Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"Við getum ekki "

"Við getum ekki og eigum ekki að sætta okkur við þetta atvinnuleysi" Maður er hættur að "kippa" sér upp við hvað flestir þessir verkalýðsforingar láta frá sér fara. Þeir eru eitthvað að "nöldra" en passa að móðga ekki frú Jóhönnu & co. Enda er ekkert hlustað á þetta nöldur í þeim. Það finnum við eldri borgararnir á eigin skinni. Kært kvödd
mbl.is Getum ekki sætt okkur við atvinnuleysið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg Jól

Ég óska lesendum síðunnar Gleðilegra Jóla

Merry Christmas background


"um fína drætti"

Nú virðist vera fátt um fína drætti hvað fréttamennskuna varðar. Það er orðin stórfrétt að maður tárist við líkkistu föður síns. Kært kvödd
mbl.is Kim Jong-un tárast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"farið í jólakort"

Mér finnst þetta gott hjá fyrirtækjum að gefa þá peninga sem annars hefðu farið í jólakort og kostnað við þau í þörf málefni. Sem þessi and.......  íhaldskurfar sem stjórna landinu hafa vannært.
 
 
Og mér finnst satt að segja þessi gamli siður megi missa sig. Því það er eins og annað sem snýr að eldra fólki orðið alltof dýrt að senda ættingum og vinum jólakort. Kostar ekki um 100 krónur undir hvert kort innanlands.Safnast saman er samankemur.það hafa mikilvægari siðir aflagst nú á tækniöld. Kært kvödd
mbl.is Norðlenska gefur jólakortapeningana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sem horfa til Íslands"

Það eru fleiri en þessi Huang Nubo sem horfa til Íslands. Það gera líka eldriborgarar þessa lands sem allavega einusinni hét Ísland. En er nú þakið hulu kaldra vinda úr "austurátt"

 

Hulu sem VG hafa klætt það. Þar sem allir eiga að vera fátækir nema þeir sem útvaldir af flokknum. Hulu þar sem engin viðskifti eru leyfð. Engar framfarir í neinu tagi .

 

Hulu sem nú þekkist bara í N- Kóreu. Eldriborgarar vilja landið sitt aftur úr klónum á þessum hræsnurum sem kenna sig við heiðarlegan verkalýð íllu heilli. Kært kvödd


mbl.is Huang horfir enn til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Röðin komin að eldri borgurum"

Já það eru viðhöfð stór orð um leiðréttingar á svokölluðum "bótum" til eldri borgara. En eru þetta einhverjar bætur ?. Er ekki kúfurinn af þessu fólki búið að borga sínar skyldur til þjóðfélagsins jafnvel í sextíu, sjötíu ár Við höfum hlustað á þessi stóru orð nú í nokkur ár.

 

 

En hvað hefur skeð. EKKERT  0. Núll. Síró. Þessi tæra vinstristjórn hlustar ekkert á slíkar kröfur. En ef einhvert kjararáð bætir hag ráðherra og þvílíkra skí... , þá sleika þeir út um. Það er tregara en tárum taki að sjá hvernig það fólk sem er fætt á millistríðsárunum er meðhöndlað af þessi fína liði sem því miður strjórnar þessu landi.

 

 

Þessir andsk..... sem tilheyra aðli þessa þjóðfélags og stjórnar því skammast sín fyrir forfeður sína sem einusinni angaði af slori og kúaskít. En það var nefnilega þetta slor og kúaskítsangandi fólk sem kom þessari þjóð á lappirnar. Ekki einhverjar listaspírur eða menningarvitar. Sem nú þiggja glæsihallir byggðar á lélegri kjörum þeirra gömlu og þiggja ofurlaun fyrir að pikka  jafnvel einhverjar glósur úr síðasta fylliríi á tölvu af lélegu minni. Kært kvödd


mbl.is Röðin komin að eldri borgurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Láttu ekki ræna þig um jólin".

"Láttu ekki ræna þig um jólin". Hvað geta eldriborgarar og fl gert við stjórnvöld sem "rænir" fólki umsömdum bótum. Hefur þessi Ómar nokkur ráð við því ?? Kært kvödd
mbl.is Ekki láta ræna þig yfir jólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"nú yfir allan þjófabálk"

Þetta tekur nú yfir allan þjófabálk. Þvílík ísköld gusa framan í eldri borgara og aðra slíka hópa. Sérstaklega "smekkleg" jólagjöf til þeirra 

 

Á þessu sést að þetta lið kann ekki að skammast sín. Á meðan lífeyrir eldri borgara er skertur vegna peningavandræða og samningar sviknir á þeim (virðist með hjásetu verkalýðsforkólfa) hækka þeir launin sín.

 

Mér er andsk..... sama hvort þetta kemur frá einhverju "kjararáði" það er sama rassg.... undir öllu þessu liði. Eins og ég hef alltaf sagt nægir peningar til "gæluverkefna" Kært kvödd


mbl.is Launalækkun dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ratast kjöftugum"

Já oft ratast kjöftugum satt á munn.Þetta er hárrétt hjá Össuri Þau eru orðin nokkur "bílslysin" hjá þeirri "tæru". Slóð hennar eins og fjöldaárekstur á "highway" Kært kvödd

mbl.is Kvótafrumvarpið eins og bílslys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"og færðu þeim gjafir"

.,En er þeir sáu stjörnuna,glöddust þeir harla mjög. Og þeir gengu inn í húsið og sáu barnið ásamt Maríu móður.þess, og féllu fram og veittu því lotningu. Og þeir opnuðu fjárhirzlur sínar og færðu þeim gjafir".(Matt. 2, 10—11.) Þetta voru "vitringar úr austurátt". Einusinni trúðu fátækir almúgamenn á það það góða kæmi að "austan". En nú held ég að fátækur almúgamaður á Íslandi, allavega trúi því ekki lengur.  Þeir fá það kaldar kveðjur frá þeim stjórnmálaflokkum sem fyrrgreindir menn aðhylltust.  Þeir flokkar starfa nú aðallega fyrir háttlaunaða menntamenn. Og eftir sitja fátækir fv bændur verkamenn og sjómenn og konur / ekkjur,þeirra  sem verða að lifa á þeim "lúsalaunum" sem hin "silfurtæra vinstri stjórn" af sinni alkunnu rausn skikkar þeim   Nei, hafi jólanna friðarins og velþóknunarboðunar Guðs, nokkurn tíma verið þörf, þá er það nú. Og hafi nokkurn tíma verið tilefni til að heilsa jólum með upphafi gamla íslenzka jólasálmsins: "Velkomin vertu,vetrarperlan fríð", þá er það nú. Og við skulum bara vona að samviska þeirra manna sem komu þessu fólki á vonarvöl íþyngi þeim ekki um of um jólin  Kært kvödd


mbl.is Minnir á boðskap jólanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband