Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"stoðum karlaveldisins"

"Fram kemur að konur beri meginábyrgð á rekstri heimilisins og að ryðja þurfi stoðum karlaveldisins úr vegi" Fyrr má nú rota en dauðrota. En hvað á þá að gera ef 2 karmenn eru giftir, hvorum á þá að pyðja úr vegi. Karlagiftingar hljóta því að koma við kaunin á feministunum. Þessum sem fara úr límingunum við að bera sveinbarn undir brjósti. Standið saman karlmenn og verið ávallt kært kvaddir


mbl.is Íslensk heimili kynjagreind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"eins og spilaborg"

"Stjórnkerfið allt virtist grandalaust allt fram á árið 2008 þegar bankarnir hrundu eins og spilaborg,“ segir Sturla" Hvað er hið eiginlega stjórnkerfi ? Er það samansafn hálvita sem ekkert skilur. Hverjir stlórna þessu landi í raun. Allavega ekki  ráðherrar. Það eru ábyrgðarlausir hálaunaðir fræðingar sem hafa aldrei heyrt orðið sómakær,eða skilja ekki merkingu þess orðs sem er að detta úr málinu. Kært kvödd
mbl.is Töldu stöðuna sterka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"skynbragð á hlutunum."

Skelfing er gott að sjá hve íslenskir stjórnmálamenn virðast hafa mikið eftirá skynbragð á hlutunum. Hvernig væri nú að koma því á að fólk sem ætlar í stjórnmál fari í gáfnapróf og þeir skríði inn sem hafi greind sem ekki væri lægri en  hæfir 11 ára barni og svo þar yfir.Vegna þess að á því hefur verið töluvert mikill brestur undanfarið. Kært kvödd
mbl.is Í stórum málum þarf öll stjórnin að vera upplýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"úr þessari andsk..... tuggu"

Hvað lengi ætlar þetta lið að teygja úr þessari andsk..... tuggu. Við hérna niðri á jörðinni vitum:"OG HÖFUM VITAÐ LENGI að það verður ekkert gert. Hættið þessu helv.... skrípaleik.

 

Látið peningana sem eiga að fara í framhaldbullið renna heldur til þeirra sem minna mega sín. En því miður er þannig komið fyrir þessu "þekkingarþjóðfélagi" að ef maður segir eitthvað sem ekki fellu þessu þekkingarliði í geð þá er maður "ruglað gamalmenni" og þar fram eftir götunum.

Lögreglumaður sagði sannleikann um daginn og hvað skeði hann hrökklaðist í annað starf. Aðal stjórnmálacení og grínari landsins gantaðist við erlendan fjölmiðil um daginn og kerlingarnar fullar af þekkingu á málinu ætluðu úr límingunum. Og heilum degi með borgarfulltrúa á fullum launum ræddu málið af næmri þekkingu. Ja svei Kært kvödd 


mbl.is Ekki meirihluti fyrir rannsókn á einkavæðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hefur ekki öllum glæpamönnum þótt "

Hefur ekki öllum glæpamönnum þótt dómsúrskurðir sem þeir hafa hlotið vera:"röng niðurstaða" Bað ekki þessi maður guð um grið vegna þjóðar sem var komin á hausinn. Hver stjórnaði landinu þá. Þetta segir manni bara það, að það er hægt(og þar er satt að segja hægt nú) að kjósa hvaða aula sem er á þing og sem ráðherra. Hann ber enga ábyrgð á gerðum sínu sama hvaða helv.... asnastrik hann gerir. Húrra fyrir íslensku réttlæti. Það á heima í heimsmetabók  Guinness. Kært kvödd
mbl.is „Röng niðurstaða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hættið nú þessu helv.... "

Hættið nú þessu helv.... bulli um þetta. Það verður ekkert gert við neitt af þessu fólki. En það skilur ekki að við hérna niður á jörðinni hnjótum ekki um fjöllin heldur þúfurnar. Þetta andsk..... háloftalið hnyti ekki einu sinni um Alpana slíkt er stórmennskubrjálæðið í því. Kært kvödd
mbl.is Ekki þingmeirihluti fyrir ákæru á hendur Björgvini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sjónarspil"

Vitanlega er þetta allt sjónarspil. Gert til að slá ryki í augun á okkur hér niður á jörðinni. Og á sennilega að vera liður í því sem þetta lið kallar:"vinna aftur traust almennings". En hann þ.e.a.s. almenningur veit að allt það bull sem kemur frá þessum ódráttum er sjónarspil og ekkert annað. Kært kvödd
mbl.is Landsdómur er sjónarspil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Reynir á ákvæði stjórnarskrár"

"Reynir á ákvæði stjórnarskrár" Ja svei Þetta fólk hefur nú handleikið hana eins og fullur vinnumaður( með allri viðingu fyrir vinnumönnum fullum eða ófullum en engri fyrir þessu liði) í réttum. Vöðlað henni saman og stungið í rassvasann þegar því er við að horfa. Kært kvödd

mbl.is Reynir á ákvæði stjórnarskrár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"heimsmet í slæmri stjórnun."

Þetta hlýtur að vera heimsmet í slæmri stjórnun. Heil þjóð fer hálfpartinn á hausinn og einn ráðherra sem fólkið setti traust sitt á og kaus til að stjórna landinu hefur ekkert annað að segja:"að allar ásakanir á hendur ráðherra um vanrækslu í aðdraganda fjármálahrunsins haustið 2008 séu á veikum grunni byggðar" VEIKUM GRUNNI  ja svei. Hefur nokkur fundið út hve margir billjón US dollars kanarnir hefðu tapað reiknað í hausatölufjölda. Kært kvödd

mbl.is Ásakanir um vanrækslu á veikum grunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Í hvaða landi liðist"

Í hvaða landi liðist það að ráðherra bankamála væri dulin mikilvægum upplýsingum sem vörðuðu bankana ?. Bara það ætti að vera nóg til að sakfella þá ráðherra sem að því stóðu. Manni dettur í hug gamall dráttarhestur í stórborg með augnhlífar sem beina sjóninni beint fram. Nema augnhlífar Björgvins sýnast hafa vísað beint aftur. Kært kvödd
mbl.is Segja Björgvin hafa verið leyndan upplýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband