"Iceslave"

Hverjum andsk...... á maður að trúa. Ég hafði trú á að þessi stjórn myndi reyna að koma skikki á hlutina. En hvað hefur hún gert til hjápar heimlilinum ? Ekkert,Síró.0. Aðeins lengt í hengingarólunum. Og bankarnir aldrei harðari í innheimtu sinni þó eigandinn hafi boðað þar bót og betrun.

volcanolighning Blikur á lofti

Því var lofað að hinum lægst launuðu yrði hlíft. Ég hugsa að ég tilheyri þeim flokki. Og mín kjör hafa rýrnað svo um munar í háu verðlagi og skertum lífeyrissjóðsgreiðslum.  Sem að ég hélt að TR myndi bæta , Nei og aftur nei. Aldrei haldið fastar í budduna á þeim bæ.

 

Clam 01 Þjóðarskútan liggur undir áföllum

Þrátt fyrir vin fátækra Stefán Ólafsson. Stórflótti fólks úr landi er jafnvel fyrirsjáanlegur. Ég man í"den"þegar vinstrimenn gagnrýndu straumimn til Sverige á sínum tíma. Þeir héldu hvorki vatni eða vindi yfir þessum ósköpum. En í vor sagði einn af fv ráðherrum Samf. að þetta hefi nú líka sínar björtu hliðar. Fólk myndi víkka sjóndeildarhringinn og kynnast öðrum þjóðum. Frúin gerði hreinlega ráð fyrir að fólkið kæmi til baka.

 

S2300086 og er að sligast

Flyti fólk t.d. út með börn undir skólaaldri þá má það vera mikil ættjarðarást að snúa til baka allavega fyrr en börnin eru búin með skólanám. Ég vona að þið skilið hvað ég meina. Og í flestum tilfellum verða börnin sem þá eru komin á legg eftir. 

the ant bully Iceslave

Nei þessi ríkisstjórn finnst mér ekki standa sig allavega ekki eftir mínum væntingum til hennar. En hvað um það.  Þegar virtir fræðimenn eins og Jón Daníelson prófessor við London School of Economics, sem segir: "alla útreikninga sem hann hafi séð á afleiðingum Icesave-samningsins séu gallaðir. „Nokkurs konar Excel-hagfræði er notuð þar sem forsendur eru settar fram í Excel-skjölum og greiðslugeta áætluð.“ Hann segir í Excel-hagfræðinni oft miðað við hagkerfið eins og það var árið 2007."

chimp6 Ég held að sumir átti sig ekki á hvað þeir eru að gera

Hverju á þá gamall þverhaus með ekkert vit á peningum að trúa. Ég skora á Alþingi að fella þrælalögin.. Þar mætti alþingismenn hugsa til 16ánda forseta USA. Læt þetta duga af nöldri f.h. Kært kvödd


mbl.is Er ríkisstjórnin að gera samskonar mistök og útrásarvíkingarnir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

meiriháttar samlíking Ólafur /Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 22.7.2009 kl. 00:53

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll félagi og ég þakka innlitið. Já Halli. Útlitið er svart. Við fæddumst í kreppu og komum til með að fara í kreppu.Sértu ávallt kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 25.7.2009 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 535268

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband