Laugardagsnöldur

Er ekki Ruv eign ríkisins ? . Og eigum við almenningur því ekki  hlutdeild í þessari eign eða er kannske búið að rýja okkur henni sem svo mörgu öðru.Hver andsk.....leyfir dagskrárgerðar og fréttamönnum þessarar stofnunar að haga sér eins og þetta lið. eigi þessa stofnun og það skuldlausa.

Fjand... hafi það þeir eiga bara hver um sig ca 1/300.000 part á móti t.d. mér. Og ég sem hluthafi í draslinu heimta að þessir bandíttar fari eftir þeim lögum sem þessari stofnun er sett. Í II kafla laga um Ríkisútvarpið ohf, 3ju greina no 5.stendur m.a: „5. Að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Gæta skal fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og  og dagskrárgerð“.og no 7. „Að veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða.“

Þessir drjólar ættu að koma þessu inn í hausinn á sér.Af hverju þessi reiði í mér ?.Jú af því að þessi lög eru þverbrotinn eiginlega hvern einasta dag. Og það á þeim flokk sem ég aðhyllist. Mér er andsk..... sama þótt margir spái Frjálslyndaflokknum dauða. En fólkið sem aðhyllist flokkinn á þá skýlausu kröfu burtséð þó menn séu að tala um“nokkrar hræður“að þessi klíka sem stjórnar RUV og virðist ætla að þegja flokkinn í hel fari  eftir lögum um þessa títtnefndu stofnun.Þessi klíka getur ekki tekið völdin með að hleypa ekki í gegn nema þeim kosningaáróðri sem þeim fellur í geð. Það hefur verið með endemum að hlusta og sjá þennan fjölmiðil geta ekki skýrt frá neinu um flokkinn nema það sé neikvætt og flokknum til vansa.Þetta minnir á einræði Þetta minnir á stjórnarhætti:“ Robert Gabriel Mugabe“ í Zimbabwe. Ég viðurkenni fúslega að mikið hefur gengið á innan flokksins.

Og það er flokksmönnum sjálfum að kenna. Og sumir“gasprarar“hafa séð sig knúna til útvarpa deilum flokksmanna út um grænar grundir í staðin fyrir að leysa málin í ró og næði innan flokksins. Allir vita að t.d. Íhaldið er klofið í herðar niður í ýmsum málum. En þeir passa sig á að vera ekki að gaspra eins og krakkar í leikskóla um deilumálin í fjölmiðla. Sumir segja að FF eigi að vera opinn flokkur og öll deilumál eigi að vera uppi á borðinu. Hræddur er ég um að flokkurinn stæði betur ef flokksmenn hefðu höndlað málin rétt. Reynt að úkljá málin án íhlutunar fjölmiðla.En hvað um það.  Við sem eftir stöndum eigum þann skýlausa rétt sem borgarar þessa lands að flokki okkar sé sýndur sami sómi og öðrum flokkum sem sæti eiga á alþingi í dag. Fái fullan aðgang,allavega að svokölluðum ríkisfjölmiðlum til jafns og hina .Mér er fjandans sama hvað hver segir þetta er mín samfæring og ég hef fullan rétt á að hafa hana.  Formaður blaðamannafélagsins var að væla undan Geira Goldfinger.

Hún ætti frekar að taka félagsmenn sína á beinið út af sífelldum brotum þeirra á hlutleysi Ruv. Ég var að hlusta á fréttirna og svei mér þá að það er eins og“klíkan“ hafi heyrt nöldrið í mér.Það voru fluttar fréttir af FF til jafns við aðra flokka.Annars ættu fjölmiðlar að skammast sín fyrir hvernig æsingarblær hefur litað allar fréttir undanfarið. Að ég tali nú ekki um hvernig ein af mínum fv uppáhaldsfréttakonum“tæklaði“Fáfnismálið. Þetta væru frændur vorir frá Norðurlöndum og fyrst þeir gengu lausir í sínum heimalöndum ættu þeir að fá að koma hingað. Þarna var frúin að tala um tilraunir Hells Angels að ná fótfestu hér í gegn um Fáfnismenn. Ég bjó á Skåni,S-Svíþjóð í þau ár er baráttan milli Hells Angels og Banditos sem  slógust um völdin á Skåni.  Morð voru daglegir viðburðir þar sem menn voru skotnir á“færi“og aldrei eða allavega í sárafáum tilfellum náðust morðingarnir. Já Erna Indriðadóttir flestir þessara morðinga ganga enn lausir.

Hvílíkur málflutningur hjá fjölmiðlafulltrúi alþjóða fyrirtækis. Hvernig ætlar þetta fyrirtæki að meðhöndla ýmis mál hvað terrorista varðar með svona bláeygða stjórnendur. Og eru það ekki Hells Angels sem segja Fáfnismönnum að halda kja... Já hver ræður þegar á hólminn er komið. En það er kannske eins gott að hafa ekki fleiri orð um þessa gæja.  Mig langar til að tóra nokkur ár til viðbótar.  En það er með endemum hvað þetta 101 lið getur verið sérsinna í alvörunni.

T.d. í hvalveiðunum..Því er andsk..... sama þótt hvalurinn éti fleiri þúsund tonn af fiski.Þetta eru svo fallegar skepnur eru ein rökin. Svo hámar þetta lið í sig litlu fallegu lömbin sem fæðast á vorin.Háma þau í sig og svelga shérrí og rauðvín og tala frönsku,allavega um helgar.Hér læt ég staðar numið í þessu laugardagsnöldri mínu.Kveð ykkur kært með von um að við förum öll sátt að sofa í kvöld. Lifið heil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 Hvað ertu að segja kæri félagi. Borða þau litlu lömbin sem leika sér á grænum grundum svo saklaus og falleg. Háma þau í sig. Hvað næst ? En ef ég skef nú af mér brosið, því þú ert með skemmtilegan ritstíl, þá er það rétt að það er ákveðin þöggun í gangi um flokkinn. Það skeði þó síðasta sunnudag 1.3. að Kolbrún Bergþórsdóttir sá tækifæri á að ná sér í punkta hjá nýjum eigendum, kvótagreyfum og ráðast á flokkinn út af illdeilum innan flokksins.  Vissulega hafa verið átök þegar þeir aðilar sem gengu til liðs fyrir síðustu kosningar hafa ekki náð að fylgja sínum málum eins og þeir hafa viljað og því yfirgefið hann. Sumum sér maður meira á eftir en öðrum. Ég sendi svargrein á mbl en veit ekki hvort eða hvenær hún verður birt. RÚV er alveg sér fyrirbæri en mér fannst reyndar miklu betra viðmót þar í síðustu kosningum en á stöð 2. Bestu kveðjur til Eyja. Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.3.2009 kl. 21:05

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

'Ólafur þu ert frábær,maður hefi ekki sagt þetta betur/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 7.3.2009 kl. 22:14

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góður pistill, alveg hreint stórgóður.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.3.2009 kl. 00:30

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Kæru vinir takk fyrir innlitið.Og þið dömur til hamingu með ykkar tilnefningar.En eitthvað er tölvutæknin að stríða mér.Ég skrifaði þetta í Word og coperaði svo það hingað en þetta fór allt í eina klessu.Og nú fæ ég skammir frá vini mínum á"Viktinni"á mánudag fyrir illlæsilegan teksta.Veri kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 8.3.2009 kl. 00:52

5 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Mín kæra Kolla mig langar að lenga aðeins í færslu þinni um menn sem ganga til liðs við flokkin.Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að þegar maður flyttst t.d annars landa verði maður að reyna að samlaga sig siðum þess og lögum.Maður reynir ekki að samsama þjóðina,lögum og siðum heimalandsins.Svipað hef ég haldið um fólk sem skiptir um skoðun í pólitík og hverfur til annara flokka.Þeir fara ekki að sveigja flokkin að sínum skoðunum.Mér er sem ég sjái þá félaga Jón og Kristinn sveigja sjöllunum og framsókn að sínum skoðunum.Ja verði sjálfstæðisflokknum að góðu að gleypa skoðanir Jóns og framsókn með skoðanir Kristins

Ólafur Ragnarsson, 8.3.2009 kl. 03:04

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 já verði þeim að góðu. Ég nota þetta tækifæri til að óska Guðrúnu Maríu velgengi í komandi kosningum. Hún vann gott starf fyrir sitt kjördæmi í síðustu kosningum. Þú ferð mjúkum höndum um hana Ólafur þegar hún þarf á því að halda úr þinni sveit. Með þetta að flytja á milli landa þá verður maður að aðlaga sig í ytra umhverfinu en getur haldið í sína sérsiði innan hópsins eða veggja heimilisins. Þetta er stunum vandi að flytja skjöl inn á bloggið ég lenti í því með Vestmannaeyjaræðuna mína. Ég hélt að forritið aðlagaði textastærð og letur en það er ekki. Þetta er samt mjög fínn pistill. Takk fyrir hann. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 8.3.2009 kl. 10:07

7 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl aftur Kolla og takk fyrir innlitið.Já ég mun fara mjúkum höndum um hana Maríu okkar.Ég hef í gengn um lífið farið mismunandi mjúkum höndum um konur.Aldtei ómjúkum.En af vissum ástæðum fer maður með virkilega mjúkum höndum um þær nú til dags.Sértu ávallt kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 8.3.2009 kl. 10:27

8 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Það er með endemum hve oft manni yfirsést það litla sem getur verið til gleðj. Þá á ég við þessa:    

Ólafur Ragnarsson, 8.3.2009 kl. 10:30

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já litlu karlarnir eru nauðsynlegir með. Ég er farin að nota þá eins og stafi. Ef ég hlæ við lestur færslu set ég broskall svo það sjáist að mér er skemmt. Sumum kann að finnast þetta óþarfi en sínum augum lítur hver á silfrið eins og sagt er.  Puss och kram pa svenska. (hvar er bollan eiginlega á þessu lyklaborði ) Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 8.3.2009 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 535264

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband