Meinlausari drykkja.

Ég næ ekki alveg upp í þetta með að drykkja íslendina sé orðin meinlausari en hún var.Er það meinlausari drykkja að eftir hverja helgi má hreinlega segja,liggja menn stórslasaðir á sjúkrahúsum eftir ölóða ofbeldisseggi.Ég segi bara eins og vera ber sem gamall kall.þetta var ekki svona er ég var ungur.Ég er sammála um að drykkjusiðir íslendinga hafi breyst með tilkomu bjórssins.En að menn lægju rotaðir og útsparkaðir í hrönnum út um allan bæ,Það þekktist ekki, hér í "den"það fullyrði ég.En það getur verið að menn hafi látið reiði sína bitna meir á dauðum hlutum,húsgögnum.og svoleiðis í þá daga.En hvort er betra.Kært kvödd


mbl.is Drykkjusiðir Íslendinga orðnir meinlausari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þó ég taki undir margt sem þú segir, þá sagði mér lögreglumaður einu sinni (hann slasaðist illa í átökum við drykkjumann) að ef við bara vissum um öll þau útköll sem lögreglan fengi í heima hús um helgar, þá myndum við strákarnir steinhætta að drekka.  Þetta var fyrir eitthvað um 25 - 30 árum sem hann sagði mér þetta, en um svipað leiti lenti hann í því að drukkinn heimilisfaðir hrinti honum niður stiga á heimili sínu.  Afleiðingar ofdrykkju voru kannski ekki eins mikið í fjölmiðlum áður fyrr, en ofdrykkjan lagði mörg heimilin í rúst áður fyrr eins og hún gerir enn.

Marinó G. Njálsson, 13.1.2008 kl. 16:48

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Ég er get að vissu leiti verið sammála þér Marinó um að þetta var kannske meira inn á heimilum en ekki eins mikið í fjölmiðlum og skoðaðist meira sem"einkamál"Ég er nú svo gamall að ég yfirgaf þetta leiksvið fyrir 27 árum og hef ekki síðan tekið að mér hlutverk þar.En það sagði líka við mig lögreglumaður fyrir nokkrum árum að einu sinni þegar ungur maður hafði orðið öðrum ungum manni að bana og honum var skýrt frá hvað hann hefði gert hafði hann svarað"það getur ekki verið að hann sé dauður ég"danglaði" aðeins í hann með löppunum"Í þessu margumtalaða"den"var liggandi maður úr leik.En mér skilst nú,að þá hefjist leikurinn fyrir alvöru með spörkum og tilheyrandi. þegar búið er að fella manninn.Þakka innlitið.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 13.1.2008 kl. 17:23

3 Smámynd: Sævar Helgason

Er læknirinn ekki að tala um áfengisdrykkjuna eingöngu og að hún sé orðin meinlausari fyrir heilsufarið en sú gamla rótsterka brennivíndrykkja sem áður var allsráðandi  og fór illa með marga ...bjórinn hafi bætt ástandið að þessu leyti. Inní þetta mat koma önnur fíkniefni ekki við sögu .

En slagsmálin tengd ölvun (áfengi og önnur efni) eru orðin margfallt harðari og vægðarlausari en áður var fyrir svona 30-50 árum 

Þetta er svona smá innlegg í drykkjuna. 

Sævar Helgason, 13.1.2008 kl. 23:22

4 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæll og blessaður Ólafur. Saknaði þess, að sjá þig ekki í morgunn. Tveir þriðju af lífshlaupi mínu, eða 42 ár hefi ég verið í félagi við Bakkus og ekki get ég greint eitthvert meinleysi á seinni hluta drykkjuferils míns. Þetta er allt saman alkóhól hvort sem það er í líki bjórs, eða sterkra drykkja og hefur sömu slæmu áhrifin.  Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 13.1.2008 kl. 23:47

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Guð lét fögur vinber vaxa til að gleðja dapran heim,en hvað einum kemur öðrum ekki/Kveðja og gleðilegt ár Ólafur/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 14.1.2008 kl. 01:48

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég held Óli að oftar en ekki séu helvítis eiturlyfin, önnur en áfengið, með í för þegar óþverrahátturinn er mestur og þetta er rétt hjá þér þetta bara versnar og það virðist ekkert ráðast við dreifinguna á þessum óþverra.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 17.1.2008 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 535345

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband