"Jesús Kristur og ég"

Einhvern veginn er mér oft hugsað til "Skáldsins frá Skáholti" nú um stundi. en honum var tíðort um fátækt,synd og spillingu. Og mig langar að deila með ykkur ljóðinu sem hann kallaði:

 Jesús Kristur og ég 

Hér sit ég einn með sjálftraustið mitt veika /á svörtum kletti er aldan leikur við/Á milli skýja tifar tunglið bleika/og trillubátar róa fram á mið./Af synd og fleiru sál mín virðist brunninn./Ó sestu hjá mér,góði Jesús nú,/Því bæði ertu af æðstu ættum runninn/og enginn þekkir Guð betur en þú / 

Ég veit þú þekkir einnig eðli fjandans/sem alla daga situr fyrir mér/Og þótt ég tali vart í auðmýkt andans/ber enginn dýpri respekt fyrir þér./ Hvað sem trú vor týndum sauði lofar/ef taglsins auðmýkt nær í hjartað inn/mig langar til er tunglið færist ofar/að tala við þig eins og bróðir minn/ 

Sjá ef við litum gegn um móðu og mistur/þess mikla hafs,er tíðin saman jók/þá væri margs að minnast,Jesú Kristur /frá morgni lífsins.sem að drottinn skóp /Og hvernig voru Edens elstu verðir? /Í Edens lund hjóp syndin þeim til skrokks. /Við skyldum muna mannsins fyrstu gerðir, /að meðfædd prýði reyndist þriðja flokks./ 

Mamma þín var drottins eina drottning /og dyggra hátta fyrsta og síðsta von /því hef ég einatt hjartað fullt af lotning /fyrir hreinni mey er elur slíkan son /Sú fæðing,Kristur leiddi þig til ljómans /Og lýsti þér sem kórónuðum jarl /En ég er bara sonur fátæks sjómanns, /er seinna gerðist boginn eyrarkarl /

  

Þú lést þér annt að leita týndra sauða /létt þér tókstu skrílsins háð og spott /Þú vaktir einnig verur upp frá dauða /og vildir hverjum einstaklingi gott /Og þetta vald þitt vil ég glaður lofa/ vald sem mér og fleirum hefur birst  /því verði dauðans vart í mínum kofa /vanalega dey ég sjálfur fyrst /  

Og mannstu kvöldið,er þú bljúgur breyttir /í brúðkaupinu regndropum í vín /þá varstu góður þeim,sem urðu þreyttir /og þekktu ekki veginn heim til sín /Og þessi gæði vil ég glaður lofa /er gáfu hlýju,þeim sem gerðist kallt /því verði dropans vart í mínum kofa /vanalega drekk ég sjálfur allt / 

  

En dóm á þig ég dirfist að leggja/Dómur sá mundi einnig fylgja mér/Því margt er líkt í eðli okkar beggja/ Þótt andinn  virtist fleygari hjá þér / Þú komst í heiminn til að hugga og gleðja /huggað konur enginn betur gat / Í stað þess á ég”system”til að seðja/ soltinn lýð,er þráir góðan mat 

En hvern þann sem að hrellir mest og blekkir /heldur fólkið besta mann. /Það skyldi engan undra sem að þekkir / einhvert brot af þessum lífsins rann/.Ó Jesús minn þó ég og þú sért firrtur/ og jafnvel hún sem eitt sinn fæddi þig/ því allmennt varstu ekki að góðu virtur /og ennþá síður virðir fólkið mig

Og um það mál við aldrei megum kvarta /Því uppi á himnum slíkt er kallað suð / En ósköp skrýtið er að eiga hjarta /sem ekki fær að tala við sinn guð. / Hver síðastur þú sagðir yrði fyrstur / en svona varð nú endirinn með þig/ Og úr því þeir krossfestu þig / Kristurhvað gera þeir við ræfil eins og mig /

Njótið vel og lengi Kært kvödd


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk kærlega fyrir að setja þetta inn Óli, þetta er holl lesning.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.8.2009 kl. 23:55

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl vinkona og ég þakka innlitið. Alltaf gaman að sjá þig á síðunni. Vilhjálmur Guðmundsson frá Skáholti (ekki Skálholti eins og margir skrifa) er mitt uppáhaldsskáld. Hann  var af mörgum talinn sonur Einars Ben og lét sjálfur stundum í það skína. Ég kynntist honum lítillega á"Bakkusarárunum"En þá vorum við báðir í þjónustu hans. Ég man eftir að hafa heyrt hann lesa upp eitthvað af ljóðum sínu. Og var það ábyggilega af vinyl plötu. Virkileg synd að "menningarvitarnir"skuli ekki vera búnir að endurlífga þann upplestur. Sértu ávallt kært kvödd 

Ólafur Ragnarsson, 8.8.2009 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 535355

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband