30.6.2011 | 17:46
"ljóta hringavitleysan"
![]() |
Bensínverð hækkar um 4 krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.6.2011 | 17:28
"alveg út í hött"
Mér finnst þetta eins og flest sem sú tæra gerir alveg út í hött. Margur tekjuhár maðurinn hefur varla ofan í sig eða á vegna afborgana af lánum.
Verst fara sennilega þeir heiðarlegustu út úr svona fíflagangi. Þetta er í svipuðum dúr og útreikningar Steingíms á bensínverðinu. Raunveruleikanum sleppt. Hvernig væri nú að afkomu tenga tannlækningarþ Tekjutengin er oft á tíðum bull og segir bara hálfa söguna. Kært kvödd
![]() |
1.000 börn fá endurgjaldslausar tannlækningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.6.2011 | 18:09
"til mikils sóma"
Þetta var Eimskipafélagi Íslands tl mikils sóma. Þarna fórust menn sem voru sendir eftir nauðsynjum. Ég held að hlutur farmanna hafi oft verið fyrir borð borinn í orðsins fyllstu merkingu.
Oft kallaðir "skiifstofusjómenn" "tuskubellir". og fleiri uppnefnum. En hvernig hefði þjóðinni reitt af án Farmanna. Þeir voru jafnvel meir í eldlínunni á stríðsárunum en fiskimenn. Sem ég þó, ætla alls ekki að gera lítið úr.
Athafnir eins og þessi í dag mættu vera feiri. Þjóðin má aldrei gleyma þeim mönum sem settu líf sitt að veði svo þessi þjóð gæti lifað á þessu út útnáraskeri sem við elskum þó öll. Landið okkar ÍSLAND
Ég vil aftur vekja athygli á bloggi mínu á 123.is
"Skrolla" aðein niður og þá kemur færsla um ES Heklu Kært kvödd
![]() |
Minnast þeirra sem fórust með Heklu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.5.2019 kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2011 | 13:15
"Mogginn á heiður skilið"
Mogginn á heiður skilið að minnast þessa atburðar. Því þetta var fyrsta skipið sem taldist til íslenska kaupakipaflotans sem sökkt var í seinni heimstyrjöldinni Ég bloggaði um þetta um daginn á 123.is En slóðin á það blogg er hér.
Það þar bara að"skrolla" aðeins niður síðuna. Kært kvödd
![]() |
70 ár liðin frá því að þýskur kafbátur sökkti Heklu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2011 | 00:45
"where is the damn bear"
Blessaður maðurinn skildi þó ekki vera í ætt við ameríska hermanninn sem veðjaði við samlanda sinn á leiðinni til Íslands á seinni styrjaldar árunum.
Fyrsta var að vera búin að "sænga" hjá íslensri snót innan viku frá komunni til landsins og hitt var að hann skydi vera búinn drepa ísbjörn á svipuðum tíma.
Nú við fyrsta tækifæri sem bauðs og hann var búinn að fá sér nokkra hjartastyrkjandi og enn síðar ljúka sér af með konunni æddi hann hálfber út úr húsinu og öskraði:"where is the damn bear" Kært kvödd
![]() |
Réðst á ísbjörn á Laugavegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.6.2011 | 21:39
"andsk..... áróðurinn"
![]() |
Slógu eigið Íslandsmet aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.6.2011 | 20:04
"komið að merg málsins"
![]() |
59 flugmönnum sagt upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2011 | 21:43
" aðilar ferðaþjónustunnar"
Mér finnst með ólíkindum hvernig aðilar ferðaþjónustunnar og ráðherra hafa látið í þessari deilu. Mér er andsk..... sama um fg fólk en ég vil allavega fljúga með mönnum sem eru með kollinn í lagi. Þetta ferðaþjónustulið ættu frekar að ústskýra fyrir ferðafólki um hvað deilan snýst og ráðherrar ættu hreinlega að halda kja... heldur en að draga taum annars aðilans.
Sú sem á að stjórna landinu ætti að hafa skilning á málinu. Hræddur er ég um að lög á flugmenn yrði banabiti langþreyttrar ríkisstjórnar. Þessarar hreinu tæru.Ferðaþjónustan ætti að vilja færustu flugmenn í heimi óþreytta til að flytja farþega sína.Og hætta að röfla þetta. Kært kvödd
![]() |
Hurðinni skellt á okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2011 | 23:04
"Mér finnst með ólíkindum"
Mér finnst með ólíkindum hvernig "ferðaþjónustufólk" lætur. Ef ekki er allt eins og það óskar er allt á leið til helv.... Þessir aðilar einhverra hluta vegna ráðast hvað eftir annað á annan aðilan í kjaradeilu. Og nú spyr ég er Icelandair aðili að samtökum þeirra fg. Hversvegna er ekki þrýst á flugfélagið líka til að ljúka deilunni. Ég segi það enn og aftur sumir hópar eiga að vera vellaunaði.
Og menn sem gera ábyrð á mannslífum eiga að vera betur launaðir en menn sem bera ábyrgð á þessu fyrirbrigði sem heitir peningar. Sem við þessir sauðsvörtu sjáum ekki nú um stundir. Ég flaug einu sinni frá höfn við Svartahaf til Moskvu í rússneskri vél með rússneskri áhöfn Á miðri leið byrjaði einhver vökvi að leka niður í hausinn á mér. Þetta var einhverskonar olía fannst mér ( kannske gott fyrir hárið)
Sætið við hliðina var jaust svo ég færði mig eftir að hafa látið flugfreyjuna vita. Þá kom einhver borðalagðu og eftir strípunum á vínarbrauðunum á öxlunum tók ég þetta fyrir sjálfan flugstjórann Hann lyktaði vel af vodka og talaði alveg helling á rússnesku um leið og hann opnaði einhverja lúgu og í loftinu og herti þar einhver tengi með sænskum lykli. Svo klappaði hann mér á bakið og kallaði á freyjuna sem kom með tvöfaldan vodga sem ég afþakkaði en ég sá að hún, freyja sturtaði því í sig á leiðinni til baka.
Þá þakkaði ég í huganum guði fyrir hvað við eigum fært fólk í öllum störfum sem að flugrekstri snýr, Allt þetta hæfa fólk á að vera á góðum launum þrátt fyrir að hlutur margra stóreignamanna sem hluti eiga í flugfélaginu rýrni aðeins. Við eigum að haldi í þetta fólk í landinu með góðum launum. Kært kvödd
![]() |
Langur sáttafundur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2011 | 20:34
"róta yfir það með"
Einnusinni passaði ég lítinn hund af King Charles Spaniel - kyni. Hann var með afbrigðum þrifinn og ef hann setti eitthvað frá sér reyndi hann að róta yfir það með afturlöppunum. En það var svo bara undir hælin lagt hvar yfirklórið lenti. Þetta dettur mér eiginlega í hug þegar ég las þessa frétt.
Ég vil taka skýrt fram að ekki ætla ég mér að deila á LHGÍ. Þar starfa bara dugandi menn sem ég veit að svíður þetta ástand sem er á stofnun þeirra. En að íslensk stjórnvöld skuli ekki skammast sín fyrir hvernig komið fyrir henni. Að aðeins 60-70 tonna bátur skuli einn eiga að gæta Landhelgi eyjþjóðar sem hefur lögsögu yfir að ráða sem er sjö sinnum stærri en eyjan sjálf.
Að svokallaðir ráðherrar þessarar þjóðar skuli láta sjá sig á alþjóðavettvangi er bara skömm. Er þar eru þeir bara að athlægi allra manna með eithvað vit í kollinum. Mér finnst einhvern veginn að LHGÍ menn hafi fengið skipun um að birta þetta svona til að ráðherra reyni að gera það sem ég minntist á í byrjun en krórið lenti bara ekki þar sem það átti að lenda.
Gæslumenn mega allir vera stoltir af sínum verkum enginn velkist í vafa um það Og þeir eiga ekkert annað en hrós skilið. En ráðherrar mega allir skammast sín upp til hópa. Kært kvödd
![]() |
Farið um borð í yfir 100 skip |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.6.2011 | 23:54
"stelpunum okkar".
![]() |
Birna: Vissi hvert hún ætlaði að skjóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.6.2011 | 22:11
"Pizzur að gera"
![]() |
Strekkingurinn felldi pizzutjaldið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.6.2011 | 22:01
" og að lesa gamansögu"
Þetta er eins og að lesa gamansögu eftir Wodehouse. Eyþjóð hefur aðal afkomu sína af sjávarfangi. Þykist vera að vernda fiskistofna "leigir" öll tæki og tól sem nota þarf til þess og verjast ágangi í landhelgina til annara landa. Á sjálf engin skip til að flytja útflutningsvörur. Skelfing held ég að sumar fiskveiðiþjóðir eða réttara sagt þegnar þeirra kætist.
Er ekki leikur einn að slökkva á "græjunum" og fiska að vild innan lögsögunnar? Þó aðalstjórnin í Reykjavík verði var við eitthvað eru þeir þá ekki handalausir? En þetta kemur "aðlinum" ekkert við. Þeir skemmta sér með mestu fjármálabröskurum Íslandsögunnar í sinni höll sem hægt var að byggja þrátt fyrir allar hörmungar með stórum spón úr aski þeirra sem minna mega sín.
Það myndi hæfa þessu "hænsnahúsi" að sýna eitthvað eftir Wodehouse í því. Þvílík skömm fyrir ráðamenn þessarar þjóðar sem telur sig meðal fullvalda ríkja. Svona er staðan:Kaupskipafloti til millilanda siglinga: 0 Varðskip til gæslu og björgunnar: 0 Björgunarþyrlur til björgnar og sjúkraflugs bráðlega: 1
Þetta eru kaldar kveðjur frá mestu afturhalds og íhaldssjórn í sögu lýðveldisins til þessara sem enn fást til að stunda þann atvinnuveg sem ásamt landbúnaði kom þessari þjóð á lappirnar. Kært kvödd
![]() |
Aðeins ein þyrla verður til taks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2011 | 00:31
"til að slá ryki"
![]() |
Öll olíufélög hafa hækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.6.2011 | 00:25
"helv.... lýgi er þetta".
Einhvern tíma hefði maður sagt "helv.... lýgi er þetta". En í dag leyfir maður sér ekki slíkt. Maður ætti kannske að hringa í Guðbjörn á morgun og spyrja hvort Windows Vista taki þetta kerfi já eða þannig. Er ekki sagt að dagurinn í dag sé fyrsti dagurinn í endalokum lífs manns. Því verður maður kannske aldrei of gamall til að reyna eitthvað nýtt eða svoleiðis. Kært kvödd "í gegn um netið"
Ps Ætli þetta sé þá" save sex"
![]() |
Kynlífið verði í gegnum netið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.6.2011 | 00:12
" fá ráðherrana"
![]() |
Óviðeigandi að leita að fallbyssufóðri hér á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.6.2011 | 20:28
"hvernig ástandið er"
Þetta finnst mér segja meir en nokkuð annað hvernig ástandið er í sandkassanum við Austurvöll. Með aularnir kasta skit hver í annan gleyma þeir málum sem gætu kannske bætt stöðu tóms ríkissjóðs.
Koma með einhver aulafrumvörp á síðustu metrunum þvælast í svörum og andsvörum hæstvirtur og hástemmdur eða hvað þetta heitir nú allt saman. En nokkur furða að framhaldsskólanemendur (sem eiga að erfa landið) bætist í hóp þeirra sem ekkert traust bera til þessa fólks. Kært kvödd
![]() |
Olíuleitarútboði frestað? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.6.2011 | 18:50
"Auminga landarnir "
Auminga landarnir sem varð tepptir í Eyjum. En Vestmanneyingarnir sem urðu tepptir uppi á landi, Hvað með þá? Þetta kom aðeins við mig. Þegar ég kom akandi í rólegheitum strax eftir minn venjulega fótaferðatíma (hádegi) og sá ekki hvíta Skodan fyrir utan "litla snyrtilega húsið við höfn friðar" Það lá við að pumpan stoppaði.
Nú þyrti ég að snúa við og hundskast heim og drekka kaffi frá sjálfum mér. En svo sá ég bíl fyrir utan fg hús sem vakti von í brjósti um frítt kaffi ( hafði líka gleymt Friðrik Már í Endurvinnslunni) Og öðlingurinn sem leysi "vogarmanninn" af gaf mér kaffi. Ný uppáhellt,brennt og malað Merrild 103. En þessir auminga landarnir sem tepptust hér fengu mig til að hugsa.
Hér er t.d. yfirbyggður bátur sem tekur nokkra farþega. Með leifi til farþegaflutninga (hlýtur að vera) í útsýnisferðir. Og af því að Eimskip allavega Herjólfur hefur einkaleifi á Bakkafjöruhöfn af hverju getur Eimskip ekki fengið leifi hjá Siglingastofnum að taka t.d. þennan bát á leigu til flutnings á fótgangandi fólki. Þegar lúnar vélar Herjólfs bila eins og núna um helgna, Siglingastofnun hefði svo eftirlit með hvenær fært væri fyrir bátinn, Það er á hreinu eins og ástandið er í dag að notast verður við hinn gamla og lúna Herjólf í komandi Kært kvödd
![]() |
Strandaglópar í Vestmannaeyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.6.2011 | 17:43
"Það er með hreinum endemum "
Það er með hreinum endemum þessi andsk..... þvergirðingháttur íslenskra ráðamanna, Hvort sem er í stjórnmálum eða stjórn ríkisstofnana. Þeir gera sig algerlega vanhæfa með einhverju athæfi en viðurkenna aldrei nein misstök.En verða svo kannske að "hrökklast" úr starfi vegna þrýstings almennings.
Ég hef allaf verið hrifinn af þeim feðgum Sigurbirni og Karli. En nú finnst mér Karl hafa brugðist. Þegar hann segir "ef ég hafi brugðist rangt við í málum þeirra". Þetta eina orð ef gerir gæfumunin. Með þessu efi viðurkennir hann engin mistök. Og enn fremur:" Biskupinn sagðist ekki hafa hindrað framgang máls Guðrúnar Ebbu með viðbrögðum sínum" Til að trúa þessum orðum verður maðu að renga orð Ragnhildar Bragadóttir skjalavarðar biskupsstofu um hið margumrætt bréf Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttir. Bréf sem að sögn Ragnhildar lá tæplega eitt og hálft ár í skúffu biskups.
Ætlar biskup sega þetta vanbúnað kirjunnar til að taka á svona málum. Og þegar hann talar um málið talar hann alltaf í fleirtölu við og okkur Eins og það séu jafnvel einhverjir aðrir hjá kirkjunni sem séu sekir í málinu, Sem enn og aftur á að reyna að þagga málið niður." Líta fram á veginn" heitir það. En mér finst líka fleiri þurfa að biðja konurnar fyrirgefningar fv háttsettar manneskjur í þjóðfélaginu Flesti sem hafa fylgst með þessu máli ættu að vita hvern ég meina. Kært kvödd
![]() |
Guðs og góðra manna hjálp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2011 | 19:43
" fugvirkja og flugmanna "
Miklar ásakanir heyrast í garð fugvirkja og flugmanna vegna verkfallshótana. Ekki ætla ég mér að segja það frekju hjá neinum flokki launþega að krefjast hærri launa. En ég hef oft velt fyrir mér þýðingu góðra launa.
Og þegar talað er um greiðslu launa vegna ábyrgðar þá hefur mér funndist að það virðist vera peningagæslumenn sem eigi að borga virkilega há laun, Flugvirki hefur mörg hundruð mannslíf í hendi sér daglega. Flugstjóri eitthvað færri kannske. Þessi fg störf útheimta langt nám Þessi störf þurfa nei eiga að vera vellaunuð svo að í þau sæki menn sem eru 100% til að skila þeim vel úr hendi.
Mér finnst að aðilar ferðaþjónustu ættu frekar að skammast út í flugfélög eða stjórnvöld en fg stéttir. Allir hljóta að vilja öruggt flug Það ætlar seint að síast inn í haus þeirra sem stjórna að í góð laun sækist hæfara fólk Kært kvödd
![]() |
Miðar í samkomulagsátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 79
- Sl. sólarhring: 79
- Sl. viku: 90
- Frá upphafi: 537404
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar