"voga sér"

Þeir ættu ekki að voga sér að hreyfa við dómsmálaráðherranum.!!!! Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Breytingar ræddar áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"opna veskið"

Halló er ekki píreygði bankastjórinn að opna veskið sitt á myndinni. Þetta skildi þá ekki  vera "fyrirboði"þess sem koma mun???? Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Sigurður Einarsson verður yfirheyrður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"enginn fátækt á Íslandi"

"Enginn fátækt á Íslandi".Var það ekki haft eftir ráðherra fjármála um daginn. Ja hérna. En þetta sýnir nú kannske best hve veruleikafyrtir ráðamenn þessarar þjóðar eru. Flýtur á meðan ekki sekkur.

 

Meðan fleiri tugir manns eiga hvorki í sig eða á er allt með ró í húsinu við völlinn. Þar spila Neróarnir bara á sínar hörpur meðan fólkið brennur inni með sín vandamál. Þeim varðar ekkert um að aldraðir öryrkjar og ýmsir hópar séu að verslast upp í raunverulegri fátækt. Þó gamlar konur séu farnar að biðja guð að koma sjálfan því þær haldi að sonurinn valdi þessu ekki.

 

 

Það eru 28 dagar til sjómannadags. Og það verður gaman að heyra hver boðskapur ráðamanna verður þann dag. Vafalaust eru til sjómenn sem gefa lítið fyrir þakkir með fögrum orðum og annan fagurgala á þessum degi. Vilja heldur sjá bætt kjör fólksins í landinu. Peningarnir sem þeir með hörðum höndum afla sé varið til að bæta kjör fólksins í landinu heldur en t.d fleiri sendiráða og allslags bulli í utanríkismálum. 

 

Mér skilst að ónefnd "jafnaðarkona" mikill dragbítur á málefni sjómanna, vilji stofna slíkt í Grænlandi. Með mikilli virðingu fyrir hinni duglegu þjóð í næsta nágrannalandi held ég að við getur látið"rafpóstinn"og Internetið sjá um samskifti okkar. Íslensk stjórnvöld hafa gengið af farmannastéttinni dauðri og eru farnir að narta í fiskimannastéttina.

 

 

Það er þrútið loft og þungur sjór í málum  íslenskra sjómanna í dag. Vonandi tekst sjómönnum og velunnurum þeirra að standa saman um hagsmuni þeirra og forðast ríkisstjórnarbrotsjóina sem eru að hefast við sjóndeildahringinn, Munið það sjómenn sameinaðir stöndum vér. Sundraðir föllum vér. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Þjóðfundur um fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"öskusvört"

Háloftin áfram öskusvört heitir þetta frétta skot. Forsetinn og fl spá Kötlugosi í framhaldi af þessu. Og hvað skeður ef það gengur eftir.Það er áætlað að henda einhverjum "millium"í auglýsingar á "ferðamannalandinu" Íslandi. Það virðist vera Ok að "henda nokkrum millum" í þessar auglýsingar. En hvernið á að koma ferðamönnum hingað ef háloftin halda áfram að vera öskusvört.

 

 

Ég hef hvergi séð að bregðast eigi við því á annan hátt en sem nú er. Það skildi það aldrei vera að sá hópur manna sem 101 elítan minnist aldrei á og að mínu mati skammast sín fyrir að vera komin út af sem koma til með að bjarga þessu. Sjómenn. Hvergi er t.d. minnst á að ef allt flug bregst þá verði að leigja skip til farþegaflutninga. Kaupa skip til þess arna er sennilega ekki til umræðu.Hafið tryggði landinu lengi frelsi,víðáttu þess átti þjóðin lengi frelsi sitt og frjálsræði að þakka. Þessir tímar gætu verið handan við hornið.

 

 

Það voru sjómenn auk bænda sem oft voru hvorutveggja sem komu þessari þjóð á lappirna. það verða sjómenn sem að mestu leiti  koma þessari þjóð aftur á lappirnar nú eftir að"gæludýr" 101 elítunar kipptu þeim undan henni. Of ef ílla fer verða það þeir sem sem halda henni í sambandi við ummheiminn. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Háloftin áfram öskusvört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. maí 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 537319

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband