Skipasmiðir í nokkra ættliði

Ein er sú ætt sem skilað hefur af sér eina kunnustu skipasmiði landsins og það i nokkuð marga ættliði. Bergsætt. Þar má nefna bræðurna Þórð Jónson kenndur við Berg hér í Eyjum Guðmund (eldri) kendann við Háeyri  Gunnar Marel og Magnús, og frændi þeirra bræðra Runólfur Jóhannsson,

Langafabarn Gunnars er löngu orðin kunnur skipamódelsmiður.Enda orðlagður nákvæmnismaður við allt  sem hann tekur sér fyrir hendur  Tryggvi Sigurðsson heitir hann og er starfandi vélstjóri á v/b Frá Sem er í eigu Óskars frænda hans afabarn Guðmundar eldri frá Háeyri. En nú hefur Tryggvi eignast skæðan keppinaut í líkanasmíðinni. Þ.e.a.s. sjálfan útgerðarmanninn

Hér er Tryggvi með eitt af sínum skipalíkönum m/b Gófaxa VE

982a4e60 501f 4cab 8651 db84574756a0 MS 1

En hér er núorðinn aðalkeppinauturinn með sitt líkan (menn mega ráða nafninu)

DSCN0781

Ekki er hægt að sjá hvor er stoltari af sínu líkani

Tryggvi er líka frægur mótorhjólamaður. Formaður þesslags klúbbs hér í Eyjim sem heitir "Drullusokkar". Mér þykr virkilega vænt um þessa vini mina. Og nú bið ég þann er flestu ræður (ég reyni nú alltaf ráða einhverju sjálfur) að Óskar vinur minn fari ekki að reyna að apa þessar hjólaæfingar eftir frænda sínum líka

Hér er "Drullusokkur no 1"

Drullusokkur no 1

Allavega ef árangurinn yrði í einhverri líkingu við .... Ja nú er ég komin út á hálan ís og kominn tími til að halda kja...  Verið ávallt kært kvödd

PS: Tryggvi heldur út heimasíðu http://batarogskip.123.is/home/  sem vert er að skoða

Sami


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Ólafur, þessi er nú með þeim betri , ,.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 19.8.2011 kl. 20:34

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll gamli félagi... alltaf ertu skemmtilegur og fræðandi. Annað mál.. nú er ég að koma til Eyja og það er til að taka þátt í sveitakeppni eldri kylfinga. Ég fór í skreppitúr í sumar og náði ekki að heilsa upp á þig en vona að þú hafir fengið kveðju frá mér. Í það skiptið var búið að slá af mót vegna samgönguörðuleika en svo opnaðist skyndilega "friðarhöfnin" og stokkið af stað og beint á teig. Þetta verður ekki svona núna og kem ég þann 25. sept.

Nú er spurning hvort við hittumst ekki á kaffihúsi og leysum landsmálin  Besta kveðja Kolla 

Kolbrún Stefánsdóttir, 20.8.2011 kl. 01:12

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Nei nei nei...ég kem 25 ágúst og verð í 3 daga.... knús á þig

Kolbrún Stefánsdóttir, 20.8.2011 kl. 01:14

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl bæði tvö og ég þakka innlitið. Já Sigmar þegar maður fær svona gott "matreriale" upp í hendurnar frá Torfa Haralds þá verður maður að "vefa" eitthvað úr því. Það er verst hve ílla útgerðarmaðurinn tekur voðinni eða hitt þó heldur.  Jæja Kolbrún. Ég held við þurfum allavega eina ábót á kaffið, ef ekki tvær ef við eigum að leysa þau mál er þú nefnir. En sértu ævinlega velkominn til Eyja  Vona bara að veðurguðirnir verði þér hliðhollir.  En hvað um það verið bæði ávallt kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 20.8.2011 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 535373

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband