24.1.2012 | 22:01
Bla bla
En og aftur sér maður hve mikil áhrif það hefur á mann að vera alltaf að rífa kja.. á neikvæðum nótum. Ég ætlaði að fara að röfla yfir stjórninni og veðrinu jafnvel. En sá að það yrði ekki til neins. Sá sem öllu ræður hver sem hann svo er, og er úti í óravíddum veraldrar virðist ekki heyra til gamals kjaftasks sem ekki er lengur til neins nýtur.
Nú fer maður yfir "ferilinn" í huganum
Og ekki þýðir að rífast um Jóhönnu hún virðist vera enn þá lengra úti í óravíddum alheims. Allavega finnst mörgu fólki það. Og að mikið íhuguðu máli ákvað ég að vera þægur og vera þöglum um ástandið Og ekki leyfa mér að vera einusinni ósáttur við stöðu mína því hún er að töluvert sjálfsköpuð. Vitanlega átti maður sína drauma Sumir rættust aðrir ekki. En málþingið í litla snotra húsinu ( sem þessvegna mætti mála á komandi sumri) við höfn friðar úti á landi heldur áfram þótt fjand... handboltinn trufli það eins og sjónvarpsdagskrána. En nóg umræðuefni er alltaf á dagskránni í þessari miðstöð munnlegra sagna. Fyrir kemur að kvenfólk ber á góma en allir þátttakendur eru hrifnir af konum.Og bera mikla virðingu fyrir þeim.
Þetta er nú bara "kallabrandar" um reikniskunnáttu kvenna
Og tala um þær að þvílíkum hlýhug að hörðustu femínistarnir myndu jafnvel roðna niður í tær. Ekki eru menn sáttir um kenningar margra meðbræðra sinna um gáfur þeirra sérstaklega þeirra ljóshærðu. Ég eignaðist börn með tveimur konum. Önnur var ljóshærð hin dökkhærð. Sú dökkhærða giftist mér en sú ljóshærða neitaði.
Tæknilegi mismunurinn á konu og karli
Þetta segir mér persónulega meir en mörg orð. Og fræg er sagan um þegar skifti þurfti að skifta um heila í manni. Þá voru karlmanns heilarnir sem í boði voru fokdýrir enda lítið notaðir En kvennmannsheilarnir á útsöluverði vegna mikillar notkunnar. En þetta var nú saga úr framtíðinni.
Þeir efri voru meira notaðir Allavega til vissra hluta
Ekki veit ég af hverju stelpur mega ekki borða bláan ís og eða öfugt En sumir segja að allt kvenfólk ætti aðforðast að borða flestar tegundir ís. Að maður tali nú ekki um svokallað banana split. Ef hugsa þyrfti um línurnar allavega næstu níu mánuði
Ís er oft forboðinn fyrir konur
Og vilja margir halda því fram að grænmeti sérstaklega gulrætur séu þeim virkilega hollar Umhugsunarvert þegar það er tekið í reikninginn að gulrætur eru kynblendingar úr næpum og káli. Það virðist alltaf þurfa að blanda "kyn eitthvað" í öll mál.
Halda sér við gulræturnar
Ýmsir eru alerir dellukallar í ýmsu og það á nátturlega líka við um konur Vinur minn er dellukall á mótorhjólum og hugsar um hjólið sitt eins og góð húsmóðir (gamaldags hugsun kannske?) um eldhúsið Ekki þekki ég neina konu sem er með mótorhjóladellu. En ég gæti ímyndað mér hvernig þær hugsuðu um hjólin eftir að hafa kynnst þessum víni mínum. Þar eru margir smáir hlutir hlutir sem þarf að pússa
Eins og góð húsmóðir
Og ég hef alltaf haldið því fram (og það í fullri einlæpgni) að konur séu miklu meiri stjórnendur en karlar. Helv..... smámunasemin sem getur verið í þeim gerir það að verkum að hlutirnir eru skoðaðir frá fleiri en einni hlið. Verstu tollþjónar sem maður gat fengið á sig voru konur Og eins var með lögreglukonur. Þetta er ekki sagt til þessum hópum kvenna til minnkunnar heldur til hróss ( segir gamli smyglarinn !!!!)
Þetta tvennt varð manni alltof oft að falli (geng útfrá að vökvinn sé ekki vatn)
Mér var oft hált á svellinu þegar vín átti hlut Og oftar en einusinni og oftar en tvisvar fann ég að vín og víf áttu enga samleið. Oftar en tvisvar en samt já. Það er oft of seint að iðrast eftir dauðann Og það í orðsins fyllstu merkingu.
Að láta sér dreyma er ekki bannað enn eða hvað?
Þegar ég var að skrifa þetta bull og þurfi að "seifa" það, setti ég sem fyrirsögn Bla bla. En ætlaði svo að breita því eftir efninu. En ég held að ég haldi mér bara við það. Ég vona bara að engin taki þetta bla bla sem einhverja óvirðingu við konur. Slikt er fjarri mér enda ber ég mikla virðingu fyri og aðdáun á þeim í brjósti mér. Eini ljósi punturinn í handbolta ..... já eða þannig er, að það er falleg kona sem kemur alltaf á skerminn þegar leikir eru krufnir eftir á Verið ætíð kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2012 | 23:45
"Einhvertíma hefði "
![]() |
Lýsa vantrausti á forseta Alþingis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2012 | 21:21
"Ég hef aldrei skilið"
Ég hef aldrei skilið veru Þráin á þessu svokallaða alþingi. Hvað liggur eftir þennan mann þar ??. Sem alltaf sýnist hálfsofandi séu birt "skot" úr salnum þar. Þetta sýnir betur en margt annað tilgangsleysi þessa hóps sem safnast saman þar.
Ekki er ég hlynntur Geir Harde eða stjórn sem hann stýrði. Og ég er á móti því að sérstaklega fv "hrunráðherrar" skuli sitji í þessum hóp. Og sérstaklega að ráðherrar úr hrunstjórninni skuli sitja sem ráðherrar í stjórn líðandi stundar Það finnst mér nú taka yfir allan þjófabálk.
En þetta finnst þessum fyrrnefnda leikstjóra vel líðandi. Bara ef þeir makki eftir hans skapi. Þetta sýnir bullið í stjórnmálum dagsins í dag í dagsljósinu. Og með hækkandi sól eftir að sannast enn betur Kært kvödd
![]() |
Vildi Össur lengur í Rúmeníu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2012 | 20:36
"rétta stöðu ríkisstjórnarinnar"
Enn og aftur,enn og aftur reynir þessi maður að rétta stöðu ríkisstjórnarinnar í augum okkar 100.000 krónu fólksins.
Það væri gaman að sjá niðurstöður úr ef Gallup gerði könnun á vinsældum hans. Almennur borgari þessa lands er steinhættur að trúa þessum foringum sem þiggja milljónir á mánuði nú um stundir.
Eiginlega ekki fyrir annað en reyna að fegra svikasjórnina sem nú er við völd í landinu. Kært kvödd
![]() |
Eiga í viðræðum við stjórnvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.1.2012 | 19:56
"landinu dýrkeypt"
Já það urðu verkalýðnum í landinu dýrkeypt þegar hagfræðingarnir náðu sínum sess í ASÍ. Ég fer ekkert ofan af því.
Og þessi grein sýnir best hve langt forustumenn þeirrar hreyfingar eru skriðnir upp í. Ja þið megið ráða hvaða líkamshluta Jóhönnu & co þið notið í samhenginu. Þetta segir líka meir en þúsund orð hve eldriborgarar og slíkir hópar eru algerlega vopn og varnarlausir.
Það er eins augljóst og frost á Fróni að þeir hópar mega bara frjósa í hel með glottandi "útrásarvíkinga" með milljarða eftirgjafir og milljóna arð af miljörðum í skattaskjólum og allslags felustöðum í baksýn
Það liggur við að maður skori á gamlar refa og rjúpnaskyttur að taka fram "haglarana" og ,nei maður má ekki hugsa svona.Og mikil skelfing mega íslenskir stjórnmálamenn skammast sín í dag. Þeir horfa á þetta algerlega afskiftalausir.
Enda eru þeir sem kenna sig við þá sem vildu í "gamla daga" gera veg þeirra sem minna mega sín sem mestan eru nú að níðast sem mest á þeim. Og nú þegar maður heyrir orðið vinstri menn eða norræn velferð þá dettur manni í hug orðatiltækið "snúið roð í hund". Kært kvödd
![]() |
Vantrauststillaga fékkst ekki afgreidd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2012 | 18:52
"bregðast krosstré sem og önnur."
Jæja svo bregðast krosstré sem og önnur. Það lesa kannske aðrir eitthvað annað út úr þessu. En þetta segir mér ekkert annað en það, hvað eldri borgarar eru forsvarslausir og varnarlausir gegn svikum þessarar "tæru vinstristjórn".
En staðreyndin er bara sú að Jóhanna & co vita upp á hár hvað þau eru að gera. Þau vita upp á hár að fáir vilji verkföll. Að þessi maður skuli segja þetta er eins og það sé búið að "stela frá manni glæpnum" Það er að renna upp fyrir mér að það á ekkert að ske í málum eldriborgara.
Það á að fórna þeim fyrir vinnufriðinn. Sem er kannske best því ég held að lunginn af þeim vilji vinnufrið í landinu. Því verkföll kæmu þess vegna verst niður á þeim. Þessar "vantraust" yfirlýsingar eru gagnlausar í baráttu eldriborgara fyrir endurheimtingu á kjörum sínum. Vantraust gildir bara ínn í sölum hússins við völlinn. Og þá bítur maður aftur í skottið á sjálfum sér.
Hvað tæki við fengi stjórnvöld vantraust samþykkt á sig þar??. Ég sé satt að segja ekkert í pípunum sem kæmi sér vel fyrir þá sem minna mega sín. Og þetta vita stjórnarherrarnir / frúnnar mæta vel. Þessvegna ofsækja þau þá sem þau þora að hamra á.
Þessvegna er fólk sem enn veltir milljónum á mánuði hreinsað af milljarða skuldum, meðan 100 þús kr maðurinn er enn rúinn inn að skinni. Ja svei og mikið mega nv ráðamenn skammast sín fyrir meðferðina á þeim sem borguðu sína skatta og skyldur í tugi ára. Sem jafnvel kostaði þá beint bak og góða heilsu. Kært kvödd
![]() |
Þungur tónn vegna svika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2012 | 17:06
"alþingismenn farnir að ljúga"
Jerimías. Eru nú svokallaðir alþingismenn farnir að ljúga. Þessu er erfitt að trúa. Það kom einkennilegt atvik fyrir um daginn. Ég "gúgglaði" um daginn nafn eins af forustumönnum þjóðarinnar. Ég breytti nokkrum sinnum um áherslur á nafninu svo margvíslegar slóðir komu upp.
En í hverri einasta skoðun kom spítu kallinn Gosi upp. Hvernig sem á því stóð. Ég athugaði það ekkert nánar. En við sem lásum þessa sögu í gamla daga, munum hvernig nefið á honum breittist. Það var stundum notað á mann. Svo að stundum athugaði maður á sér nefið ef maður hafði ekki fetað einstigi sannleikanns Kært kvödd
![]() |
Segir Þór Saari skrökva |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2012 | 16:18
"reyna á réttarkerfið"
![]() |
Sjö fyrrverandi stjórnendum stefnt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2012 | 15:50
"að skvetta vatni á gæs"
![]() |
Ríkisstjórnin standi við loforð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.1.2012 | 13:19
"Stefna og athafnir "
"Stefna og athafnir flokksforystunnar eru að hrekja í burtu stóran hluta þeirra er kusu flokkinn í síðustu alþingiskosningum" Nei nei Steingrímur/Jóhanna þetta er ekki frá Samtökum Atvinnulífsins Þetta er frá óbreittum (mætti kannske kalla þreittum) félögum í VG úti á landi.
Bragð er að ef barnið finnur Það má nú segja Og þrátt fyrir svona aðvaranir reyna þau "Bakkahjú" að bera sólskinið inn í húfunum en það kemur bara enn meira myrkur úr þeim. Og nú er hætt að skína á alla skalla. Það getur vel verið að fyrrgreind hjú geti lifað af útborguðum 110.000 á mánuði. En sauðsvartur bitlingalaus almenningur getur það ekki. Kært kvödd
![]() |
Steingrímur íhugi stöðu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.1.2012 | 19:52
"Starfshópur um myrkraverk"
Starfshópur um myrkraverk. Þetta mislas ég þegar ég sá fréttina. Hugsaði strax er Svandís að ná áttum um stjórnarfarið. En svo bresta krosstré sem önnur tré. Myrkravernd var það heillin.
Og aftur lyftist á manni brúnin. Á nú að fara að vernda okkur eldriborgara og þvílíka fyrir myrkrinu sem þessi ríkisstjórn eys yfir okkur. Nei og aftur nei. Það er ekkert í spilunum hjá þessari "tæru" vinstri stjórn sem sýnir einhverja glætu hjá þessum hópum. En gaman væri að vita hve margar nefndir og starfshópa væru í gangi í stjórnkerfinu og hve mikið væri eytt í slíkt.
Hvað skildu margar "afætur" frá hinum ýmsu stjórnmálaflokkum sitja í þeim á launum frá okkur hinum sauðsvörtu. Hópar og nefndir sem jafnvel eru bara nafnið en meðlimir taka sín laun fyrir setu þar.Það kemur sennilega alltof mikið við kaunin á liðinu í húsinu við völlinn að nokkrum úr þeim hópi langi til að vita það.
Það má varla hundur míga upp við staur núorðið örðuvísi en stofnaður sé um það starfshópur. En það nafn virðist nú vera fínna orð en nefnd. Og í það virðast oft nægir peningar vera til . Þetta lið ætti að sjá sóma sinn í að setja á stofn starfshóp án allra prófessora og hagfræðinga sem virkilega athugar stöðu þess fólks sem kom þessari þjóð til mennigar og mennta. Fólk sem fædd er á fyrrihluta síðustu aldar. Ég vil meina að hagfræðingabylgjan hjá ASÍ hafi valdið verkalýð þessa lands óbærilegu tjóni. Kært kvödd
![]() |
Starfshópur um myrkravernd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.1.2012 | 18:47
"Fyrst að ákæra á einhvern "
Fyrst að ákæra á einhvern í þessu máli á að ákæra heila settið. Og einhverstaðar í "siðuðu" þjóðfélagi hefði þjóðþingið "losað" sig við allt það fólk sem hægt er að bendla við þetta margumtalaða hrun.Fyrst margt af í aðdraganda þess varðaði við lög.
Nei ekki í hinu svokallaða velferðarríki Íslandi. Þar sem ráðamenn tala um bananalýðveldi með hæðnistón í röddinni. Nei hér, fá þeir jafnvel bara stöðuhækkun. Banana hvað?????? Kært kvödd
![]() |
Fleiri verði dregnir fyrir landsdóm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2012 | 18:09
"Já Jóhanna gagnrýnir"
Já Jóhanna gagnrýnir Samtök Atvinnulífsins út af gagnrýni þeirra á svikum á gefnum loforðum En hún minnist ekkert á máttlausa gagnrýni ASÍ enda veit hún um þægu drengina sína þar.Þeir gera enginn "skammarstrik" af sér Þeir hafa hljótt um sig nú.
Virðast hafa tekið ljóð Davíðs alvarlega þegar hann kveður m.a: "Þeim gleymist oft sem girnast glaum og dans./ að ganga hægt hjá verkamannsins kofa/. Ó, hafið lágt við litla gluggann hans/og lofið dagsins þreytta barni´að sofa...." Þessir ASÍ dindlar ganga nú virkilega hjótt framhjá húsum eldriborgara og annara í viðlíkum hópum Þessa menn auk stjórnarherrana þarf að losna við. Og þetta sýnir manni betur en margt annað helv.... hræsnina sem gegnsýrir svokölluð "stjórnmál"
Og hefur kannske alltaf gert. En ljósleiki þess hefur aldrei verið skýrari en akkúrat nú. Mikið skelfing getur þetta barnabarn Jóhönnu Egilsdóttir hagað sér illa gegn hennar hugsjónum.Sem barðist fyrir "dagsins þreytta barni" á sínum tíma. Kært kvödd
![]() |
Gagnrýndi harðlega Samtök atvinnulífsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2012 | 18:44
"saga vinstri manna"
Er þetta bara ekki hin einkennilega saga vinstri manna hér á landi. Að geta ekki unnið saman. Og sumir telja það met hve ríkisstjórnarflokkarnir hafi hangið lengi saman.
En í mínum huga er það ekkert einkennilegt. Ríkisstjórnmeðlimir eru engir "vinstri-menn /fólk" Þetta eru alverstu "íhaldskurfar" sem hér hafa stjórnað í tæpri 68 ára sögu lýðveldisins. Kært kvödd
![]() |
Bæjarstjóri nýtur ekki trausts |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.1.2012 | 21:43
"Skelfing má "
![]() |
Hætta þátttöku í starfshópi ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.1.2012 | 21:28
"Var það kannske"
![]() |
Vegurinn opnaður vegna jarðarfarar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.1.2012 | 13:31
"Réttur manna til að sækja rétt sinn"
"Réttur manna til að sækja rétt sinn" virðist fara eftir efnahag. Samningar um kjör eldriborgara og fl voru sviknir rétt eins og samningur við Seðlabanksstjóra En þessir hópar hafa engin efni á að sækja rétt sinn eins og "stjórinn"
Og engin ætlar að sjá til þess að samningar við eldriborgara verði haldnir. Allavega ekki ríkisstjórnin hin fyrsta "hreina vinstristjórn" eða algerlega máttlausir fylkisveinar hennar hjá ASÍ. Fyrir þetta má þetta fólk skammast sín um aldur og æfi.
Því það voru nú þeir sem nú tilheyrir efri flokkum "eldri borgara" sem kom þessu fólki til mennsku og mennta. Og fótunum undir það samfélag sem við búum við í dag. Og þessi "hreina vinstri stjórn " mun verða alger grýla á þá sem kannske kæmi til að hugsa til vinstri í framtíðinni Kært kvödd
![]() |
Getur sótt rétt sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.1.2012 | 20:59
""nýmyndun" hafíss??"
![]() |
Greindi nýmyndun hafíss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.1.2012 | 20:49
"Já þó ekki sé"
![]() |
Sandað í Reykjavík á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.1.2012 | 00:39
"minnst bera úr býtum "
Í þessari frétt segir:"Flest loforð um bætt kjör til handa þeim sem minnst bera úr býtum hafa verið svikin " Í annari frétt segir: "Félagið telur ólíðandi með öllu að kjarasamningar skuli vera í uppnámi vegna vanefnda stjórnvalda og skorar á stjórnvöld að standa við gefin loforð" Þetta eru hvoru tveggja tilkynningar frá sitthvoru Verkalýðsfélaginu til sjórnar "hinnar vinnandi stétta" eins og ég sá þessa ríkistjórn einusinni kallaða.
Og þrátt fyrir miklar upphrópanir á sínum tíma frá forustu ASÍ er þetta nú orðið að smásuði. Getur sæmilega skynsamur maður sem man lengra en tvö eða þrjú ár aftur í tíman gert sér í hugalund hvernig þau Jóhanna og Steingrímur væru búin að láta í ræðustólum nú væri hér "hægrisjórn" Já og vissir drengir í ASÍ . Þá væru þeir ekkert að velta sér upp úr kauphækkun á næstunni. Þá myndi allt vera logandi í verkföllum. Sjaldan hefur tilgangsleysi stjórnmála og sleikjuháttur sumra svokallaðra verkalýðsforinga verið jafn berlegur
Það var æpt fyrir nokkrum misserum SVIK VIÐ KJARASAMNINGA "En nú er söngurinn hljóður og horfinn,. aðeins hljómar frá bjöllunnar klið" Eins og þægum drengjum ber að vera. Mamma Jó og pabbi Stein búin að siða óþekktar ormana sína. Og allt komið í frið og spekt. Eldra fólk sem "slysaðist" til að veita þessu liði brautargengi verður nú illilega fyrir barðinu á þessu áttavillta "Íhaldspakki" sem telur sig vera á vinstri kantinum en gengur afturábak. Og allt sem það gerir eru skref afturábak Kært kvödd
![]() |
Flest loforð verið svikin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar