30.1.2011 | 16:40
"Oft ratast kjöftugum rétt á munn"
Eigum ekki að hræra í innyflum hvers annars | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2011 | 16:28
"hreinum endemum"
Það er með hreinum endemum hvernig sumir XD þingmenn láta. Þó ég sé andvigur þessari ríkisstjórn þá gengur þvískinnungshátturinn hjá þessu fólki algerlega fram af mínum gamla haus.
Og hlusta á þessa kjölturakka ihaldsins á ónefndri sjónvarps rás er bara brandari. Inn á þingi fyrir fg flokk situr fólk sem tók þátt í spilinguni upp fyrir haus. Standa kannske hjón saman bara í blíðu. Einnig menn sem þáðu stórar/stóra peningagjafir/styrki til að koma sér þangað.
Og útskýring kjölturakkana á styrkjunum var sú að hann barðist við svo sterkan andstæðig. Allir vita nú hver sá andstæðingur var. Nú er hrópað eiginlega daglega af flokkssystkinum þessa fólks að þessi eða hinn ráðherran segi af sér. Ja nú er "skítalyktin virkilega farin að reka við"
Er nú annað hægt en ha ha ha að þessu öllu. Svo er talað um fjúkyrði bölv og ragn á blogginu en það er nú hreinlega biblían ef miðað er við aðalþáttastjórnanda fg sjónvarpsrásar. Þar má hrauna skít yfirleit alla nema XD og það gerir hann svikalaust Verið ávallt kært kvödd
Fráleitt að Ögmundur segi af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2011 | 15:58
"þar lágu danir í því"
Íslenskur kjötiðnaðarnemi Danmerkurmeistari 2011 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2011 | 18:16
"eitthvað nýtt."
Ja hérna alltaf heyrir maður eitthvað nýtt. Maður hefur nú oft heyri að menn væru í "sérstöðu" eða "valdastöðu" jafnvel "andstöðu" eða þvíumlíkt en "sístaða"
þetta hlýtur að vera nýyrði í íslenskti tungu. og manni getur ekki "staðið" á sama um svona mál. Skildu einhverjir íslenskir ráðamenn "standa" í þessum hóp
Fólk sem er í "andstöðu" við allan skapaðan hlut sem kæmi sér vel fyrir þjóðina. Og skildu þá menn sem þarf lög til að koma úr embættum vera handnir þessari "sístöðu" Spyr sá sem ekki veit. Verið ávallt kært kvödd
Berlusconi þjáist af sístöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2011 | 17:10
"engin nýlunda."
Jörðin eignast nýja sól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2011 | 03:40
"þessi kona"
Þarf þessi kona ekki að réttlæta aðrar gerðir sínar. Hverju líður rannsókninni á viðskiftum hennar við lögregluna á sínum tíma. Eða var framsóknarmaðurinn bara að bulla eins og þessu liði hættir svo til Kært kvödd
Beðin að réttlæta ummæli sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2011 | 03:27
"Hvaða heilvita"
Gagnrýna að þingmenn voru ekki látnir vita | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.1.2011 | 20:37
"Ég drap hann"
Ég er nú farinn að hafa það fyrir vana að leka hinum ýmsu málum frá fundum í "litlu snortu húsi við höfn friðar í fallegum bæ úti landi. Ekki veit ég hvort fundarmenn vita hver aðallekandinn er. Því þessi síða hefur ekki svo marga lesendur að lekinn er ekki víðförull.
Dagar víns, já og ýmislegs annars
Og talandi um víðferli þá hefur undirritaður oft hælst um af sínu. En smátt og smátt eru nú að koma í ljós að fleiri víðförlir menn eru á þessum fundum. M.a annars þingforsetinn sjálfur var í siglingum En eins og hans er von og vísa er hann fámáll um sitt víðferli. Borga, skip þingforsetans
En ein og ein saga er að slæðast upp úr einum aðal jass ráðgafa hússins. Um daginn var undirritaður að hælast yfir sínu flakki og Georgetown í Guyana bar á góma.
http://www.youtube.com/watch?v=GoDcBdZbSCQ&feature=related
Þá færðist þessi andlegi blær yfir andlit jassitans Andi endurminninganna tók hugann taki. Eins og þegar hann rifjar upp ýmislegt með aðalvélfræðingi hússins.
"Ég drap hann sagði hann dreyminn við tilhugsuninni. Hvern drapstu spurðum við. Nei nei, ekki ég sagði hann og hristi af sér endurminningaslenið. Hann Jón sagði þetta á knæpunni í Georgetown þegar við vorum saman á Rauðku. svaraði jassistinn.
Svo sagði hann frá:Við Jón vorum á sama bæ, Öxl í sveitinni í gamladaga. Og einu sinni fékk kötturinn á bænum einhverja pest að haldi manna. Hann varð allt í einu draghaltur og gat síðan ekki gengið Svo drapst hann.
"Rauðka" eins og hún hefur stundum litið út i augum jassistans og félaga, gæti ég trúa
En svona leit hún virkilega út Rauðka
http://www.youtube.com/watch?v=B-o-0eiIQe4&feature=related
Og þarna sátum við sjö árum seinna á bestu kránni í Georgstown og vorum að drekka í okkur kjark til að fara upp á "búðarloftið" tl að líta á varninginn. Þarna heldur síðuhöfundur að sannleikanum sé illilega hagrætt. Því jassistinn á virkilega yndislega konu sem hann er búinn að vera hamingusamlega giftur til margra ára. Af virðingu við hana held ég að sagan taki þessa vendingu.
En ég gruna þá félaga jassistann og Jón um að hafa verið búna að fara minnstakosti tvisvar á búðarloftið. Og nú vísa ég til eigin reynslu Því að vel fullnægður og aðeins mildur þá varð maður svo einlægur og samviskubitinn yfir öllu að maður hefði verið til að játa á sig allan fjandan jafnvel, Kambsránið ef ekki Tyrjaránið líka.
Já þær voru glæsilegar á búðarloftinu en kannske ekki svona skrautlegar
En hvort "búðarloftsferðirnar" hafi verið 2 eða jafnvel enginn eins og jassistinn heldur fram þá segir Jón þarna allt í einu úr eins manns hljóði (sem er nú eiginlega hans vani því mikið orðflúr er honum ekki að skapi). "Ég drap ´ann" !!!!
Gæti verið unrdd knæpa með búðarloftinu
Drapstu hvern spurði jassistinn Sem horfði í tárvot augu vinarsíns. " Ég drap hann" Köttin á Öxl. Hvað segir þú varð jassistanum að orði Já ég drap hann, ég hjólaði óvart yfir hann þegar ég var sendur eftir póstinnum svaraði hinn og ég þorði ekki að segja frá því.
Kötturinn á Öxl var stærri og ekki skotin með byssu
Já ég drap hann sagði Jón klökkur. Ímyndið léttirinn hjá Jóni að losa samviskuna af kattarmorði sem hún þ.e.a.s samviskan var búinn að burðast með í sjö ár.
http://www.youtube.com/watch?v=gS-J1neC3h0&feature=related
Hugsið ykkur líka hve maður gat orðið hreinskilinn aðeins mildur og fullnægður á góðum knæpum úti í heimi. Hugsið ykkur hve sterkt vopn þetta hefði geta orðið í höndum sérstaks saksóknara ef þessir andsk..... útrásarvíkingar hefðu einhverja samvisku. Þeir hafa ábyggilega setið vel fullnægðir og aðeins mildir á góðri knæpu úti í heimi en hafa ekki fengist til að játa agnarögn á sig út af hruninu Þarna skilur á milli heiðarlegs íslensks sjómanns og samviskuleusra stórþjófa. En að alvarlegri málum. Einn fundargesta skýrði frá því um daginn hvernig sín kona talaði um ýmsa hluti undir rós T.d þýðir: Ætlar þú að vera í þessari skyrtu, skiftu um skyrtu strax. Og þetta gætum við notað þýðir Ég vil fá þetta,
Annar hélt því fram að konur séu ekki eins heimskar og karlar. Þær gætu t.d. talað við persónu af "hinu" kyninu öðruvísi en hugleiða hvernig sú persóna liti út nakinn. Þær gætu líka sagt brandara af makanum að honum viðstöddum án þess að hann móðgist, því hann hlusti aldrei á hana hvort sem er , Svo sagði einn sögu sem ekki fékk nú mikinn hljómgrunn hjá okkur hinum.
Hann þóttist hafa heyrt á tal tveggja vinkvenna sem höfðu verið í "gæsapartíi" kvöldið áður. Hvelv... þær mættu allar vinkonurnar svo maður gat bara ekki talað ílla um neinn. En svona kjafthætti hlustum við fundarmenn ekki á Og minnir mig að þingforseti hafi ávítt f.g ræðumann fyrir ósæmilega hegðan. og orðaval Ég hnerraði í mig einhverja kvef óværu á nýársdag.
Það er nú orðið þannig að ef ég hnerra þá er ég fljótur að denga í mig "Panodil Hot" með það sama og hef sloppið við allar óværur síðan Tóti í Geisla minn góði vinur kom mér upp á lag með það. En á nýársdag hmerraði ég og hnerraði "hotless" vegna þess að apótekið var lokað,
Nei þetta er ekki "Leppalúði" tekið í dag á Þrettándaskemmtun heldur ja ég fer ekki lengra út í það frekar en læsingadæmið. Tekið um daginn
Þessvegna ætla ég mér að eiga alltaf birgðir af því: Venja mig á það kaupa alltaf pakka þegar 2 bréf eru eftir. Eins ætla ég mér að venja mig á að læsa aldrei bílnum mínum í miklum frostum. Vegna hrapalegra misstaka í sambandi við bíllæsingar og heitt vatn En ég segi nú ekki frekar af því. Látið ykkur ekki detta í hug að eitthvað af þessu sé sannleikanum samkvæmt. Því fer víðsfjarri. Ég ætla að láta snillinging Louis ljúka þessu fyrir mig . Því þrátt fyrir allt hefur hann svo sannarlega rétt fyrir sér í sögnum Því veröldin er virkileg wonderful ef maður vill svo vera láta.
http://www.dailymotion.com/video/x1ysp1_louis-armstrongwhat-a-wonderful-wor_music
Verið öll ávallt kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.1.2011 | 17:18
"Ja hérna"
Ja hérna Allt getur nú gerst. En þetta með röddina getur verið rétt, Það er t.d. misjafn að skilja fréttaþuli, Ég man hve okkar hjartkæri þulur Jón Múli gat verið oft verið erfiður þegar samband við RUV var tæpt á stuttbylgunni. Maður hlustaði kannske á tilkynningar og veðurfréttir lestnar af mjög skýrri kvennmannsrödd,
Svo kom Jón blessaður karlinn á nú skildi maður ekki neitt, Þetta er ekki sagt til hnjóðs Jóni á neinn hátt, En rödd hans eins og hún hljómaði nú vel og skemmtilega í návígi varð að eiginlegu muldri á stuttbylgunni Pétur Pétursson og Jóhannes Arason höfðu miklu betri "radíórödd" ef svo skáldlega mætti að orði komast. Og Gerður Bjarklind hafði góða slíka rödd.
Og margir loftskeytamenn gátu verið betri en aðrir hvað þetta varðaði. Og þegar ég var í siglingum og þurfti að tala við danskar loftskeytastöðvar þurfti ég alltaf að nota ensku, En það það var nú út af þessu tres, firs og öllu því dæmi en á því ruglaðist ég oft.Verið ávallt kært kvödd
Skildi börnin eftir hjá hálfblindri konu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2011 | 18:41
"topp ten"
Þótt að Stöð 2 sé ekki á mínum "topp ten" hvað vinsælar sjónvarpsstöðvar varðar út af eignarhaldi vissra persóna, þá get ég ekki annað en deilt furðu Ara Edvwalds á hvaðan tugir milljóna sem með þarf á bak við þetta tilboð RUV hefðu átt að koma. Þetta sannar bara að það eru alltaf til peningar í "gæluverkefni" ef svo býður við að horfa.
Ekki er ég mikið íþróttasinnaður svo ég er dauðfeginn að þetta skuli ekki dynja á manni á RUV. En ég tek fram að ég er mikið hlynntur ungliðastarfi íþróttafélaganna. Og þessvegna léti maður þetta kannske hellast yfir sig.
Ef það yrði svo til að vekja áhuga æskufólks sem virkilega þarf allan þann stuðning sem hægt er að fá til að vera óháð eiturlyfjum sem maður veit að verið er að ota að þeim allstaðar, á íþróttinni. Af óprúttnum óþokkum þessa lands.
En þarna missti RUV af lestinni. Þetta lýsir kannske því stjórnarfarinu sem ríkt hefur á landinu undanfarið. Bara látið reka á reiðanum þar til alltof seint er í rassinn gripið. Verið ávallt kært kvödd
Ari furðar sig á tilboði Rúv | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.1.2011 | 00:45
"nuddtæki"
Dó eftir nudd á hálsinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.1.2011 | 19:11
"Það hlaut að vera"
Það hlaut að vera. Um fertuga kom að því að ég skildi ekki í hvernig í ósköpunum ég eyddi æfinni fram að því í annað eins tilgangsleysi og raun bar vitni Og það skilningsleysi gæti nefnilega hafa aukist um sextugt
Og ég sem þóttist alltaf vita manna best um alla skapaða hluti er alltaf að sannfærast (það eimar nú kannske stundum eftir af þvi ) hve rangt ég hafði fyrir mér.
Ég kaus t.d. XD fram undir sexugt. Að vísu farinn að stórefast um fertugt en sannfærðist sem sagt um sextugt. Og þó talan 6 vísi á ýmislegt já það er best að sleppa því. Verið ávallt kært kvödd og gleðilegt nýtt ár
Gáfaðast um sextugt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.1.2011 | 00:47
Nú er lag á læk
Nú situr maður dolfallinn. Og eigilega í hálfgerðum trans. Raggi Bjarna nýbúinn að kippa manni rúm 50 ár til baka. Syngandi um forðum daga í Hamborg. Og marga vinsæla Þórskaffislagara. Forðum í Hamborg!!! Þar sá maður nú ýmislegt sem ekki er prenthæft. Einusinni sá ég konu reykja með ónefndum hluta líkamana Þó ekki þessum
En í minningunni litu þær þannig út stúlkurnar í Hamborg Finnst ykkur nokkur furða þótt maður gráti gamla tíma í Hamborg já og víðar. Hólar og hæðir.
Ég man einnig að togaramenn nefndu ýmsa hóla og hæðir á togslóðunum eftir sumum líkamshlutum ónefndra vinkvenna í ónefndum hafnarborgum Töluðu jafnvel um að að vera undir brjóstunum á einni ónefndri og toga "nið´r eftir" Eða þegar maður lá á Cleethorpe beach þá litu þær allar svona út (Virkilega en þessar eru að vísu frá Blackpool) En svo þegar maður vaknaði leit þetta allt öðruvísi út Þetta vildi nú brenna við í Hamborg og víðar líka En það var ekki þeim að kenna. Viss vökvi sem maður sótti mikið í (oftar en ekki of mikið) villti manni sýn Þetta voru manneskjur sem einhverra hluta vegna urðu á vegi manns. Ég er ekki að gera lítið úr neinum. Og allsekki konum. Þær met ég upp til hópa mikils. Það vita þeir sem mig þekkja
Þetta er heldur ekkert grobb um kvenhylli. Ef einhver hefði verið hvarf hún fljótlega eftir að glösunum fjölgaði. Þessvegan litu þær svona út að morgni. Sjarmurinn leyfði kannske ekki meiri fegurð. En þetta voru ágætis stelpur með örfáum undantekningum.En svona var þetta bara The Cleethorpe beach Konur höfðu og hafa sennilega enn alveg magnað vald yfir okkur karlpeningnum Hún veit sínu viti sú stutta
Og þessi er of ungur til að vita hverju hann er að fúlsa við
Ég skrifaði um daginn um reynslu góðs vinar míns af ristil speglun og af því ég er viss um að enginn læknir lesi þetta skrifelsi þá held ég því fram að einhvern veginn svona fari þetta fram
Án þess að vita það held ég að totan þarna efst til vinstri sé botlanginn. Ég hafði tvo. Báðir sprungu þeir en með 14 ára millibili. Sá síðari var tekin með skurði á miðjum belgnum. Þar sem tilvist hinnar seinni totu var ekki sönnuð fyrr en belgurinn hafði verið opnaður,Venjulegur botangaskurður
Skurðlæknirin sem þetta gerði sagði mér að um 2 % af mannkyninu frekar en íslendingum gengu með tvær totur. Þegar ég fór í hina tveggja árlegu læknisskoðun í Danmörk vegna atvinnuréttinda minna lenti ég stundum í strögli þegar ég sagðist aldrei hafa verið "operaður" út af magasári,Minn seinni
Nú hvernig stendur á þessu öri á maganum á þér spurðu þeir þá. Botlangaskurður svaraði ég. " Hvordan i hule helve.. skærer de op til blindtarmen på Island" fékk ég þá stundum að heyra. Síðar fékk ég óþverra í ónefndan kirtil og ég man að mér leið einhvernvegin eins og ég hefði lent í þessu eftir að 8 prufur höfðu verið teknar ódeyft Lent í þessu
Þessi mynd er að vísu ekki frá þeim uppskurði
Nú fjandans kirtillinn var tekinn.Svo nú situr maður hér án mikilvægra tóla og syrgir gamla daga (allavega í kvöld. Á morgun annar dagur og góða skapið tekið við) í Hamborg Og þrátt fyrir allt þakka ég Ragga Bjarna fyrir að vekja upp þessar minningar "forðum í Hambog" og allt það Raggi er engum líkur það hefur hann margsannað Sólin að hníga til viðar hjá manni og fer sennilega að setjast bráðlega
Ég vona að engin móðgist yfir þessu rugli hjá gömlum hálf elliærum stjórntækjalausum fv gæja(að eigin mati þá) sem Raggi Bjarna framkallaði vökva um augu hjá í kvöld Og lítur til baka með óvenjulegum gleraugum Verið öll ávallt kært kvödd og megi góður guð gefa okkur öllum eins gæfurík komandi ár og hver og einn verðskuldar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.1.2011 | 21:02
Gleðilegt ár
Þó þessi upptaka sé tveggja ára gömul finnst mér hún alveg eins eiga við í dag Ég óska öllum lesendum (þessum 20-30) síðunnar, vinum og vandamönnum hvar sem er Gleðilegs árs og friðar. Og ég þakka allt gamallt og gott Megi góður guð gefa okkur öllur öllum gæfuríkt komandi ár
http://fragtskip.123.is/flashvideo/viewvideo/24880/
Ég veit ekki afhverju ég get ekki hlaðið inn myndbandi hér en það tekst ágætlega á 123 síðunni minni og þessvegna kemur þetta svona. Ég vona að þið fyrirgefið að og takið vilja fyrir verkið Verið ávallt kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2010 | 00:53
"úr seinni frétt "
þetta er úr seinni frétt en sem sem bloggið er tengt við: "Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni barst beiðni um þyrlu í gegnum Neyðarlínuna klukkan 20:27 í kvöld. TF-LÍF var þá að koma inn til lendingar úr öðru verkefni og fór þyrlan í loftið á ný klukkan 20:50 og lenti á veginum rétt við slysstað kl. 21:21. Rúmum tíu mínútum síðar lagði þyrlan af stað til Reykjavíkur og lenti við Landspítalann í Fossvogi kl. 22:02. Maðurinn sem slasaðist var í fólksbíl sem var á leiðinni suður og lenti í árekstri við flutningabíl sem var á leiðinni norður, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi."
Nauðsyn á vel efldri og þjálfaðri þyrlusveit LHGÍ þarf að fara að síjast inn í hausinn á þessu hlandónýta liði í hinni Tæru. Liði sem heldur vill halda út rándýrum sendiráðum sem við innan við 10 % þjóðarinnar hefur eitthvað gagn af í skiftum fyrir tæki sem sótt geta slasað og mikið veikt fólk af landsbyggiðinni. Minar óskir á nýári verða að einhver af þessum ónefndum fábjánum hálsbrjóti sig einhverstaða út í óbyggðum, En sú þyrla sem þá væri í flughæfu ástandi væri í útkalli annars staðar. Skildi það ekki kveikja á einhverjum perum Verið ávallt kært kvödd
Bílvelta á Holtavörðuheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.12.2010 | 23:33
Glepileg jól
http://fragtskip.123.is/flashvideo/viewvideo/24787/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.12.2010 | 14:43
"með flugeldum"
Það var full ástæða til að fagna þessu glæsiega skipi með flugeldum. Þetta skip er afrakstur mikils dugnaðar og hæfileika föðurs og sonar Til hamingu Þórunnar menn. Vinur minn Tryggvi Sigurðsson vélstjóri og módelsmiður hér í Eyjum tók myndir af hinu glæsilega skipi og setti á heimasíðu sína. Þar má einnig sjá bátinn sem æfintýrið byrjaði á
Kært kvödd
Þórunni fagnað með flugeldum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.12.2010 | 03:15
"Það er gleðiefni"
Vinnslustöðin greiðir starfsmönnum bónus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.12.2010 | 23:51
"í götu ríkisstjórnarinnar"
Er ekki svindl Íslenskra Aðalverktaka steinar í götu ríkisstjórnarinnar, Hvernig getur svona svikamylla framgengið. Þetta styrkir mann í þeim grun hverjir virkilega standi að baki hinum"erlendu" kröfuhafa í bankana. Þessir andsk..... menn eru allir að ná vopnum sínum aftur, Og mergsjúga íslenska aðþýðu. Og sú "Tæra" stendur bara "kjaftstopp"álengdar.
Einhverntíma hefði kjaftu.... á Steingrími J ekki stoppað af stóryrðum yfir svona vendingum. Og hittir ekki andsk..... ömmu sína, fyrir Jóhönnu hvað varðar Lilju Móses. Klauf hún( Jóhanna) ekki Alþýðuflokkinn og hefur hún ekki rekist ílla í stjórnum fyrir hve vinstrisinnuð hún var þar til nú. Ja lúft er að láta sér dreyma og gleyma. Verið kært kvödd
Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2010 | 23:34
"opið geðið á fólki."
Fyrrverandi þingmaður dæmdur fyrir meinsæri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 535997
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar