"enginn fátækt á Íslandi"

"Enginn fátækt á Íslandi".Var það ekki haft eftir ráðherra fjármála um daginn. Ja hérna. En þetta sýnir nú kannske best hve veruleikafyrtir ráðamenn þessarar þjóðar eru. Flýtur á meðan ekki sekkur.

 

Meðan fleiri tugir manns eiga hvorki í sig eða á er allt með ró í húsinu við völlinn. Þar spila Neróarnir bara á sínar hörpur meðan fólkið brennur inni með sín vandamál. Þeim varðar ekkert um að aldraðir öryrkjar og ýmsir hópar séu að verslast upp í raunverulegri fátækt. Þó gamlar konur séu farnar að biðja guð að koma sjálfan því þær haldi að sonurinn valdi þessu ekki.

 

 

Það eru 28 dagar til sjómannadags. Og það verður gaman að heyra hver boðskapur ráðamanna verður þann dag. Vafalaust eru til sjómenn sem gefa lítið fyrir þakkir með fögrum orðum og annan fagurgala á þessum degi. Vilja heldur sjá bætt kjör fólksins í landinu. Peningarnir sem þeir með hörðum höndum afla sé varið til að bæta kjör fólksins í landinu heldur en t.d fleiri sendiráða og allslags bulli í utanríkismálum. 

 

Mér skilst að ónefnd "jafnaðarkona" mikill dragbítur á málefni sjómanna, vilji stofna slíkt í Grænlandi. Með mikilli virðingu fyrir hinni duglegu þjóð í næsta nágrannalandi held ég að við getur látið"rafpóstinn"og Internetið sjá um samskifti okkar. Íslensk stjórnvöld hafa gengið af farmannastéttinni dauðri og eru farnir að narta í fiskimannastéttina.

 

 

Það er þrútið loft og þungur sjór í málum  íslenskra sjómanna í dag. Vonandi tekst sjómönnum og velunnurum þeirra að standa saman um hagsmuni þeirra og forðast ríkisstjórnarbrotsjóina sem eru að hefast við sjóndeildahringinn, Munið það sjómenn sameinaðir stöndum vér. Sundraðir föllum vér. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Þjóðfundur um fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 535266

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband