Leiðindaskjóður !!!!

Ég var feginn þegar ein leiðinlegasta manneskan að mínu mati á fv alþingi var felld í síðustu kosningum Og ég hafði vonað að önnur úr sama flokki VG félli líka.

 

En þó ég fylgi ekki VG að málum hefur skoðun mín á henni breyst dálítið eftir að hún komst í stjórnarsamstarf. Og sætti mig bara vel við hana "to day" En nú fara aðrar 2 manneskur á alþingi þannig í mínar fínustu að ég þríf fjarstýringuna ef þau opna kja..... þegar ég er að horfa á sjónvarp frá alþingi

 

Annar þingmaðurinn er fv formaður alsherjarnefndar sem var langt komin með batteríið í fjarstýringunni í dag þegar hann kom í öllum kosningunum á alþingi og gerði grein fyrir atkvæði sínu. Og eiginlega alltaf sama tuggan.

Og hinn er fv skólastýra vestan af fjörðum. Hún virðist stundum ekki alveg vera með á nótunum um þau mál er um er fjallað. Stundum finnst mér eins og vestfirðingar hafi vakið hana upp og sent hana suður af einhverjum óskiljanlegum ástæðum.

En þetta er nú bara mín skoðun,gamals nöldrara og þetta er kannske almennilegasta fólk. Ja ekki veit ég. Ég kveð ykkur kært að vanda


mbl.is Fjölþætt sannfæring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband