Skipstjórn og vodka

"Ja þér ferst flekkur að gelta" segir kannske einhver sem þekkir mína fortíð og byrjar lestur á þessu bloggi. En mig langar til að taka fyrir áfengisneyslu og skipstjórn, Og kannske út af þessum ummælum Rússlandsforseta.800px Federal districts of Russia En rússar hafa alltaf verið frægir fyrir vodkadrykku Þeir hafa búið við einræði í margar aldir. Og maður breytir ekki svona þjóðfélagi á einni nóttu í des 1991.541px Russian Federation %28orthographic projection%29 svg Og eftir minni reynslu en ég hef komið nokkuð oft í rússneskar hafnir bæði fyrir og eftir 1991, finnst mér drykkjuskapurinn alltaf vera að aukast. En ég tek fram að þetta er bara mitt prívat álit. Og ég vil líka taka það skýrt fram að maður getur ekki dæmt heila þjóð eftir nokkrum slæmum einstaklingum. Einhver besti vélstjóri sem ég hef siglt með var rússi. Og hann bragðaði ekki vín 800px Novosibirsk Vauhxall Og ég veit af nokkrum einstaklingum hér í Eyjum sem eru sjálfum sér og landi sínu til mikils sóma. Nú  í  sambandi við áfengisdrykkju og stjórn skipa þá hef ég setið begga vegna borðsins,ef svo mætti segja . Photo Petrozavodsk Petrozavodsk  Fyrir nokkru,eða í maí sl strandaði flutningaskipið Petrozavodsk við Bjarnareyjar. Mannbjörg varð en bæði skipstjóri og stýrimaður voru síðan sakaðir um að hafa verið drukknir. Skipstjórinn mældist með 1.3 próm en stm með 0.3 próm. En hann (stýrimaðurinn) var einnig sakaður um að hafa verið sofandi þegar slysið varð. Petrozavodsk 9878777987882998788310512pod03img650x367 vsv Petrozavodskslysið  Skipið kom oft hingað til Eyja. Ég tók einusinni af því mynd en finn hana ekki nú. En myndir frá slysinu og skipinu fyrir slysið (Shipspotter)eru af netinu.481 400x300 Þarna var Bakkus einnig við stýrið.Við sem erum eldri en tvævetur munum tímana tvenna í þessum málum. Vera drukkin er stórhættulegt  en var stundað það vitum við. En til að finna smáafsökun sem er eiginlega ekki sæmandi að orða svo. Þá mætti kannske segja (orðið dálítið langsótt) að tímarnir voru aðrir.

Yfirleitt 2-3 stýrimenn með vaktfrían skipstjóra. Og ég get hreinlega tekið undir með ónefndum alþingismanni sem ekki taldi sig drukkinn þótt hann væri það satt að segja. Ég drakk um tíma vodka og taldi mér trú um að enginn fyndi af mér vínlykt. Svona er afneitunin á sjálfan sig drukkin mikil. En nóg um það en vodkadrykkja á Rússum í siglingum er velþekkt.Maumee2 Og því miður fengið hörmulegar afleiðingar. En það er ábyggilega mjög erfitt verkefni fyrir Dmitrí Medvedev og Putin að ná tökum á ölum þessum smákóngum sem höfðu hreiðrað um sig á öllum sviðum þjóðlífsins bæði til sjós og lands. Kært kvödd


mbl.is Rússlandsforseti segir spillta embættismenn stjórna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. september 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 535371

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband