"hoppkastali"

Má bara ekki færa starfsemina úr "hoppkastalanum" við völlin fræga í skúr við Klambratúnið. Svo hægt væri að nota húsið við völlinn í eitthvað þarfara
mbl.is Hoppkastala á Klambratún
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fagleg vinnubrögð"

Fagleg vinnubrögð??? Er það eins og fv ráðuneytisstjóri í ráðuneyti menntamála sýndi??. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Minna á fagleg vinnubrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þurftu að vinna"

Hér á árum áður þegar "fræðingarnir" voru færri og færri svokallaðir listamenn á jötunni hjá okkur almenningi þurftu að vinna allavega stundum. Og þegar ekki var búið að finna upp námslánin þá var það vinsælt hjá þess tíma námsmönum og listamönnum að fá vinnu í "hvalnum"

 

Og viti menn þrátt fyrir "peningalyktina" frá stöðinni í Hvalfirði var þetta eftirsóttur viðkomustaður ferðamanna. Það er vitlausara en allt sem vitlaust er að hin eina sanna vistristjórn skuli ætla að láta sjónarmið nokkura svokkallaðra menningarvita slátra 150 störfum þarna í Hvalfirði.

 

Einhver "heilviti" var í útvarpinu áðan að tala um hve mikið Kristján Loftsson hefði þénað á útflutningi á hvalkjöti. Hvern andsk.... varðar okkur um það.

 

Ég hef aldrei vitað annað en að Kristján hafi greitt sínu fólki laun sem svo aftur greiða sína skatta af þeim. Þessi 180° flokkur sem kennir sig við vinstri og grænt ætti bara að halda sig inni á 101 og bíta það sem grænt er þar.

Sjaldan hafa atvinnuvegirnir til sjávar búið við aðra eins dragbíta og þenna "hægri snú" flokk. Kveð þá sem það eiga skilið kært


mbl.is Óvissa um hvalveiðar vegna lagafrumvarps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" með endemum "

Það er með endemum hvernig sumir fræðingar komast upp með allslags bull. Fyrir c.a 50 árum lét þekktur aflamaður hafa þetta eftir sér að lokinni vertíð.

 

Hann talaði um vertíðina og fréttamaður spyr:" Hver var besti veiðdagurinn"??:" 4 apríl þá fengum við 52 ts í 58 net. Áttum 6 trossur í sjó en gátum aðeins dregið 3 . Þessi ganga byrjaði NV frá Skaganum út í kanti. Eftir það mistum við af henni.

 

En mér datt í hug að leita að henni um klst siglingu sunnar á svokölluðum Hólum. Þar fann ég hana aftur og við fengum 600 tonnu úr henni á 3 vikum" svo mörg voru þau orð Þarna sést að þoskurinn kann að synda og hreyfa sig. En það virðast nafnar hans í vissri stofnun ekki vita.

 

Þeir halda að hann haldi sér alltaf á sama staðnum ef dæma má eftir hinum svokölluðum "röllum" Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Verðmæti sjávarfangs jukust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"voga sér"

Þeir ættu ekki að voga sér að hreyfa við dómsmálaráðherranum.!!!! Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Breytingar ræddar áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"opna veskið"

Halló er ekki píreygði bankastjórinn að opna veskið sitt á myndinni. Þetta skildi þá ekki  vera "fyrirboði"þess sem koma mun???? Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Sigurður Einarsson verður yfirheyrður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"enginn fátækt á Íslandi"

"Enginn fátækt á Íslandi".Var það ekki haft eftir ráðherra fjármála um daginn. Ja hérna. En þetta sýnir nú kannske best hve veruleikafyrtir ráðamenn þessarar þjóðar eru. Flýtur á meðan ekki sekkur.

 

Meðan fleiri tugir manns eiga hvorki í sig eða á er allt með ró í húsinu við völlinn. Þar spila Neróarnir bara á sínar hörpur meðan fólkið brennur inni með sín vandamál. Þeim varðar ekkert um að aldraðir öryrkjar og ýmsir hópar séu að verslast upp í raunverulegri fátækt. Þó gamlar konur séu farnar að biðja guð að koma sjálfan því þær haldi að sonurinn valdi þessu ekki.

 

 

Það eru 28 dagar til sjómannadags. Og það verður gaman að heyra hver boðskapur ráðamanna verður þann dag. Vafalaust eru til sjómenn sem gefa lítið fyrir þakkir með fögrum orðum og annan fagurgala á þessum degi. Vilja heldur sjá bætt kjör fólksins í landinu. Peningarnir sem þeir með hörðum höndum afla sé varið til að bæta kjör fólksins í landinu heldur en t.d fleiri sendiráða og allslags bulli í utanríkismálum. 

 

Mér skilst að ónefnd "jafnaðarkona" mikill dragbítur á málefni sjómanna, vilji stofna slíkt í Grænlandi. Með mikilli virðingu fyrir hinni duglegu þjóð í næsta nágrannalandi held ég að við getur látið"rafpóstinn"og Internetið sjá um samskifti okkar. Íslensk stjórnvöld hafa gengið af farmannastéttinni dauðri og eru farnir að narta í fiskimannastéttina.

 

 

Það er þrútið loft og þungur sjór í málum  íslenskra sjómanna í dag. Vonandi tekst sjómönnum og velunnurum þeirra að standa saman um hagsmuni þeirra og forðast ríkisstjórnarbrotsjóina sem eru að hefast við sjóndeildahringinn, Munið það sjómenn sameinaðir stöndum vér. Sundraðir föllum vér. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Þjóðfundur um fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"öskusvört"

Háloftin áfram öskusvört heitir þetta frétta skot. Forsetinn og fl spá Kötlugosi í framhaldi af þessu. Og hvað skeður ef það gengur eftir.Það er áætlað að henda einhverjum "millium"í auglýsingar á "ferðamannalandinu" Íslandi. Það virðist vera Ok að "henda nokkrum millum" í þessar auglýsingar. En hvernið á að koma ferðamönnum hingað ef háloftin halda áfram að vera öskusvört.

 

 

Ég hef hvergi séð að bregðast eigi við því á annan hátt en sem nú er. Það skildi það aldrei vera að sá hópur manna sem 101 elítan minnist aldrei á og að mínu mati skammast sín fyrir að vera komin út af sem koma til með að bjarga þessu. Sjómenn. Hvergi er t.d. minnst á að ef allt flug bregst þá verði að leigja skip til farþegaflutninga. Kaupa skip til þess arna er sennilega ekki til umræðu.Hafið tryggði landinu lengi frelsi,víðáttu þess átti þjóðin lengi frelsi sitt og frjálsræði að þakka. Þessir tímar gætu verið handan við hornið.

 

 

Það voru sjómenn auk bænda sem oft voru hvorutveggja sem komu þessari þjóð á lappirna. það verða sjómenn sem að mestu leiti  koma þessari þjóð aftur á lappirnar nú eftir að"gæludýr" 101 elítunar kipptu þeim undan henni. Of ef ílla fer verða það þeir sem sem halda henni í sambandi við ummheiminn. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Háloftin áfram öskusvört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"virki rétt"

Nú er bara að vona að "réttvísin" virki rétt, Fólk er meira eða minna að tapa trúnni á hana eins og á stjórnmálin. En ég treysti á hinn ópólitíska?? ráðherra dómsmála. Og ég hef grun um að margir líti á parið, hana og sérstakan saksóknara sem síðasta hálmstráið hvað það varðar, Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Skýrslutökum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"laun herrana"

Það verður nú að sjá um að þessir"herrar" hafi skyrtur og skó til skiftana Þetta eru nú sennilega ekki alveg "viðhaldslausir"menn.Hvaða byrðir skyldu nú lagðar á okkur þessa helv.... asna sem erum búnir að vinna, má segja skítverkin. Þó ég hafi aldrei talið sjómennsku vera skítverk og sannarlega verið hreykinn af starfsheitinu "Sjómaður"

donkey Byrða á okkur asnana

Þá er ég sennilega ekki ofarlega í metorðastiga mannlífs þessa lands. En ég hef engar áhyggur. Foreldrar mínir voru höfundar að fæðingu minni, vonandi í samvinnu við þann sem öllu ræður. Og ég sjálfur höfundur að lífi mínu. Kannske í takmarkaðri samvinnu við sama aðila.

UpstairsDownStairsFront Metorðastiginn??? 

En það er gamallt fólk sem kannske byrjaði að tapa aleigunni til stórþjófa. Og eru nú að tapa stórum peningum fyrir stórtöp þeirra lífeyrissjóða sem það kannske náði að borga í einhver ár, Hugsið ykkur fleiri tugir ef ekki hundruð sjóðsfélaga á aðalfundum en teljandi á fingrunum atkvæðisbærir menn. 

Old Seaman 

Hvaða geðveiki er eiginlega i gangi. Er virkilega allt að fara til andsk.... og engin virðist hafa vilja til að stöðva það. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Kjararáð leitar til ráðuneytis vegna launakjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"siðblinda"

Það er sárara en tárum taki þessi siðblinda í þessu fólki sem kennir sig við stjórnmál, Heldur þetta fólk að almenningur trúi hverjum andsk...... sem á borð er fyrir hann er borið. Mér finnst fyrirlitningin hjá þessu liði vera hreinlega alger á svokölluðum almenningi.

Það megi segja því allan fjan... og hann þ.e.a.s almenningur eigi bara að steinhalda kja... og taka allri lyginni sem einhverjum sannindum Kært kvaddir þeir sem það eiga skilið.


mbl.is Fella kaupmálann úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"láta taka mark á sér"

Skelfing eru stjórnmálin orðin lákúruleg, Og hrokinn í svokölluðum"stjórnmálamönnum/konum" ríður hvorki við einteyming eða berbakt.Þetta er haft eftir einni slíkri í einu blaðanna um framboð Jóns Gnarr:" Það er eiginlega ekki bara gult spjald á stjórnmálaflokkana, það er líka falleinkunn fyrir kjósendur,“ segir Ólína" Enn ein sönnunin hvernig þetta hys.. lítur á okkur þessa sauðsvörtu.

200px Yellow card svgFyrst 2 svona en þau eru komin

Þetta segir ein af þeim manneskjum sem situr á hinu "lága"alþingi og ætti að taka svona framboð ekki sem gult spjal heldur sem Rautt og það með stórum staf. Misstökin sem kjósendur gerðu var að kjósa fólk eins og hana í í húsið við völlinn í austri. Fyrir það ættu kjósendur ekki að fá gult spjald heldur líka Rautt, Ímyndið ykkur hrokann sem fellst í þessum orðum þingkonunnar. "Ja miklir menn erum við Hrólfur minn og fallega pissar brúnka"var einhverntíma sagt.

292399741 0 Svo er það þetta mundið það. Það verður þjóðin sem gefur ykkur það. Þið sem eruð gagnlaus við húsinu við völlinn.

Þetta fólk sem situr inni í húsinu við völlinn sem vill láta taka mark á sér ætti að sjá til að þar verði hreinsað til. Þó konan með gula spjaldið tali digurbarkalega nú kemur að skuldadögum. Og þá væri það grátlega fyrir hana að falla fyrir einhverju "grínframboði" sem verður nóg af ef heldur fram sem horfir. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Krefjast afsagnar stjórnmálamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"rugl og vitleysa"

Hvaða heilvita manni með meðalgreind kemur í hug að ó-læsir og skrifandi uppgjafa fiskimenn á smájullum taki svona skip ná hjálpar innanfrá(innherjaverknaður)  Moscow University, Rússneska tankskipið sem þeir tóku í morgum lítur svona út:

 Ship+Photo+MOSCOW+UNIVERSITY Fórnarlambið

Gallery Somali pirates Pi 005 Ræningarnir

p13 17777557 og hér

 


mbl.is Sómalískir sjóræningjar hertóku flutningaskip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"rúlla þessu upp"

Einhvernveginn held ég að Hanna Birna eigi eftir að"rúlla"þessu upp. Með allri viðingu fyrir hinum kvernkyns formönnum framboða. Og þó ég sé henni ekki sammála í landsstjórnmálum. En mér fannst hún sýna af sér skörungsskap í sirkusnum kringum Ólaf F.

Þegar hún tök af skarið þegar hann réði ekkert við ástandið og kom lagi á hlutina. Sveitastjórnamál og landsmál eru að mínu mati ekki sami hluturinn. Og það kæmi mér allsekki á óvart að þarna sé næsti formaður XD.

Mér hefur alltaf þótt Dagur vera of tækifærissinnaður og hann er ekki maður að mínu skapi. Jón Gnarr gæti ef svo heldur fram sem horfið sett strik í reikninginn. En Hanna Birna getur sett upp heillandi bros og Gnarr fer að nálgast vissar litabreytingar í aldri.

Og heillandi bros getur "doblað" okkur þessa gráfiðruðu upp úr bæði sokkum og skóm. Ég held að hinir frambjóðendur eigi ekki möguleika. En þetta eru nú engar sraðreyndir heldur hugleiðingar gamalls kalls á "vissu" skeiði. Kært kvaddir sem það eiga skilið.


mbl.is Jón Gnarr og Hanna Birna best
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þó nú væri"

Vitaskuld þurfa allir hærri laun. Bankamenn og aðrir launþegar. Vitaskuld þurfa öryrkjar mannsæmandi laun/bætur auk eldri borgara atvinnulausra og annara sem minna mega sín.

Og ekki ætla ég að gera lítið úr hinum almenna bankastarfsmönnum.Þó nú væri að þau fái hærri laun En spurningin er einfaldlega þessi: gengu þessi hækkun upp allan skalann?. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Laun bankamanna hækka 1. júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vegið í sama knérunn"

Það er haldið áfram að vega í sama knérunninn. Veikt fólk öryrkjar,eldri borgarar og þeir sem minna mega sín er enn og aftur látið borga reikninginn.

Meðan þjófarnir (maður getur ekki kallað þessa menn annað) leika við hvern sinn fingur. Búa í fleiri fermetra húsum hérlendis og erlendis. Eru að koma verðmætum úr landi beint fyrir framan augun á yfirvöldum. Og ferðast um heiminn sem aldrei áður.

 

Og eftir að hlusta á  Kastljós undanfarið heyrir maður að þeir menn sem við völd voru og fengu peninga til að "styrkja"lýðræðið kunna ekki að skammast sín frekar en fyrri daginn Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Reynt að lækka lyfjakostnað sjúkrastofnana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"lífsreynsla"

Það var líka mögnuð lífsreynsla að að hlusta á "Kastljós" kvöldsins. Hvernig fv ráðherra var í örvæntingarfullu undanhaldi líkt og hershöfðingar Hitlers í undanhaldinu í Rússlandi, í seinni heimsstyrjöldinni  

Og skilur ekki enn að þess lengur setið er í svona stöðu því fjær er hann endurkosningu. Allavega ef maður skilur almúgan rétt. Þetta fók skilur ekki að klukkan glymur því ekki lengur. En þetta helv.... gullfiskaminni íslendinga ríður að vísu  ekki við einteyming Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Algjörlega mögnuð lífsreynsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fyrstu hreinu"

Þá fyrst færi nú skörin að færast upp á bekkin ef við ynnum þennan að marga tónlistamanna(ég hef ekkert vit á tónlist) mati skrípaleik. Þá yrði nú gamlingarnir að herða enn sultarólinu því enhverjar "millur" kæmi það til að kosta.

 

Frú Jóhanna og þau hennar hjú í hinni fyrstu hreinu vinstri stjórn yrðu nú ekki lengi að koma með eitt svipuhöggið enn. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Spá Íslandi úrslitasæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"heilli atvinnugrein"

Eldgosið í Eyjafjallajökli ógnar heilli atvinnugrein er sagt. En hvað með að 1 ríkisstofnun ógni nokkrum atvinnugreinum. Báta koma eftir sólarhringsveiðiferð með fullfermi og verða að bíða löndunar vegna að ekki hefst undan

 

Það voru sett lög til að setja mann úr "stjórastól " hjá Ríkinu fyrir ekki alls löngu, Hvernig væri nú að fara að athuga fleiri "stjórastóla" En sennilega af því að orðið "fræðingur" er skeytt aftan við starfsheitið þá sér 101 elítan ekert athugavert. Það lið kemur aldrei til með að skilja af hverju slorlykt er. Ja svei-attan. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is 700 milljónir króna í markaðsátak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"góðar fréttir"

Verður ekki að kalla þetta góðar fréttir nú á þessum síðustu og verstu tímum. Það virðist ekkert vera hægt að spara annað en það sem mest bitnar mest á þeim sem síst skildi. Kært kvaddir sem það eiga skilið.
mbl.is Nýtt til að efla þyrlubjörgunargetu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2010
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband