Sjórán

Ef einhverntíma hefur verið ástæða fyrir SÞ að ráðast inn í að nafninu til,frjálst land þá er það nú. Stjórnleysið í Sómalíu er farið að hafa svo slæm áhrif á ýmsum stöðum að það hálfa væri nóg.

 

Þarna eru sjóræningar  610x að taka skip

T.d á hjálparstarf í Afríku. Að 1 ríki skuli leyfast að hafa eins ógeðslegt athæfi og sjórán að aðalatvinnuvegi nær náttúrlega engri átt. Að sjófarendur á þessum slóðum geti ekki siglt um þessi svæði og það í mörgum ef ekki flestum með hjálpargögn handa hjálparþurfi fólki í öðrum Afríkulöndum nær nárrúrlega enga átt.

Þarna gefast   p06 17942093 þeir upp eftir inngrip herskips

Ég blæs á allt kjaf.... um kapitalisma.mannvonsku og þessháttar í þessu sambandi. Þó ég sé reiður út í framgöngu sumra vestrænna útgerða í sambandi við eftirleik þessara rána. Þá gerir maður sér grein fyrir að siglingar hljóta að þurfa að vera frjálsar ium heimshöfin.

 

                                        p12 17949203 

Mér er alveg sama þótt ég fái á mig einhvern stimpil frá því fólki sem ekki vill horfast í augu við að margt  t.d. fátækt geti alið af sér stórhættulega glæpamenn.  Það sem gerir málið enn alvarlegra er sú vissa að sjóræningarnir eru með bækistöðvar beggja vegna Adenflóa.

Þær eru ekki stórbrotnar   p13 17777557 fleytur sjóræninga

Og þá meina ég Yemen. En þar eru lögleg yfirvöld og ætti að vera hægt að semja við þau þegar búið er að uppræta sjóræningana hinum megin sundsins. Að vísu skil ég ekki að ræningunum skuli takast sum þessara rána. Skortur á aðgæslu tel ég stundum vera orsökin. Öll olíuskip eru t.d búin öfluigum vatn/sjóbyssum til baráttu við elda. Þessar byssur hafa reynst vel í baráttunni við ræningana. Ship+Photo+AGIP+ROMAOg þær hafa verið eina tækið til varnar þessari óværu. Svæðið kring um Singapoore,út af Nigeríu,Jemen og nokkur svæði í Carrabean,voru fræg þegar ég var að sigla. Það var lítið hægt að gera þegar siglt er um vafasöm svæði.Það helsta að allir væru á vakt og vakandi og ef eitthvað hreyfðist í átt til skipsins voru skipverjar á dekkinu reiðubúnir með öflugan smúl og vatnsbyssur(þegar ég var á tankara) til þess að geta dælt sjó á sjóræningjana af fullum krafti ef þeir nálguðust skipið.p09 17540813    Ég var nokkrum sinnum með svona"æfingum"Yfirleitt gerðu þeir árásir sínar í myrkri þess vegna fylgumst við vel með rödurunum og beindum "smúlnum"og vatnsbyssunum að öllum "ekkóum"sem nálguðust okkur innan vissrar fjarlægðar. Nú er stórveldið USA illilega flækt í málið. Með herskip á staðnum. Kínverjar eru einnig komnir með herskip auk EBE landa herskip. Ég hugsa að sjóræningar megi biðja guð að hjálpa sér ef þeir lenda í að taka kínverskt skip. Þeir eru néú ekki vanir að kalla allt ömmu sína. Með von um að þessi mál leysist á sem friðsamasta hátt kveð ég ykkur kært

 par2486233 rp420x400capt photo 1239453050591 2 0

 


mbl.is Dráttarbáti rænt á Adenflóa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týndi sheikinn???

Skildu frammarnir vera að leita uppi Qadar- Sheikinn fræga til að  fá leyfi til að birta gjafirnar???.Kært kvödd

His Highness Sheikh Hamad Bin Khalifa Al-Thani


mbl.is Framsókn leitar samþykkis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þögli herfræðingurinn

Herfræðingurinn á Rauðasandi þegir þunnu hljóði. Það þunnu að vangaveltunum um hugsanlega kandídata halda áfram. Það mættu menn í mínum flokki temja sér. Þá meina ég þagmælsku um innanflokksmál við fjölmiðla.

 

 

Enda geta svona mál ekki komið upp hjá FF. Ef illa fer hjá okkur þá þurfum við ekki að leita langt að þeirri orsök. Það er engum öðrum en okkar egin flokksfólki að kenna. Bæði fv og nv. Fólk segir hreinlega;"það þýðit ekki að kjósa okkur það eru alltaf einhver læti hjá ykkur"

 

 

Maður reynir að benda á að deilur séu á ollum góðum heimilum" og þá fær maður svarið: Já innandyra" Ég fyrir mitt leiti held að þessar andsk..... fólk sem var blaðrandi á blogginu og í fjölmiðlum í vetur hafi unnið FF meira tjón  en þessar hremmingar sem  XD eru í núna. Og takið eftir það er helst ekki minnst á FF nema ef einhver gengur úr honum. Ég sé mikið eftir sumu fólki sem hefur farið.En minna en ekkert eftir sumu. Farið hefur fé betra

 

 

En það er og hlýtur að vera mál hvers og eins. En það er ekkert minnst á nýja félaga sem hér í Eyjum eru ornir 15.(síðast er ég taldi á fimmtudag.) síðan við opnuðum skrifstofuna hér. Ef svona aukning yrði á hverju svæði fyrir sig væri þetta gott mál. Þetta eru sem sagt nýjir flokksmeðlimir og svo eru það þeir sem ekki vilja láta bendla sig við neinn flokk og kannske allra síst hér í Eyjum.en velja  FF í kjörklefanum. Læt þetta duga í bili. Kært kvödd  


mbl.is Upplýsir ekki hverjir leituðu styrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

9 apríl

Nákvæmlega fyrir 46 árum þ.9 apríl 1963 var ég nemandi í Stýrimannaskólanum í Reyjavík. Bjó á"Vistinni"eins og það var kallað. þ.e.a.s heimavist skólans.

image Súlan EA

Um kvöldið þann 9unda skall á aftakaveður sem kostaði 16 mannslíf hér við land. 16 menn á aldrinum 18 til 48 ára.Sem sagt menn á besta aldri"í blóma lífsins"eins og sagt er. Ég man að á kveldi þessa dags þ 9.átti bekkjarbróðir minn von á bróðir sínum í land. En bróðirinn var skipsmaður á m/b Súlunni EA

 

        Hringur SI missti 2 menn image 11 sem druknuðu,í veðrinu 

Daginn eftir fóru að berast fréttiraf skipstöpum og mannsköðum. og menn setti hljóða. Seinna þennan dag fréttist svo af örlögum Súlunnar. En ekki strax hvort einhverjir af skipshöfninni hefði komist af. Svo komu fréttirnar af 11 manna áhöfn komust 6 menn af.Sigurkarfi GK hafði bjargað þeim Sigurkarfi hét áður Edda GK  image 10 Og liggur mikil harmsaga bak því nafni sem ekki verður rakin nú

Forsíða  image 16  Moggans 10 apr 1963

Ég man fögnuð bekkarbróðirs míns er hann frétti af björgun bróðir síns. Í skipshöfn Súlunnar átti ég kunninga og 1 fv skipsfélaga.sem fórust. Grímur Karlsson hinn frægi skipsmódelasmiður var skipstjóri á m/b Sigurkarfa þegar þetta skeði. Svona er sagt frá fundi skibbrotsmanna í bók Steinars j Lúðvíkssonar"Þrautgóðir á raunarstund"image 13 Kl fjögur var báturinn um 3 mílur út af Garðskaga. Sá þá hásetinn sem var við stýrið rauðu ljósi bregða fyrir út um bakborðshliðargluggan. Kristján Ragnarsson stm sem einnig var í brúnni sá líka ljósinu bregða fyrir.Grímur skipstjóri sá það hins vegar ekki.  Rýndu mennirnir á  Sigirkarfa nú út í hríðina og allt íeinu taldi Grímur sig sjá lóðabelg image 14 rétt hjá skipinu. Við nánari athugun kom í ljós að þarna var um að ræða gúmíbát og var hann mannlaus og á hvolfi og og því látinn eiga sig. Grunaði Sigurkarfamenn strax að eitthvað hefði orðið að hjá skipi á þessum slóðum og var öll áhöfnin kölluð á útkikk og að berja klaka af skipinu. Um stund virtist verða svolítið lát á hríðinni  image 17og komu þá Sigurkarfa mennirnir auga á gúmbát sem var á réttum kili . Þegar Sigurkarfi nálgaðist bátinn var í fyrstu ekki hægt að sjá hvort menn væru í honum. eða ekki því því breitt var yfir inngöngugöt bátsins. En brátt voru þau opnuð og veifandi hendur birtust. Veifuðu Sigurkarfamenn á móti. Var nú Sigurkarfa lensað ofurhægt skáhallt að 100361334 9124296cf1 gúmmibátnum þannig að lítilsháttar skjól myndaðist á stjórnborða.Þegar gúmmíbáturinn nálgaðist var kastað kaðli til manna í honum og náðu þeir honum. Hérna ætla ég að klippa á og kem seinna með frh Kært kvödd 


Bloggfærslur 11. apríl 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband