Gleðitíðindi

Þetta hlýtur að teljast gleðitíðindi . Áhöfn  Actic Sea er komin um borð í rússnesku freigátuna Ladny. Upplýsir Viktor Matveyev fulltrúi útgerðarinnar"Solchart Management" við Fairplay í dag. Varnarmálaráðherra rússa Anatoly Serdyukov hefur líka staðfest fréttina. Þetta ætti að gleðja aðstandendur sjómannana, Ladnyj Freigátan Ladny.En gamlir nöldursamir sjóarar eins og ég eru að vísu glaðir yfir endurheimt sjókmannana en líta kannske á málið hálfgerðu hornauga. Af hverju er þessi gífurlegi áhuga rússa. Cap Verde costcardinn segist hafa séð skipið ca 400 mílur út af eyjunni.

 Arctic Sea Actic Sea með timburfarm

Þessu vildi rússneski ræðismaðurinn á eyjunni eyða. En núna segjast rússar hafa"fundið"skipið 300 sml frá eyjunni. Og ég er viss um að lausnargjaldskrafan var blekking.  Hver sem svo stóð að henni. Gert bara til að dreifa áhuga manna,

Ég velti eftirfarandi fyrir mér. Hvað voru mennirnir sm komu um borð í skipið við Öland að gera?? Hversvegna var AIS kerfi skipsins aftengt ?? Eins og hlýtur að vera. Og hversvegna þessi mikli áhugi rússa á skipinu??

Jú kannske þarna eru 15 rússar um borð. En margar rússneskar skipshafnir hafa lent í klóm sjóræninga við Sómalíu. En rússnesk herskip hafa lítið skift sér af þeim eftir að þeim var sleppt. Stundum matar og vatnslitlum.

 

Þrennt stendur uppúr: Hvað er um borð í skipinu sem rússar höfðu áhyggur út af. Fyrir utan sjómennina.?? Hvað skeði við Öland?? Og hvað skeði milli þess sem að Cap Verdemenn sáu það og þangað til að rússar þykast hafa fundið það ????. Sennilega fáum við aldrei að vita það. Kært kvödd


mbl.is Áhöfn Arctic Sea heil á húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Það eru sannarlega gleðitíðaindi, að öll áhöfnin sé heil á húfi. En hvað gerðist og er farmurinn virkilega bara timbur. Bæði AIS og Standard C virðast hafa verið aftengd.

Sigurbrandur Jakobsson, 17.8.2009 kl. 19:10

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Rússneska Mafían er þarna á ferðinni/Kveðja Halli gamli P/S þakka góða grein!!!!sami !!

Haraldur Haraldsson, 18.8.2009 kl. 12:18

3 identicon

Sæll Óli minn

Það er í besta falli skrítið mál - Ívan sendir ekki flotann til að leita nema ......

Kjartan Ásmundsson (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 17:35

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sælir félagar og ég þakka innlitið. Já þetta mál er allt hið einkennilegasta. Og ég er ekki tilbúinn að fallast á sögu"Ívans" En sennilega verða einhverjir 8 menn (sem kannske allsekki eru til ) látnir játa upp á sig "sjórán" og dæmdir til Síberíu. Heimurinn fær sennilega aldrei að vita sannleikan í þessu máli.. Nema að kaninn gerir einhverja hasarmynd og þá verða þeirra menn látnar vera hetjurnar sem frelsuðu skipið. Kjartan mér finnst frekar síga á ógæfuhliðina hjá 2 mönum hér í bæ. Ch. Eng liggur bara í layzy boy með breitt yfir allan skrokkinn, andlitið líka allan daginn og er orðin frekar óskiljanlegur. Svipað,en þó ekki eins slæmt ástand á 2 mate. Ég skila kveðjum frá þeim til þín um leið og kveð ykkur alla kært

Ólafur Ragnarsson, 18.8.2009 kl. 21:42

5 identicon

Sæll Óli minn

Takk fyrir að skila kveðju frá mér - Mér er oft hugsað til þeirra félaga okkar.

Kjartan Ásmundsson (IP-tala skráð) 19.8.2009 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 535376

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband