Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"Gagnrýnir ráðherra fyrir drátt"

Það er furðulegt hvað blaðamenn setja sem fyrirsagnir Þessi ein og sér gæti valdi misskilningi. Jæja þetta heyrir víst undir "perraskap" að hugsa  svona. En verið kært kvödd
mbl.is Gagnrýnir ráðherra fyrir drátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Litlu verður Vöggur feginn."

"Litlu verður Vöggur feginn."  Segir í Hrólfssögu Kraka. Þetta gæti átt við Steingrím J núna. Hann hrósar sér af miklum sigri með að fá 27% af greiddum atkvæðum. Af 722 hræðum á kjörskrá sáu 261 eða 36% sér fært að kjósa yfirhöfuð. Af þessum 261 kusu 199 Steingrím eða um 27%.

 

 

Einhverntíma hefði sá góði maður gert grín að svona tölum ef einhver annar flokksleiðtogi fengið svona útreið. Vöggur hafði þegið gullhring af Hrólfi þegar sá síðarnefndi sagí fg orð. En nú virðist þessi "Vöggur" nútímans ekki hreppa gullstólin sem hann í dag situr í.

 

 

Enn og aftur erum við vitni hve mikill hégómi þessi stjórnmál eru. Hvernig þeir ávallt snúa málunum á haus sér í vil. Ekki veit ég hvað margir eru á kjörskrá í NA-kjördæmi. En 199  hlýtur að vera 0 komma eitthvað af þeim Og ætti ráðherran að hafa miklar áhyggur af þessu. Kært kvödd


mbl.is Steingrímur: Sterkur listi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jæja þá eru þau hjúin"

Jæja þá eru þau hjúin sem stjórna þessu landi búin að opinbera sig gagnvart þeim sem undir hafa orðið í þesssu ímyndaða velferðarþjóðfélagi. Hugsið ykkur stóryrðin og upphróparnar sem kæmi frá þessu hyski væru aðrir við völd. Hvorugt þeirra myndi halda vindi né vatni yfir ástandinu. Og fv Samfylkingarmaðurinn Gylfi yrði sleginn til riddara.Og stærstu orðin notuð

 

 

Og hvorugt virðist fylgast með hinum almenna borgara, Hvað segir hann um ástandið? Það kemur þeim hjúum ekkert við. Hlustið t.d. á "Reykjavík síðdegis" sennilegas 99% af fólki sem hringir inn í svokölluðu "lof eða last" á Bylgunni lastar þetta tvíeyki. Ég hlustaði áðan og þá kom ein sem mærði þau. Hún eiginlega froðufellt af vandlætingu yfir fg ASÍ manni og áttu stjórnendur fullt í fangi að stoppa hana. Og aðal mæringin var um hve hjúin hefðu varið hag eldri borgara vel. Ja svei.

 

 

En það er bara verst að við vitum hvað við höfum en alls ekki hvað við fáum. Aldrei fyrr hefur það verið sannað eins rækilega að það er sama rass.... undir öllu þesu liði sama hvers flokks það er. Bara komast í valdaaðstöðu og svo til fjan.... með öll loforð. Og hlusta á Steingrim J forustumann vinstra fólks á Íslandi hrósa IMF ( International Monetary Fund))  tekur út yfir allan þjófabálk. Þvílíkur sósalisti Kært kvödd


mbl.is Jólamaturinn allt að 70% dýrari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er nú ekki nema von"

Það er nú ekki nema von að Vinstri grænir vilji ekki hafa mikið umleikis við lög og rétt. Ef menn kíkja í fræði Engels og Karl Max sést að þeir litiu á löggæslumenn sem verkfæri auðvaldsins til að "lemja" á alþýðunni. Og það er von að dyggir fylgendur þeirra í stjórn hér fari eftir fræðunum. Og setji sig upp á móti slíku. Kært kvödd
mbl.is Pólitík að baki takmörkun heimilda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ekki er ég XD"

Ekki er ég XD en ég hef heyrt á mörgu eldra fólki að því mislíki að Hanna Birna skuli ekki "hjóla" í starfandi formann sjallana. Fólki þykir hann þumbaralegur og hann sé afleggari af hinum illræmda "Kolkrabba" og valdamikillar ættar Hann sé ekki líklegur til að sætta ólík sjónarmið.Og hafi enga hæfilega í þá átt.

 

Berið þau saman í ræðustól Hönnu Birni Illuga Gunnarsson og hann. Það vantar allan léttleika hjá honum Og svipurinn á honum er eins og honum hundleiðist í jobbinu. Og ætla að stjórna (í bili) stærsta stjórnmálaflokk landsins á forni frægð ættmenna sinna gengur bara ekki upp.

 

Og maður heyrir að andstæðingar XD voni nú að H.B skifti ekki um skoðun Því annars yrði fall þessarar hundfúlu vinstri baráttustjórnar í að skerða kjör þeirra sem minna mega sín ennþá hærraKært kvödd


mbl.is Hanna Birna ekki í formanninn að óbreyttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta er svona kosning "

Þetta er svona kosning sem allir vinna. Alveg sama hvað þeir tapa miklu. Kannske "aumimgagæska"hafi spilað þarna inn í Kært kvödd
mbl.is Traustsyfirlýsing á þingflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þeim ætla að ganga ílla "

Þeim ætla að ganga ílla að losa sig við "hraunverjana" Samfylkingunni. Þó aðeins þokist í þá átt. Kært kvödd
mbl.is 68 atkvæði skildu á milli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mikið mega þessir menn"

Mikið mega þessir menn skammast sín. En það er bara það versta að þeir kunna það ekki.Kært kvödd
mbl.is Segir Sigurð hafa átt frumkvæði að gjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Svo lengi lærir"

Svo lengi lærir sem lifir Maður er rúmlega sjötugur og enn er maður að læra ný orð T.d.orðið "aumimgagæska" heitir það þegar stjórnvöld geta ekki séð þegnum sínum fyrir neinni vinnu Og þurfa að sjá þeim fyrir grunnþörfum. Sem að margar mati er t.d vegna sérvisku sumra ráðherra sem vilja láta kenna sig við grænt.Og ættu kannske frekar að vera uppi á heiðum að bíta slikt en vera í ráðherrastólum Og svo er það andstæðan "örlætisgerningur" Það er þegar góðir menn gefa vinum og vandamönnum bita af kökunni sem þeir geyma til að seðja gamlingana. Einusinni orti maður að nafni Vilhjálmur Björgvin Guðmundsson kenndur við Skáholt (sem ég hef heyrt kallað skáld götunnar) þetta ljóð

Ég barði að dyrum og bað hann um að svara
bað hann um að skýra þetta mál
hvaðan kem ég og hvert er ég að fara,
hvílíkt verk er ætlað minni sál

Og feitur klerkur fljótur var til svara,
fljótur til að skýra þetta mál
Þú komst frá guði ,en hvert þú ert að fara
Kemur eftir lit á þinni sál

Ég fann´ann átti eflaust mikinn forða
af andans gulli í nú hjarta sér
Og þetta sagð´ann meðal annara orða
um æðri dóm,sem flestum búinn er:

"Ef boðorðum,sem biblían þér vísar,
þú berð þig eftir slíkt og skrifað er
þá færðu sæti í sölum paradísar
og sjálfan guð við hliðina á þér

En sértu vondur,viljirðu ekki trúa
á vísan guð og kirkju þessa lands
þá færð þú ekki í fögrum heimi að búa
þá ferður vinur,beint til andskotans"

Kært kvödd


mbl.is Gefinn kostur á að endurgreiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er von "

Það er von að samfó fólkið hafi hampað kjörsókninni !!!!. Kært kvödd
mbl.is Einn kaus tvisvar í prófkjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband