"á óvart"

Hvenær þóknast íslenskum stjórmálamanni að segja sannleikann í 1stu atrennu ??? kært kvödd
mbl.is Afsögn kom Jóhönnu á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg til !!!!!

Ætli þetta verði framtíðin. Að senda "trúðana" út í geimin. Við eigum nokkra sem væri gagn að losna sig við. Kært kvödd
mbl.is Trúður út í geim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær???

Hvenær skildi það ske að spiltir íslenskir stjórnmálamenn þurfi að standa skil á gerðum sínum og taka afleiðingum af þeim ???  Eða eigum við enga slíka og eða höfum við aldrei átt þá. ??? Ég bara spyr????.Kært kvödd


mbl.is Fujimori fær fleiri ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útrásar.......

Eru sumir að færa út kvíarnar??? Allt skipulagt í þaula. Vantaði meira klink, ??? Ég bara spyr. Kært kvödd
mbl.is Þrautþjálfaðir glæpamenn að verki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrt ævintýri

Hræddur er ég um að þarna hafi verið of dýrt að spara. Gerði enginn sér grein fyrir hæðinni á stórstreymsflóðinu??? Laxfoss Laxfoss Hvar eru nú allir fræðingarnir sem yfirleitt er ekki hægt að þverfóta fyrir. Það kæmi mér ekki á óvart að hinir virkilegu sérfræðingar þ.e.a.s. mennirnir um borð hefðu aldrei verðið spurðir út í þetta. Herðubreið Herðubreið.Hef persónulega reynslu af hvernig gengið var framhjá slíkum sérfræðingum en hinir hámenntuðu látnir ráða með miklum kosnaði. Herjólfur Herjólfur Ef þetta með hæðina hefði verið athugað hefði verið leikur einn að laða áætlun skipsins að aðstæðum Og komist hefði verið hjá að baka einhver vandræði sem skráð eru sem tafir.image 20 Herðubreið  Það er stundum ódýrara að leita ráða hjá mönnum sem hafa reynsluna úr sjálfu lífinu heldur en til þeirra sem hafa vit sitt úr  bókum. Hæfileg blanda af hvorutveggja er góð. Ég læt fylgja með myndir af skipum sem fluttu farþega til og frá Vestmannaeyjum.

Í auglýsingu um Laxfoss frá 1943 segir m.a:"M.S Laxfoss sem er hraðskreiðasti flóabáturinn, kemur yður í samband við fjölþættasta vegakerfi landsins" Ekki er mér fyllilega kunnugt um hvernig Vestmannaeyja ferðir Laxfoss voru uppbyggðar. En ég man að hann kom ekki í Borgarnes á mánudögum og fimmtudögum SkjaldbreiðSkaldbreið.Laxfoss átti sér skrautlega sögu sem ég segi kannske seinna.Breiðarnar svokölluðu voru lítil og nett farþega og flutningaskip byggð í Skotlandi 1947-48.

Herðubreið var smíðuð í George Brown & Co Ltd í  Greenock 1947, Yard nr 242.366 ts. 45.26 loa. 7.42 brd. Farþegafj: 12. Skipið var selt 1971 Norðurskipum (Bjössi Haralds og fl.) Sem svo selur skipið strax sama ár til Panama  Það fær nafnið Elenore I. Það var rifið í Arzew(Alsír) 13.5.78VIKING%20BLAZER Skaldbreið sem Viking Blazer Skjaldbreið var eins og Herðubreið að öllu leiti. Skipið var selt 1966 til Englands og fækk nafnið VIKING BLAZER,1969 MARIANTHI - 1970 ALEXANDROS V - 1980 FROSINI.Skipið var rifið í Grikklandi 1984. Skipin fóru yfirleitt 1/2 hring kring um landið Herðubreið A um og Skjaldbreið V-um .

 

Herjólfur I var byggður hjá Bodewes, G.& H. í Martenshoek Hollandi 1959. 490 ts Loa 49.25 m. Brd 9.02. m. Farþegafj: 64, Skipið var selt til Honduras.Það fékk nafnið Little Lill. Það var svo í flutningum í Caribbean Sea þar til það strandaði 1983 og ónýttist. Læt þetta duga í bili


mbl.is Ferjuferð seinkar frá Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slöngubit ???

Hélt að þetta væri forsaga fréttarinnar um kyrkislönguna í klóakinu,, En fjarðlægin er of mikil til að það sé rétt. Kært kvödd


mbl.is Berrassaðar löggur á hlaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað þá????

Ég hef heyrt á nokkrum vinum mínum sem eru áskrifendur að Mogganum, að ef ónefndur maður verði ritstjóri blaðsins segi þeir upp áskriftinni. Það vanta ekki að ritfær er hann. Það held ég að vefjist ekki fyrir fólki. En sem ritstjóri Moggan ja ég veit ekki. Kært kvödd
mbl.is Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"kemu ykkur á óvart"

Ég las einhverstaðar um daginn eftir framkvæmdastjóra Baldurs að hann (Baldur)ætti eftir að koma Eyjamönnum á óvart.image 19 Og það hefur hann gert. En ekki eins og útgerðarmaðurinn vildi meina held ég. En ekki er við þá Baldursmenn að sakast. Þetta eru bara menn að vinna sína vinnu og gera það ains vel og hægt er. Enda hef ég engan heyrt neitt agnúast út í þá. Enda væri slíkt fásinna að mínu mati. EsjOg eitthvað finnst mér ílla að málum staðið hjá þeim stjórnvöldum sem að málinu hafa komið. En nóg um það. Mér er oft hugsað til þegar við íslendingar áttum almennileg farþega skip. Þá er ég ekki að meina ferjur. Heldur alvöru farþega skip. DSC01535 Ég veit ekki en mér þótti þau skip virkilega falleg. Þau sem ég man eftir eru 1st Esja 2image 11 Byggð í Álaborg  1939.Fyrir Skipaútgerð Ríkisins. 1347 ts. 500 DWT. 70.3 Loa 10.9 brd  Skipið tók 148 farþega á 2 farþegarýmum.Seld 1969 til  Bahama fær þá nafnið Lucaya. scan0088 1 1973. Ventura Beach. 1977 seld ti Nigeríu og fær mafnið  Nwakuso Skipinu var sökkt á Mesurado fljóti Liberíu 28-07-1979image 10 Hekla 1 byggð í Álaborg 1948 1458 ts. 535 DWT.Loa 72.74 m. Brd 11.02 m Tók 166 farþega á 2 rýmum. Selt 1966 til Grikklands og fær nafnið Kalymnos.1968 fær skipið nafnið Arcadia. 1968 fær skipið aftur nafnið Kalymnos.

 Skipið rifið í Megara Grikklandi 1983. Flestar mynir úr safni Tryggva Sig. Myndin af Ventura Beach er tekin á Canarí af Torfa Haraldssyni á sínum tíma. Kært kvöd


mbl.is Baldur var ódýrastur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borgar ???

Hver borgar svona ferðir??? Almenningur hér á landi ??? Clinton ??? Yfirvöld í USA ??? Mér finnst, allavega við þessir sauðsvörtu eigum að fá að vita hver borgar svona ferðir. Mér finnst að það eigi að fara að spara ferðalög þessara svokallaðra ráðamanna. Nota borðfánana meira eins og einn fv ríkisstarfsmaður stakk upp á fyrir all mörgu. Kært kvödd


Nakinn maður og annar........."

Það er furðulegt hve naktir menn eru meira til vandræða en naktar konur.Að maður tali nú ekki um muninn á ásýndinni. Og svo eru þessir í kjólfö..... Kært kvödd
mbl.is Nakinn og til vandræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hávaðahöllin

Hvað með hávaðahöllina við Faxagarð ??? Má ekki nota hana sem fangelsi til bráðabirgða. Ég hlustaði á unga konu vera að tala við ja sennilega yfirmann fangelsis mála (kom inn í samtalið og  það var ekki kynnt eftirá)

 

Hún  spurði´nn eitthvað á þá leið hvernig hægt að kaupa flugvél fyrir einhverja mijarða fyri LHGÍ,meðan ekki væri hægt að byggja fangelsi.

Lítið er vitið um undirstöðurnar hjá þessu liði. Sem t.d. er að mótmæla öllum fjan..... en vita ekki hvað verðtrygging er.

 

 

En ég spyr miklu frekar Hvernig er hægt að henda milljörðum í hávaðahús meðan ekki eru til peningar til að auka rými fyrir betrunar sakamanna.

 

Og ég hef heyrt að fólk sé á móti að sakamenn frá öðrum löndum séu sendir til til síns heima vegna mannúðar. Það er sem sagt OK að menn komi hingað og brjóti af sér. Við skulum bara láta þá taka pláss frá okkar sakamönnum 

Og í fangelsum sem við segjum úrelt en þeir lýsa sem 5***** hótelum. Það er von að erlendir sakamenn séu í auknum mæli að sækja hingað. Kært kvödd


mbl.is Auglýsir eftir húsnæði undir fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frétt ???

Er þetta virkilega frétt. 1 maður í fagngelsi á laugardagskveldi, í rúmlega 4000 manna samférlagi. Er það orðið svo að þetta var það eina neikvæða sem fréttamenn fundu. Eða er ég kannske að miskilja heila málið.

Og ef maður þá skiftir um gír og og lítur jákvætt á málið þá finnst mér þetta jákvætt og sýnir hve samfélagið hér í Eyjum er gott. Og hvað löggæslan hér er framúrskarandi góð. Mér finnst satt að segja vanta jákvæðar fréttir af lögreglumönnum.

En jákvæðu hlutirnir eru ávallt framkvæmdir í kyrrþey og þykja ekki fréttnæmir. En 1 maður í djeilið gvöð. Þetta hlýtur að hafa verið aðkomumaður.!!!!!Kært kvödd


mbl.is Einn í fangageymslu í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Red Lion

Það eru yfir 50 ár síðan ég kom fyrst inn á Rauða Ljónið. En það var ekki Rauða Ljónið hennar Dolly í Buckinghamshire. Heldur Red Lion í  Lincolnshire. Nánar til tekið Grimsby.redlionfolkclub Ekki man ég eftir neinni Dolly þar. red lion tavern png En Magga var þar á Red Lion. Magga var mikill "íslendingavinur" Starf hennar kom inn í myndina þegar störfum kollega Dollyar enduðu.Lion2BAR0602 468x366 Ég vona að enginn miskilji meininguna með myndinni. En sem mikill aðdáandi Red Lion (á góðan blogvin sem kallar sig það líka)á Englandi sendi Ég Dolly Saville mínar bestu kveðjur með RedLionLogo von um að hún nái 100 ára aldrinum. Kært kvödd
mbl.is Hefur þjónað á Rauða ljóninu í 69 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slys á sjó

Sem gömlum sjóara sem aldrei hugsaði um öryggi til sjós á sínum tíma finns mér nú aldrei nóg gert til að tryggja öryggi sjómanna. En mergurinn málsins finnst mér vera sá að sjómaðurinn sjálfur sé meðvitaður um sitt eigin öryggi.carissaburns 1 Sjómenn ættu að forðast þann hugsunarhátt sem einkenndi mína kynslóð. Segja ekki  t.d við þá sem þá sem vilja hugað að örygginu "Ertu sjóhræddur" Eins og var oft þekkist hér áður fyrr. diisaster2006fortune4  Ég hugsa með háffgerðum hryllingi þegar menn reyktu í kojunum. Dós undan niðursoðinni mjólk skorin þannig að hægt var að hengja hana á rúmstokkinn. Og þegar maður hugsar um loftræstistokkana.800px mv hyundai fortune port side aft hole Ég var af og til yfir 20 ár á nýsköpunartogurunum en ég man aldrei eftir að þeir væru hreinsaðir. Og ef  kjötpoki (grisja) var bundin fyrir úttakið varð hann kolsvartur eftir andartak. 4 13 lg Menn geta ímyndað sér eldhættuna sem fáir eða enginn hugsaði út í. Eldurinn er að mínu matu orðinn skæðasti óvinur sjómannsins. Miklu skæðari en áður var vegna gerfiefna nútímans. En sem betur fer eru sjómenn nútímans meira upplýstir um hætturnar. ships wheelhouse destroyed bridgeÞökk sé Hilmari Snorrasyni og hans mönnum LHGÍ og starfsmönnum hennar og Siglingastofnum Íslands (vona að þetta sé rétt nafn) og starfsmönnum hennar. En góð vísa er aldrei of oft kveðin. Þessa slóð hefðu allir sjómenn gott af að skoða: http://www.nautinst.org/london/Presentations/Docs%20for%20website/Seminars%20etc/Lifeboat%20Safety/Schat-Harding%20Group%20Presentation.pdf  Og slysin gera aldrei eða sjaldan boð á undan sér.disaster2006grandenigeria2 Nútímasjómaðurinn má aldrei frekar en þeir gömlu máttu, slaka á árverkninni þrát fyrir alla tæknina singles07minesweepwer1 Það er eigilega með endemum hvernig oft er staði að mönunar málum. Örþreyttir menn á stjórnpöllum skipa að fylla út einhverjar andsk..... skýrslur wev Læt þetta duga í bili. Kært kvödd


Óláns skip

3 skip sem  byggð voru í Færeyjum áttu sér slysaleg endalok. Þetta eru skipin Nordlandía sem var byggt hjá Skala Skipasmidja 1980 1130 ts. að stærð  1372 DWT.Loa 67.3 m. Brd 12.m. 2003 fær það nafnið ZAPOLYARYE síðan 2004  PETROZAVODSK En undir því nafni fórst skipið við Bjarnarey í maí síðastl.Mannbjörg. Ég sagði frá því í bloggi um daginn http://solir.blog.is/blog/solir/entry/948887/#comments 

Photo Petrozavodsk Nordlandia sem PETROZAVODSK

Síðan er það skipið ; Olavur Gregersen. Byggt í Skala Skipasmidja 1982 1071 ts. 1450 DWT 67.3.m Loa 12 m brd. 1983 fær skipið nafnið Selfoss 1984 fær það aftur nafnið Olavur Gregersen. Skipið ferst svo við Austurey 10-01-1984. MannbjörgimageOlavur Gregersen sem Selfoss

Svo var það skipið Helena. Byggt 1995 í Skala Skipasmidja 1021 ts. 1700 DWT  76.9.Loa. 13.0 m. brd. 1988 fær skipið nafnið Halgafelli. Þ 11-01-2000 ferst svo skipið við N- Noreg. Mannbjörg,scan 18image 2 Helena. Læt þetta duga um þessi óláns skip. Kært kvödd


Annar blær

Öðruvísi mér áður brá. Nú talar Steingrímur eins og ljúft lítið barn. Þessi andsk..... rimmugýskjaf... sem í stjórnarandstöðu var ekkert nema images og þagnaði aldrei   Og ekki vantaði kjaf.... í umræðunni umbigmouth International Monetary Fund (IMF) En nú er hann(SJS) eins og lítið barn sem child kennir öðrum um ófarirnar. Og á meðan heimilin eru að sökkva TwinStar2 í skuldafen eru stjórnvöld eins og baby8 og útrásarvíkingarnir gefa okkur baradavos moon 1207846iÞað hefur aldrei verið sannað eins rækilega hve ráðherra stólarinir eru keyptir dýru verði fyrir okkur heimskingana sem teljast til hinnar sauðsvörtu.Við sitjum í súpunni þó ónefndur maður black sheep reyni að sleikja okkur upp öðru  hvoru. Við höfum verið höfð að algerum fíflumBig Mouth Basket TossÞví það hlustar enginn á okkur . Kært kvödd


mbl.is Vanskil aukast hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til einhvers ???

Ég skil vel hina miklu reiði í fólki. En er þetta bara ekki rögn aðferð ? Lendir þetta bara ekki á þeim sem síst skildi. Það kostar kannske stóra peninga að þrífa þetta. Og hvað þá með tryggingarnar. Verða þær ekki látnar borga brúsann.

 

Og svo verða tryggingarnar bara hækkaðar á fólki almennt. Þessir menn sem þetta  á að bitna á er alveg ands...... sama. Þetta verður bara þrifið eins og allur annar skítur frá þessum gæjum og almenningur borgar. Þannig er nú það. Kært kvödd


mbl.is Nágrönnum auðmanna líður illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipstjórn og vodka

"Ja þér ferst flekkur að gelta" segir kannske einhver sem þekkir mína fortíð og byrjar lestur á þessu bloggi. En mig langar til að taka fyrir áfengisneyslu og skipstjórn, Og kannske út af þessum ummælum Rússlandsforseta.800px Federal districts of Russia En rússar hafa alltaf verið frægir fyrir vodkadrykku Þeir hafa búið við einræði í margar aldir. Og maður breytir ekki svona þjóðfélagi á einni nóttu í des 1991.541px Russian Federation %28orthographic projection%29 svg Og eftir minni reynslu en ég hef komið nokkuð oft í rússneskar hafnir bæði fyrir og eftir 1991, finnst mér drykkjuskapurinn alltaf vera að aukast. En ég tek fram að þetta er bara mitt prívat álit. Og ég vil líka taka það skýrt fram að maður getur ekki dæmt heila þjóð eftir nokkrum slæmum einstaklingum. Einhver besti vélstjóri sem ég hef siglt með var rússi. Og hann bragðaði ekki vín 800px Novosibirsk Vauhxall Og ég veit af nokkrum einstaklingum hér í Eyjum sem eru sjálfum sér og landi sínu til mikils sóma. Nú  í  sambandi við áfengisdrykkju og stjórn skipa þá hef ég setið begga vegna borðsins,ef svo mætti segja . Photo Petrozavodsk Petrozavodsk  Fyrir nokkru,eða í maí sl strandaði flutningaskipið Petrozavodsk við Bjarnareyjar. Mannbjörg varð en bæði skipstjóri og stýrimaður voru síðan sakaðir um að hafa verið drukknir. Skipstjórinn mældist með 1.3 próm en stm með 0.3 próm. En hann (stýrimaðurinn) var einnig sakaður um að hafa verið sofandi þegar slysið varð. Petrozavodsk 9878777987882998788310512pod03img650x367 vsv Petrozavodskslysið  Skipið kom oft hingað til Eyja. Ég tók einusinni af því mynd en finn hana ekki nú. En myndir frá slysinu og skipinu fyrir slysið (Shipspotter)eru af netinu.481 400x300 Þarna var Bakkus einnig við stýrið.Við sem erum eldri en tvævetur munum tímana tvenna í þessum málum. Vera drukkin er stórhættulegt  en var stundað það vitum við. En til að finna smáafsökun sem er eiginlega ekki sæmandi að orða svo. Þá mætti kannske segja (orðið dálítið langsótt) að tímarnir voru aðrir.

Yfirleitt 2-3 stýrimenn með vaktfrían skipstjóra. Og ég get hreinlega tekið undir með ónefndum alþingismanni sem ekki taldi sig drukkinn þótt hann væri það satt að segja. Ég drakk um tíma vodka og taldi mér trú um að enginn fyndi af mér vínlykt. Svona er afneitunin á sjálfan sig drukkin mikil. En nóg um það en vodkadrykkja á Rússum í siglingum er velþekkt.Maumee2 Og því miður fengið hörmulegar afleiðingar. En það er ábyggilega mjög erfitt verkefni fyrir Dmitrí Medvedev og Putin að ná tökum á ölum þessum smákóngum sem höfðu hreiðrað um sig á öllum sviðum þjóðlífsins bæði til sjós og lands. Kært kvödd


mbl.is Rússlandsforseti segir spillta embættismenn stjórna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað skipsrán???

Nú spyr maður verður öðru "timburskipi" rænt bráðlega ? Ekki geri ég ráð fyrir að CIA frekar en Mossad láti það viðgangast að "óvinurinn" fái rússnesk flugskeyti. Kært kvödd


mbl.is ,,Af hverju ekki skriðdreka?"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með ... ???

Er ekkert í gangi með "skrautlegasta" forsetan. Og svo spyr ég er Ólafur stjórnmálaleiðtogi?? Fyrirsögnin ekki í samræmi við greinina. Kannske villa hjá Mogganum ?? Kært kvödd
mbl.is Dorrit meðal litríkustu maka þjóðarleiðtoga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2009
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 535299

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband