lyklavöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

nú verðum við ......

Nú verðum við  þessi  með "breiðu bökin" þ.e.a.s.hinn almenni ellilífeyrisþegi.öryrkjar og þeir sem minna mega sín fara að biðja þá guði sem hver og einn  trúir á að hjálpa sér. Ekki verða aðrir til þess. Allavega ekki heilbrigðiskerfið eða almannatryggingarkerfið. Kært kvödd
mbl.is Rekstargjöld Landspítalans lækka um milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"rumpulýður"

Hverskonar andsk.... rumpulýður er þetta eiginlega???. Gengur um  rænandi og ruplandi. Gat ekki mannfja..... beðið fram að jólum  Þá hefði hann geta slegist í för með alvöru jólasveini. Vonandi tekur dómskerfið hart á svona málum.

Og ekki vantar prentsvertuna í fyrirsögninni, Svo að"fréttin" komist til skila. Og það  hefði nú  mátt tilgreina fæðingardag og ár. Hvurskonar fréttamennska er þetta eiginlega? Kært kvödd.


mbl.is Stal hangikjötslæri í verslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"á óvart"

Hvenær þóknast íslenskum stjórmálamanni að segja sannleikann í 1stu atrennu ??? kært kvödd
mbl.is Afsögn kom Jóhönnu á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg til !!!!!

Ætli þetta verði framtíðin. Að senda "trúðana" út í geimin. Við eigum nokkra sem væri gagn að losna sig við. Kært kvödd
mbl.is Trúður út í geim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær???

Hvenær skildi það ske að spiltir íslenskir stjórnmálamenn þurfi að standa skil á gerðum sínum og taka afleiðingum af þeim ???  Eða eigum við enga slíka og eða höfum við aldrei átt þá. ??? Ég bara spyr????.Kært kvödd


mbl.is Fujimori fær fleiri ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útrásar.......

Eru sumir að færa út kvíarnar??? Allt skipulagt í þaula. Vantaði meira klink, ??? Ég bara spyr. Kært kvödd
mbl.is Þrautþjálfaðir glæpamenn að verki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrt ævintýri

Hræddur er ég um að þarna hafi verið of dýrt að spara. Gerði enginn sér grein fyrir hæðinni á stórstreymsflóðinu??? Laxfoss Laxfoss Hvar eru nú allir fræðingarnir sem yfirleitt er ekki hægt að þverfóta fyrir. Það kæmi mér ekki á óvart að hinir virkilegu sérfræðingar þ.e.a.s. mennirnir um borð hefðu aldrei verðið spurðir út í þetta. Herðubreið Herðubreið.Hef persónulega reynslu af hvernig gengið var framhjá slíkum sérfræðingum en hinir hámenntuðu látnir ráða með miklum kosnaði. Herjólfur Herjólfur Ef þetta með hæðina hefði verið athugað hefði verið leikur einn að laða áætlun skipsins að aðstæðum Og komist hefði verið hjá að baka einhver vandræði sem skráð eru sem tafir.image 20 Herðubreið  Það er stundum ódýrara að leita ráða hjá mönnum sem hafa reynsluna úr sjálfu lífinu heldur en til þeirra sem hafa vit sitt úr  bókum. Hæfileg blanda af hvorutveggja er góð. Ég læt fylgja með myndir af skipum sem fluttu farþega til og frá Vestmannaeyjum.

Í auglýsingu um Laxfoss frá 1943 segir m.a:"M.S Laxfoss sem er hraðskreiðasti flóabáturinn, kemur yður í samband við fjölþættasta vegakerfi landsins" Ekki er mér fyllilega kunnugt um hvernig Vestmannaeyja ferðir Laxfoss voru uppbyggðar. En ég man að hann kom ekki í Borgarnes á mánudögum og fimmtudögum SkjaldbreiðSkaldbreið.Laxfoss átti sér skrautlega sögu sem ég segi kannske seinna.Breiðarnar svokölluðu voru lítil og nett farþega og flutningaskip byggð í Skotlandi 1947-48.

Herðubreið var smíðuð í George Brown & Co Ltd í  Greenock 1947, Yard nr 242.366 ts. 45.26 loa. 7.42 brd. Farþegafj: 12. Skipið var selt 1971 Norðurskipum (Bjössi Haralds og fl.) Sem svo selur skipið strax sama ár til Panama  Það fær nafnið Elenore I. Það var rifið í Arzew(Alsír) 13.5.78VIKING%20BLAZER Skaldbreið sem Viking Blazer Skjaldbreið var eins og Herðubreið að öllu leiti. Skipið var selt 1966 til Englands og fækk nafnið VIKING BLAZER,1969 MARIANTHI - 1970 ALEXANDROS V - 1980 FROSINI.Skipið var rifið í Grikklandi 1984. Skipin fóru yfirleitt 1/2 hring kring um landið Herðubreið A um og Skjaldbreið V-um .

 

Herjólfur I var byggður hjá Bodewes, G.& H. í Martenshoek Hollandi 1959. 490 ts Loa 49.25 m. Brd 9.02. m. Farþegafj: 64, Skipið var selt til Honduras.Það fékk nafnið Little Lill. Það var svo í flutningum í Caribbean Sea þar til það strandaði 1983 og ónýttist. Læt þetta duga í bili


mbl.is Ferjuferð seinkar frá Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slöngubit ???

Hélt að þetta væri forsaga fréttarinnar um kyrkislönguna í klóakinu,, En fjarðlægin er of mikil til að það sé rétt. Kært kvödd


mbl.is Berrassaðar löggur á hlaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 537759

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband