"Það er með hreinum ólíkindum"

Það er með hreinum ólíkindum að svona getir skeð og það í þjóðfélagi sem telur sig vera siðmenntað. Það er ekki nóg að lög séu brotin á eldriborgurum heldur eru þeir troðnir ofan i drulluna og þrýst eins neðarlega og hægt er Á meðan hækkar svo þessi "skríll" sem telst til ráðamanna við sig kaupið og það með afturvirkum áhrifum. Er ekki til neinn vottur af samvisku í þessum andsk..... hræjum??

 

Af öllum hinum arðrændu í þjóðfélaginu, er enginn troðinn eins langt niður í allsleysið og eldriborgarar og öryrkjar  Verkafólkið í landinu hefir komið á ýmsum kjarabótum ásamt hækkandi kaupi,Það er líkast því, að ráðandi flokkar í landinu líti á fg hópa eins og stórveldin lítu á nýlendur, sem áttu að skila dýrmæturm hráefnum. En á eftir gátu íbúar þeirra étið bara skít eða lifað á andardrætti sínum Ráðamenn vita að eldriborgarar geta litlum vörnum beitt  eða fært fram neinar mótvægisaðgerðir Og því er ráðist á þá með algerri fúlmennsku

 

 

 

Hvað er það annað en hrein fúlmennska að hækka launin við þessa ídjóta Þegar eldrir borgarar og öryrkjar eru skildir eftir ?. Alveg eins og glæpamennirnir í arabalöndunum fara með flóttafólkið. Og ég held að konan í "ófarnaðarráðuneytinu" ætti að fara að hugsa sinn gang Kært kvödd


mbl.is Laun forseta hækka um tæp 200 þús.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Eru ekki XD og XB ánægðir"

Eru ekki XD og XB ánægðir með þessa niðurstöðu. Hvað hefur þetta eldra pakk að gera við meiri peninga. Ég held að það geti étið úr nefinu á sér og nagað eitthvað af nöglunum það vanti það eitthvað að éta. Það verður nú að vera einhver afgangur eftir handa vinum og vandamönnum t.d á Flórída til að íslendingavillurnar þar séu landi og þjóð til sóma.Kært kvödd


mbl.is Flestir með minna en 300.000 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hvernig í ósköpunum"

Hvernig í ósköpunum ætlar maðurinn að gera það Þ.e.a.s tala flokkinn upp Situr í formannssætinu með eins atkvæðis meirihluta. Síðan er hann á móti öllu sem frá stjórnarmeirihlutanum kemur sama hvað það er.

 

Ráðherrar eru varla búnir að opna kjaf.... þegar Árni Páll er komin í andsögn við það. Sama hvað gæfulegt það er (sem er kannske sjaldan en þó)Samningaleið finnst ekki í hans orðaforða

 

Hvernig í ósköpunum ætlar slíkur mótaðgerðarsinni að semja við hin 49 % í flokknum Kært kvödd


mbl.is Tala þarf Samfylkinguna upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég "bjálfaðist""

Ég "bjálfaðist" til að kjósa X B síðast,sérstaklega út af því sem eldriborgum var lofað. Og þegar þessi kona fékk svokallað "velferðaráðuneyti"varð' maður himinlifandi En hvað skeður!! Hún á ábyggilega heimsmet í að fitja upp á málum sem svo eru bara setti í starfshópa eða nefndir og renna svo þaðað út í sandinn.

 

 

Nokkrir "þúsundkallar" til eldri borgara i byrjun síðan búið spil. 0.0000 er svo útkoman. Það er ætti að vera bæði XD og XB umhugsunarefni fyrir næstu kosningar hvernig aðgerlega þessir flokkar hafa hunsað fg hóp fólks. Að vísu hafa ríkisstjórnir undanfarinna kjörtímabila algerlega "struntað" í þá og jafnvel þverbrotið landslög á þeim.

 

Og það er öllum andsk..... sama.En þetta er þó fólkið sem kom löppunum undir þetta þjóðfélag sem við búum við í dag.En einhverstaðar ætti þetta afskiftaleysi að taka enda. Mesta áhyggjuefni þessa hóps í dag er að það á engan málsvara í þessari "fíflafabrikku" þarna við völlin Og engin líklegur þarna til að gera það.Kært kvödd  


mbl.is Byggja 2.300 félagslegar íbúðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Slæmt er ástandi"

Slæmt er ástandið orðið hjá eins atkvæðisformanni Samfó.Nú sér hann fá önnur úrræði en að verða útibú frá "pírötum" Og hann hittir naglann á höfuðið þegar hann segir:"ekki hefðbund­inn flokk­ur fólks sem geng­ur í tak".

 

Þannig er þessi fv flokkur alþýðunnar orðinn: "Út og suður" og reynir að haga frægðarseglunum sem uppi eru höfð eftir hagstæðum pólítískum vindi. Nú finnst formanninum "pírataseglin" best. Verkamenn og lálaunafólkið má éta skít. Það kom berlega í ljós hjá einum fv ráðherraflokksins ekki fyrir svo margt löngu Verið öll ávallt kært kvödd


mbl.is Tími til að borga reikninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Verðum við ekki"

Verðum við ekki að setja þessamiss_marple_first_image_1269290.jpg í málið

 til hjálpar "sérstökum"


mbl.is Fjandsamlegur tónn í dómsalnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hversvegna á að gefa"

Hversvegna á að gefa þessum svikurum einhvern afslátt af gerðum sínum Fengi ég hann t.d yrði ég uppvís að slíku???. Ég bara spyr Ja "íhaldið" hugsar vel um sína Kært kvödd


mbl.is Áherslan á afslátt skattsvikara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Botninn er suður í Borgarfirði"

"Botninn er suður í Borgarfirði" sögðu Bakkabræður forðum.Ég er farinn að halda að "botninn" í þessu máli sé jafnvel  norður í Skagafirði. Með mikilli virðingu fyrir Skagfirðingum öllum. En ég, frekar en margur annar skil ekki alveg háttalag þessa Skagfirska ráðherra. Þess hins sama sem sleit(eða vildi slíta)sambandinu sem mest við ESB. Nú vill hann hreinlega slei... rass..... á þeim og þóknast þeim.

 

 

Við sem eldri erum vitum hve oft fréttir hér eru litaðar frá áhrifum USA. Vita Íslendingar yfirhöfuð hvað er að ske í Úkraníu?? Vita þeir yfir höfuð hvaða stjórnmálaflokksbrot berjast þar um völd Eru ekki bandaríkjamenn, þar með syni sumra mikilla áhrifamanna komnir þar til valda í nokkrum stórfyrirtækjum ??. Eru ekki fasistum að vaxa þar líka fiskur um hrygg???.

 

Af hverju er td. gasútflutningurinn frá Rússlandi til ESB landana tekin út fyrir svigann??. Það er mörgum spurningum í þessu máli ósvarað. Og ég held að þeir menn sem hafa með þessi mál að gera hérlendis hreinlega viti ekki glóru um hvað felst þarna bak við tjöldin. Þeir fá bara þar sem þarlendis opinberir aðiljar vilja láta þá sjá.

 

Ekki það að ég viti það eitthvað betur Mér finnst satt að segja það ekki "eins og guð almáttugur hafi sagt það" þó ég lesi eitthvað í íslenskum fjölmiðlum. Og það af langri reynslu sem kannske frekar fáfróður almúgamaður í þessu landi búinn að lifa 77 ár. Með nú orðið fáræði hvað algert hlutleysi varðar. Kært kvödd


mbl.is Sakar ráðherra um heimsku og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Arngrímur er mikill afreksmaður"

Arngrímur er mikill afreksmaður og hugur þjóðarinnar er hjá honum og fjölskyldu hans. En ég hnaut um eina setningu í þessari frétt:"Við vilj­um koma á fram­færi þakk­læti fyr­ir það næði sem hann hef­ur fengið síðustu daga" Segir þetta okkur ekki eitthvað um fjölmiðlana eða hvað? Kært kvödd


mbl.is Fjöldi brunasára en stöðug líðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég skil ekki"

Ég skil ekki alveg þetta "Like" kerfi. Mér finnst ég t.d. ekki geta "lækað" við þessa frétt.Sem segir af ótíðimdum Og sama er t.d þegar sagt er frá andláti manns á "fésbókinni" og fjöldi manns lækar við það. En ég læka t.d við frétt eins og gjöf Erfðargreiningar til Landspítalans.Kært kvödd


mbl.is Allt stopp vegna rafmagnsskorts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég óska þessari þrekkonu"

Ég óska þessari þrekkonu til hamingu með þetta frábæra afrek. Ég hugsa að fáir geri sér í hugarlund hversu stórkoststlegt afrek þetta er í raun og veru. Miðað við skipaumferð strauma og annað því líkt á þessu svæði Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Sér mat í hillingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ætlar mann fja....."

Ætlar mann fja..... að keyra þetta allt til helv.... Ætlar kannske brúðustjórnandnn á Norðurlandi að kaupa afurðirna. Klúðri strengabrúðan málinu. Menn belgja sig út með allslags försum þegar þeir telja sig hólpna.En skæla svo stórum tárun þegar alvara blasir við. Og hvern andsk..... eru við að sleikja rassg.... á Evrópusambandinu Sem fg brúða vill svo ekkert hafa með að gera.Kært kvödd

 


mbl.is Styðja áfram refsiaðgerðir gegn Rússum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Til hamingu Landhelgisgæsla"

Til hamingu Landhelgisgæsla! Vonandi fáið þið fjármagn til að halda áfram á þessari braut.Allir Íslendingar eiga að vera stoltir af ykkur Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Landhelgisgæslan fær nýjan strandgæslubát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ekkert má nú"

Ekkert má nú!!! Framdi hann verknaðinn með Eik??? Eða var það kamnnske Víðir??? Það hlýtur að skifta máli!!!


mbl.is Gripinn við að stunda kynlíf með tré
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mér finnst satt"

Mér finnst satt að segja þetta töluvert villandi fyrir sögn "Hótelbruni á Siglufirði" Er ekki hægt að taka þetta þannig að eitt stk. hótel hafi brunnið þarna. En svo var nú sem betur fer ekki Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Hótelbruni á Siglufirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mig langar að vita "

Mig langar að vita: Tala allir þessir hjúkrunarfræðingar sem ætla til Noregs reiprennandi norsku?? Verið kært kvödd


mbl.is Fólk verður að geta talað íslensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 534995

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband