16.7.2009 | 22:35
EBE eður ei
Hér í Vestmannaeyjum eru hlutirnir að gerast. Hér eru fiskiskip yfirleitt að landa afla á hverjum degi og flutningaskip að lesta vörur til útflutnings flesta daga. Þessi var í fyrradag að lesta frosið. Þetta öfluga skip var einusinni eign "Óskabarnsins" og mér fannst skipið hreinlega setja niður við að missa merkingar félagsins sem á því voru Silver Lake.Ég er ekki viss um fossanafn skipsins en nú heitir það Silver Lake. í daglegri ferð minni um höfnina í dag blöstu þessi skip við:
Wilson Gdansk Hann var að lesta fiskimjöl
Hér að ofan Steinun SF og Gullberg VE
Frár VE
Þessi heitir því skemmtilega nafni Frú Magnhildur Þessi skip voru að landa. Mér er alveg sama hvað skeður í þessu EBE máli,bara að ekkert verði gert til skerðingar á þeirri sjón sem blasir við manni hér við höfnina í Eyjum.
Að vísu eru að mínu mati misvitrir fræðingar innlendir að skerða ýsukvóta svo að til vandræða horfir. En hvað um það hér er allt á fullu við höfnina,oftast þegar ég kem þar. Yfirleitt er ég ekkert á ferðinni um helgar því þá er ekkert kaffi að sníkja hjá Torfa á vigtinni. Kært kvödd
![]() |
Úttekt Eiríks á vef Guardian |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.7.2009 | 21:14
Leiðindaskjóður !!!!
Ég var feginn þegar ein leiðinlegasta manneskan að mínu mati á fv alþingi var felld í síðustu kosningum Og ég hafði vonað að önnur úr sama flokki VG félli líka.
En þó ég fylgi ekki VG að málum hefur skoðun mín á henni breyst dálítið eftir að hún komst í stjórnarsamstarf. Og sætti mig bara vel við hana "to day" En nú fara aðrar 2 manneskur á alþingi þannig í mínar fínustu að ég þríf fjarstýringuna ef þau opna kja..... þegar ég er að horfa á sjónvarp frá alþingi
Annar þingmaðurinn er fv formaður alsherjarnefndar sem var langt komin með batteríið í fjarstýringunni í dag þegar hann kom í öllum kosningunum á alþingi og gerði grein fyrir atkvæði sínu. Og eiginlega alltaf sama tuggan.
Og hinn er fv skólastýra vestan af fjörðum. Hún virðist stundum ekki alveg vera með á nótunum um þau mál er um er fjallað. Stundum finnst mér eins og vestfirðingar hafi vakið hana upp og sent hana suður af einhverjum óskiljanlegum ástæðum.
En þetta er nú bara mín skoðun,gamals nöldrara og þetta er kannske almennilegasta fólk. Ja ekki veit ég. Ég kveð ykkur kært að vanda
![]() |
Fjölþætt sannfæring |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2009 | 20:49
Inngönguár hvað ???
Það er nú meiri hringandahátturinn í VG hvað varðar EBE. Þarna lýsir einn aðalmaður VG á alþingi að sennilegt aðildarár sé 2013. Þeir vilja þá aðild þrátt fyrir allt ????. Og hvað nú um þá yfirlýsingu yfirdansarans um að það sé hægt að "bakka" út úr aðildarviðræðum ef það stefndi í óhagstæða samninga.
Og þannig kannske eyðlegga að fólkið í landinu fái að segja sitt eftir allt saman.Er nema von að fólk í landinu sé búið að missa trúna á öllu þessu "hátt-hæstvirti" og á hinu "háa alþingis" bulli. Það er allavega furpulegt froðusnakk á þessari samkundu nú um stundir. Að maður tali nú ekki um rakaleysið þegar rök eru sótt í gömul dægurlög.
Framsóknar maðurinn Guðmundur Steingrímsson hefði kannske frekar átt að hugsa um tekstan:" nú er horfið Norðurland nú á ég hvergi heima" Því ég hugsa að strandamennirnir hugsi honum þegandi þörfina eftir daginn í dag. En þeir eru kannske fylgandi keliríi þingmannsins við hans fv flokk þ.e.a.s Samfylkinguna. Kært kvödd
![]() |
2013 líklegasta inngönguárið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2009 | 19:38
Gamlir kunningar
Maður var nú ekki hár í loftinu þegar maður fór að fá vinnu við uppskipanir. Í þá tíð voru 3 verslanir í Borgarnesi sem fengu kol,sement og timbur sjóveginn. Þetta voru Verslunarfélagið Borg. Verslunarfélag Borgarfjarðar en þau sameinuðust um skip að mig minnir og Kaupfélag Borgfirðinga. Afi minn Ásmundur Jónsson var verkstjóri við uppskipanir fyrrgreindu félagana Reykjanes En Tómas Hallgrímsson fv bóndi á Grímstöðum hjá KB. Hlutverkið sem ég og nokkrir aðrir á líkum aldri var að hífa bómur skipana til og frá yfir lestaropin eftir því sem við átti. Nú ef maður hafði ekki lent í náðinni hjá þeim 2 sem oftar en ekki var út af þáverandi nýtísku útbúnaði skipana.Sem voru 2faldar bómur en þá þurfi enga "gertastráka", þá hékk maður á bryggunni eða fékk að "sitja í "hjá vörubílstjórunum. En töluverður spotti var t.d í sementgeymslu KB við Sólbakka.
Cornlia B Sem kom oft í Borgarnes í"den".
Eitt var það skip sem þurfti gertastráka það var s/s Reykjanes enskur koladallur í eigu Jóns Oddsonar útgerðarmanns í Englandi. Ég man hve gríðalega stórt manni þótti þetta skip
En það hafði verið smíðað 1919 í Þýskalandi 66.2 m langt og 9.9 m br. 981 ts. Og hafði i upphafi borið nafnið Malmö.
Svo er annað skip sem þurfti "gertastráka" en það var Erik Boye lítill danskur dallur sem ásamt systurskipi??? Hans Boye En Hans var kannske frægastur fyrir að heimsæka þáverandi öskuhauga við Ánanaust







Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.7.2009 | 20:42
Svartir hundar !!!
Ég ætla mér ekki að gagnrýna þessa einstöku málsmeðferð. En vegna síðustu orða í fréttinni spyr maður sig hvort ekki séu fleiri hundar svartir en svarti hundurinn prestsins. En lokaorð fréttarinnar eru þessi:"Nauðsynlegt sé að því að tryggja nærveru konunnar hér á landi til að hún geti ekki komið sér undan frekari rannsókn málsins, mögulegri saksókn og málsmeðferð fyrir dómi" . Kært kvödd
![]() |
Áfram í farbanni vegna fíkniefna og milligöngu vændis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2009 | 20:21
Gamall refur
![]() |
Steingrímur ómerkingur orða sinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.7.2009 | 16:38
Fransbrauð í matinn.
Góður vinur minn úr "Vogarliðinu" sagði mér í dag góða sögu af hinum bráðgáfaða og skemmtilega manni Helga Sæm. Helgi var eitt sinn spurður hvað hann vildi hafa með sér ef hann yrði strandaglópur á eyðieyju.
Fransbrauð var svarið . Þegar hann var spurður um ástæðuna sagði hann."Nú ég tæki brauðið og biti af því endana, Og svo myndi ég bara éta" endalaust" fransbrauð",. Þetta ætti fólk að athuga þegar fer að harna í búi hér á landi. Sem ég held að eigi eftir að gerast í meira mæli en komið er.Kært kvödd
![]() |
Stefna í að vera yfir 200% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.7.2009 | 09:59
Áhrif
![]() |
Dregur úr geðlyfjanoktun í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2009 | 20:08
Mikið var
Mikið var að íslendingar læra að skemmta sér. Og hér er ekkert á ferðinni: "það var betra hér áður" Ég man eftir í uppafi minnar þáttöku í "samkvæmislífinu" þá varð að stoppa dansleik í Bifröst, sem þá var bara veitingastaður, í miðjum klíðum vegna slagsmála.
Batnandi mönnum er best að lifa. Kannske bankahrunið hafi þarna áhrif líka. Ég stend í þeirri meiningu að við fáum heiðarlegra þjóðfélag eftir það. Og kannske fáum við líka friðsamara lið á skemmtunum. Kært kvödd
![]() |
Fólk skemmtir sér fallega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2009 | 17:53
Éta ofan í sig .............
![]() |
Lög um laun starfsmanna Spron |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2009 | 15:01
Kannske ekki von
Það er kannske engin von til að fá fólk til vinnu. Þegar launin sem það fær fyrir vinnuna rétt skríða yfir atvinnuleysisbæturnar.
![]() |
Illa gengur að ráða í störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2009 | 21:58
Um hvað ???
Ég næ því eiginlega ekki inn í minn gamla heimska haus um hvað á eiginlega, að kjósa. Eigum við að segja í fyrra skiftið. Ef maður hugsar til yngri ára þá leitaði maður eftir aðgangi á sumum sviðum, Nú ef aðgangur var óásættanlegur af einhverjum ástæðum hætti maður við
Svo einfald var það nú. Mér finnst satt að segja að 2 kosningar sé bara bruðl á peningum. Og ef sem ég held,að við fáum ekki aðgang næstu ár þá er þetta sjálfhætt. Þarf ekki verðbólgan að vera komin niður í c a 2 % til að við getum komist inn Kært kvödd
![]() |
Þjóðin hafi fyrsta og síðasta orðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2009 | 21:35
"Óskabarnið"
Um þessar mundir eru ca 50 ár,síðan að, m/s Selfoss II og m/s Brúarfoss II sem að mínu mati eru fallegustu skipin í íslenska kaupskipaflotanum fyrr og síðar, komu til landsins Þau voru smíðuð hjá Aalborg Værft í Ålborg Danmörk. Teiknuð af snillingnum Viggó E Maack.(það minnir mig allavega) Selfoss II sem kom að mig minnir seint á árinu 1958 og Brúarfoss II kom seinnipart árs 1960.
En fyrirrennari hans hvað nafn varðar Brúarfoss I var fyrsta íslenska fystiskipið sem sem var smíðað sérstaklega fyrir íslendinga. Selfoss þjónaði Eimskipafélaginu í 24 ár eða þar til 1982 að hann var seldur 1981 fær hann nafnið ELFO. (S-unum sleppt) Því nafni heldur hann þar til hann er rifin á Gadani Beach 3.2.85
Brúarfoss þjónaði Eimskip akkúrat 20 ár Hann hélt sínu nafni þar tl 1984 Síðan nöfnin eftir það 84 HORIZON - 86 WILLEM REEFER - 87 TRITON TRADER - 89 GLOBAL TRADER - 90 TRITON TRADER. Hann var svo rifinn : Alang 18.8.90
Við skulum vona að félagið verði búið að rétta svo vel kútnum 2010 að hægt verði að halda upp á afmæli komu þessara glæsilegu skipa á sínum tíma,með glæsibrag Kært kvödd
![]() |
Skipulagsbreytingar hjá Eimskip |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2009 | 21:11
Standa við stóru orðin !!!!
![]() |
Erfitt mál fyrir VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2009 | 00:23
Sjá illa
Um daginn var þessi frétt í Mogganum Skildi Vodkin gera þeim lífið leitt. Það er allavega eitthvað bogið við öll þessi mistök.Kært kvödd
Skutu á þorp í misgripum 
Rússneski sjóherinn segir, að tundurspillir hafi gert stórskotaliðsárás á þorp í nágrenni St. Pétursborgar fyrir mistök.Sjóherinn segir að engan hafi sakað þegar tundurspillir í Eystraasaltsflotanum hafi skotið sprengjum á þorp í Vyborgarhéraði. Flotinn var á æfingu í Finnska flóa. Rússneski sjóherinn hefur lent í ýmsum óhöppum frá því Sovétríkin hrundu.
![]() |
Rússar skutu niður eigin vélar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2009 | 20:58
Íslenska
Já hún er erfið íslenskan. Mér finnst satt að segja sumt af unga fólkinu í dag hreinlega misþyrma henni. Og ég sem "Invandrare" í öðru landi kannast við að reyna að læra til fullnustu mál þess lands þó það hafi verið náskylt íslensku.
Ég held að eftir því sem fólk er eldra þegar það skiftir um land þess erfiðara sé að ná tökum á máli nýja landsins. En blessuð börnin sem eru að þróa með sér talmálið munar engu að bæta öðru máli við. Og svo er það áhuginn. Dóttirdóttir mín sem er 11 eða 12 ára( Skammtímaminnið að klikka þrátt fyrir Merrild 103) flutti til Danmörk í fyrra. Í vor var hún hæst í sínum bekk í dönsku. Kært kvödd
![]() |
Tólf féllu á íslenskuprófi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2009 | 20:28
Sjá fjand.... !!!!
![]() |
Impregilo greiði 56 milljónir í bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2009 | 19:46
Vel gert
Ég hreinlega tek ofan fyrir Þór Sigfússyni. Þetta mættu fleiri taka sér til fyrirmyndar.
![]() |
Formaður SA í ótímabundið leyfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2009 | 17:21
Jóga við fégræðgi???
![]() |
Segir jóga lækna" samkynhneigð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2009 | 12:46
Rumpulýður !!!!
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í gær karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið vodkafleyg og hálfum lítra af bjór úr Vínbúðinni á Akureyri í mars síðastliðnum. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi.
Þá var kona dæmd fyrir að stela gaskút af bensínstöð í nóvember í fyrra og að keyra undir áhrifum amfetamíns í mars. Konan var dæmd til að greiða 150 þúsund krónur í sekt. Hverskonar"rumpulýður er þetta eiginlega.
Rosalega gengur vel fanga þennan þjófalýð. Og velættaðir menn til að dæma þá í strangar refsingar. Hvað er að ske í hinu"siðprúða"lýðveldi Íslandi. Skelfing er gott að til eru eftirlitsaðilar sem fylgast vel með að svona rumpulýður gangi ekki laus og steli af betri borgurunum og að maður tali nú ekki um af sjálfu ríkinu Heilum vodapela stolið. Guð sé mér syndugum manni hjálplegur
Skyldu fjárlögin standast ef sektirnar inheimmtast ekki . Guð hjálpi okkur sem erum bara fórnarlömb stórsvikara en ekki smáþjófa. Með þesu er ég ekki að kasta rýð á óbreitta lögreglumenn. Mér finnst þeir standa sig vel þrátt fyrir fjársvelti til þeirra starfa. Kært kvödd
![]() |
16 milljarðar inn í Sjóvá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 537729
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar