11.2.2011 | 02:34
"séu ekki hlaðnar "
Það eins gott að þessar byssur séu ekki hlaðnar ef svo ólíklega vildi til að einhverir af þessum andsk.... stórþjófum sem settu landið á hausinn villtust þarna inn.
Og þessi andsk..... ríkistjórn sem hælir sér af að vera fyrsta "tæra vinstristjórn" þessa lands (sem er nú orðið að aðalbrandara þessarar aldar hingað til) má þakka fyrir að eldri borgarar eru ekki blóðheitari en þeir eru því annars væri einhver af þeim gömllu búnir að skj... eitthvað af þessun rumpulýð.
Fyrir ca 80 árum sagði ónefndur stjórnmálamaðu þetta m.a. " Ég get líka fengið atvinnuleysngum peninga svo að þeir geti fullnægt brýnustu þörfum sínum . Á þann hátt skapa ég kaupmátt og aukin viðskifti Þetta eru einfaldar og óflóknar aðgerðir sem vér munum hafa vald á með því einu, að einsetja oss að hopa ekki á hæli fyrir óhjákvæmillegum erfiðleikum. Ekkert af þessu er nein dulvísindi eins og prófessorarnir vilja vera láta heldur komið undir heilbrigðri skynsemi og viljaþreki".
Myndir þetta ekki ganga í fólk ef eittvað af svokölluðum grínistum landsins myndi gera þessi orð að sínum. Hræddur er ég um það en sá sem þetta sagði stóð nú held ég við flest af þessu á sínum tíma en reyndist svo vera versti lýðskrumari sem nokkurntíma hefur náð völdum
Þessi öflugusta afturhalds og íhaldsstjórn sem hefur stjórnað þessu landi hingað til og gerir það með vinstri hendinni er búinn að varða veginn fyrir að svona fífl næðu völdum hér.
En það alvesta er nú samt að þessi andsk..... vonlausa vinstri hönd vill ekkert með máttlausa hægri hönd er að basla við að gera með eingum árangri.Kært kvödd
Byssur til sýnis í sláturhúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2011 | 01:46
"katólikki "
Eðla spókaði sig í guðshúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2011 | 16:30
"étið börnin sín"
Svona getur byltingin étið börnin sín Það er með endemum og fyrir neðan allar hellur hvernig það fólk sem kemst í valdastöður misnotar aðstöðu sína.
Sama hvaða stjórnmálaflokki það tilheyrir. Þessi kona hélt hvorki vatni eða vindi yfir misnotkun fv bæjarstjóra á fé almennings. Og mér finnst þetta nánast neyðarlegt hjá henni í meira lagi. Kært kvödd
Mun ein nota bílinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2011 | 03:47
Það var allt betra hér í "den" eða var það ekki ?? 2
Já það skeði fleira á bernsku árunum t.d. lýsið, Hérlendir þ.e.a.s Eyjmenn tala um skólahjúkrunarkonu. T, d þessi sem rak út úr sér tunguna þegar hún kleip í ti.... á honum sagði að hún hefði neytt krakkana til að taka lýsi á hverjum skóladegi við misjafnar undirtektir.
Á mínum bernskuslóðum var ekki svo hátt menningar stig að sérmenntaðir lýsispyntingarfræðingar störfuðu við skólan
. Slíkar pyntingar sá stjúpa mín algerlega ólærð í fræðunum um gagvart mér Lýsi hafragrautir eða hræringur voru pyntingartólin. Ég man
hvað ég hataði þessa þrenningu
Já og lýsið. Það fékk læknirinn í að mig minnir 200 lítra tunnum.Þarna getur nú verið að í minningunni skakki þessi tala um nokkra tugi jafnvel hundruði lítra. En ég man eftir sonum læknisins vera að tappa á flöskur úr tunnu sem lá á hliðinni í stokk og krani í öðru sponsgatinu. Þetta er nú að vísu bjórtunna á stokk en einhvernvegin svona leit lýsistunnsn ú Eins og mér þykir lýsi gott í dag man ég þráa bragðið af því í "den". Og eitt er það sem einn vinur minn fullyrðir það er það að hjúkrunarkonan hafi gefið þeim stólpípu
Þetta þurfti ekki á mig allavega ekki síðustu árin sem ég var í skóla. Það sáu vinberin um þegar þau komu í búðirnar seinni part vetrar eða á vorin. Þegar vínberin komu.
Svo vorum við saman í leikfimi með stelpunum. Þá þótti ekki neitt athugavert við að allt liðið færi í bað saman, Þá sá ég fyrst það sem stundum varð mér fjötur um fót seinna í lífinu Hvort eitthvað svona skeði man ég ekki
En minnið er nú farið að brenglast og manni finnst eiginlega að maður hafi upplifað þetta einhvernvegin
svona allavega komu þær allar til að líta svona úr seinna meir. Og þá hefði maður nú gjarnan vilja baða með þeim. það er satt að segja furðulegt að leyfa ýmslegt þegar maður hefur ekki hunsvit á hlutunum en harðbanna það svo þegar maður hefur fengið smá hvolpavit í kollinn. Já það var allt betra hér í "den".með smá undantekningum En ég hef velt mikið þessum tveim vöngum sem ég hef yfir hvað hefði skeð hjá vini mínum þessum með ja þið munið ef hjúkrunar konan hefði ýtt á nefið á honum skildi þá tip... hafa sprungið út, Og skildi hún þá hafa þurft að klípa hann í tunguna til að fá það inn aftur ekki veit ég. Já það var allt betra hér í "den", Nú lufsat maður þetta eiginlega áfram án þess að mega nokkurn skapaðan hlut. Búið að skera úr manni þau líffæri sem einhverja ánægju veittu. Maður má ekkert éta sem er gott og það sem maður má gera því nennir maður ekki. Það er best að hætta þessu bulli og draga sig í lúsina eins og stundum var sagt hér í "den" þegar allt var betra. Eða er það bara brenglun í minniskubbunum sem lýsir "dennið" svona upp Verið þeir sem nennu hafa haft til að lesa þetta rugl ávallt kært kvaddir
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2011 | 20:20
"einhverja stórglæpamenn"
Ég er sammála um að það sé oft talað um Útgerðarmenn sem einhverja stórglæpamenn. Ég þekki nokkra útgerðamenn hér í Eyjum og það eru gegnheiðarlegir menn. Og mér hreinlega sárnar Þegar þessir menn eru úthrópaðir sem einhverjir "sægreifar"
Ég vil af mínu litla viti um öll þau skúmaskot sem hýsa allar reglur og reglugerðir um þennan andsk..... kvóta ekki tjá mig mikið um þessi mál. Annað enn um heiðarleika fg manna. Og ég tek sem sagt undir með Pétri Pálssyni.
En það er annar hópur manna sem talar um enn annan hóp sem um glæpamenn sé að ræða. Þetta er Vilhjálmur Egilsson & Co talandi um bræðslumenn sem að mati Vilhjálms & co eru að setja landið á hausinn fái þeir mannsæmandi laun Það er eiginlega hlálegt 2011 að hlusta á þetta aukna atvinnuaukningarraus.
Villi & co vill bara að laun hækki hjá hverjum og einum með aukinni vinnu. Þessi verkanannalýður sem þessir menn virða vart viðlits nema kannske þá verkalýðsforinga sem standa þeim nærri jafnfætis launalega séð, eiga bara, til að fá hærri laun að vinna lengri vinnudag.
Einn verkamaður i loðnubræðslu fær enga launahækkun þótt atvinnan aukist í byggðarlaginu. Vitaskuld þarf að eyða atvinnuleysi. En kjör bræðslumannsins í Vestmannaeyjum aukast lítið þótt störfumum hjá bænum þar aukist um helming. Aukavinnu við viljum aukavinnu, Villi og co vill bara að lýðurinn vinni meðan hann stendur í lappirar. Það er allt í lagi að borga tugum % meir í yfirvinnunni
Það virðist ekki komast inn í hausin þá þessum mönnum að bræðslumennirnir eru þokkalega launaðir meðan á t. d. loðnuvertíð stendur. Þá er unnið myrkranna á milli og yfirvinnan hífir kaupið upp í sæmilegan skala. Á milli eru einhverjir skítaslattar bræddir öðru hvoru. 8 lélega borgaðir vinnutímar. En það hefur nú lítið farið fyrir loðnubræðslu fyrr en nú, Og mikið skil ég mennina vel að þrýsta nú á hærri laun.
Setjum svo að Vilhjálmur sem að mínu viti er skarpgreindur og athugull maður væri foringi bræðslumanna. Myndi honum detta í hug að fara í einhverjar aðgerðir til launabætingar þegar ekkert væru um að vera hjá bræðslunum ? Vilhjálmur er örugglega vænsti maður ekki efa ég það en hann á að hætta þessu skítkasti í látt launaða bræðslumenn.
Styðum við bakið á bræðslumönnunum Hlustum ekki á þessar verðbólgu hótanir. Vilhjálmur & co ættu að þrýsta á stjórnvöld um að það náist í rassg.... á þessum stórþjófum sem leika lausum hala vítt og breitt um heiminn og láta þá borga þá verðbólguaukningu sem þeir eru að boða. Kært kvödd
Talað til útgerðar eins og glæpamanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2011 | 02:52
Það var allt betra hér í den eða var það ekki ???
Já það er furðuleg bólga þessi verðbólga sem hreinlega var kölluð "dýrtíð" í mínu ungdæmi Hún mun stafa af því ef Pétur sem vinnur verkamannavinnu, Segjum í Loðnubræðslu fær 5% launahækkun og lætur eftir sér vínarbrauð með kaffinu sundags í staðin fyrir tvíbökurnar þá bólgnar verð út Sem sagt verður verðbólga. En ef Páll sem er svokallaður fjárfestir sem á hreinni, að vísu gamalli íslensku hét braskari hækkar við sig launin um 100% og kaupir sér sérútbúinn jeppa. Þá er allt slétt og fellt. Ekki einu sinn filapensill verður úr því En af frægari þjóðarleiðtogum síðustu aldar sagðin eitt sinn. "Verðbólga er brestur á aga hjá kaupendum og vöntun á aga hjá seljendum". Ég læt ykkur um hver maðurinn var. En hvað um það þetta segir manni að við þessir sauðsvörtu megum bara éta okkar hafragraut hvurndags og undanrennu út á hann sundags. Mér dettur í hug vinur minn þar sem samspil tungu og annarar totu mikli neðar var markvisst. Í skólanum þegar hjúkrunarkonan kleip hann neðra rak hann alltaf tunguna út úr sér. Þetta gæti flokkast undir orsök og afleiðing. En svo var það önnur samtenging, Einn virtur læknir og mikill vinur minn fullyrti einusinni að kreppti maður vissan vöðva ( sem maður gerir stundum ef maður vill ekki missa allt í buxurnar) þá ætti totan fyrrnefnda að rísa Nú í mínu tilfelli gengur þetta allsekki upp og ástæðuna veit ég ósköp vel., Þarna er líka orsök og afleiðing. Nú fyrst svona er hægt að aftengja afleiðingarnar frá orsökinni Af hverju þarf þá allt að fara fjandans til ef Pétur Loðnubræðslumaður eignast nóg fyrir vinarbrauði sundags. En allt er þetta runnið undan rifjum (held ég) einvers Feders sem var vist uppi í "den gamle gode dage" Já i "den gamle gode dage" Þá var maður ungur og og upplifði lífið á annan hátt en nú Sá veröldina með bernskuaugunum Og svo voru það bernsku brekin. Sum setur maður í þann flokk sem heiti "mig minnir það " Þangað fara þau brek sem maður vill ekki hafa í fersku "En það er mér í fersku minni " er annar og vinsælasti flokkur bernskuminnis."Mér er það í barnsminni" er sá þriðji flokkurinn og næst vinsælastur. Ég er nú ekki svo gamall að ég muni vel hin litlu vinalegau hús er kamrar voru nefndir, Ég er nú ekki komin af ríku fólki og sem voru leiguliðar hvað húsnæði varðaði lungan úr minni bernsku Og þar tíðkuðust vatnsalerni. En í einu húsinu þurfti maður að fara í annað hús ef maður átti þangað erindi. En kamrar voru á reglubundnu undanhaldi. Vitanlega voru óknytta strákar á mínum bernsku slóðum.
Og þeir gerðu oft at í sumum mönnum Aðallega bráðum mönnum sem ekki skildu um hvað leikurinn snerist. Einu sinni tóku 3 strákar af fg gerð sig til og ætluðu að stríða einum svodanna. Þeir stálu dínamít túpu frá Hreppnum og útbjuggu sprengu úr púðrinu. Þetta var á undanhaldi kamrana. En við hús umrædds mann var einn þannig Gæjarnir settu nú sprenguna undir fötuna sem tilheyrði þessu smáhýsi. Leiddu svo kveikjuþráð frá stórum steini nálægt fg smáhýsi.
Biðu svo átekta. Fyrst kom kona mannsins en þar sem gæjarni áttu ekkert vantalað við hana var hún lýst friðhelg. Svo kom maðurin sem atlögunni hafði verið beint að. Nú var kveikt í þræðinum og hlaupið í ennþá öruggara skjól. En ekkert skeði. Svo opnaðist hurðin og fórnarlambið birtist Skellti hurðinni harkalega á eftir sér gekk eitt eða tvö skref og já til að gera langa sögu stutta sást sá kamar aldrei meir. Ég hef oft hugsað hvort hann hafi ekki lokað dyrum varlegar á eftir þetta. Þetta var nú eins og fyrr sagði á undanhaldi kamranna en ekki veit ég af neinu eins hvatvíslegu og þessu. Nú ekki man ég nú eftir svokölluðum "súkkulaðibíl" eins og mínir góðu vinir hér í Eyjum státað sig svo mikið af.En sá bíl mun hafa verið notaður einnnig til fiskflutninga og jafnvel vatnsflutninga ef mikið lá við. Og mennirnir sem sáu um súkkulaðiflutningana voru hörku menn sem unnu sitt verk að alúð. Og þeir lifðu sig inn í hlutverk sin. T.d þegar ein frúin var að koma heim og þeir við skyldustörfin við húsið. "Ja ég sé að þér hafið haft gesti um helgina frú NN" varð einum þeirra að orði. Það mun vera orðið fátitt að menn lifi sig svona inn í vinnu sína nú um stundir. Einn minn bestu vinar lygnir aftur augunum og réttir úr bakinu þegar þessir tímar berast í tal. Hann segi þá frá sinni fyrstu WC reynslu. Þeir voru 3 vinir sem alltaf léku sér saman. Faðir eins hafði eitthvað svolítið meira milli handanna en feður hinna tveggja. Og það kom svo WC með niðursturtun í húsið. Þið munið þessi með arminum sem keðja með postulín handfangi hékk niður úr. Nú þessi ósköp voru svo nýkomin í húsið og vinirnir að leika sér þar fyrir utan þegar heimastrákurinn spyr vini sína hvort þeir vilji prufa. Vinur minn þáði það en þeim þriðja var ekki mál. Nú af sinni alkunnu hæversku ætlaði hann bara að nota eina afrifu af WC pappírnum sem vfitanlega var þar nærtækur að athöfninni lokinni. Taktu tvær annars fer puttin í geng sagði þá heimastrákurinn en félagarnir höfðu fylgst með þessum ja fyrstu skrefum vinar míns á vegum þessara hluta. Jæja hvernig var spurði svo heimastrákurinn stoltur af græjum hússins. Ja sagði vinur minn sem ekki var tilbúinn að sleppa hendinni af kömrunum: það slettist upp ras.... á mér. Þú ert asni sagði þá heimapeyinn önugur .Þú átt að rífa fyrst eiit blað og setja ofan á vatnið þá slettist ekkert upp í rassg.... á þér Og þessum reglum hefur vinur minn fylgt nú í 65 ár. Hve ungur nemur það gamall temur segir einhverstaðar. Læt þetta duga af "deninu" í bili Verið ávallt kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2011 | 21:18
"Það var eins gott "
Það var eins gott að þyrlan var klár. Ég skora á menn að setja upp svona síma eins HSÍ notar. Þannig að ef þú hringir í visst númer þá renna 1000 kr til þyrlusveitar LHGÍ. Því þessir hálvitar sem þessu landi þykast stjórna eru ekki enn komnir í skilning um að þeir menn sem skipa fg sveit þurfa að fá nægt fé til að halda út 4 þyrlum og menn séu alltaf í toppþjálfun
Því sæmd er hverri þjóð sem eiga slíka menn sem við.Það er ekkert hægt að miða við aðrar þjóðir. Okkar menn gera þetta af skyldurækni og einurð við mikið verri aðstæður en aðrar þjóðir Þar sem herir þeirra þjóða blandast jafnvel inn í dæmið. Og þið þessir helv.... , ja þið vitið við hverja ég á við, sjáið sóma ykkar í að þessi sveit manna sé ekki í fjársvelti.
Því að gæti hlaupið hland fyrir hjartað á ykkur og þið þyrftuð að komast strax á spítala(þið fyrirgefið orðavalið en gamlir sjóarar eru margir reiðir yfir goggunarröðinni á peningum hjá þessu hyski) Og þá er eins gott að allt sé eins og það á að vera. Kært kvödd
Þyrla sótti hjartveikan mann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2011 | 20:26
" í pípunum?"
Eitthvað er að gerjast á bak við tjöldin. Bjarni ja gerir það sem ég held að sé ekki ílla til fundið, Er ekki þjóðin búin að fá sig fullsadda af þessu and....... Icesave kjaf.... ?
Og hvað er Sigmundur Ernir að leggja til ? Varla stjórnarsamstarf við Hreyfinguna. Hvað er eiginlega í pípunum? En eitt er víst að það er óhreint með þessu liði sem situr í húsinu við völlinn. Þar rennur ekkert tært. Verið samt tært, nei ég meina kært kvödd
Tilbúinn að mynda nýja ríkisstjórn um atvinnumálin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.2.2011 | 16:39
"Það hlýtur að vera erfitt "
Það hlýtur að vera erfitt fyrir bræðslumennina( sem kannske fá sæmilegar tekjur 1 eða 2 mánuði á ári) að sitja hiumeginn borðs við menn sem hafa kannske 1 eða 2 miljónir á mánuði.
Þessir hálaunamenn hinum megin borðs hafa aldrei deilt og koma adrei til með að deila kjörum við verkafólk Og þess vegna hafa þeir ekki hugmynd um hvernig lifa þarf að lægstu launum þessa láglaunalands. Svo er verið að samsama sig saman við "norrænt"velferðarkerfi,
En verkafólk á hinum Norðurlöndunum lifir góðu lífi af sínum 8 stunda vinnutíma. Og stjórnvöld það finna aðrar leiðit til fjáröflunar en ráðast á þá lægst settu. Og íhaldið stjórna í Sverige Yfirvinna er þrælsköttuð og hana vilja menn ekki. Við vitum að sumir verkalýðsforkólfar eru líka með slíka innkomu að það hreinlega sæmir ekki Og hvað liggur svo eftir þessa hálaunaforkólfa.
Akkúrat ekkert.0 stórt 0 Það liggur áræðanlega meir eftir hina óbreyrttu foringa sem ekki eru haldnir þeirri fé og valdagræðgi sem hrjáir suma á SV horninu. Þeir sem eru að vafrast í málum sem alltaf skjóta up kollinum í samskiftum atvinnurekenda og launþega.
Þeir vinna heimavinnuna sína.Sumir hinna voru búir að hlaða svo á sig bitlingum að þeir vegna anna gátu ekki lesið yfir A 4 skjal. Og það er hrein móðgun við verkalýðinn í þessu landi að þessir flokkar sem þykjast stjórna skuli vera runnir undan rifjum dugmikilla verkalýðforinga og stjórnmálamanna sem báru hag verkalýðsins fyrir brjósti
Ég óska "bræðslumönnunum"góðs gengis. Kært kvödd
SA: Loðnubrestur af mannavöldum yfirvofandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2011 | 21:31
"Hvern fja..... "
Smávægileg bilun í tölvukerfi Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2011 | 21:28
"hrjáir þetta lið."
Ætli það sé sólarleysi sem hrjáir þetta lið? Það væri tilraunarinnar virði að draga frá og sjá hvort þetta lið sé skárra í sólskini sem ég stórefast um
Þau hafa aldrei og munu aldrei sjá til sólar hvort sem dregið er frá eða fyrir. Enda þolir sumt af því sem þarna fer fram ekki dagsljósið hvað þá heldur sólarljós. Kært kvödd
Gluggatjöld verði dregin frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2011 | 21:16
"ættu að vita betur. "
Þetta ætti nú ekki að koma, allavega ekki mér og mínum líkum á óvart. Þessir grautarhausar sem eru við stjórn þessa lands ættu að vita betur. Og þetta með Hvítvínið er bara brandari. Fína fólkið lækkar sig bara um set fer úr Kampavíninu í það
Hækkun á brennivíni býður bara bruggi og smygli heim Það er enga stund skotist frá a-evrópu sem flýtur í vodka og cíkarettum inn á einhvern eyðifjörðinn fyrir austan á sæmilega gangóðum lystibát/hraðfiskibát.
Lítið eftirlit er með skipum sem slökkva á sjálfvirku auðkenniskerfi skipa, AIS-kerfinu Landhelgis og öll löggæsla er í fjársvelti Manni er nú fjandans sama þó nokkrar flöskur af brennivíni taki land t.d. í Loðmundarfirði meðan að fg stofrnanir geta varla sinn brýnni nauðsynlegum verkefni. Það er alvarlegra
Og hugsið ykkur andsk..... fíflaganginn það eru til fleiri hundruð milljónir sem fara eiga í þann skrípaleik sem framundan virðist vera. Mömmuleikur fyrir 101 liðið. Kært kvödd
Minna selt af áfengi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.2.2011 | 20:55
" íllur ræðari"
"Árinni kennir íllur ræðari"stendur einhverstaðar Það sem hrjáir íslenskt þjóðfélag aðallega í dag er að það skuli alltaf vera smíðaðar nýar árar fyrir þennan ræðaralýð. Kært kvödd
Klaufaskapur að skrifa undir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2011 | 01:08
"Smá-saxast"
Formaður svæðisfélags VG hættur í flokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2011 | 01:03
"vilja þjóðarinnar "
Ég hef enga skoðun á ágæti þessa svokallaðs stjórnlagaþings en ég hef sterka skoðun á því ef henda á aftur fleiri hundruð miljónum í svona klúður.
Jóhanna talar með digurbarkalátum um vilja þjóðarinnar Segir 35,95% af kosningabærum mönnum eitthvað um vilja þjóðarinnar?. Ég held að vilji þjóðarinnar sé mikið heldur að Jóhanna & co láti sig hverfa. Hættið þessum 101 fíflalátum og látið heldur aldraða og öryrkja njóta þessara peninga.
Allir alþingismenn upp til hópa ættu að skammast sín fyrir meðferðina á öldruðum fv verkamönnum bændum og sjómönnum sem komu löppunum undir það hyski sem nú þykist stjórna þessu landi Kært kvödd
Óheppilegt að skipa fulltrúa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2011 | 22:45
"leið ríkisstjórnar íslands."
Leiðir til gjaldþrota í sjávarútvegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.1.2011 | 20:44
"bíður svo við að horfa"
Fundað um stjórnlagaþingið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2011 | 20:38
"halda okkur við Jó jóið"
Meðal efstu manna á Evrópumeistaramótinu í jójó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2011 | 18:37
"Íhaldið er skíthrætt
"Íhaldið er skíthrætt" Þetta eru kannske orð að sönnu. En sjá æsinginn í andliti láttvirts ráðherra forsætis á myndinni í Mogganum það fannst mér slá öll met.
Og frúarinnar vegna vona ég að Moggamenn hafi "fótósjoppað" myndina. En er allt sem aflaga hefur farið síðustu 2 ár íhaldinu að kenna???. Þetta lið ætti nú að æsa sig líka út af eigin stjórnarháttum. Ég er hræddur um að fallnir sannir forustumenn alþýðunnar bylti sér verulega í gröfum sínum í dag.
Yfir gerðum eftirrennara sinna Ég held að þetta forustulið ætti að standa stærri ógn af örlögum sínum en íhaldið nú til dag. Vera "skíthrætt við íhaldið" ef fram fer sem horfir. Allt sem þetta lið gerir núna er bara vatn á myllu þess. Verið ávallt kært kvödd
Íhaldið er skíthrætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2011 | 17:56
"hörðum höndum"
Lífeyrisgreiðslur í áratug eftir andlát | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 535998
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar