Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

" Á hvað skildi þetta vita ??"

Á hvað skildi þetta vita ?? Maður spyr sjálfan sig hvenær hafa þessar þjóðir setið á friðarstóli. Þ.e.a.s gangvart hvor annari. Skildi þetta eitthvað breitast nú ??? Gæti þessi elding komið einhverju af stað ?? Svari nú hver fyrir sig. Bara svona til heimabrúgs. Kært kvödd
mbl.is Flugvél Hollandes varð fyrir eldingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Loks sýndu þau sitt rétta andlit."

Loks sýndu þau nsitt rétta andlit. Þetta fólk sem plataði hinn almenna borgara til að kjósa sig. Þó þau hafi lofað að berjast fyrir "skjaldborg" um heimilin.

 

 

Nú ætla þau að halda lífi í þeirri stjórn sem hvað mest hefur hert sultarólina hjá ílla stöddum þegnum þessa lands. Og það verður sama hvaða skrautfjöðrum þau ætla að prýða sig með, við næstu kosningar.Ég er hræddur um megnið af því fólki sem hefði kannske kosið þá flokka sem þau ætla í samstarf við hættir við það nú.

 

Það vll ekki svona auðséð "vændi". Þetta fólk svífst einskins ti að vera  inn á þessari "fíflafabrikku" Lætur einskis freistað til að lafa þar inni eins lengi og stætt er. En ekki að reyna að fá fólk þar inn sem vill gera eitthvað fyrir þessa hundeltu hópa lítilmangnans í þessu þjóðfélagi. Kært kvödd


mbl.is Munu verja ríkisstjórnina vantrausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta verður enn eitt dæmið "

Þetta verður enn eitt dæmið til að henda peningum út um gluggan. Hvað skildi þurfa að sneiða af bótum þeirra sem minna mega sín til að koma þessu í gang.

 

Og ef þetta andsk..... gullfiskaminni íslendinga skildi nú enn og aftur virka ættu þessir stjórnarflokkar að þurkast út í næstu kosningum. En XB og XD taka við Og sú stjórn sem þeir stofna lætur það verða sitt fyrsta verk að afnema þessi að þeirra mati vitlausu lög

Það er á hreinu. Það verður ekki sami grautur í sömu ská heldur vondur grautur í ennþá verri skál. Það verður verið að stofna smáflokka fram að kosningum svo það endar með að á þau dreyfast fylgi VG og Samfó. Þannig að kannske einn eða tveir ná inn gagnlausum stjórnarandstæðingum Það er dimmt og dapurt fram undan í íslenskum stjórnmálum nú  Kæret kvödd


mbl.is Umfangsmestu breytingar frá upphafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Dauðinn í Dumshafi"

Ég er aðeins byrjaður á bók Magnúsar Þórs "Dauðinn í Dumshafi". Maður þarf ekki að lesa lengi til að átta sig á hvílikt meistaraverk þessi bók er. Mér finnst það þrekvirki hjá honum að safna öllum þessum heimildum í eina bók.

 

Mér fannst bókin svolítið "fráhrindandi" í fyrstu vegna stærðar eða réttara sagt þunga. En nú er bókin komin út í handhægri kilju. Það er einfaldlega þannig að allir sem hafa áhuga á sögunni og þá sérstaklega  seinni heimstyrjöldinni ættu að lesa þessa bók.

 

Mér finnst satt að segja að Magnús, þarna vera að komast upp að hlið Þórs Whitehead, án þess þó að vera gera lítið úr honum á neinn hátt, í skrifum um atburði þessa hildarleiks. Og vonandi heldur Magnús áfram á þessari braut. Þar er af nægu að taka. T.d. siglingar íslendinga á þessum tíma. Kært kvödd


mbl.is „Skipsflökin eru okkar Titanic“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Að þetta lið "

Að þetta lið skuli nú ekki skammast sín og hundskast heim öll með tölu. Mestöll þjóðin er komin í andsvör við það. Kært kvödd
mbl.is Mikið um andsvör við ræðum þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég hafði smá samúð"

Ég hafði smá samúð með Geir Harde í þessu Landsdómsmáli. En sú samúð hvarf sem dögg fyrir sólu þegar hann sagði eitthvað á þessa leið eftir dómsfellinguna:

 

 

" Ég lýsti því yfir þegar málið var dómtekið og á fyrri stigum þess að ég bæri fyllsta traust til landsdóms. Nú er ljóst að meirihluti hans reis ekki undir því trausti heldur hafa pólitísk sjónarmið laumað sér inn í réttinn og meirihluti dómara ákveðið að láta þau ráða för frekar heldur en hreint lögfræðileg mat"

 

 

Þetta finnst mér einhver ömurlegasta afsökun hjá nokkrum manni yfir dómsúrskurði. En samt finnst mér þetta sanna samband ákveðins stjórnmálaflokks yfir dómsmálum þessa lands. Geir var viss í sinni sök um sýknun, taldi sig þekkja innviði dómkerfisins eftir margra ára stjórn fg stjórnmálaflokks á því 

 

 

En svo bregðast krosstré sem önnur. Vistrimenn hafa stundum kvartað með nákvæmlega sömu rökum undan dómurum hérlendis.Höfðu þeir þá kannske rétt fyrir sér eins og stuðningsmenn Geirs vilja meina að hann hafi nú?? Það er langt síðan að ég missti álit á dómstólum hér. Og hef sagt  svipað og Geir segir nú um að pólitísk sjónarmið hafi laumað sér inn í réttarfarið  Kært kvödd


mbl.is Ósáttur við niðurstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vonandi bætir þessi "

Vonandi bætir þessi kosning á konu til Biskups ásýnd almennings til Þjóðkirkjunnar. Og ég óska henni velfarnaðar í störfum sínum.

En það vakti athygli mína þegar ég sá hana í sjónvarpinu í kvöld hve mér fannst hún vera lík Vigdísi fv forseta í andliti. Háralitur að vísu annar. Kært kvödd


mbl.is „Stór áfangi fyrir kirkjuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú er bara að vona"

Nú er bara að vona að þessi algerlega ónothæfa landsstjórn fari að sjá mikilvægi LHGÍ. Hætti að ausa peningum, sem oft virðist vera nóg af í allslags "gæluverkefni" og fari að styða við bakið á LHGÍ. Ekki veitir henni af.

 

 

Að rugluverkefni einhverra menningarvita skuli t.d vera mikilvægari en björgun mannslífa af sjó og landi er með hreinum endemum. Nú er bara vona að þessu glæsilega skipi verði haldið í heimahögum. Kært kvödd


mbl.is Þór leggur af stað heim í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Menn sem leyfa sér "

Menn sem leyfa sér að gera svonalagað eiga að fá þunga refsingu náist þeir. Það hefur stundum sagt viti tveitr þá vita allir. Er siðferði íslendinga virkilega á svona lágu plani. Að vera að gabba svona nauðsynlega aðila er alveg með endemum..

 

 

Þó lögreglumenn okkar séu seigir í að koma upp um lögbrjóta hafa þeir sennilega Því miður ekki mannskap til að upplýsa svonalagað.Það eru til öfl í landinu sem vilja alla löggæslu burt. Fólk sem enga grein gerir sér fyrir dýrmæti þess að hafa góða löggæslu. Fólk sem finnst svonalagað í lagi. Kært kvödd


mbl.is Væntanlega skotið af landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er ekki nema von"

Það er ekki nema von að "Hreyfingin" vilji endilega ræða Tibet. Liðið við völlinn hefur ekkert þarfara að gera. Það er kristaltært. Vissulega komin tími á ný dekk undir tryllitækið sem einusinni var skrifað með stórum staf svokallað alþingi. Svo hlutirnir fari að rúlla fyrir fólkið í landinu. Kært kvödd
mbl.is Skuldamál heimila í biðstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband