"sauðsvartan almúgamann"

Það er fyrir svona ómenntaðan sauðsvartan almúgamann eins og mig algerlega óskiljanlegt hvernig þessu er öllu háttað. Fái lálaunamaður/kona nokkra % launahækkun ætla allt á annan endan.

Skatta þarf þá að hækka og þrenga enn meir að þeim sem minna mega sín. Steli nokkrir auðmenn milljörðum og flýi með það úr landi er ekkert gert til að ná í þá. Þeir mega ávaxta sinn ílla feng erlendis að vild án nokkurar truflunar frá stjórnvöldum hér.

En ef leikskólakennari.... nei ég skil þetta ekki og kem sennilega aldrei til að skilja það. Kært kvödd


mbl.is Tekjuaukning eða niðurskurður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" skifta um lið í Stjórnarráðinu"

Vitaskuld vilja núorðið flestir skifta um lið í Stjórnarráðinu. En eigum við ekki að nota til þess löglegar aðgerðir. Og þeir sem til þess veljast fari inn um aðaldyrnar. Kært kvödd
mbl.is Fóru upp á þak Stjórnarráðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú vantar þá hópa"

Nú vantar þá hópa sem minna mega sín í þessu þjóðfélagi, að minnstakosti afsökunnarbeiðni frá stjórnendum þessa lands.Fyrir eyðslu á peningum úr sjóði okkar allra í þá hít sem hefur fengið nafnið Harpa. Hítin sem flesta peninga gleypti varð þá ekki sú dýrð sem ætla mátti.

"Eins og biluð jólatréssería" segir nú einn menningarvitinn "Svart og kalt einsog sorgin. Ljósaverkið bætir ekkert,“ segir annar. Ekki ætla ég mér að hreykjast yfir þessu klúðri.

En mér finnst þetta heldur tregara en tárum taki. En ekki gréti ég þó eitthvað af "aðlinun" fái flensuskít af verunni þar inni. En þetta lið á víst nóg af loðfeldum til að brúka þarna inni

En mér finnst að þeir sem þessu réðu fremur öðrum ættu að biðjast afsökunnar á klúðrinu. Penigum eitt til einskins allavega lítils. Kært kvödd


mbl.is Glerhjúpur Hörpu tendraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipasmiðir í nokkra ættliði

Ein er sú ætt sem skilað hefur af sér eina kunnustu skipasmiði landsins og það i nokkuð marga ættliði. Bergsætt. Þar má nefna bræðurna Þórð Jónson kenndur við Berg hér í Eyjum Guðmund (eldri) kendann við Háeyri  Gunnar Marel og Magnús, og frændi þeirra bræðra Runólfur Jóhannsson,

Langafabarn Gunnars er löngu orðin kunnur skipamódelsmiður.Enda orðlagður nákvæmnismaður við allt  sem hann tekur sér fyrir hendur  Tryggvi Sigurðsson heitir hann og er starfandi vélstjóri á v/b Frá Sem er í eigu Óskars frænda hans afabarn Guðmundar eldri frá Háeyri. En nú hefur Tryggvi eignast skæðan keppinaut í líkanasmíðinni. Þ.e.a.s. sjálfan útgerðarmanninn

Hér er Tryggvi með eitt af sínum skipalíkönum m/b Gófaxa VE

982a4e60 501f 4cab 8651 db84574756a0 MS 1

En hér er núorðinn aðalkeppinauturinn með sitt líkan (menn mega ráða nafninu)

DSCN0781

Ekki er hægt að sjá hvor er stoltari af sínu líkani

Tryggvi er líka frægur mótorhjólamaður. Formaður þesslags klúbbs hér í Eyjim sem heitir "Drullusokkar". Mér þykr virkilega vænt um þessa vini mina. Og nú bið ég þann er flestu ræður (ég reyni nú alltaf ráða einhverju sjálfur) að Óskar vinur minn fari ekki að reyna að apa þessar hjólaæfingar eftir frænda sínum líka

Hér er "Drullusokkur no 1"

Drullusokkur no 1

Allavega ef árangurinn yrði í einhverri líkingu við .... Ja nú er ég komin út á hálan ís og kominn tími til að halda kja...  Verið ávallt kært kvödd

PS: Tryggvi heldur út heimasíðu http://batarogskip.123.is/home/  sem vert er að skoða

Sami


"Það þyrfti að hlaupa"

Það þyrfti að hlaupa íllilega hland fyrir hjartað á einhverju úr þessu liði sem nefndir eru ráðherrar, upp í óbyggðum. Það illilega að sækja þyrfi þá með þyrlu sem svo í því tilfelli væri ekki tiltæk.

Þá skildi þetta lið brýna nauðsyn á að því að alltaf sé tiltæk björgunarþyrla í landinu. Þetta þyrluleysi er einn ömurlegasti bletturinn á orðspori á þessari ömurlegu ríkisstjórnar. Það virðast alltaf vera til peningar til alls sem hefur "menningu" sem viðbót í nafni.

Og mikið gerði nú þessi sem virðist allaf sofandi á myndum úr þingsölum þjóðinni mikinn greiða ef felli hann stjórn Jóhönnu & co út af útskriftum á minna en 100 leikstjórum á ári. Að hans mati eru peningar betur komnir til þess en að bjarga fólki í nauð á sjó eða landi. Kært kvödd


mbl.is Hróplegur þyrluskortur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fórnfýsi

Ég hef haldið út síðu á 123.is sem heitir http://fragtskip.123.is/ Ég var um daginn að fjalla um siglingar íslendinga á stríðsárunum seinni. Og við undirbúninginn hef ég leitað fanga í timarit.is. Og þótt ég hafi ekki birt það hef ég oftar en ekki lesið um mikla fórnfýsi margra sjómanna. Helsærður skipstjóri sagði t.d.við skipsmenn sína þegar þeir eftir hatrama árás kafbáts : "Hugsið þið um Steina fyrst"En Steini var bróðir hans sem líka var helsærður.

Og mér finnst satt að segja allar siglingar til og frá landinu á stríðsárunum  lýsa fórnfýsi. Ég hef átt orðastað við menn sem sigldu öll þessi ár, og þeir sögðu; "menn þurftu bara að gera þetta". Það þurfti að koma nauðsynjum til landsins og  það þurfti að afla gjaldeyris. En fórnfýsi er sennilega jafngömul manninum. Þó sumir hafi haldið sig til hlés hvað hana varðar Jón Guðmundsson frá Gamla Hrauni á Eyrarbakka átti 9 syni sem komust upp og uru þrír þeirra skipstjórar á vélbátum í Vestmannaeyjum og einn á Akranesi Elstur var Þórður á Bergi ( 1887 - 1939 ) var formaður m.a á Enok VE 164

 Top.bmp Enok VE 164 

Guðmundur eldri á Háeyri (1888-1976) formaður m.a á Olgu VE 139 Jafnhliða formennskunni smíðaði Guðmundur þrjá 11 lesta báta árið 1915 og voru þeir allir tilbúnir fyrir vertíð.

Olga  Olga VE 139

Gunnar Marel ( 1891- 1979 ) Öðu VE VE 146  Gunnar byggði ásamt öðrum Dráttarbraut Vstmannaeyja 1925. Og byggði eftir það fjöldan allan af bátum Þ.á.m m/b Helga VE sem þá var stærsta  tréskip sem smíðað hafði verið á Íslandi Langafabarn Gunnars er Tryggvi Sigurðsson löngu landskunnur skipalíkanasmiður og nv vélstjóri á Frá sem Óskar afabarn Guðmundar (eldri) á og gerir út

Aða Aða VE 146

Guðmundur yngri ( 1908-1972) sem frægastur varð þegar hann hélt skipi sínu á floti, þrátt fyrir að margir töldu bátinn af í fárviðri í jan 1952´

Hér er blaðsíða úr "Eyjar gegn um aldirnar" þar sem þrír af bræðrunum koma við sögu

Top.bmp Þarna segir frá þegar Eyjabátar komu úr róðri einn daginn í febrúar vantaði einn bátinn Enok VE 164 þar sem einn af þeim Gamlahraunsbræðrum Þórður var formaður á. Þrátt fyrir slæmt veður A hvassviðri og brim fer bróðir hans Guðmundur (eldri) formaður á Olgu aftur út í sortan að leita að bát bróður síns Og finnur hann vélavana á reki V við Eyjar Tekur hann í tog. Þá er veðrið orðið svo slæmt að höfnin var ófær. Komst Olga með hinn bilaða bát undir Eiðið. Og lágu bátarnir þar um nóttina. Daginn eftir var veður orðið skaplegra og komust þá báðir bátarnir klakklaust til hafnar.

Á  sömu síðu segir frá hrakningum Öðu VE 146 í apríl sama ár. En vél bátsins bilaði er hann var á leið heim úr róðri. Tókst bátsverjum að heisa segl og sigla undir Ofanleitishamar og legjast þar við akkeri. En legufærin gáfu sig svo bátinn rak fyrir sjó og vindi til haf, Það á að vera hægt að stækka myndina af blaðsíðunni svo að hægt sé að lesa um þetta þar. Þessir umræddu bræður voru sjöundi ættliðurinn af skipstjórum. Svo féll einn úr en nú eru tveir liðir komnir í viðbót þeir Óskar Þórarinsson  (sonarsonur Guðmundar Jónssonar eldri) fv skipstjóri ávallt kenndur húsið sem afi hans byggði 1911 og sonur hans Sindri sem nú er skipstjóri á bát pabba sins Frá. 

P7040002 Frár VE

Það eru svona sögur sem á að segja börnum á Íslandi en ekki einhverjar Spidermans eða einhverjar nútíma ofurhetjusögur Þessir menn voru heimasmíðaðir ekki innfluttir fra USA. Kært kvödd


" reykur frá þessu."

Var ekki töluverður reykur frá þessu. Voru slökkviliðsmennirnir, (með mikilli virðingu fyrir þeim og þeirra störfum) bara kátir í lokin. Kært kvödd
mbl.is Talið er að kviknað hafi í út frá fjöltengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" til að dáðst að"

Jæja vantaði femínistunum fyrir sunnan eitthvað til að dáðst að. Ég var nú að spegúlera nei þetta rýrnar víst svo komið í spíra. En þær sem þekktu vinsælan fjalla bílstjóra náið ættu að geta sagi manni það. Kært kvödd
mbl.is Reðasafnið til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hvað segja"

Gvöð. Hvað segja Femínistarnir um svonalagað. Maður er fyrirfram dolfallinn Kært kvödd
mbl.is Koma naktar fram á dagatali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sprengisandsþátt"

Ég "datt" inn á þennan Sprengisandsþátt í morgunn. Ég heyrði nú samt ekki þessi orð Halldórs, En ég skil ekki af hverju Mogginn skýrir ekki frá viðtalinu við Guðbjart Hannesson.

Sem fyrir minn smekk var miklu athygliverðara en viðtalið við Halldór. Eða af hverju ekki var minnst á upprifjun á gömlu viðtali við þær stöllur Ólöfu Nordal og Steinunni Valdísi sem tekið var nokkru fyrir hrun. Þau viðtöl sannfærðu mig um þetta algera gagnleysi stjórnmála. Þær stöllur "dásömuðu" þv stjórn. (sjálfstæði og samfó)og hömpuðu báðar forustu þv flokksleiðtoga samstarfsflokkana. Þeir væru þeir einu sönnu til að stjórna landinu

Og mér fannst Guðbjartur standa sig þannig, að í mínum huga kemur engin annar til greina sem formaður Samfó til framtíðar. Maðurinn er flugmælskur og pollrólegur í sínum málflutningi. Og hann opnaði augu manns á ýmsum góðum árangri sem náðs hefur en andstæðingarnir steinhalds kja... um.

Þó ég styði ekki þessa ríkisstjórn þá finnst mér satt að segja sá málflutningur sem einungis er til þess gerður að fella ríkisstjórnina og skilur ekkert annað eftir sig ílla til fallinn. Kært kvödd


mbl.is Sveitarfélögin munu segja upp fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Troddu þér svo inn í"

Troddu þér svo inn í taldið hjá mér. Var sungið hér í den. Mér finnst satt að segja framkoman hjá þessum einstaklingum ( mönnum ??? konum???) til fyrirmyndar og ætti að verðlauna. Týna tjaldinu og snúa sér til Löggunar um gistingu, Einhverjir hefðu nú kannske bara "troðið" sér inn í næsta tjald með tilheyrandi usla eða öfugt. Kært kvödd
mbl.is Týndu tjaldi og gistu í fangaklefa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"suma ráðherrana"

Þetta minnir nú á suma ráðherrana. Hækka skatta og gjöld þá vella brandararnir upp úr þeim. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Margir minnast Bóbó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"frændum vorum"

Mikil sorg ríkir nú hjá frændum vorum eftir atburði dagsins. Og ýmislegt flaug í gegn um hugann. En ég hnaut illilega um endirinn á þessari frétt þar sem segir:

"Norska fréttastofan NTB segir, að grunur leiki á að árásirnar í dag séu ekki runnar undan rifjum alþjóðlegra hryðjuverkasamtaka heldur beinist þær fyrst og fremst að norskum stjórnmálaöflum. "

Ekki þekki ég til innanríkismála í Noregi en einhver hefur, ef þetta er rétt misst þolinmæðina við einhver stjórnmálaöfl þar í landi. Ömmi Inni talar um að menn haldi ró sinni. En verður maður ekki bara að segja:" maður líttu þér nær". Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Sást í Osló áður en sprengingin varð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"barn til blóra"

"Gott er að hafa barn til blóra og kenna því alla klækina" var einusinni sagt.

"Murdoch segir að óvandað fólk í lágum stöðum innan fyrirtækisins hafi svikið og gabbað stjórnendur þess, þar á meðal Murdoch sjálfan.Stjórnendurnir hafi ekki vitað um hleranirnar, ekki einusinni Rebekha Brooks sem var aðalritstjóri News of The World í þrjú af þeim árum sem þær voru stundaðar"

þetta er sagt í einni frétt. Þetta er háttur fína fólksins. Að klessa svona á þá lægst settu. Var það ekki flatskjárkaup og þvíumlíkt hjá okkur þessum sauðsvörtu sem kom bankahruninu af stað. Mig minnir að ég hafi lesið það og heyrt einhverntíma. Kært kvödd


mbl.is Murdoch snéri við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"auðvelt að blindast"

Það er auðvelt að blindast og eða gleyma sér við akstur hér við höfnina íblíðunni undanfarið. Hér eru hlutirnir að gerast eins og alltaf. Síðasta vika hefur verið virklega lífleg Á föstudag voru hér að minnstakosti fjögur flutningaskip til að lesta mestalla flóruna af afurðum

Á  fimmtudag

Aflaskipið Þórunn Sveinsdóttir, Axel, Onafjord

IMG 0197

í GÆR FÖSTUDAG

Arnarfell, Silver River, Axel

IMG 0209

 Silver River

IMG 0198

Axel

IMG 0189

Í dag

Júpiter að koma

IMG 0219

Wilson Aveiro að lesta mjöl

IMG 0231

Key Fighter kom að lesta lýsi

IMG 0222

Andi ævintýranna fór

IMG 0214


mbl.is Blindaðist af sól og ók á staur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"við "ljóta fólkið" að fara. "

Hvert eigum við "ljóta fólkið" að fara. Við þessi hérna niður á jörðinni. Við þessi "sauðsvörtu" sem eigum ekki samleið með "fína" fólkinu í 101 Hvar eru "garðveislur" fyrir okkur. Kært kvödd
mbl.is Fallega fólkið í garðpartýi hjá Jakobi Frímanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fögnum við öll"

Vitaskuld fögnum við öll þessum áfanga Og þótt ég sé ekki sammála Ernu Hauks eins og hún lætur getur maður ekki annað en dáðst að henni. Hugsið ykkur ef verkalýðsforustan ætti svona skeleggan málsvara. Ég hef alltaf haldið því fram að kvenfólk er miklu skeleggari stjórnendur en karlar. T.d verstu tollarar sem hægt var að hugsa sér voru kvenmenn sama um vopnaleit.Og hugsið ykkur Rebekah Brooks Hvaða karlmanni dytti í hug að ganga svo hreint til verks. Rauðhærðar konur heilla alltaf. Ekki man ég háralit Ernu Hauks en hann skildi þá ekki vera rauður Kært kvödd
mbl.is Fagna nýrri brú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"algerum ólíkindum "

Mér finnst það með algerum ólíkindum hvernig sú tæra stendur að þessum málum. Það á "að reyna" að leiga þyrlu fyrstu mánuði næsta árs. En þá fer TF-LÍF í umfangsmikla skoðun.

En svo er það rúsínan í pylsuendanum ef svo skáldlega má að orði komast. Hér vitna ég í greinina og eru leturbreitingar mínar:

"Fyrir liggi að TF-LÍF fari í umfangsmikla skoðun í janúar á næsta ári sem gæti tekið tvo til þrjá mánuði. Sú skoðun hafði verið áformuð nú í haust en var frestað þar sem ekki þótti viðunandi að aðeins ein þyrla væri til taks í langan tíma. TF-GNÁ þurfi hins vegar að fara í stutta skoðun í ágúst sem taki fáeinar vikur".

Aðeins einn dagur með eina þyrlu er á mjög gráu svæði. Og í ágúst, er talað um, er einn umferðarríkasti mánuður ársins Svona til hjálpar aumum fjárhag LHGÍ finnt mér að þetta lið sem tekur stórfé frá Ríkinu fyrir nefndarstörf (þótt það sé í ágætlega launuðum störfum fyrir) ætti að gefa LHGÍ launin fyrir þau. Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Gæslan vill leigja þyrlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"nægir peningar"

Það eru til nægir peningar þegar um einhverjar nefndarskipanir er að ræða. Þetta er með hreinum ólíkindum. Yfirleitt einhverjir bitlingar fyrir fv stjórnmálamenn. Það væri gaman fyrir okkur þessa sauðsvörtu (sem aldrei komast með tærnar inn í svona nefnd hvað þá hælana) að vita hve marga milljónir/milljarða við eru að borga fyrir þessskonar, akkúrat núna. Ávallt kært kvödd
mbl.is Auðlindanefnd skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"peningum bara dælt út"

Þetta er eitt af þeim dæmum þar sem ekkert er gert peningum bara dælt út. Og enginn virtist hafa áhuga á hvernig þetta fór algerlega út úr öllum áætlunum. Það er furðulegt hvað ráðamenn komast upp með. Stundum er bara ávísunarheftið tekið upp og engra spurninga spurt. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Kostnaður við Sæfara eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband