"Loks sýndu þau sitt rétta andlit."

Loks sýndu þau nsitt rétta andlit. Þetta fólk sem plataði hinn almenna borgara til að kjósa sig. Þó þau hafi lofað að berjast fyrir "skjaldborg" um heimilin.

 

 

Nú ætla þau að halda lífi í þeirri stjórn sem hvað mest hefur hert sultarólina hjá ílla stöddum þegnum þessa lands. Og það verður sama hvaða skrautfjöðrum þau ætla að prýða sig með, við næstu kosningar.Ég er hræddur um megnið af því fólki sem hefði kannske kosið þá flokka sem þau ætla í samstarf við hættir við það nú.

 

Það vll ekki svona auðséð "vændi". Þetta fólk svífst einskins ti að vera  inn á þessari "fíflafabrikku" Lætur einskis freistað til að lafa þar inni eins lengi og stætt er. En ekki að reyna að fá fólk þar inn sem vill gera eitthvað fyrir þessa hundeltu hópa lítilmangnans í þessu þjóðfélagi. Kært kvödd


mbl.is Munu verja ríkisstjórnina vantrausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru dusilmenni upp til hópa.

En eins og afi minn sagði fyrir löngu síðan: "þeim skal svíða, sem undir míga".

Þessir einstaklingar verða aldrei á þingi aftur. Ef svo skyldi fara, þá er íslendingum ekki viðreisnar von.

Kært kvaddur Óli minn. Sjáumst bráðlega.

Jóhanna (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 18:10

2 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Ólafur, það var Samfylkingin sem talaði um skjaldborg fyrir heimilin fyrir síðustu kosningar.

Núverandi ríkisstjórn er með meirihluta og er ekkert að fara að falla eða hætta.

Hreyfingin er reyna að koma áríðandi málum áleiðis fyrir heimilin í landinu, sjáum til hvort það tekst.

Hreyfingin er ekki að halda lífinu í þessari ríkisstjórn.

Baldvin Björgvinsson, 14.5.2012 kl. 19:52

3 identicon

Eins og þú sérð Óli, þá er togað í hálmstráin. En það dugar ekki í þetta sinn.

Jóhanna (IP-tala skráð) 15.5.2012 kl. 11:19

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl bæði tvö.Og ég þakka innlitið. Baldvin, Skjaldborg ekki Skjaldborg. En þetta sagði m.a í fyrstu grein stefnuskrá svokallaðrar "Borgarahreyfingarinnar" :"1. Alvarleg skuldastaða heimilanna verði tafarlaust lagfærð með því að færa vísitölu verðtryggingar fram fyrir hrun hagkerfisins (til janúar 2008)" Tilvitnun lýkur  Þetta fólk klauf sig að vísu frá þessari stefnuskrá???  Og einn af þeim al þeim alþingismönnum sem Borgarahreyfingin fékk kosna m.a. út á þessa stefnu var þó það heiðarlegur að hann skreið fljótlega upp í bólið hjá ríkisstjórninni fyrir opnum tjöldum Verið bæði ávallt kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 15.5.2012 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 535325

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband