"ske í kring um þá"

Íslenskt stjórnkerfi viðist vera með endemum. Ráherrar, (allavega þykast þeir ekki ) virðast stundum ekki vita baun um hvað er að ske í kring um þá, Hvort þetta er satt veit ég ekki.

 

Eða hvort ráðherrar eru þarna að klóra yfir skítinn og kenna undirmönnum um vitleysuna, En stundum gengur þessi "óvitaskapur" ráðherra  algerlega fram af manni Ég held að við eigum heimsmet í óvitaskap hjá ráðherrum Kært kvödd


mbl.is Talið nóg að kynna minnisblaðið ráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"síðasta söludag"

Það er staðreynd fólk veigar sér við að kaupa matvöru þega hún fer að nálgast síðasta söludag. Þegar ég bjó í Svíþjóð voru í sumum búðum allavega sérstakir básar fyrir slíkan mat sem þá var jafnvel undir hálfirði.

 

Viðvörunar merki voru yfir básunum þar sem fólki var gert þetta ljóst, Oftast var mikil ásókn í þetta af innflytendum eldri borgurum og fl. Ég keypti oft þannig mat og fann ekkert athugavert við matinn. Af hverju er svona básar ekki leyfðir.

Svo þeir sem það vilja geti verslað þennan mat. Það er blóðugt að það skuli vera hent mat fyrir tugi ef ekki hundruði milljóna meðan stór hluti þjóðarinnar hreinlega sveltur. Kært kvödd


mbl.is Rannsaka hversu miklu magni matvæla er hent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" ílla við einhverja vini sína. "

Þetta setur en fleiri stoðir undir það sem ég skrifaði í gær. Þessir svokölluðu stjórnmálamenn og ráðherrar ráða engu Heldur klíka auðugra menntamanna sem búið er að hreiðra um sig í ráðuneytum og allstaðar. Eins og t.d þarna í tveimur ráðuneytum. Þeir voru ekkert að láta ráðherrana sjá svona skítaplögg sem gátu komið sér ílla við einhverja vini sína. 

 

Það er til gömul saga um ráðuneytisstjóra sem við skulum bara kalla Jón en ráðherra skulum við bara kalla Guðmund Svo skeði það að maður af götunni þurfti að ná tali af ráðherra og hafði komiið nokkrum sinnum án árangurs.

 

Svo kom hann einusinni enn  og spurði um Guðmund sem ekki var við. Þá spurði símastúlkan."villtu ekki bara fá að  tala við Jón sjálfan" Svo miklu réði þessi ráðuneytisstjóri að hennar mati.Kært kvödd


mbl.is Vissi ekki af áliti og krefst útskýringar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"styðja þessa menn."

Það er ekki hægt annað en styðja þessa menn. En því miður held ég að þessum fræga botni í þessari frægu kreppu sé ekki en náð.

 

Þeir þ.e.a.s þeir hjá LSS og aðrir í þessu þjóðfélagi séu ekki búnir að sjá þær kjaraskerðingar sem eiga eftir að koma í dagsljósið. Skerðingar af völdum manna sem eru á fullu út um allan heim að "ávaxta" sín pund. Kært kvödd


mbl.is BHM styður kjarabaráttu LSS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ná vopnum sínum aftur"

Hér er enn eitt dæmið um "útrásarvíking" á fullu. Þeir eru flestir að ná vopnum sínum aftur. Kært kvödd
mbl.is Iceland Express bætir við flugferðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nokkrir smásendlar"

Það er bara það, það verður enginn dreginn til ábyrgðar af höfuðpaurunum.  Nokkrir smásendlar verða skotnir en hinir sleppa.  Enda eru þeir í bullandi svikamyllubraski og græða mikla peninga. Og geta því keypt sér frelsi með dýrum löfræðingum.  Allt svona er líka erfitt í landi þar sem ekki er hægt að fá dómara til að dæma knattleik öðruvísi en hann sé skyldur eða tengdur einhverjum í öðru liðinu. Kært kvödd
mbl.is Von á fleiri ákærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" á sandsílaleysinu"

Vinur minn danskur fiskimaður fullyrti það í mín eyru að markrill væri horfin allavega á hans veiðisvæðum en sandsílið komið aftur, Er þarna ekki komið svarið á sandsílaleysinu við Vestmannaeyjar. Markríll veiðist nú á stöng hér í Eyjum. Kært kvödd
mbl.is Geta nagað sig í handarbökin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"eru hve vel fangageymslur "

Af hverju eru það alltaf mestu fréttirnar af allslags samankomum hve vel fangageymslur eru sitnar?? Ekki veit ég hvað "Hverfissteininn" tekur marga. En er hann ekki líka fyrir Kópavog. Seltjarnarnes Álftanes og Mosfellsbæ?? Kært kvödd
mbl.is Fangageymslur fullar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þorkell vinur minn ánægður."

Til hamingu Eyjamenn. Nú verður Þorkell vinur minn ánægður. Og ég líka. Ég hef áður lýst áliti mínu á þjálfara Eyjamanna Heimi.  Mér finnst heilbrigðin einhvern vegin skína svo af þessum manni. Og ég held að hann hljóti að vera verðug fyrirmynd ungra stráka. Aftur til hamingu Eyjamenn Kært kvödd
mbl.is Eyjamenn unnu 3:2 sigur á Haukum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"biðjast afsökunnar "

Þetta er ekkert í sambandi við þessa fyrirsögnina um rangar vísbendingar. En ég er að velta fyrir mér orðalaginum. Þegar beðist er "velvirðingar" á einhverju þá er ekki verið að biðjast afsökunnar á hlutnim /atvikinu. Eða hvað? Er það ekki léttvægara en að sega "við biðjumst afsökunnar" á þessu eða hinu?  Ég held nefnilega að orðið "afsakið" sé að detta úr málinu. Allavega úr máli hinna lærðu. Kært kvödd
mbl.is Rangar vísbendingar í krossgátu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" þessu rándýri og hægt er."

Það ætti að leyfa eins miklar veiðar af þessu rándýri og hægt er. Markrill er horfin að mestu úr Norðursjónum svo nú veiða danir álíka mikið af sandsíli og áður. Nema að umhverfissinnum detti í hug að taka þennan óvætt upp á armana eins og suma aðra keppinauta okkar íslendinga um fiskinn í sjónum. Kært kvödd
mbl.is Smábátar mega veiða makríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þyrlurnar"

Hvað sagði ég áðann! Enn og aftur. Aftur og enn minna þær á sig, þyrlurnar Kært kvödd
mbl.is Slasaðist í hestaferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"kirkjan af örlæti "

Sér nú sú tæra öfundaraugum yfir því sem kirkjan af örlæti lætur af hendi rakna til þeirra sem minna mega sín. Það eru ljótu andsk..... Trafalarnir sem sitja þessa ríkisstjórn. Þeir virðast ætla sér að standa í vegi fyrir öllu sem kemur sér vel fyrir hinn sauðsvarta almúga þessa lands. Kært kvödd
mbl.is Kirkjunni gert að spara um 9%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þyrlur LHGÍ"

Nú líður vart sá dagur og nú um stundir er það daglega að þyrlur LHGÍ séu ekki kallaðar út. Hvernig væri nú að draga svolítið úr andsk..... prjálinu og halda góðu lífi í þessum þarfasta þjóni nútímans.Kæert kvödd
mbl.is Dráttarvélarslys á Snæfellsnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mætti vera léttari,"

Ég er ósköp venjulegur maður. Mætti vera léttari, vitrari og  fríðari . Sennilega altof venjulegur til að geta opnað kja...... . Það má nefnilega ekki tala eins og manni býr í brjósti nema maður sé búin að dvelja í háskóla minns 4-5 ár(hvort við eitthvað fag er lokið skiftir engu máli)

 

Eða maður sé "hinseginn"  Allt annað er væl úr ómenntuðum skríl þessa lands. Þöggunin á sum mál er með endemum. Allir sem með venjulegri íslenskri alþýðuskynsemi vita að þessu landi er stjórnað af klíku auð og menntamönnum. Eða einfaldara sagt auðugum menntamönnum, Hinir svokölluðu stjórnmálamenn ráða varla hvenær eða hvar þeir geta pissað.

 

Það mætti þessvegna ryðja húsið við völlinn. Við sem munum dálítið fram yfir 50 árin höfum aldrei upplifað slíka stjórmálamenn sem nú tíðkast Gamall stjórnmálamaður sagði eitt sinn. " Lélegir stjórnmálamenn eru ekki til. Það eru lélegir ráðgjafar sem þeir hafa sem málið snýst um.

 

Það er einmitt mergurinn málsins hinir menntuðu ráðgjafar ráða öllu. Og eftir sem nám þeirra hefur lengst því meiri þekkingu hafa þeir til að skara eld að sinni köku. Og svo er  það  þessi andsk..... menntahroki sem tröllríður öllu nú um stundir

 

Svo að hinsegin fólkinu. Ég tak skýrt fram að ég hef ekkert á móti homumm eða lesbíum. Og hef átt og á vini úr báðum hópum. En það er þetta "hinsegin" fólk sem ég set spurningamerki við hverir eru það ?  Er það fólk sem haldið er barnagirnd eða girnd til dýra. Drag drotningar og kóngar vilja telja sín "show" við leiklist og ég hef ekkkert að athuga við það,

 

En ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir hvað orðið hinsegin þýðir. Mér fannnst satt að segja nóg um "dýrðina" í gær. Mér var hugsað til níræðu konunnar á dvalarheimili í Reykjavík sem grét af því að hún átti ekki fyrir brjóstsykurmola handa barnabarna barni sínu. Og ég hnaut líka um orðs eins úr "Samtökum 78" er hann fagnaði því hve öflugt ungliða starfið væri. Læt þetta nægja af væli ómenntaðs skrílmennis


mbl.is Þúsundir á Hinseginhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sjórnarheimili hinnar tæru

Hvað er að ske bak við tjöldin á sjórnarheimili hinnar tæru. Eru stjórnarfrúrnar og herrarnir flækt í allslags leynisamninga. Er þetta fræga "við samþykkjum  þetta ef þið samþykkið hitt" á fullri ferð þar, Sú tæra lofaði að allt yrði uppá borðinu. En hvaða borði meintu þeir?? Ég bara spyr?? Kært kvödd
mbl.is „Takmarkaður áhugi“ stjórnvalda á Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"að klóra yfir skítinn"

Sennilega frýs áður í Helv... en að íslenskur ráðamaður upplýsir að hann sé mannlegur og geti gert misstök. Vildarvina greiðar hafa alltaf verið til staðar om mun halda áfram að ver til í íslenskri pólitík.

 

En oft fáránlegir og hreinlega fíflalegir tilburðir ráðamanna til að klóra yfir skítinn eru hreinlega með endemum. Menn gera sig að lygurum og fíflum frammi fyrir aðþjóð. Hvenær ætlar þetta fólk að skilja að það er yfirleitt meir en samskonar grautur sem var píndur ofan í mig á barnsaldri á milli eyrnanna á hinum sauðsvarta almenningi.  Getur þetta, þessvegna heimska lið ekki skilið að íslendingar eru betur upplýstir í dag en á 18 og 19 öld  Ímyndið ykkur svo andsk..... hrokan. 

 

 

Þetta lygalaupa - lið vill að því sé sýnd einhver virðing.  Hvernig væri nú að þetta helv.... hrokagikkjasamansafn af fólki færi að bera virðingu fyrir okkur hérna niður á jörðinni og koma fram eins og fólki sæmir að viðurkenna breiskleika sinn.  Sennilega eru sumir ekki hærra settir í lífsflórunni af því að þeir hafa verið mannlegir og viðurkennt sín mistök. Ég held að við eigum heimsmet í ráðamönnum án mistaka. Og það er því miður að mínu mati. Kært kvöd


mbl.is „Ég hef tekið tvær ákvarðanir í málinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þetta gatið"

Hvað skyldi sú "tæra" þurfa mikið að skerða kjörin hjá þeim sauðsvarta, öryrkjum og öldruðum til að stoppa í þetta gatið
mbl.is Galli í hluta glerhjúpsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hausar að fjúka"

Eru fleiri hausar að fjúka. Gerði nokkuð til að einn ónefndur ráðherra fyki. Hans verk virðast vera eitt stórt 0 Allavega það sem snýr að almenningi. Kært kvödd
mbl.is Samfylkingin á þingflokksfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Aldrei hefur nein ríkisstjórn"

Aldrei hafa stjórnmálamenn sýnt sitt rétta andlit eins og undanfarið, Andrei hefur nein ríkisstjórn i lýðveldinu Íslandi kreyst eins mikið út þeim sín minna mega sín. Hugsið ykkur þessi 3 Steingrím J Sigfússon sem hélt hvorki vatni eða vindi er minnst var á "International Monetary Fund"Nú mærir hann þessa stofnun í hástert ,Ásgerður Ingadótir í stjórnarandstöðu með hávært kjaftbrúk úr ræðustól alþingis.    

 

 

Fær svo bitling sem einn af forsetum þingsins sér þá ástæðu til að setja niður við andstæðan þingmann fyrir að taka hreina íslensku un mál sem kom sér illa fyrir VG. Og sjónarspil hennar við mótmælin við alþingishúsið náðist að hluta á sjónvarpsmyndatöku. Og ýmsar sögur sem hafa ekki verið afsannaðar um framgang hennar í því máli ganga. Nú komin í einn"stólinn" þá gengur hún ásamt fríðum flokki Samfó og VG fram i að pína hverja krónu sem umfram eru hungurmörk út úr þeim sem minna mega sín.                

 

Ögmundur Jónason sem ég var nú farin að líta á sem nokkuð heiðarlegan stjórnmálamann, þykir nú sjálfsagt að taka af eldri borgurum þær nokkru krónur sem það gæti þénað af einhverri innistæðu í banka. Hugsið ykkur stóru orðin og borðshöggin frá þessu fólki væri það í stjótnarandstöðu. Þá myndi ekki vanta stóru orðin. En nú standa stólar og bitlingar svo fastir í kjaft.... á þessu liði að aðeins tíst heyrist og þá til að dásama afrekin undanfarið Fussu svei Ef þau fá 1 eða 2 ár enn þá verða þau búin að ná meirihluta þjóðarinnar undir hungurmörkin. Ja svei               

 

 

 

Allt það hyski sem nú stjórnar landinu ætti að skannast sín. Aldrei frá lýðveldisstofnum hefur þessi skrípaleikur í húsinu við völlinn verið eins sýnilegur. Tviskinnungur ,sýndarmennska, útursnúningar og bull. Það eru einkennisorð þessa hús.        

 

 

 

 

Og allur sá rumpulýður sem það er ætti að senda heim. Síðan ætti að kjósa og það ætti að vera sú krafa á frambjóðendur að þeir hafi aldrei komið nálægt pólitík. Fram að því ætti að býtta á liði. Það er stórt hús inn við sundin blá  Það ætti að skifta á fólkinu þar setja það í húsið við völlinn og öfugt. Ég er viss um að meira vit kæmi út frá því fólki. Svo eru þessir fjand.... hrægammar úr vallarhúsini að tala um að það þurfi að halda uppi virðingu alþingis. Ég segi aftur ja svei            

 

 

 

Einn af þessum ekta sem voru í fg húsi áður en allslags óþjóðalýður náði þar fótfesti sagði eitt sinn "Það er ekki til slæmur stórnmálamaður bara slæmir ráðgafar" þannig var það þá en ekki nú  Þess vegna á ekki að hleypa neinum sem komið hefur nálægt pólitík nálæt þessu fg húsi Kært kvödd


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 535994

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband