Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn er í dag. Dagurinn, sem íslenzku sjómennirnir hafa bundizt samtökum um að helga sér og halda hátíðlegan í því tilefni. Á þessum degi munu allir íslenzkir sjómenn, eða fulltrúar þeirra, mætast sameinaðir til að vekja þjóðina til meðvitundar um starfssvið sjómannanna og lífskjör þeirra og gildi í þjóðfélaginu. Ég geri Sjómannadeginum betri skil á vefsíðu minni. Til hamingu með daginn sjómenn!

 

http://fragtskip.123.is

 

Verið ávallt kært kvödd


"Ég ætla bara rétt að vona "

Ég ætla bara rétt að vona að presturinn sem er þekktur "bikemaður" sé ekki með sömu áletrun á sinni ljósrauðu hempu og gæinn sem sést í bakið á. Kært kvödd
mbl.is Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þessi kona er furðuleg."

Þessi kona er furðuleg. Virðist ekkert varða um lög eða reglur. Hún brýtur jafnréttislög Þingsköp já og allan andsk....  .Vælir svo og kennir öllum öðrum um þessar hörmungar sem við hérna niðri á jörðinni finnum svo vel.

 

Komið var með særðan sjómann um daginn til lands. Þegar sjúkraflutningsmennirnir ætluðu að gefa honum sprautu til að lina þjáningarnar við flutninginn spurðu þeir hann hvort hann væri með ofnæmi fyrir einhverju, svaraði hann:" jú fyrir Samfylkingunni og Vinstri Grænum"

 

Líkt þessu er viðhorf margra í þessu þjóðfélagi í dag Ég held að sagan eigi eftir að dæma Jóhönnu, ekki fyrir það sem hún sagði heldur hitt. Það sem hún sagði ekki Þegar öll kurl verða komin til grafar Kært kvödd


mbl.is Brotið gegn lögum án afleiðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hvernig á að skilja þessa frétt ?"

Hvernig á að skilja þessa frétt ?. Tókst bátur á loft og fauk á annan bát ?? Hún er stundum illskiljanleg blaðamennska nútímans. Kært kvödd
mbl.is Bátur fauk á annan bát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Enn og aftur"

Enn og aftur, enn og aftur minnir þyrlusveit LHGÍ á hve lífsnauðsynlegt er að halda henni í góðri þjálfun og tækjunun í góðu viðhaldi. Íslendigar geta verið stoltir af þessum mönnum sem skipa hana.

Og einnig af þeim mönnum sem leggja á sig mikla sjáfboðavinnu í björgunarsveitum landsins. Hve mikið megum við ekki vera þakklát þessum mönnum öllum. Sem alltaf leggja líf sitt og limi af mikilli fórnfýsi í hættu til að bjarga samborgurum sínum.

Og í leiðinn megum við þrátt fyrir allar hremmingar þakka fyrir hvað við eigu líka gott hjúkrunarfólk og lækna Kært kvödd


mbl.is Þyrlan á leið til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ja það var nefnilega það"

Ja það var nefnilega það Ekki voru það nú samt íslendingar almennt sem vöknuðu við þenna hræðilega atburð. Eins og fyrirsögnin gefur til kynna Manni finnst stundum fyrirsagnir ekki gefa blaðamönnum nútímans háa einkunn.

 

Og svo var það fjallið Rytur hvar í ósköpunum sem það nú er ( það veit ég hreinlega ekki) sem RUV talaði um í kvöldfréttum. Er íslenska ekki kennd lengur í framhaldsskólum? Kært kvödd


mbl.is Íslendingar vöknuðu við skjálftann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú er bara að vona "

Nú er bara að vona að allt fari vel þarna eins og í fyrra atvikinu sem hreyfði virkilega við manni í kvöld Kært kvödd
mbl.is Brýnt að komast að skipinu sem fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta er rós"

Þetta er rós í hnappagatið hjá Flugleiðum og sannar hve örugga flugmenn við eigum,íslendingar. Kært kvödd
mbl.is Farþegar aftur í loftið innan skamms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er með hreinum endemum"

Það er með hreinum endemum hvernig sú "tæra" heldur á málum öryrkja, sjúkra ,slasaðra ,eldri borgara og þeirra sem minna mega sín. Þegar nægir peningar virðast vera til í alslags svokölluð "menningarmálefni" Á nú t.d. að fara að byggja einhverja "tungumálahöll"

 

Mér er andsk..... sama þótt hún eigi að heita eftir vinsælum fv forseta. Hvar á að taka peningana fyrir henni.?? Og þetta fólk sem er að dunda sér við svör og andsvör í leikskólanum við Austurvöll er það búið að ráðstafa peningum í þetta.

 

Mér finnst satt að sega að það sem á að snúa upp snúi niður, hreinlega á öllum hlutum Og þessir svokölluðu ráðherrar ættu heldur að heita ráðleysisherrar."Kölski lá og las í skrá// lygasyndir manna.// Sagt er frá hann fyndi þá// flesta ráðherrranna" Þetta las ég einhverstaðar hér í den En það er alltaf að koma betur í ljós að það á að troða okkur ínn í EBE hvað sem það kostar

Það á að troða okkur inn í EBE

noah

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og svo á Seðlabanki þess að bjarga okkur Kært kvödd

 


mbl.is Biðlistar lengjast mikið á Grensás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Já og þeir kaupa það"

Já og þeir kaupa það hjá Ingimar í Vöruval. Þeir vilja ekki versla við þessar stóru keðjur. Ingimar er  Eyjamanna "kaupmaður á horninu" 

 

Hann er velmetinn hér í Eyjum og hugsar vel um sína viðskiftavini háa sem lága, sjáanlega og já eða þannig. Og ég er líka viss um að hann "skutlar" hunanginu í steininn til þeirra.

Satt að segja er langt síðan að ég hef heyrt íslenskan stjórnmála mann svara eins vel fyrir sig og Árna álfafóstra Johnsen í gær í viðtali við sjónvarpið. Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Álfunum þykir hunangið best
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Enn og aftur erum"

Enn og aftur erum við um það bil að vinna Evróvisjón. Enn og aftur eru  viðtökurnar þegar komið er út  þannig að allt  bendi  á sigur. 24 sinnum á síðustu 26 árum höfum við sem heima sitjum heyrt þennan söng.

 

Tvisvar eða þrisvar höfum við verið ofar en tíunda sæti. En alltaf fundu flytendur fyrir miklu uppstreymi á blaðamannafundum og þvílíku er út var komið. En í flest skifti brugðust þessi krosstré sem og önnur tré. Ekki hef ég mikið á móti þessari keppni þó ekki sé hún á "topp ten" listanum hjá mér hvað sjónvarpsefni varðar. En mér finnst þessi mötun fjölmiðla á efninu í okkur heima sitjandi vera orðið hundleiðinleg Kært kvödd


mbl.is Greta er glöð í Bakú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" Á hvað skildi þetta vita ??"

Á hvað skildi þetta vita ?? Maður spyr sjálfan sig hvenær hafa þessar þjóðir setið á friðarstóli. Þ.e.a.s gangvart hvor annari. Skildi þetta eitthvað breitast nú ??? Gæti þessi elding komið einhverju af stað ?? Svari nú hver fyrir sig. Bara svona til heimabrúgs. Kært kvödd
mbl.is Flugvél Hollandes varð fyrir eldingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Loks sýndu þau sitt rétta andlit."

Loks sýndu þau nsitt rétta andlit. Þetta fólk sem plataði hinn almenna borgara til að kjósa sig. Þó þau hafi lofað að berjast fyrir "skjaldborg" um heimilin.

 

 

Nú ætla þau að halda lífi í þeirri stjórn sem hvað mest hefur hert sultarólina hjá ílla stöddum þegnum þessa lands. Og það verður sama hvaða skrautfjöðrum þau ætla að prýða sig með, við næstu kosningar.Ég er hræddur um megnið af því fólki sem hefði kannske kosið þá flokka sem þau ætla í samstarf við hættir við það nú.

 

Það vll ekki svona auðséð "vændi". Þetta fólk svífst einskins ti að vera  inn á þessari "fíflafabrikku" Lætur einskis freistað til að lafa þar inni eins lengi og stætt er. En ekki að reyna að fá fólk þar inn sem vill gera eitthvað fyrir þessa hundeltu hópa lítilmangnans í þessu þjóðfélagi. Kært kvödd


mbl.is Munu verja ríkisstjórnina vantrausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta verður enn eitt dæmið "

Þetta verður enn eitt dæmið til að henda peningum út um gluggan. Hvað skildi þurfa að sneiða af bótum þeirra sem minna mega sín til að koma þessu í gang.

 

Og ef þetta andsk..... gullfiskaminni íslendinga skildi nú enn og aftur virka ættu þessir stjórnarflokkar að þurkast út í næstu kosningum. En XB og XD taka við Og sú stjórn sem þeir stofna lætur það verða sitt fyrsta verk að afnema þessi að þeirra mati vitlausu lög

Það er á hreinu. Það verður ekki sami grautur í sömu ská heldur vondur grautur í ennþá verri skál. Það verður verið að stofna smáflokka fram að kosningum svo það endar með að á þau dreyfast fylgi VG og Samfó. Þannig að kannske einn eða tveir ná inn gagnlausum stjórnarandstæðingum Það er dimmt og dapurt fram undan í íslenskum stjórnmálum nú  Kæret kvödd


mbl.is Umfangsmestu breytingar frá upphafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Dauðinn í Dumshafi"

Ég er aðeins byrjaður á bók Magnúsar Þórs "Dauðinn í Dumshafi". Maður þarf ekki að lesa lengi til að átta sig á hvílikt meistaraverk þessi bók er. Mér finnst það þrekvirki hjá honum að safna öllum þessum heimildum í eina bók.

 

Mér fannst bókin svolítið "fráhrindandi" í fyrstu vegna stærðar eða réttara sagt þunga. En nú er bókin komin út í handhægri kilju. Það er einfaldlega þannig að allir sem hafa áhuga á sögunni og þá sérstaklega  seinni heimstyrjöldinni ættu að lesa þessa bók.

 

Mér finnst satt að segja að Magnús, þarna vera að komast upp að hlið Þórs Whitehead, án þess þó að vera gera lítið úr honum á neinn hátt, í skrifum um atburði þessa hildarleiks. Og vonandi heldur Magnús áfram á þessari braut. Þar er af nægu að taka. T.d. siglingar íslendinga á þessum tíma. Kært kvödd


mbl.is „Skipsflökin eru okkar Titanic“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Að þetta lið "

Að þetta lið skuli nú ekki skammast sín og hundskast heim öll með tölu. Mestöll þjóðin er komin í andsvör við það. Kært kvödd
mbl.is Mikið um andsvör við ræðum þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég hafði smá samúð"

Ég hafði smá samúð með Geir Harde í þessu Landsdómsmáli. En sú samúð hvarf sem dögg fyrir sólu þegar hann sagði eitthvað á þessa leið eftir dómsfellinguna:

 

 

" Ég lýsti því yfir þegar málið var dómtekið og á fyrri stigum þess að ég bæri fyllsta traust til landsdóms. Nú er ljóst að meirihluti hans reis ekki undir því trausti heldur hafa pólitísk sjónarmið laumað sér inn í réttinn og meirihluti dómara ákveðið að láta þau ráða för frekar heldur en hreint lögfræðileg mat"

 

 

Þetta finnst mér einhver ömurlegasta afsökun hjá nokkrum manni yfir dómsúrskurði. En samt finnst mér þetta sanna samband ákveðins stjórnmálaflokks yfir dómsmálum þessa lands. Geir var viss í sinni sök um sýknun, taldi sig þekkja innviði dómkerfisins eftir margra ára stjórn fg stjórnmálaflokks á því 

 

 

En svo bregðast krosstré sem önnur. Vistrimenn hafa stundum kvartað með nákvæmlega sömu rökum undan dómurum hérlendis.Höfðu þeir þá kannske rétt fyrir sér eins og stuðningsmenn Geirs vilja meina að hann hafi nú?? Það er langt síðan að ég missti álit á dómstólum hér. Og hef sagt  svipað og Geir segir nú um að pólitísk sjónarmið hafi laumað sér inn í réttarfarið  Kært kvödd


mbl.is Ósáttur við niðurstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vonandi bætir þessi "

Vonandi bætir þessi kosning á konu til Biskups ásýnd almennings til Þjóðkirkjunnar. Og ég óska henni velfarnaðar í störfum sínum.

En það vakti athygli mína þegar ég sá hana í sjónvarpinu í kvöld hve mér fannst hún vera lík Vigdísi fv forseta í andliti. Háralitur að vísu annar. Kært kvödd


mbl.is „Stór áfangi fyrir kirkjuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú er bara að vona"

Nú er bara að vona að þessi algerlega ónothæfa landsstjórn fari að sjá mikilvægi LHGÍ. Hætti að ausa peningum, sem oft virðist vera nóg af í allslags "gæluverkefni" og fari að styða við bakið á LHGÍ. Ekki veitir henni af.

 

 

Að rugluverkefni einhverra menningarvita skuli t.d vera mikilvægari en björgun mannslífa af sjó og landi er með hreinum endemum. Nú er bara vona að þessu glæsilega skipi verði haldið í heimahögum. Kært kvödd


mbl.is Þór leggur af stað heim í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Menn sem leyfa sér "

Menn sem leyfa sér að gera svonalagað eiga að fá þunga refsingu náist þeir. Það hefur stundum sagt viti tveitr þá vita allir. Er siðferði íslendinga virkilega á svona lágu plani. Að vera að gabba svona nauðsynlega aðila er alveg með endemum..

 

 

Þó lögreglumenn okkar séu seigir í að koma upp um lögbrjóta hafa þeir sennilega Því miður ekki mannskap til að upplýsa svonalagað.Það eru til öfl í landinu sem vilja alla löggæslu burt. Fólk sem enga grein gerir sér fyrir dýrmæti þess að hafa góða löggæslu. Fólk sem finnst svonalagað í lagi. Kært kvödd


mbl.is Væntanlega skotið af landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 536775

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband