"heimsmet í slæmri stjórnun."

Þetta hlýtur að vera heimsmet í slæmri stjórnun. Heil þjóð fer hálfpartinn á hausinn og einn ráðherra sem fólkið setti traust sitt á og kaus til að stjórna landinu hefur ekkert annað að segja:"að allar ásakanir á hendur ráðherra um vanrækslu í aðdraganda fjármálahrunsins haustið 2008 séu á veikum grunni byggðar" VEIKUM GRUNNI  ja svei. Hefur nokkur fundið út hve margir billjón US dollars kanarnir hefðu tapað reiknað í hausatölufjölda. Kært kvödd

mbl.is Ásakanir um vanrækslu á veikum grunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og mörg heimsmet í afneitun. Afneitunin er flóttaleið og líklega jafn gömul erfiðleikum í rökræðunni.

Fyrstu batamerkin fara að sjást þegar afneituninni lýkur eins og við báðir vitum.

Árni Gunnarsson, 11.9.2010 kl. 23:42

2 Smámynd: Vendetta

Það var orðið augljóst þegar tveimur árum fyrir bankahrunið, að aðgerðarleysið í ríkisstjórn Geirs Haarde myndi hafa slæmar afleiðingar fyrir þjóðfélagið á einn eða annan hátt. Þegar viðhorf ríkisstjórnar er alltaf: "Við skulum halda að okkur höndum, við skulum ekki rugga bátnum, hlutirnir reddast af sjálfu sér", þá er alveg eins gott að hafa enga ríkisstjórn.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í þingmannanefndinni hafa lagzt gegn því að einkavæðing bankanna verði rannsökuð. Það er skiljanlegt, enda vita þeir að þá mun alls konar viðbjóður koma í ljós: Dugleysi, heimska, ábyrgðarleysi, spilling, vinargreiðar og falsanir.

Vendetta, 12.9.2010 kl. 09:21

3 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sælir strákar? og ég þakka innlitið. Ég þarf nú ekki að setja spurningarmerki við fyrri höfundinn minn gamla góða vin Árna frá Reykjum. Við eru alltaf sammál en við erum stundum sammála um að vera ósamála. Tek undir með þér Árni og einnig þér Vendetta Verið ávallt kært kvaddir?

Ólafur Ragnarsson, 12.9.2010 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 535355

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband