7.2.2010 | 17:42
"við landasölu"!!!
Gvöð hve menn geta verið ófyrirleitnir. Hvernig getur mönnum dottið í hug að selja landið sitt. Vonandi fær þessi ungi maður mjög harðan dóm
Annars er enginn hætta á að neinn úr sauðsvarta hópnum hljóti nokkra náð allavega ekki hjá Hæstavinaréttinum. Og þetta með "Landabruggið" nær nú hæðstu hæðum. Því að Landabrugg og landabrugg er alls ekki það sama Í fyrra dæminu bruggar þú landi þinu launráð sem verða fjárhag þess að falli En í seinna bruggar þú einhvern fjáran sem sett er á flöskur verður þó ekki nema nokkrum alkahólistum að falli Sem eru kannske bara fullir hvort sem er
Nú í fyrra dæminu verður þú að stjórnarmanni í dýrmætustu félögunum í eigu bankanna Aftur og nú með enn þá meiri lúðrablæstri en áður En fyrir seinna brotið verður þú að sakamanni og átt heima í tugthúsinu En hvað um það Enn og aftur er manni komið á óvart hvernig talað er við okkur þessa bölv... sakleysingja hér niður á jörðinni.
Okkur sakleysingana niðri á jörðinni
Hvaða heilvita manni dettur í hug að það sé alfarasælast að þeir menn sem settu þjóðina á hausin fái að koma að kaupsýslu strax aftur.
Og þá hlýtur sú spurning vakna hjá lítt menntuðum almúgamanni eins og mér og sem ekki býr á 101 svæðinu. Hvaðan úr andsk...... fá þeir peninga. Er ekki þjóðin að gangast undir hálfgerða aftöku vegna fjárglæfra þeirra. Er ekki verið að afskrifa milljarða vegna gjörða þessara manna
Ég man að ég las ungur, um prest á Hruna í Árnessýslu til forna. Prestur var gefin fyrir glaum og gleði (hefur kannske veitt Landa) og í stað þess að messa á jólanótt lét hann sóknarfólkið dansa spila og hafa í frammi allslags ósæmilega hegðun í kirkjunni. Þetta mun hafa farið fyri brjóst móður prests sem Una hét og var öldruð,guðhrædd Og mun bæði hafa verið skyggn og forspá. Setti hún niður við son sinn vegna þessa athæfis hans.
Á þetta vildi sonurinn ekki hlusta.Einhverju sinni er "geimið" í kirkjunni gekk alveg fram af þeirri gömlu.Gengu hún nú til sonar síns og biður hann að hætta En eins og sona er oft siður gegnir hann ekki. En segir :"einn hring enn." Mig minnir að 3svar hafi hún gengið til sonar síns með bónina"game over"
En hann ekki hlýtt.Í síðustu ferðinni heyrir hún að kveðið er digrum rómi "hátt lætur í Hruna/hirðar þangað bruna/svo skal dansinn duna/að drengir megi það muna/."Til að gera langa sögu stutta þá bara sökk kirkjan fólkið og heila klabbið Sennilega allt til helv.... En það mun hafa verið sá svarti sjálfur er kvað Mér finnst satt að- sega ástandið í dag líkjast þessum "dansi" nema að að er bara 1sti hringur búinn
Og nú sé verið að "bjóða upp"í annan hring. Maður má kannske þakka fyrir að 6 fetin nálgast óðum svo maður sleppur kannske við næsta hring. Læt þetta duga í bili Verið ávallt kært kvödd
Staðinn að verki við landasölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Facebook
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 535992
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll minn ágæti bloggvinur. Gaman að sjá þig aftur í fullum skrúða. Skemmtileg myndasaga og allt svo satt og rétt. Hvort sem við sleppum eða ekki er ljóst að það á að taka sama snúning á íslensku þjóðinni og áður. Ætlar þjóðin að kyngja því að sömu menn og rústuðu efnahagnum með spilafíkn sinni og græðgi fleyti nú rjómann ofan af og byrji á nýjan leik ? Maður spyr sig. Svo virðist sem ríkisstjórnin sé ráðalaus samkvæmt viðtali við forsætisráðherra fyrir stuttu síðan í kastljósinu. Bestu kveðjur til þín Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 7.2.2010 kl. 21:42
Sæl min kæra vinkona. Ég þakka þér innlitið Þú fyrirgefur hve seint ég svara. Harði diskurinn í kallinum er farinn að dala En hvað um það. Við þurfu að taka eins og eitt "viðtalsspil"bráðlega En þangað til kveð ég þig kært
Ólafur Ragnarsson, 11.2.2010 kl. 23:13
Já eitt menningarsamtal . Nú er landsþing framundan hjá Frjálslyndum. Rétt ár síðan við vorum saman síðast að velja okkur forystu í Hólminum undir lögregluvernd eins og þú manst. Heyrumst fljótlega. Bestu kveðjur til þín Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 11.2.2010 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.