30.8.2009 | 21:20
"óbrúkleg verkfæri"
Verkfærin sem þessi banki notar virðist vera algerlega óbrúkanleg á réttri íslensku"ónothæf". useless. (Maður er ekki lengur viss um hvaða tungumál er notað í þessum ekkisen banka)
Allavega í augum fólks með svona, ekki mikið lægri en meðalgreind. Hvað hefur áunnist hjá honum þessum and....... banka sem átti að gæta þess að fjármálin færu ekki út um víðan völl eins þau og gerðu. KK
Seðlabankinn hefur fleiri tæki en bara stýrivexti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.8.2009 | 21:04
"Talan úr buxunum"
Morgungolan svala svalar /syndugum hugsunum./ Sínu máli talan talar / talan úr buxunum./Kvað að mig minnir Þura úr Garði. Eftir að hafa fundið buxnatölu í Lystigarðinum á Akureyri. Já það skeði margt í garðinum þeim. Eins og kannske í ónefndum garði í örófi alda. Kært kvödd
Bestu garðar Akureyrar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2009 | 20:56
"til hægri"
Á þá að víkja til hægri. Ja drottinn minn dýri. Kært kvödd
Víki verði fyrirvörum hafnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2009 | 20:53
Nefbrot í"den gamle gode dage"
Ég þurfti nú ekki á ball til að hljóta nefbrot. Vinur minn gerði það um borð í bát alveg ókeypis.
En ég er nú án gamans að hugsa ef þeir bara hættu við svo búið nú til dags. En nú byrjar víst"ballið" ef eitthvað hefur gefið eftir hjá andstæðinum og ef hann liggur óvígur í gólfinu/götunni. Kært kvödd
Nefbrot á balli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2009 | 20:42
Jóh 6:63
Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt. Verður maðurinn ekki bara að bíta í það súra epli. Kært kvödd
Sakar Landspítala um mistök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2009 | 20:15
Hver lýgur mest !!!!
Það er með hörmungum hve stórum augum þetta þinglið lítur á sig. Rakst fyrir tilviljun á þessa færslu: http://gislibal.blog.is/blog/gislibal/entry/940136/
Annað hvort er þessi umræddur þingmaður með ja því var lýst í tölvupósti um daginn eða með paranoid. Lightly or hight. Fyrr mætti nú rota en dauðrota.
"Ja miklir menn erum við Hrólfur minn og fallega pissar Brúnka" Ég segi nú ekki annað. Og ég held satt að segja að framsóknarmenn megi þakka sínu sæla. Svo mætti kannske mæla hver af þessu setuliði lýgur mest. Kært kvödd
Aftur talaði Pétur mest allra á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2009 | 19:13
Til hamingu stelpur !!!
Ég tek hattinn ofan fyrir þessum stelpum. Þær voru landi og þjóð til mikils sóma. Það eru svona hversdagshetjur sem vekja áhuga manna á landinu erlendis. Allavega hjá almenningi þar. Ég þvældist um heiminn í 15 ár og þegar menn vissu frá hvaða landi ég kom, þá var sagt "yes Iceland Hófí and John Pall"
Ég man eftir að ég var einusinni í höfn í S-Frakklandi þá höfðu Íslendingar gert að mig minir jafntefli eða jafnvel unnið( man það ekki alveg) frakka í fótbolta. Og þeir vissu nöfnin,( mikið bjöguð að vísu) á sumum íslensku leikmönnunum. Meira en ég vissi. En höfðu ekki hugmynd um nafn forsetans eða forsætisráðherranum. Kært kvödd
EM: Katrín gefur kost á sér áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2009 | 18:41
"viðskiftavild"
Ég gef nú lítið fyrir yfirlýsingar svokallaðra "hæsttvirtru" ráðherra hvar í heimi þeir eru. Ég man eftir að íslendingar voru látnir éta óætar finnskar kartöflur til að"liðka" fyrir viðskiftum SÍS.
Það er með ólíkindum hvað þessir fg menn leggja á borð fyrir almenning. Og ætlast tið að hann ( almenningur) trúi þeim. Og eða hvernig þessir svokölluðu "háttvirtu" þingmenn eru að reyna að halda í tiltrú manna á störf þeirra. Þar ríður andsk..... sýndarmennskan ekki við einteyming.
Eins og t.d. þegar þingforseti (sem ekki alltaf hefur kallað allt ömmu sína hvað orðaval snertir) gerði athugasemd við orðið "vítavert" hjá ekki skoðanabróðir. Hve lágt þarf þingmaður að leggjast til að "þóknast" þessum "smákóngum"sem kallast þingforsetar.
Annar þingforseti leifði kófdrukknum skoðanabróður að vaða á súðum í ræðustól á hinu svokallaða "háa" alþingi. Svo á maður að bera virðingu fyrir þessu setuliði. Ja fussu svei. Kært kvödd
Straw svarar Lockerbie ásökunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2009 | 16:51
"heimilisfangið"
Heimilisfang eignað guði var 1sta heimilisfangið sem ég lærði utan að. Þegar ég var að alast upp í Borgarnesi var t.d.nóg að skrifa utan á bréfi til fólks í bænum;" NN Borgarnesi". Eða eitthvað á þá leið. Og sama var með guð hann var bara staðsettur"á himnum"
Og ég veit ekki annað en mínar bænir sem voru töluvert margar á þeim árum hafi alveg eins náð eyrum hans og annara. Þó vantað hafi götu og póstnr.hjá mér. En nú er það umhugsunarvert í sambandi hvað hann virðist vera orðinn daufheyrður allavega á mínar bænir hvort að það vanti götu og póstnr. Viss er ég um að vissir menn nefndir eftir vissum fornmönnum biði hann um hjálp. Og sennilega hafa notað þeir alla sína"miklu" visku og reynslu á "skúffufyrirtækjum" og eru búnir að finna út skúffufyritæki sem kemur bænum þeirra áleiðis.
Allavega virðist mér hann vera bónliprari við þá. Heldur en þá með breiðu bökin. þ.e.a.s. öryrkja, eldri borgara og þá sem minna mega sín. Það væri kannske gott fyrir þenna hóp að fá adressuna hjá hinum hópnum. Þessum með mjóu bökin. Bökin sem ekkert má leggja á. Hvorki skatta né neinar byrgðar út af þessu fjan.... hruni. Kært kvödd
Guð ekki með heimilisfang | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2009 | 23:30
"hvað um"
Hinir vammlausu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.8.2009 | 21:47
Sjóslysalaus ár
Ekki ætla ég mér að agnúast út í það sem kemur fram í þessari frétt. Vonandi hefur Týr innunnið sér nokkra vikna notkun í því sem hann er bestur í, að standa vörð um landhelgina og vera sjófarendum til hjálpar ef á bjátar. Og vonandi hafa olíutankarnir verið fylltir af ódýrri??? olíu í Noregi. Ég held að minnið sé ekki að bregðast mér þegar ég held því fram að þetta ár sé annað sjóslysalausa árið í röð. Og það er mikið gleðiefni. Þökk sé meiri fræðslu í Stýrimannaskólamnum. Þökk sé Slysavarnaskólanum Og þökk sé LHG.En ég hef miklar áhyggur af öryggi sjófarenda við Ísland Ég veit að t.d. íslenskir þyrluflugmenn eru starfi sínu mjög vel vaxnir. En peningasvelti sveitarinnar er öllum kunn. Og stendur þeim kannske fyrir miklum þrifum., En þrátt fyrir það er ég ósáttur við brottfluttning þyrlusveitar Varnarliðsins. Mér er alveg sama hvað hver segir. Þeir menn höfðu kannske ekkert annað að gera en að æfa sig. Fjársvelti Landhelgisgæslunnar vekur ugg í brjósti þeirra sem bera líf manna fyrir brjósti. Ég held nefnilega að margir af" heldri" borgurunum í ónefndu póstnr í Reykjavík geri sér ekki grein fyrir mikilvægi LHG og starfsmanna hennar. Bæði til sjós og lands. Ég veit um fólk sem þrátt fyrir allt, heldur því fram að LHG sé einungis fyrir sjómenn. Passa að ótíndir glæpamenn á fiskiskipaflotanum séu ekki að stela þessum fáu þoskum sem eiga að sögn VÍSINDAMANNA að vera eftir á Íslandsmiðum og eru fyrir innan línu landhelginnar. Alberri fyrir áreksturinn, Varðskip hafa hvað eftir annað sannað gildi sitt í náttúruhamförum að maður tali nú ekki um sjóslys Það vitum við sem munum lengra en 1 ár aftur í tíma. Og þyrlunar,ja þær ætti ekki að þurfa að nefna. Það veit enginn hver er næstur til að þurfa aðstoðar þeirra. Alberri eftir áreksturinn Og þar vona ég að einhverskonar forgangsröðun verði aldrei sett á. Sama hvort manneskjan búi á Bessastöðum, ónefndu póstnr í Reykjavík eða í Vestmannaeyjum . Hvort hann sé með gullfesti um hálsinn og þiggi há laun af þjóðinni eða þiggi há heiðurslaun eða bara "beran"ellilífeyri. Nóg af þessu. Veðurfar við Ísland er eins og allir vita óstöðug. Lisa Nera M. Straumar sterkir og straumrastir ófáar. Sjósókn við Ísland er og hefur alltaf verið erfið. En mikill er máttur tækninar. En mannleg mistök hafa fylgt mannkyninu alla tíð og munu gera um ókomna tíð. Þess vegna hafa sjómenn allra tíma þurft að hafa allan vara á sér. Góð vísa er aldrei of oft kveðin. LHG og Slysavarnarskólann má alls ekki svelta fjárhagslega. Ég læt hérna fylgja myndir af nýlegum óhöppum þar sem mannlegi þátturinn var innvíklaður. Fyrir nokkru var árekstur í Marmara Sea en þar rakst olíuflutningaskipið Lisa Nera M á fljótaskipið Alberri . Engan sakaði Ostende Max eftir áreksturinn En 9 menn mistu lífið við árekstur í Malacca Strait milli búlkarans Ostende Max og Formosaproduct Brick, 70,426 DWT svokallaðs "produkttanker" frá Taiwan. Formosaproduct Brick að brenna. Formosaproduct Brick að brenna.Mennirnur 9 voru skipsmenn á Formosaproduct Brick En það er með ólíkindum að skipið skildi ekki springa í loft upp því það var hlaðið"nafta" sem, ef mig brestur ekki þess meir minni er stigi hærra en bensín. Ostende Max Formosaproduct Brick Við skulum bara vona að eitthvað náist af þeim auðæfum sem ónefndir menn eiga í skattaskjólum hingað og þangað. Menn sem komu þjóðinni í þær ógöngur sem hún er komin í. Menn sem ég er eiginlega steinhissa á að einhver skuli ekki vera búinn að ná í rass..... á og velta upp úr tjöru og fiðri Það er ekki bjart framundan Menn sem koma í sjónvarp glottandi framan í fólk sem ekki á fyrir bókum til að börn þeirra geti stundað skóla og sem "þykjast"saklausir. Menn sem hafa með hegðun sinni hafa sett öryggi landamanna bæði til lands og sjávar í uppnám.Þeir með breiðu bökin Við skulum bara vona að engin þeirra fái fyrir hjartað í óbyggðum og svo hittist þannig á að þyrlunar kæmust ekki á loft vegna fjársveltis LHG. Og nú held ég að allir veri að sameinast um að biðja þann guð sem hver og einn trúir að hjálpa okkur. Alla vega þeir með breiðu bökin og alltaf er níðst á af því þeir eru hérna. Komast ekkert. Kært kvödd
Týr flutti pramma fyrir Ístak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.8.2009 | 19:00
"nýr flötur"
Nýr flötur er kominn upp á Artict Sea-málinu. Virkilega athygliverður flötur. Ég treysti á dönskukunnáttu fólks Kært kvödd
http://www.maritimedanmark.dk/?Id=5415
23.8.2009 | 23:01
Er þetta:"Ísland í dag"?
Það er með ólíkindum að svona skuli vera að ske á Íslandi árið 2009. Þessir andsk..... menn sem kenndir eru við útrás og víkinga skulu vera búnir að koma einum duglegustu verka og sjó-mönnum/konum í heimi á hné.
Gera verkalýðin að hálfgerðum betlurum. Við víkinga er hægt að samsama þessa djö... Hvernig voru þessi svokölluðu"víkingar"til forna Í sannleika sagt og með allri virðingu fyrir sögu landsins, hvað voru þeir eiginlega ??.
Alveg eins og þeir nútíma fóru þeir rænandi, ruplandi um lönd og skildu eftir sig sviðna jörð. Nema þeir tll forna nauðguðu bara einni konu í einu en þessir nútíma djöflar nauðguðu heilli þjóð. Á einu bretti. Og nú verða íslendingar eins og Þjóðverjar eftir WW1 og Finnar eftir WW2 að borga háar svimandi háar upphæðir Kært kvödd
Hætta við skólavist vegna fjárskorts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.8.2009 | 22:21
"eftir þessu var beðið"
Í vor sagði S,J.S hreykin að nú hefði verið mynduð"hrein vinstri"stjórn eins og hann orðaði það. Og ég þessi andsk..... fv íhaldsskurfur trúði á orð hans. Það var sennilega jafnt á komið með mig og þá sem á sínum tíma trúðu á" alræði öreyganna" Sem t.d þessi maður boðaði og þessi eða þessi Þó í öfugri þessari röð að ég held. Ég trúði því að hin "hreina vinstri stjórn" myndi hlífa eldri borgurum ja þið þekkið röðina. En hvað hefur skeð engin ekki nokkur ríkisstjórn hefur lagt eins miklar byrgðar á þá sem minna mega sín. Engin. Þessi"hreina vinstri stjórn" hefur ekki hlíft þeim sem minna mega sín heldur hinum. Læt þetta duga í bili. Kært kvödd
Mesta kaupmáttarrýrnunin í 20 ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.8.2009 | 21:29
Fleiri gamlir kunningar
Maður er orðin algerlega kjaftstopp yfir öllu því óréttléti sem viðgengst í þessu þjóðfélagi nú um stundir. Fólk kemur hvert af öðru til presta og segist ekki getað sett börn sín í skóla.
Svo koma menn sem ekki kunna að skammast sín í sjónvarp brosandi ( glottandi ???) framan í alþjóð og segjast alsaklausir. Smáglæta í hörmungum dagsins í dag: Lítil telpa úr Reykjavík var um tíma hjá ömmu sinni hér í Eyjum um daginn.
Frá hinum alræmda skipakirkjugarði í Alang Indlandi Sem kemur við sögu í þessu bloggi
Á leiðinnni heim í höfuðborgarinnar sagðist sú stutta bara vilja eiga heima hjá ömmu í Vestmannaeyjum. "Þar er engin ríkisstjórn og engin kreppa".Bragð er að ef barnið finnur var sagt í eina tíð. Þessvegna hef ég valið að halda mig á rólegu nótunum í bili og dunda mér við að rifja upp "gamla kunninga" í farskipa sögu landsins.
Ég fór oft í gegn um Suezskurðinn. Þegar ég fór þarna síðast um á N.leið í Suez( þar safnast skipin saman til að fara N skurðinn. En í Port Said safnast þau saman sem fara S) blöstu við mér 2 skip sem ég kannaðist við. Og viti menn þarna var gamall vinur sem þá hét Maya Reefer Maya Reefer og Captain Mohamed K Á þessu skipi hafði ég verið í rúm 2 ár með öðlingnum Þór Elíssyni. Skipið hét þá Stuðlafoss. Hitt skipið hét Captain Mohamed K
Saga skipanna er þessi: Maya Reefer er smíðuð í Grangermouth Skotlandi 1964 fyrir Jökla h/f Reykjavík og fékk nafnið Hofsjökull Yard nr 533. 2361 ts .2860 DW, Loa 89.5 m. brd: 13,8. 1977 kaupir Eimskip skipið og skýrir Stuðlafoss. 1986 er skipið selt og fær eftirfarandi nöfn: 1986 Malu. 1989 Miss Xenia. 1993 Maya Reefer. Skipið var svo rifið í skipakirkjugarðinum í Alang Indlandi í mars 2003. Vantaði 1 ár i að verða 40 ára,Maya Reefer Hitt skipið Captain Mohamed K.Var smíðað hjá Trondhjems í Trondheim Noregi 1971 sem Barok fyrir Fred Olsen. Smíðanr 646. 1516 ts, 2856 Dw Loa 87.0 m. brd 15,4 Barok Barok. 1983 kaupa Hafskip í Reykjavík skipið og skírir Rangá. Við gjaldþrot Hafskipa kaupa Eimskip skipið og skírir Írafoss. Eimskip selur það sama ár og fær það síðan eftirfarandi nöfn 1986 Marc Island, 1991 Venus. 1994 Hassnaa, 1997 Captain Mohamed 2002 Captain Mohamed K Um endalok er ég ekki alveg viss en ég held að það hafi verið rifið 2005. Þó ekki viss. Þær myndir sem ég tók ekki sjálfur fann ég á Shipspotter og annarstaðar á netinu. Með von um að einhver hafi haft gaman að þessum hugleiðingum kveð ég kært , með von um að mér verði fyrirgefið"lánið" á þeim myndum sem ég á ekki sjálfur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.8.2009 | 23:26
"nýr núningur"
Ekki legg ég mikinn trúað á hvað rússarnir eru að halda fram í þessu máli. Ónefndir 8 menn (sem kannske aldrei hafa verið til nema á pappírum) teknir og verða sennilega sendir að nafninu til til Siberíu. Málið leyst
Og ég gruna þá um græsku og held að þetta sé að verða að nýjum"núningi"milli Svía og Rússa. Menn muna allan kafbátanúninginn sem var á milli þjóðana hér á árum áður. Því Svíar þykast vera staðráðnir í að upplýsa málið,
"Den svenska Rikskriminalen" ásamt finska"Centralkriminalpolisen "( finnar út af útgerð og brottfararstað) eru að rannsaka málið. Og Säpo (sænska leyniþjónustan)er líka komin að málinu.
Enda ekkert skemmtilegt fyrir Svía að fara í flokk með Sómölum, hvað sjóránasvæði varðar. Einhver sérstakur leyndardómur hvílir yfir þessu máli Einhver hasarfiðringur er í manni. Kannske hefur maður bara séð of margar amerískar hasarmyndir Kært kvödd
Vissu hvar Arctic Sea var | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2009 | 20:43
"Gamlir kunningar"
Í nóv.1996 kom ég á skipi til Georgetown í Guyana. Við vorum með hrísgrjóna farm frá Surinam. Þegar í höfnina kom lögðumst við fyrir aftan skip sem hét:ALBERT J.ALBERT J. Mér hafði fundist ég kannaðist við skipið á siglinguna inn í höfnina. Og þegar við vorum lagstir að bryggju komu yfirmálaðir upphleyptir stafir á skut þess í ljós:"Eldvík Reykjavík" ALBERT J. Skipið var byggt hjá Jansen, M. í Leer Þýskalandi 1968. 1458 ts 2879 dw, loa: 75,3 brd:11,8. Yard nr 89. Fær nafnið Tasso 1971 nafni breytt í Heidi. Eldvík ex Heidi.1975 kaupa Víkur h/f ( Finnbogi Kjeld) skipið og skíra Eldvík. 1989 er skipið selt og fær nafnið: CIDADE DE FARO - Síðan 1992 AFRICA - Og 1995 ALBERT J. Sem það hét er ég sá það. Skipið breytt
Skipinu var breitt meðan Finnbogi átti það og settur krani á mitt skipið Og þannig var það er ég sá það 1998 ALBERT J. Einhversstaðar á ég fleiri myndir af "gömlum kunningum" og kem til með að birta þér er fram líða stundir. Með von um að einhver hafi þarna kannast við"gamlan kunninga"kveð ég ykkur kært.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.8.2009 | 17:52
Gleðitíðindi
Þetta hlýtur að teljast gleðitíðindi . Áhöfn Actic Sea er komin um borð í rússnesku freigátuna Ladny. Upplýsir Viktor Matveyev fulltrúi útgerðarinnar"Solchart Management" við Fairplay í dag. Varnarmálaráðherra rússa Anatoly Serdyukov hefur líka staðfest fréttina. Þetta ætti að gleðja aðstandendur sjómannana, Freigátan Ladny.En gamlir nöldursamir sjóarar eins og ég eru að vísu glaðir yfir endurheimt sjókmannana en líta kannske á málið hálfgerðu hornauga. Af hverju er þessi gífurlegi áhuga rússa. Cap Verde costcardinn segist hafa séð skipið ca 400 mílur út af eyjunni.
Þessu vildi rússneski ræðismaðurinn á eyjunni eyða. En núna segjast rússar hafa"fundið"skipið 300 sml frá eyjunni. Og ég er viss um að lausnargjaldskrafan var blekking. Hver sem svo stóð að henni. Gert bara til að dreifa áhuga manna,
Ég velti eftirfarandi fyrir mér. Hvað voru mennirnir sm komu um borð í skipið við Öland að gera?? Hversvegna var AIS kerfi skipsins aftengt ?? Eins og hlýtur að vera. Og hversvegna þessi mikli áhugi rússa á skipinu??
Jú kannske þarna eru 15 rússar um borð. En margar rússneskar skipshafnir hafa lent í klóm sjóræninga við Sómalíu. En rússnesk herskip hafa lítið skift sér af þeim eftir að þeim var sleppt. Stundum matar og vatnslitlum.
Þrennt stendur uppúr: Hvað er um borð í skipinu sem rússar höfðu áhyggur út af. Fyrir utan sjómennina.?? Hvað skeði við Öland?? Og hvað skeði milli þess sem að Cap Verdemenn sáu það og þangað til að rússar þykast hafa fundið það ????. Sennilega fáum við aldrei að vita það. Kært kvödd
Áhöfn Arctic Sea heil á húfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.8.2009 | 14:20
Enn og aftur
Enn og aftur bloggar maður um þetta skip. Mér hefur t.d. aldrei dottið í hug að eigendur skipsins eða áhöfn væri innblönduð í neitt kjarnorku kjaftæði.
En maður hlýtur að spyrja sig enn og aftur hvað voru mennirnir sem stoppuðu skipið út af Ölandi að vilja? Og getur verið að þeir hafi falið einhversskonar kjarnorkuvopn um borð. ? Ég bara spyr? Og ég vísa í það sem ég bloggaði um daginn
http://solir.blog.is/blog/solir/entry/928112/#comments
Kært kvödd
Neita orðrómi um farm Arctic Sea | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2009 | 14:00
"Tapað fundið"
Ég hef svolítið verið að fylgast með þessu sérstaka máli Og það er margt sem vekur undrun mína í því. Þann 13 þ.m. átti skipið að hafa fundist í höfnini í San Sebastian á N-Spáni. Ég ætlaði að fara að blogga um það en þá kom frétt um að það væri misskilningur. Og nú á það að hafa sést út af Cap Verde. Rússar vilja ekki staðfesta það. Artic Sea, Þarna með timburfarm á dekki.Mér finnst fréttaflutningurinn af þessu máli vera fullharður hvað varðar fjölskyldur áhafnar skipsins. Að kvíði breytist í gleði en svo kvíða aftur og kannske í restina í sorg er slæmur ferill.
Ég man líkan ferli hér á landi. Það var þegar b/v Egill Rauði strandaði og Mogginn (sem þá var með"síðustu fréttir" glugga í Austurstræti) kom með þá frétt í fréttagluggann að allir hefðu bjargast. sem svo reyndist misskilningur.
Menn ættu að halda kja... þar til eitthvað bitastætt er í hendi. Svo er það eignarhaldið á Artic Sea Ég hef séð það kallað Lettneskt. Rússneskt og Finnskt. Einnig þessi lausnargjalds krafa getur hreinlega verið bull. Ég man eftir "ráninu" á Danica White.
Þá ætluðu dönsku stéttarfélög mannana um borð að borga lausnargjald. Ég hef það eftir 1stu hendi innan útgerðarinnar að þeim (stéttarfélögunum og hreinlega útgerðinni sjálfri) hefði verið bannað að reyna slíka hluti því þeir gætu allsekki verið vissir um að gjaldi færi í réttar hendur. Slíkt hefði skeð. Þ.e.a.s. að gerviræningum hefði verið greitt lausnargjald fyrir skip. En vonandi fáum við botn í þetta mál Og áhöfnin sé hult. Myndin af Shipspotting. Kært kvödd
Lausnargjalds krafist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.5.): 5
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 535371
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar