Lærin

Ég er ekki alveg samála þessu. Ég er viss um að það hefur verið margri konunni hættuminna að vera með mjó læri !!!! Ég held að flestir karlmenn skilji hvað ég meina. Kært kvödd
mbl.is Hættulegt að vera með mjó læri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læsir

Mér finnst það með  endemum hvernig bandaríkjamenn hafa hagað sér gagnvart Kúbu. Þetta andsk..... viðskiftabann þeirra hefur verið í öfugu hlutfalli við áætluð áhrif.  Það hefur bara kallað meiri fátækt yfir Kúbumenn en nokkur þörf var á.

 

Ég hef komið þangað nokkrum sinnum og líkaði það vel.  Maður var"drulluhræddur" í fyrstu að þeir væru með einhverja"stæla" eins og maður varð var við t.d. í A - Þýskalandi á "kalda"stríðsárunum. En það var öðru nær. Virkilega elskulegt fólk í allastaði.

 

 

Og Það má gamli Castró eiga þrátt fyrir allt að öll börn eru þar læs en það er annað en hægt er að segja um eyjarnar í kring sem margar hverjar voru undir "vernd" USA.  Kært kvödd


mbl.is Mega ferðast til Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og Ísland 2020 ???

Litháar líta til ársins  2013 - 2015 með Evruna. En Ísland 2020 ??  Eða kannske seinna ??

 

Samt held ég að ef vel verði haldið á málum hér þá vinni við okkur fyrr út úr okkar vandræðum. Þar held ég að lengd sjálfstæðis spili stórt hlutverk.  

Þeir lifðu í þjóðfélagi sem allt var á vegum ríkisins. Og verkamenn unnu kannske slæglega vegna þess. Og voru kannske félagar í allslags andspyrnuhreifingunm á móti þjóðfélagsskipuninni. Þessu er ekki breitt á einni nóttu þótt land fái sjálfstæði.

 

En við lifðum svona nokkurnveginn sjálfstæðir og við þessir eldri munum örlög "bæjarútgerða" t.d. En svo misstum við fótfestunnar í frjálshygguruglinu. þegar örfáir menn fengu fjöreggið til að leika sér með. 

En við eigum duglega verka og sjómenn sem munu reisa þetta þjófélag aftur og enn á lappirnar.  Ég er trúaður á það.  Við sjáum í dag að sjómaðurinn er t.d að komast aftur í tísku.  Kært kvödd


mbl.is Litháen taki upp evru um miðjan næsta áratug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært !!!

Maður getur ekki annað en tekið ofan fyrir þessari konu.  Sem sigraði heiminn með hjartanu, þó svo að hún hefði allt á móti sér  Dæmigerð hversdagshetja.  Sem lítið fer fyrir nú um stundir á tímum gevifegurðar.  Kært kvödd
mbl.is Susan Boyle slær í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðadæmt

Var það ekki dauðadæmt að hún yrði í embættinu eftir að launalækkun stjórnarinnar var kunngerð.??  Kemur hún ekki úr starfi þar sem milljónir voru í mánaðarlaun???.  Hún kemur"kannske"til baka ef betur árar hér á landi en nú um stundir.  En hvenær verður það??   Verður hún þá ekki runnin út á síðasta söludegi??   Kært kvödd
mbl.is Reiknar með að snúa aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arctic Sea og fl

Enn og aftur er þetta skip í fréttum Mikhail Voitenko fréttamaður Sovfrakht Marine Bulletin er flúinn land . Hann hefur haldið því fram að farmur skipsins hafi verið hluti af týndum kjarnorkuvopnum á leið til arabalanda í miðausturlöndum.w missing ship cp RTR26NS1 Ísraelsmenn eða leyniþjónusta þeirra Mossad (HaMossad leModi'in uleTafkidim Meyuchadim) hafa nú ekki kallað allt ömmu sína hvað landamæri varðar. Og þessvegna gæti maður trúað því að þeir hafi verið á ferðinni við Öland. En að öðru úr heimi flutningaskipa.Ship+Photo+MSC+NIKITA MSC Nikita. Aðfaranótt sl sunnudags rákust 2 flutningaskip saman  úti fyrir Rotterdam. Þetta voru skipin MSC Nikita 30.000 ts (IMO: 7820942, Port of Registry: Panama), bound for Antwerp og Nirint Pride 12.000 ts(IMO: 9214575, Port of Registry: Douglas, Isle of Man) bound for Bilbao.NIRINT+PRIDE Nirint Pride  Áreksturinn varð í svokölluðum "roundabout" (vegamótum ??) í "traffic lane" fyrir skip á suðurleið. Áhöfn MSC Nikita sem samanstóð af 25 úkraníumönnum sakaði ekki. 3 gámar úr farmi skipsins týndust 1 af rúsneskum áhafnarmeðlimum Nirint Pride var fluttur á sjúkrahús með snert af reykeitrun  eftir að eldur hafði brotist út í skipinu eftir áreksturinn dbdfNirint Pride og gsg.bmp MSC Nikita.Eftir áreksturinn20090831 msc%20nikita@floor%20van%20kleeff 033108093870879765 4705329fed bMsc Nikita 338446Msc Nikita 337905 Við áreksturinn kom rifa á vélarúm  MSC Nikita .Áhöfnin yfirgaf skipið En það tókst að halda því á floti. Nirint Pride komst hjálparlaust til hafnar í Moerdijk. þetta er að ske þrátt fyrir alla tæknina og ætti að minna sjómenn á hve nauðsynlegt er að halda vöku sinni. Myndirnar eru fengnar úr ýmsum blöðum og af Shipspotter.Verið ávallt kært kvödd.


mbl.is ESB: Arctic Sea líklega með vopnafarm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"óbrúkleg verkfæri"

Verkfærin sem þessi banki notar virðist vera algerlega óbrúkanleg á réttri íslensku"ónothæf". useless. (Maður er ekki lengur viss um hvaða tungumál er notað í þessum ekkisen banka)

Allavega í augum fólks með svona, ekki mikið lægri en meðalgreind. Hvað hefur áunnist hjá honum þessum and....... banka sem átti að gæta þess að  fjármálin færu ekki út um víðan völl eins þau og gerðu. KK


mbl.is Seðlabankinn hefur fleiri tæki en bara stýrivexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Talan úr buxunum"

Morgungolan svala svalar /syndugum hugsunum./ Sínu máli talan talar / talan úr buxunum./Kvað að mig minnir Þura úr Garði. Eftir að hafa fundið buxnatölu í Lystigarðinum á Akureyri. Já það skeði margt í garðinum þeim. Eins og kannske í ónefndum garði í örófi alda. Kært kvödd


mbl.is Bestu garðar Akureyrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nefbrot í"den gamle gode dage"

Ég þurfti nú ekki á ball til að hljóta nefbrot. Vinur minn gerði það um borð í bát alveg ókeypis.

 

En ég er nú án gamans að hugsa ef þeir bara hættu við svo búið nú til dags. En nú byrjar víst"ballið" ef eitthvað hefur gefið eftir hjá andstæðinum og ef hann liggur óvígur í gólfinu/götunni. Kært kvödd


mbl.is Nefbrot á balli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóh 6:63

Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt. Verður maðurinn ekki bara að bíta í það súra epli. Kært kvödd


mbl.is Sakar Landspítala um mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver lýgur mest !!!!

Það er með hörmungum hve stórum augum  þetta þinglið lítur á sig. Rakst fyrir tilviljun á þessa færslu: http://gislibal.blog.is/blog/gislibal/entry/940136/  

 

Annað hvort er þessi umræddur þingmaður með ja því var lýst í tölvupósti um daginn eða með paranoid. Lightly or hight. Fyrr mætti  nú rota en dauðrota.

 

"Ja miklir menn erum við Hrólfur minn og fallega pissar Brúnka" Ég segi nú ekki annað. Og ég held satt að segja að framsóknarmenn megi þakka sínu sæla. Svo mætti kannske mæla hver af þessu setuliði lýgur mest. Kært kvödd


mbl.is Aftur talaði Pétur mest allra á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingu stelpur !!!

Ég tek hattinn ofan fyrir þessum stelpum. Þær voru landi og þjóð til mikils sóma. Það eru svona hversdagshetjur sem vekja áhuga manna á landinu erlendis. Allavega hjá almenningi þar. Ég þvældist um heiminn í 15 ár og  þegar menn vissu frá hvaða landi ég kom, þá var sagt "yes Iceland Hófí and John Pall"

 

 Ég man eftir að ég var einusinni í höfn í S-Frakklandi þá höfðu Íslendingar gert að mig minir jafntefli eða jafnvel unnið( man það ekki alveg) frakka í fótbolta. Og þeir vissu nöfnin,( mikið bjöguð að vísu) á sumum íslensku leikmönnunum. Meira en ég vissi.  En höfðu ekki hugmynd um nafn forsetans eða forsætisráðherranum. Kært kvödd


mbl.is EM: Katrín gefur kost á sér áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"viðskiftavild"

Ég gef nú lítið fyrir yfirlýsingar svokallaðra "hæsttvirtru" ráðherra hvar í heimi þeir eru. Ég man eftir að íslendingar voru látnir éta óætar finnskar kartöflur til að"liðka" fyrir viðskiftum SÍS.

Það er með ólíkindum hvað þessir fg menn leggja á borð fyrir almenning. Og ætlast tið að hann ( almenningur) trúi  þeim. Og eða hvernig þessir svokölluðu "háttvirtu" þingmenn eru að reyna að halda í tiltrú manna á störf þeirra. Þar ríður andsk..... sýndarmennskan ekki við einteyming.

 

 

Eins og t.d. þegar þingforseti (sem ekki alltaf hefur kallað allt ömmu sína hvað orðaval snertir) gerði athugasemd við orðið "vítavert" hjá ekki skoðanabróðir. Hve lágt þarf þingmaður að leggjast til að "þóknast" þessum "smákóngum"sem kallast þingforsetar.

Annar þingforseti leifði kófdrukknum skoðanabróður að vaða á súðum í ræðustól á hinu svokallaða "háa" alþingi. Svo á maður að bera virðingu fyrir þessu setuliði. Ja fussu svei. Kært kvödd 


mbl.is Straw svarar Lockerbie ásökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"heimilisfangið"

Heimilisfang eignað guði var 1sta heimilisfangið sem ég lærði utan að. Þegar ég var að alast upp í Borgarnesi var t.d.nóg að skrifa utan á bréfi til fólks í bænum;" NN Borgarnesi". Eða eitthvað á þá leið. Og sama var með guð hann var bara staðsettur"á himnum"

 

 

Og ég veit ekki annað en mínar bænir sem voru töluvert margar á þeim árum hafi alveg eins náð eyrum hans og annara. Þó vantað hafi götu og póstnr.hjá mér.  En nú er  það umhugsunarvert  í sambandi hvað hann virðist vera orðinn daufheyrður allavega á mínar bænir hvort að það vanti götu og póstnr. Viss er ég um að vissir menn nefndir eftir vissum fornmönnum biði hann um hjálp. Og sennilega hafa notað þeir alla sína"miklu" visku og reynslu  á "skúffufyrirtækjum" og eru búnir að finna út skúffufyritæki sem kemur bænum þeirra áleiðis.

 

 

 

Allavega virðist mér hann vera bónliprari við þá. Heldur en þá með breiðu bökin. þ.e.a.s. öryrkja, eldri borgara og þá sem minna mega sín.  Það væri kannske gott fyrir þenna hóp að fá adressuna hjá hinum hópnum.  Þessum með mjóu bökin. Bökin sem ekkert má leggja á. Hvorki skatta né neinar byrgðar út af þessu fjan.... hruni.  Kært kvödd


mbl.is Guð ekki með heimilisfang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvað um"

Hvað um þá flekklausu ? Hverjir tala fyrir þá ?  Allavega ekki Ögmundur. Kært kvödd
mbl.is Hinir vammlausu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóslysalaus ár

Ekki ætla ég mér að agnúast út í það sem kemur fram í þessari frétt. Vonandi hefur Týr innunnið sér nokkra vikna notkun í því sem hann er bestur í, að standa vörð um landhelgina og vera sjófarendum til hjálpar ef á bjátar. MasterrgbOg vonandi hafa olíutankarnir verið fylltir af ódýrri??? olíu í Noregi. Ég held að minnið sé ekki að bregðast mér þegar ég held því fram að þetta ár sé annað sjóslysalausa árið í röð. Og það er mikið gleðiefni. Þökk sé meiri fræðslu í Stýrimannaskólamnum. Þökk sé Slysavarnaskólanum Og þökk sé LHG.En ég hef miklar áhyggur af öryggi sjófarenda við Ísland 362312365 1032eb174e o Ég veit að t.d. íslenskir þyrluflugmenn eru starfi sínu mjög vel vaxnir. En peningasvelti sveitarinnar er öllum kunn. Og stendur  þeim kannske fyrir miklum þrifum., En þrátt fyrir það er ég ósáttur við brottfluttning þyrlusveitar Varnarliðsins. Mér er alveg sama hvað hver segir. Þeir menn höfðu kannske ekkert annað að gera en að æfa sig. Fjársvelti Landhelgisgæslunnar vekur ugg í brjósti þeirra sem bera líf manna fyrir brjósti. Ég held nefnilega að margir af" heldri" borgurunum í ónefndu póstnr í Reykjavík geri sér ekki grein fyrir mikilvægi LHG og starfsmanna hennar.bridgeofww2merchantship Bæði til sjós og lands. Ég veit um fólk sem þrátt fyrir allt, heldur því fram að LHG sé einungis fyrir sjómenn. Passa að ótíndir glæpamenn á fiskiskipaflotanum séu ekki að stela þessum fáu þoskum sem eiga að sögn VÍSINDAMANNA að vera eftir á Íslandsmiðum og eru fyrir innan línu landhelginnar.Ship+Photo+ALIBERR Alberri  fyrir áreksturinn, Varðskip hafa hvað eftir annað sannað gildi sitt í náttúruhamförum að maður tali nú ekki um sjóslys  Það vitum við sem munum lengra en 1 ár aftur í tíma. Og þyrlunar,ja þær ætti ekki að þurfa að nefna. Það veit enginn hver er næstur til að þurfa aðstoðar þeirra. 19171Alberri eftir áreksturinn Og þar vona ég að einhverskonar forgangsröðun verði aldrei sett á. Sama hvort manneskjan búi á Bessastöðum, ónefndu póstnr í Reykjavík eða í Vestmannaeyjum . Hvort hann sé með gullfesti um hálsinn og þiggi há laun af þjóðinni eða þiggi há heiðurslaun eða bara "beran"ellilífeyri. Nóg af þessu. Veðurfar við Ísland er eins og allir vita óstöðug. LISCA+NERA+MLisa Nera M. Straumar sterkir og straumrastir ófáar. Sjósókn við Ísland er og hefur alltaf verið erfið. En mikill er máttur tækninar. En mannleg mistök hafa fylgt mannkyninu alla tíð og munu gera um ókomna tíð. Þess vegna hafa  sjómenn allra tíma þurft að hafa allan vara á sér. Góð vísa er aldrei of oft kveðin. LHG og Slysavarnarskólann  má alls ekki svelta fjárhagslega. Ég læt hérna fylgja myndir af nýlegum óhöppum þar sem mannlegi þátturinn var innvíklaður. Fyrir nokkru var árekstur í Marmara Sea en þar rakst olíuflutningaskipið  Lisa Nera M á fljótaskipið Alberri . Engan sakaði 610xOstende Max eftir áreksturinn En 9 menn mistu lífið við árekstur í Malacca Strait milli búlkarans Ostende Max og Formosaproduct Brick, 70,426 DWT svokallaðs "produkttanker" frá Taiwan. FORMOSAPRODUCT+BRICK Formosaproduct Brick að brenna.wq19102bw Formosaproduct Brick að brenna.Mennirnur 9 voru skipsmenn á Formosaproduct Brick En það er með ólíkindum að skipið skildi ekki springa í loft upp því það var hlaðið"nafta" sem, ef mig brestur ekki þess meir minni er stigi hærra en bensín.Ship+Photo+Ostende+Max Ostende MaxShip+Photo+FORMOSAPRODUCT+BRICK Formosaproduct Brick Við skulum bara vona að eitthvað náist af þeim auðæfum sem ónefndir menn eiga í skattaskjólum hingað og þangað. Menn sem komu þjóðinni í þær ógöngur sem hún er komin í. Menn sem ég er eiginlega steinhissa á að einhver skuli ekki vera búinn að ná í rass..... á og velta upp úr tjöru og fiðri Blue Nothingness Það er ekki bjart framundan  Menn sem koma í sjónvarp glottandi framan í fólk sem ekki á fyrir bókum til að börn þeirra geti stundað skóla og sem "þykjast"saklausir.  Menn sem hafa með hegðun sinni hafa sett öryggi landamanna bæði til lands og sjávar í uppnám.obelixÞeir með breiðu bökin Við skulum bara vona að engin þeirra fái fyrir hjartað í óbyggðum og svo hittist þannig á að þyrlunar kæmust ekki á loft vegna fjársveltis LHG. Og nú held ég að allir veri að sameinast um að biðja þann guð sem hver og einn trúir að hjálpa okkur. Alla vega þeir með breiðu bökin og alltaf er níðst á af því þeir eru hérna. Komast ekkert.dick whittington  Kært kvödd


mbl.is Týr flutti pramma fyrir Ístak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"nýr flötur"

Nýr flötur er kominn upp á Artict Sea-málinu.  Virkilega athygliverður flötur. Ég treysti á dönskukunnáttu fólks Kært kvödd

http://www.maritimedanmark.dk/?Id=5415


Er þetta:"Ísland í dag"?

Það er með ólíkindum að svona skuli vera að ske á Íslandi árið 2009. Þessir andsk.....  menn sem kenndir eru við útrás og víkinga skulu vera búnir að koma einum duglegustu verka og sjó-mönnum/konum í heimi á hné.

 

Gera verkalýðin að hálfgerðum betlurum. Við víkinga er hægt að samsama þessa djö... Hvernig voru þessi svokölluðu"víkingar"til forna  Í sannleika sagt og með allri virðingu fyrir sögu landsins, hvað voru þeir eiginlega ??. 

 

Alveg eins og þeir nútíma  fóru þeir rænandi, ruplandi um lönd og skildu eftir sig sviðna jörð. Nema þeir tll forna nauðguðu bara einni konu í einu en þessir nútíma djöflar nauðguðu heilli þjóð.  Á einu bretti.  Og nú verða íslendingar eins og Þjóðverjar eftir WW1 og Finnar eftir WW2  að borga háar svimandi háar upphæðir Kært kvödd


mbl.is Hætta við skólavist vegna fjárskorts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"eftir þessu var beðið"

Í vor sagði S,J.S hreykin að nú hefði verið mynduð"hrein vinstri"stjórn eins og hann orðaði það. Og ég þessi andsk..... fv íhaldsskurfur trúði á orð hans. Það var  sennilega jafnt á komið með mig og þá sem á sínum tíma  trúðu á" alræði öreyganna" Sem t.d þessi maður boðaðiLenin 05d og  þessi Karl Marx eða þessi Engels Þó í öfugri þessari röð að ég held. Ég trúði því að hin "hreina vinstri stjórn" myndi hlífa eldri borgurum ja þið þekkið röðina. En hvað hefur skeð engin ekki nokkur ríkisstjórn hefur lagt eins miklar byrgðar á þá sem minna mega sín. Engin. sacma Þessi"hreina vinstri stjórn" hefur ekki hlíft þeim sem minna mega sín heldur hinum. Læt þetta duga í bili. Kært kvödd


mbl.is Mesta kaupmáttarrýrnunin í 20 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 535997

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband