Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"Ég hélt nú að þeir væru 63 "

Ég hélt nú að þeir væru 63 slíkir. Ekki vanta allavega hávaðan þar frá þeim þó lítið fari fyrir afköstunum Það ætti að "leka" þeim öllum á Eurovision Og gera þá alla að hælisleitendum í Danmörk

mbl.is Trommuleikara vantar á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Fiskurinn hefur fögur hljóð"

Fiskurinn hefur fögur hljóð / finnst hann oft á heiðum / Ærnar renna eina slóð / eftir sjónum breiðum Þetta mun Bjarni Jónsson kallaður Borgfirðingaskáld hafa kveðið. Þetta er svona álíka vitlaust og að tala um að "urða" síld á hafi úti

 

Munurinn er bara sá að það sem Bjarni orti voru kallaðar öfumæla vísur en það seinna úr smiðju vel ??? menntaðra blaðamanna.Þótt forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðar hafi"misst" þetta út úr sér hefði sæmilega greindur blaðamaður átt að laga þetta í greininni. Það er með hreinum ólíkindum hvernig málfari sumra blaðamanna er háttað Og annað er með hreinum ólíkindum. Var ekki stofnaður hópur "sérfræðinga" í fyrra til að koma í veg fyrið samskonar slys og varð í fyrra?.

 

Datt mönnunum ekkert í hug sem gæti komið fyrir  samskonar slys  Annað en á elleftu stundu og  sennilega með miklum kostnaði að senda einhver óhljóð úr háfyrningum niður í dýpið. Væri kannske ráð að drifa í að  fá þennan fræga "Tilikum" og sleppa honum í Kolgrafarfjörðinn. Það væri svona álíka vitlaust. En hann er kannske meira fyrir mannakjöt en síld Kært kvödd


mbl.is Vilja urða síldina á hafi úti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ja nú reynir illilega á heiðarleika"

Ja nú reynir illilega á heiðarleika frambjóðenda stjórnarflokkan a. Sem náðu völdum í síðustu kosningum. Ef t.d loforð um breitingu á greiðslum til lífeyrisþega og öryrkja verða svikin sem og auknu fé til aðalsjúkrahúss landsins, þá getur þetta fólk sem situr á hinu svokallaða alþingi algerlega gleymt einhverju sem kallað er virðing fyrir já því sem réttilega ætti að vera kallað:"Hið háa Alþingi"

 

 

Þá heldur þetta bara áfram að vera einhver náhirð lygara sem engin tekur mark á Sem svo sannarlega stór hluti undanfara þeirra voru. Eldriborgarar og öryrkja og þeir sem minna mega sín eru að verða fullvissir um að stærsti hlutinn af kosningaloforðunum verði svikinn. Og andsk..... mætti þá lækka rostan  í þeim þingmönnum sem hæst hafa látið um að hinar og þessar upphæðir sem renna ætti til fg sjúkrahúss. Einhvern vegin hef ég ekki trú á að maður sem stjórnað hefur því (að margra mati af snilld) í geng um geigvænlegan niðurskurð fari að yfirgefa hið sökkvandi skip ef björgunin væri í sjónmámi. Sé það rétt að engin björgun sé í sjónmáli þá má segja "svei sé þessum andsk..... lygurum"  Verið samt öll kært kvödd


mbl.is Óttast enn meiri niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú er mælirinn eiginlega"

Nú er mælirinn eiginlega að verða fullur. Ekki það að maður byggist við miklu frá hægri vængnum fyrst sá vinstri brást eins illilega og raun varð á.Enn og aftur og aftur og enn á að ráðast á garðinn þar sem hann lægstur. Nú skorar ráðherra fjármála.(við skulum ekki nefna af hvaða ætt hann er. Því sumt sem maður skrifar er ritskoðað) .á hina staurblönku alþýðu þessa lands að biðja aðeins um vatn í grautinn og sleppa saltinu.

 

Hvernig á maður með greind sem er svona um meðallag kannske rétt undir, eins og ég að skilja hlutina nú til dags Á sama tíma og fg ráðherra biður okkur hérna niður við grasið að hemja okkur í heimtingum þá kvartar einn af þeim sem meira mega sín yfir því að lækka eigi skatta á honum.Meðan fólk hreinlega láti lífið vegna fjárskorts í aðal sjúkrahúss landsins. Forstjóri einnar stærstu útgerðarsamsteypu landsins hafði áhyggur af svefni barna sinna vegna ofurgjalds sem leggja átti á útgerðina. Nú sofa börnin sennilega yfir sig á hverjum morgni, því gjaldið var lækkað svo samsteypan borgaði einhverja milljarða í arð.

 

 

Ég skil vel að menn "fjárfesti" í fyrirtæki til að ávaxsta peninga sína. Og arður sé greiddur þegar vel gengur. En að ekki skuli mega skerða þann arð eitthvað aðeins meira þegar að  fjármagna þarf mannslíf, þ.e.a.s. þegar fjármagn vantar nauðsynlega til að halda opnum lífsnauðsynlegum stofnunum í heilbrigðisgeiranum það tekur yfir allan þjófabálk. Ég var sjómaður í 53 ár í flest þessara ára borgaði ég mína skatta og skyldur.Undanskylin 15 ár sem ég (vegna lítils framboðs af vinnu í þeim geira sem ég starfaði í) starfaði erlendis. Fjárfesti í þjóðfélaginu gæti maður jafnvel sagt. Það eina sem þessir svokallaðir ráherrar virtust þora að gera í hinu mikla fjármála hruni var að marg skera niður þann arð sem mér finnst ég eiga inni eftir mínar slíkar fjárfestingar.

 

 

Nokkrum valinkunnum mönnum leyfðist að setja fjármálakerfið það kyrfilega á hausinn að marga áratugi tekur að rétta það við. Hvað var gert við þá. Ekkert enn. Og verðu öruglega ekkert gert. Þessir valinkunnu menn sem sitja nú glottandi út í löndum með alla vasa fulla fjár hafa færustu lögfræðinga til að velta málum þeirra fram og til baka í kerfinu þar til allt verður fyrnt. Og að svo verði að lækka skatta á þeim  þeir sem jafnvel hafa margar milljónir á mánuði (stundum á viku) fyrir setu í slitastjórnum er með hreinum ólíkindum. Nei það skulu bara vera við "sauðsvartur"almúginn sem skal borga brúsann. Og hinn ættstóri ónefndi ráðherra (sem hefur nóg af salti) biður þann svarta að vera nú ekki að heimta meira salt. Svo að allt fari nú ekki fjand... til aftur og enn.

 

 

Vilhjálmur frá Skáholti kvað einu sinni

Stæli ég glóandi gulli
úr greipum hvers einasta manns
þá væri ég örn minnar ættar
og orka míns föðurlands.

Þannig er Ísland í dag.Það var þannig í gær og verður þannig á morgun og hinn og hinn Maður gerir síg að fífli á fjögurra ára fresti og stundum er styttra á milli þessara fíflaláta sem kallast kosningar. Maður fíflast til að hlusta á fagurgalan og trúir og kýs. Niðiurstaða ávallt sú sama.Ef almúinn á fyrir saltinu í grautinn þá fer eittvað sem heitir verðbólga af stað.Og skerða þarf kjör þeirra Ég taldi mig nú eins og ég hef talið mig hafa gert síðan 1959 hafa kosið rétt.En ég sé nú að það var tóm vitleysa. Eins og í flest skiftin áður þó með örfáum undantekningum. Þó kannske munnurinn á fleiri verkalýðsleiðtogum en þessum eina þarna uppi á Skaga opnist núna vegna hægri slagsíðu trúi ég ekki á þá. Er orði uppgefinn á nöldrinu og kveð ykkur kært

     
mbl.is Hafa verið að glöggva sig á stöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég hef haldið kjafti"

Þessi færsla er smá tjékk á tjáningafrelsinu hér á þessu landi Ég hef haldið kjafti helv... töluvert lengi En nú finnst mér að mál að linni hvað það varðar. Maður var orðin svo orðlaus yfir hvernig Jóhanna og Steingrímur,"grímulaust" dróu eldriborgara öryrkja og þá sem minna mega sín niður í svaðið. Svo komu kosningar og sjá maður glaptist á loforðum um betri tíð og blóm í haga 1 ágúst var sagður tímamótadagur hvað vænkandi hag varðaði hjá f.g flokkum fólks.

 

Það var talað um að lífeyrissjóður myndi ekki skerða grunnlífeyririnn. Ekki veit ég hvað bilaði en ég fékk nákvæmlega sömu upphæð útborgaða frá TR og mánuðinn áður. Maður er nú orðin svo gamall sem á grönum má sjá og búinn að lifa lífinu stundum út á ystu brún á hinnu breiðu braut en síðustu rúm þrjátíu árin haldið mér á þeim þrengri. En maður er orðinn hugsi yfir hvernig komið er fyrir þeirri þjóð og því landi sem maður á árum árum var svo stoltur af að tilheyra. Og maður spyr sig nokkurra spurninga:

 

Getur þjóð sem ekki getur haldið uppi nægilegri lögæslu fyrir þegna sína talið sig skjálfstæða ? Getur þjóð sem ekki getur haldið uppi nægilegri heilsugæslu fyrir þegna sína talið sig sjálfstæða ? Getur þjóð sem misst hefur stærsta hluta banka kerfisins í hendur erlendra hrægamma ( sem sennilega eru betri en þeir íslensku voru) talið sig sjálfstæða ? Getur þjóð sem ekki getur hlúð að þeim sem minna mega sín vegna fötlunnar og öldrunar talið sig sjálfstæða ?. Væri ekki einstaklingur sem hegðaði sér eins og stjórnvöld þessa lands undanfarin ár komin fyrir löngu inn við sundin blá. Með fullri virðingu fyrir þeim aðilum sem þar verða að dvelja vegna veikinda sinna.

 

 

Stjórnvöld sem heimiluðu eftirgjöf á milljarðaskuldum stóreigna manna meðan margnefndir "minna mega sín flokkar" voru rúðir inn að beini. Þau ætla nú að hækka afturvirkt (sem fjármálaráðherra telur sjálfsagt) um 20-30 % laun hálaunaðra embættismann Mig minnir að sú stjórn sem nú starfar verði 70 daga á morgun Hvað liggur eftir hana: EKKERT Eitt allsherjar 0, síró. Hinn mikli vonar dagur 1 ágúst brást Og ég held að konsningafroðan sé að þynnast út Og þegar sá helblái Ingvi Hrafn á INN er nú farinn að bölva henni fyrir sinnuleysi þá er nú skörin farin að færast upp á bekkin Verið ávallt kært kvödd 

PS Það var tekið afrit af þessari færslu og hún birt annarstaða verði henni hent út hér eins og þeirri síðustu Sömu kveðjur

 


"Það er nú ekki annað"

Það er nú ekki annað hægt en hlæja að svona kosningaglamri. Samfó er búinn að níða skóinn af þeim sem minna mega sín undanfarið þ.á.m. eldri borgurum.

En nú akkúrat nú þykjast þeir vera búnir að finna þá og nú  geta sett þá á fætur fólks aftur Hver trúir virkilega svona helv.... kjaftæði. Ég ætla bara að vona að fólk láti ekki glepast af þessari kosningabrellu Svona fimm mínútum fyrir kosningar. Kært kvödd


mbl.is Vilja bæta lífeyrisþegum skerðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta er nú að verða "

Þetta er nú að verða meiri skrípaleikurinn hjá XD Svo standa þögulir "herkænskumenn" glottandi bakatil. Og láta sem ekkert sé Og þykjast ekkert koma nálægt vígstöðvunum.

 

Oft fyrir kosningar koma mér í hug þau orð sem J. Steinbeck lætur persónuna Docs segja í skáldsögunni Ægisgötu. ("Cannery Row" sem Karl Ísfeld þýddi og las sem útvarpssögum á áttuna áratugnum) Docs er látinn segja á einum stað

 

 

"Það sem við dáumst að í fari manna,góðvild,örlæti,hreinskilni,heiðarleiki og samúð eru fylkifiskar mislukkunar í þjóðskipulagi okkar.Og þeir eiginleikar sem við.fyrirlítum,harðýðgi,græðgi,ágirn,níska,sjálfelska afla mönnum veraldargengis.Og þótt menn dáist að kostum hinna fyrrnefndu eiginleika,eru þeir sólgnir í afrakstur hinna  síðarnefndu"

Svo mörg voru þau orð Docs. Mér persónulega finnst mikill sannleikur felast í þessum orðum  Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Styðja Bjarna áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Margir eru ornir leiðir"

Margir eru ornir leiðir að þessari þvælu sem eru nefnd sjórnmál. Þetta er að margra mati farið að eyðileggja sjónvarpsdagsskrána sem er nú ekki beysin fyrir.Framsókn hrósar yfir sinni stöðu sinni í skoðanakönnunum undan farið

 

 

En Sjallarnir eru daprir.Og þeir segja lítið sé að marka þessar kannanir. En sögðu ekki margir þetta sama þegar skoðanakannanir spáðu furðufuglinum Jóni Gnarr miklu fylgi í borgarstjórn Rvík ??. Og ég man að margir XD menn sögðu þetta ekki marktæka, vitleysu. Þ.e.a.s spáin.

 

Kannske var það "ekki endirinn. Ekki einusinni byrjunin á endinum. En þetta var kannske endirinn á byrjunni " fyrir þann ágæta flokk sem fjölmargir í öllum stéttum fylgdi að málum Svo maður hugsi til orða frægs erlends flokksleiðtoga af sama væng.

 

Allt lítur út fyrir að maður sjái annan flokk en XD sem stærsta flokk á alþingi á síðustu árum ævinnar. Maður ólst upp og hefur lifað alla tíð með hann sem slíkan En sagt er að enginn viti sína ævi fyrr en öll er Verið kært kvödd


mbl.is Framsókn ánægð - sjálfstæðismenn brýna vopnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hver sá flokkur"

Hver sá flokkur sem færir hina íslensku þjóð  saman, laðar til samstilltra átaka fyrir góðum og nytsömum málum, skapar samúð og góðvild milli stétta okkar fámenna þjóðfélags, hver sá flokkur  sem þessu fær áorkað er góður flokkur Og þannig flokk vil ég kjósa

 

Það er sagt að í Etýðu fyrir píanó,opus 10 nr 5 eftir Frederic Chopin,sé aðeins einn tónn á hægri hendi,sem er spilaður á hvítu nótunum.Allt annað er spilað á svörtu nótunum.

 

Af hverju er ég að segja þetta. Jú mér dettur þetta í hug er ég hugsa um hvernig stjórnendur þessa lands hafa spilað lög sín undanfarið. Hvað varðar þá sem minna mega sín og standa höllum fæti í lífinu Allt spilað á svörtu nótunum.Og nú hef ég í huga skilgreiningu almennings á hvítu og svörtu

 

Gerir fólk sér grein fyrir  smáninni sem felst í fyrir fólk sem þarf að fara til hjálpasamtaka og standa í biðröðum til fá þar ókeypis mat og kannske einhverjar flíkur.Ekki það að ég þarfnist þess en þann flokk sem kæmi því til leiðar að þetta hverfi, þann flokk  myndi ég vilja kjósa

Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Dugar fyrir skuldaleiðréttingu og meiru til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hafa bæði hálfan prest og fullan"

Einhverstaðar skeði þetta hvað varðar hálfan eða fullan prest

"Ungi presturinn var svo stressaður í fyrstu messu sinni að han stamaði og hikstaði á hverju orði í sinni fyrstu ræðu.Áður en hann messaði í annað skiftið hafði hann samband við prófastinn og bað um ráð.Prófastur ráðlagði honum eftirfarandi:Settu nokkra dropa af vodka í vatn og derkktu það.Og þú munt strax finna hvernig þú slappar af.Prestur gerði eins og prófastur ráðlagði.Daginn eftir fékk prestur meðfylgandi bréf:

“Kæri vinur!

Næsta skifti skalt þú setja nokkra dropa af vodka í vatnsglas enn ekki nokkra dropa af vatni í vodkaglas.Svo langar mig að vekja athygli þína á nokkrum atriðum svo að það gerist ekki aftur.Litla skálin við hliðina á altarinu er ekki klósett

Reyndu að komast hjá að beyja þig niður að styttuni af Maríu Mey og ekki”káfa”á brjóstunum á styttunni

Boðorðin voru 10 ekki 12 og enginn af þeim var dvergur

Við tölum ekki um Jesús með orðunum”J.C.and the boys”

Við tölum ekki um Júdas sem”fjandans blaðurskjóða”

Bin Laden hefur ekkert með dauða Jesús að gera

Syndarar hafna í helvíti ekki á fjóshaugnum

Faðir vor skal lesast í himnum ekki út á götu

Mjög áríðandi:Veran sem sat í horninu við altarið og þú kallaðir”fjandans hommatitt”og djöfu..”klæðskifting” það var ég

Með von á að þú takir þetta til greina vi komandi guðþjónustur

Með kærum kveðjum Prófasturinn"

Þannig lauk þessu bréfi


mbl.is Fjölbreytni að hafa bæði hálfan prest og fullan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 536779

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband