"nokkur furða"

Er það nokkur furða að trúin á atvinnu- og efnahagsmál  sé í lágmarki. Fólk skilur hvorki upp né niður í þessu öllu saman. Nú er það fólk, sem komst til valda uppúr svokallaðri "búshaldabyltingu" við stjórnina. Og hreint út sagt lítið sem ekkert hefur  skeð hvað varðar tilgang hennar. Er fólk sem tók þátt í henni sátt við árangurinn.???  Nú eru þeir við stjórn sem hæst höfðu og heimtuðu menn "krossfesta" og réðust á lögreglu með stóryrðum.

 

 

Nú er annað hljóð í strokknum. Nú er þetta fólk lágmælt og hefur ekki hátt.  Eru Jóhanna og Steingrímur virkilega ánægð með hvað þau hafa gert fyrir þá sem minna mega sín ???. Ég held að hinn bitri sannleikur sé að þau ráða ekkert akkúrat ekkert við ástandið. Þau eru algerlega máttlaus. Algerlega máttlaus í klónum á "International Monetary Fund; skammstafað IMF" og hinu ríku löndum í Evrópu. fv nýlenduveldum og landi sem virkilega græddi landa best á WW2

 

 

Og hinn bitri sannleikur er líka að það verður aldrei neinn sóttur til saka í þessu svokallaða "bankahruni". Hvernig á það að geta skeð í svona litlu samfélagi þar sem meira segja knattspyrnudómari kemst ekki hjá að vera sakaður um hlutdrægni vegna skyldleika við einhvern leikmanna. Ættartengsl.klíkur.stúkur og góður vinskapur sjá til að það verður aldrei neitt gert í þeim málum. Þetta er bara  hinn bitri sannleikur. Nú svo er hvergi pláss fyrir aðra en hættulegustu glæpamennina. Það er búið að koma því svo fyrir

 

Hvað annað en að fá D.O úr Seðlabankanum hafa gengið fyllilega eftir af kröfum f,g"byltingar" Ekkert annað. Og almúginn hefur ekki fengið,annað en lengingu á HENGINGAÓLUNUM  Er Hörður Torfa sá annars ágæti maður ánægður með það sem skeð hefur??? Ég bara spyr. Kært kvödd


mbl.is Lítil trú á efnahagsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

sammála þessu alveg Ólafur/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 29.7.2009 kl. 00:11

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þegar á hólminn er komið er svo líkt með öllu þessu fólki Ólafur - ég sem var svo viss um að meirihluti þjóðarinnar væri heiðarleikin í blóð borin - fer að efast

Jón Snæbjörnsson, 29.7.2009 kl. 13:14

3 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sælir félagar og ég þakka innlitið. Já Jón ég segi sama. En ef maður skoðar upphafið er það kannske engin furða. Komnir af fyrri flokk"víkinga" Sem gerðu eiginlega það sama og seinni flokkurinn. Rændu.ruppluðu og skildu sumstaðar eftir sig "sviðna" jörð. Kært kvaddir báðir tveir

Ólafur Ragnarsson, 29.7.2009 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 535267

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband