"flýja þetta land"

Nú vilja sem flestir flýja þetta land. Kristján sjöundi hefði kannske gert betur að flytja alla íslendinga á Jótlandsheiðarnar í kring um 1780 Eftir Hafísfár fiskleysi og Móðuharðindi. Hann vildi allavega gera eitthvað jákvætt fyrir almúgan.

nnað en þessi "Móðuharðindastjórn", sem nú þykist stjórna  Ég held hreinlega þegar sagan er skoðuð þá hafi danirnir sjálfir verið okkur hliðhollir. En íslendingarnir sem fóru framkvæmdavaldið níddust á samlandanum eins og nú kært kvödd


mbl.is 40% vilja flytja til útlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" er maður algerlega kjaftstop"

Nú er maður algerlega kjaftstop. Og hefði það nú einhverntíma þótt saga til næsta bæjar. Hverskonar andsk.... úrþvætti eru þarna á ferð? Hvað er eiginlega að ske??

 

Hverskonar lufsa hefur faðirinn verið ? "hræddur um að missa starfið" las ég einhverstaðar. Hann hefði átt segja upp með það sama þegar hann varð vitni að þessu. Ég var nú til sjós í 53 ár en kannast ekki við neinu þvílíku.

 

Menn voru stundum sendir eftir "vakúmi" í dós niður í vél. Sendir til að trekkja "trollklukkuna"  Gefa "kjölsvíninu" En svona ógeð var aldrei í myndinni. Og mér finndist það eiga að gefa upp hvaða skip/menn þetta var/voru. Þetta er svartur blettur á sjómannastéttinni. Kært kvödd


mbl.is Níddust á 13 ára dreng í veiðiferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

""óstaðfestar" fréttir"

Hvað liggur á með svona "óstaðfestar" fréttir.  Gæti ekki verið að hópur fólks sé þarna við köfun. Einhvernvegin finnst mér að svona fréttir valdi óþarfa kvíða hjá vinum og vandamönnum þess. Er ekki nóg að koma með fréttir þegar staðfest hefur verið hvað hefur virkilega skeð. Kannse er maður bara svona gamaldags. Kært kvödd
mbl.is Köfunarslys í Silfru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vonandi tekst Hönnu Birnu "

Vonandi tekst Hönnu Birnu ætlunarverk sitt og á kannske eftir að gera flokkinn kjósanlegan. Það þarf að losa flokkinn við þetta útrásarlið. Mér finnst ekki vanta sköruleikan hjá henni andstætt Bjarna

 

Ekki held ég að Tryggvi Þór hafi gert Bjarna mikinn greiða með sínu útspili í morgun. Ég er alveg viss um þótt H.B.K. sé borgardama þá myndi hún sækja fylgi sitt til hinna eldri kjósenda úti á landi.

 

Hún höfgar til eldri heiðarlegra borgara. Sem vill þessar hag-/lög -fræðingaklíku sem nú stjórnar flokknum burt. Menn sem eru  flæktir í allslags "vafningaóreiðu" og óábyrga hegðun í fjármálum . Kært kvödd


mbl.is Hanna Birna í herferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"rekið stýrið niður"

Hefur hann bara ekki rekið stýrið niður í krappri öldu og misst það af ? Kært kvödd
mbl.is Stýrið féll af á leið út ósinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þjóðlegir siðir"

Mikið er nú gott að heyra að gamlir "þjóðlegir siðir" skulu uppteknir. En það mætti taka upp harðari refsingar við "stórþjófnuðum" að hætti yfirvalda  við sauðaþjófnuðum hér í den.

 

Það gat þýtt dauðadóm að stela kind. Menn ættu að lesa bók Guðlaugs Gíslasonar "Lífvörður Jörundar Hundadagakóngs" Um örlög hjónanna Jónasi Jónssyni og Sesselju Jónsdóttir frá Gjögri Afbrot þeirra var talið til stórfeldra auðgunarbrota.

 

 

Núdags auðgunarafbrotamenn kýla bara vömbina erlendis og hlæja að íslenskum stjórnvöldum sem standa máttlaus álengdar. Meðan fg menn ná öllum sínum tólum aftur. Búnir að fá milljarða á milljarða ofan eftirgefna.  Og geta nú komið ennþá öflugri aftur í sína gömlu iðju.  Á meðan svetla stórir hópar fólks. Kært kvödd


mbl.is Sauðaþjófnaður upplýstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Alveg eftir bókinni"

Alveg eftir bókinni hjá VG Ekkert rafmagn, engin viðskifti enginn vinna. Bara reyta aurana af ellilífeyrisþegum og þeim sem minna mega sín. Kært kvödd
mbl.is Dimmir yfir Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Rosalegt hugvit "

Rosalegt hugvit er nú þetta hjá VG  Það vita allir sem vilja vita að nýjasta fjárlagafrumvarpið bitar langharðast á þeim tekjulægstu öryrkjum ellilífeyrisþegum, Þar er klókindalegar skattahækkanir settar fram eins og gildrur.
 
 
Og það er ekki nema hámenntaðir reiknimeistara sem gera þær. En af þeim þ.e.a.s. hámenntuðum já og hálaunuðum fræðimönnum hafa VG gnótt af. Hámenntaði hálaunamenn sem mergsjúa ríkissjóð í gegn um bitlinga fegna af sínu fólki í cirkusnum við völlinn.
 
 
 
VG vita ósköp vel að þetta frumvarp sprengir öll þolmörk. Og þá berja þeir sér á brjóst og boða ekki frekari niðurskurð. Allir með greind yfir 10 ára barni vita að meira er ekki hægt að sjúga út úr fyrst nefnda hópnum. En snildin er að slá ryki í augun á fólki því þetta kemur ekkert þessum fjárlögum við Það á nefnilega ekki að skera meir niður í þarnæstu fjárlögum
 
 
 
Fólk er orðið svo dofið gagnvart þessum fáráðlingum sem stjórna að þegar það heyrir að vinir þeirra í VG ætla að hætta niðurskurði áttar það ekki ekki á að það er minnsta ár í það niðurskurðarstopp Svona ætla þeir að plata liðið. "Ja mikilr menn erum við Steingrímur minn og fallega pissar", já ekki fleiri orð um það Kært kvödd

mbl.is Óttuðust að frumvarp til fjárlaga færi í uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er löngu vitað"

Það er löngu vitað hvað stendur til. Það á að bíða með allar já allar framkvæmdir hvaða nafni sem þær nefnast þar til við (að ætlun forsætisráðherra) eru komin í ESB

 

 

Og með fullri vitund VG sem ekkert þykjast vita. Þeir eru að elta skottið á sér í einhverjum blindingaleik. Þeir muna t.d ekki hvort herópið er inn eða út úr Nató. Þeir þykjast heldur ekki kunna hvort nýja herópið sé inn eða ekki inn í EBE.

 

Svei mér þá ef maður fer ekki að hallast að því að ganga í EBE. Þá yrði þessi landlæga vildarvinavæðing vonandi gerð útlæg Og þá yrðu landsbyggðinni og framkvæmdum þar stjórnað frá Brussel í staðin fyrir 101 Reykjavík.

 

Þá yrði þessu vonandi stjórnað af fólki sem ber hag annars fólks en ekki bara sína og sinna fyrir brjósti. Af fólki sem hefur eitthvað annað milli eyrnana en samskonar graut sem neytt var ofan í mig barni.Kært kvödd


mbl.is 33 sagt upp á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Já þessir Baldrar eru góðir"

Já þessir Baldrar eru góðir í "hakkinu" Einn þurfti þó ekki að brjótast inn í neitt . Hann vissi sem var hvernig "hakkinu" var háttað. Kært kvödd
mbl.is Baldur besti hakkarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Eitthvað er hér sem"

Eitthvað er hér sem ekki passar : „Landsfundurinn telur það vera eitt af forgangsverkefnum VG,
flokkseininga og þingflokks, að herða róðurinn við að upplýsa þjóðina um
eðli og afleiðingar ESB-aðildar.“ En stjórn sem þessir hálfbj.... eru aðilar að er á fullu í undirbúningsviðræðum um aðild. Útlendingar hrista höfuðið yfir þessari andsk..... vitleysu. Fræg setning frá stríðsárunum:" haltu mér slepptu mér" á hér við. Kært kvödd
mbl.is Ályktun um utanríkismál samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Skelfing er gott að sjá"

Skelfing er gott að sjá að gróði sé hjá þessu liði. Það er kandhæðni örlaganna að sá flokkur sem lengst hefur gengið fram í að "plokka" ellilífeyrisþega öryrkja og þá sem minna mega sín, sé rekin með slíkum hagnaði. Gott að þessu VG liði líði vel með sína samvisku í skjóli gróða. Kært kvödd
mbl.is VG rekin með 21,8 milljóna hagnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég er nú ekki alveg sammála"

Ég er nú ekki alveg sammála öllu sem Lilja hefur haft fram að færa. En ég og ég veit um fleiri koma til með að fylgast vel með því sem á eftir að koma frá þessari mögnuðu konu. Kært kvödd
mbl.is Vill lýðræði í atvinnulífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er frábært að heyra"

Það er frábært að heyra hvað fólk er áhugasamt um þetta skip. Og þetta ætti að vera skýr skilaboð til stjórnvalda þessa lands að setja mál LHGÍ ásamt heilbrigðisþjónustunni í algeran forgang.

 

Það er eiginlega alveg furðulegt á þessari tækniöld þegar hægt er að kveikja undir kartöflunum með farsíma að ekki skuli vera hægt að skera meir niður í svokallaðri utanríkisþjínustunni.

 

Reyna t.d. að "tjóðra" ráðherra þeirra mála í heimahögum. Það mætti láta "borðfána" duga, eins og einn góður maður í sjórnsýslunni í gamla daga orðaði það svo skemmtilega á mörgm þessum EBE ráðstefnum.

 

Sem furðufuglarnir í VG vita ekki hvað snýr upp eða niður á. Önnur fræg orð "Ertu að koma eða fara" eiga við fg ráðherra. Hvað skildi ferðakosnaður hinnar svokölluðu "stjórnsýslu" vera orðin á þessu ári. Kært kvödd


mbl.is Hátt í 6.000 hafa skoðað Þór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nokkrir "velvaldir" menn"

Þarf enginn að svara fyrir hvernig stóð á þessu mikla tapi lífeyrissjóðanna. í áhættufjármögnun. Nokkrir "velvaldir" menn á ofurlaunum mega leika lausum hala  með fé sjóðanna að vild.

 

Og og ef enhverjum dirfist að segja eitthvað eru þeir miskunnarlaust barðir niður jafnvel með rógi. Ég vil minna á skrif Jóhanns Páls Símonarsonar sem ráðamenn sjóðanna  hafa reynt að niðurlægja á allan hátt. 

 

Og það er sama hvert er litið það borgar sig ekki að spara á íslandi. Ekki eru þetta góð skilaboð til unga fólksins. Það er á hreinu.

Kært kvödd


mbl.is Skerða rétt um 6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Maður skorinn á háls"

"Maður skorinn á háls í Mosfellsbæ" Svo hljóðar fyrirsögnin. Einhvernveginn ( en það er nú sennilega arfavitlaust) finnst mér það tákna að hann hafi verið drepinn.

Hefði ekki nægt að segja "Maður særður á hálsi" En það hefur sennilega ekki þótt nægilega æsileg fyrirsögn fyrir nútímafólk

 

Aðra fyrirsögn sá ég einhverstaðar  "Biskupinn fraus" Jæja hugsaði ég  lokaðist nú  kallinn inni í frystigeymslu. En þá var þetta í einhverjum leik nútímans sem gamlingi eins og ég skil ekki

Kært kvödd


mbl.is Maður skorinn á háls í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ekki ætla ég "

Ekki ætla ég að mæla dýraníði eða brengluðu kynlífi neina bót. En ég sé þetta með svolítið öðrum augum ef svo mætti segja.

 

Mér finnst þetta bara minna á þegar ýmsir svokallaðir "fyrirmenn/konur" þessa lands koma fram fyrir alþjóð og lýgin vellur svo úr báðum munnvikjum að manni verður óglatt. Og ætlast til að við þessir sauðsvörtu hérna niðri jörðinni trúi öllu bullinu.

 

Það hefur mörg vændiskonan breyst í asna og öfugt í meðförum þessa liðs Kært kvödd


mbl.is Segir vændiskonu hafa breyst í asna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"engin spurning "

Mér finnst það engin spurning um hver eigi að fá verðlaunaféð. Vitanlega Lögreglan. Nú hlýtur lögleysingunum í VG að líða ílla. Lögreglan að standa sig á heimsmælikvarða. Kært kvödd
mbl.is Óvíst með verðlaunaféð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Til hamingu "

Til hamingu Landhelgisgæslumenn já og aðrir íslendingar með þetta gæsilega skip. Sem vonandi verður hér til frambúðar til aukins öryggis sjómanna við Ísland. Og til öryggis landsmanna allra í landi sem náttúruhamfarir geta skeð hvernær sem er. Kært kvödd
mbl.is Þór var vel tekið í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ná lögum og rétti"

Það þarf einhvern veginn að ná lögum og rétti úr höndum VG Það er brýnna mál en skifta um forseta. Kært kvödd
mbl.is Stjórnvöld veikja lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 536779

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband