"máli þessa kínverja "

Ekki ætla ég mér að hafa skoðun á máli þessa kínverja aðra en þá að það virðist vera nákvæmlega sama, ef einhver kemur með einhverjar tillögur um erlent fjármagn ínn í landið þá stíga VG á allar bremsur.

Þó aðalfuglinn og yfirkjaftaskurinn sé með eitthvað orðagjálfur um nauðsyn þess að fá slíkt inni landið. Þessi margsinnis 360° flokkur vill engar framfarið. Og það fer þeim síst af öllum að tala um "Íhaldið" því sennilega hefur annar eins afturhaldsflokkur ekki litið dagsins ljós á þessu landi og sennilega verður að fara til N-Kóreu til að finna álíka afturhaldstarfa.

VG vill færa okkur á þann sama stað og rússar voru á eftir febrúarbyltinguna 1917 en í kjölfar hennar bönnuðu bolsévíkar alla stjórnmálaflokka og blöð frá þeim, þjóðnýttu banka og einkaeignir og bönnuðu nánast öll viðskipti. Það er hreinlega það sem er að gerast hér á landi í dag.

Og ég minnist þeirra mörgu gömlu heiðarlegu vinstrimanna sem unnu baki Brotnu til að koma þessari þjóð á lappirnar. Að þessi andsk..... hátekju auðnuleysingalýður sem aldrei hefur difið hendi nema í hlandvolgt vatn skulu voga sér að kalla sig eftir þeim er með endemum, VG vilja kommisara ofan á kommisara með allri þeirri spillingu sem af því hlýtur. Og nú bíður maður bara eftir að Gaddafi fái hér pólítíst hæli Kært kvödd



 


mbl.is Huang: Viðskipti ekki pólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gróði á þessun flokki"

Það er ekki nema von að að það sé gróði á þessun flokki Lunginn úr liðinu er hátekjumenn á ríkisjötunni. Sumir flokksmenn giftir lögmönnum sem hafa malað gull á hruninu. Og af því þeir eru svona viljugir til að setja allslags nefndir á stofn Af hverju er þá ekki ein sett til að rannsaka þátt einnar þingkonunnar fv forseta alþingis og fv ráðherra í uppþotinu þegar Steingrímur varð að draga hana af vettfangi í beinni útsendingu, Kært kvödd
mbl.is Mikill hagnaður hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"flokkur manna þessir VG"

Þetta er einkennilegur flokkur manna þessir VG. Nú eru víst einhverstaðar til peningar til að stofna eina klíkuna, nei fyrirgefið nefndina enn. Þeir urðu vitlausir yfir að flokksbundnir pólítíkusar kæmust ekki í stjórn Byggðarstofnunnar. Við sem erum eldri en tvævetur munum hve miskunnarlaust sú stofnun var misnotuð af pólítískum ævintýramönnum. Þessu vilja þeir halda við. Kært kvödd
mbl.is Vilja rannsóknarnefnd vegna Líbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Gömlum og gegnum"

Gömlum og gegnum Bornesing hér í den þótt gott í staupinu. Eins og kannske fleirum frá þeim stað!!!!

Þessi umræddi maður ferðaðist alltaf um á reiðhjóli. Hann gat komið hjólandi, þessvegna eftir beinni línu en stóð svo varla í lappirnar þegar hann steig af hjólinu svo fullur var ´ann. Hann hefði þessvegna geta "platað lögguna" með sínum hjólreiðum.

En ekki er ég að mæla ölvun hvort sem er í umferð eða neinstaðar annarstaðar bót, Bara rifað upp skemmtilegt minningarbrot Kært kvödd


mbl.is Drukkinn á reiðhjóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"stundum svolítið skrítnar"

Mér finnst sumar fyrirsagnir stundum svolítið skrítnar. Ég hef nú verið ófullur í 30 ár en keyri nú samt stundum á tveim akgreinum. Að vísu ekki í einu. Svo allt þetta tal um Eista. "Íslendingar fagna með Eistum" var ein fyrirsögnin. Menn virðast ekki nenna að skrifa "Eistlendingum" En þessi stytting er víst góð og gild íslenska. Kært kvödd
mbl.is Ók á tveimur akreinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sauðsvartan almúgamann"

Það er fyrir svona ómenntaðan sauðsvartan almúgamann eins og mig algerlega óskiljanlegt hvernig þessu er öllu háttað. Fái lálaunamaður/kona nokkra % launahækkun ætla allt á annan endan.

Skatta þarf þá að hækka og þrenga enn meir að þeim sem minna mega sín. Steli nokkrir auðmenn milljörðum og flýi með það úr landi er ekkert gert til að ná í þá. Þeir mega ávaxta sinn ílla feng erlendis að vild án nokkurar truflunar frá stjórnvöldum hér.

En ef leikskólakennari.... nei ég skil þetta ekki og kem sennilega aldrei til að skilja það. Kært kvödd


mbl.is Tekjuaukning eða niðurskurður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" skifta um lið í Stjórnarráðinu"

Vitaskuld vilja núorðið flestir skifta um lið í Stjórnarráðinu. En eigum við ekki að nota til þess löglegar aðgerðir. Og þeir sem til þess veljast fari inn um aðaldyrnar. Kært kvödd
mbl.is Fóru upp á þak Stjórnarráðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú vantar þá hópa"

Nú vantar þá hópa sem minna mega sín í þessu þjóðfélagi, að minnstakosti afsökunnarbeiðni frá stjórnendum þessa lands.Fyrir eyðslu á peningum úr sjóði okkar allra í þá hít sem hefur fengið nafnið Harpa. Hítin sem flesta peninga gleypti varð þá ekki sú dýrð sem ætla mátti.

"Eins og biluð jólatréssería" segir nú einn menningarvitinn "Svart og kalt einsog sorgin. Ljósaverkið bætir ekkert,“ segir annar. Ekki ætla ég mér að hreykjast yfir þessu klúðri.

En mér finnst þetta heldur tregara en tárum taki. En ekki gréti ég þó eitthvað af "aðlinun" fái flensuskít af verunni þar inni. En þetta lið á víst nóg af loðfeldum til að brúka þarna inni

En mér finnst að þeir sem þessu réðu fremur öðrum ættu að biðjast afsökunnar á klúðrinu. Penigum eitt til einskins allavega lítils. Kært kvödd


mbl.is Glerhjúpur Hörpu tendraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipasmiðir í nokkra ættliði

Ein er sú ætt sem skilað hefur af sér eina kunnustu skipasmiði landsins og það i nokkuð marga ættliði. Bergsætt. Þar má nefna bræðurna Þórð Jónson kenndur við Berg hér í Eyjum Guðmund (eldri) kendann við Háeyri  Gunnar Marel og Magnús, og frændi þeirra bræðra Runólfur Jóhannsson,

Langafabarn Gunnars er löngu orðin kunnur skipamódelsmiður.Enda orðlagður nákvæmnismaður við allt  sem hann tekur sér fyrir hendur  Tryggvi Sigurðsson heitir hann og er starfandi vélstjóri á v/b Frá Sem er í eigu Óskars frænda hans afabarn Guðmundar eldri frá Háeyri. En nú hefur Tryggvi eignast skæðan keppinaut í líkanasmíðinni. Þ.e.a.s. sjálfan útgerðarmanninn

Hér er Tryggvi með eitt af sínum skipalíkönum m/b Gófaxa VE

982a4e60 501f 4cab 8651 db84574756a0 MS 1

En hér er núorðinn aðalkeppinauturinn með sitt líkan (menn mega ráða nafninu)

DSCN0781

Ekki er hægt að sjá hvor er stoltari af sínu líkani

Tryggvi er líka frægur mótorhjólamaður. Formaður þesslags klúbbs hér í Eyjim sem heitir "Drullusokkar". Mér þykr virkilega vænt um þessa vini mina. Og nú bið ég þann er flestu ræður (ég reyni nú alltaf ráða einhverju sjálfur) að Óskar vinur minn fari ekki að reyna að apa þessar hjólaæfingar eftir frænda sínum líka

Hér er "Drullusokkur no 1"

Drullusokkur no 1

Allavega ef árangurinn yrði í einhverri líkingu við .... Ja nú er ég komin út á hálan ís og kominn tími til að halda kja...  Verið ávallt kært kvödd

PS: Tryggvi heldur út heimasíðu http://batarogskip.123.is/home/  sem vert er að skoða

Sami


"Það þyrfti að hlaupa"

Það þyrfti að hlaupa íllilega hland fyrir hjartað á einhverju úr þessu liði sem nefndir eru ráðherrar, upp í óbyggðum. Það illilega að sækja þyrfi þá með þyrlu sem svo í því tilfelli væri ekki tiltæk.

Þá skildi þetta lið brýna nauðsyn á að því að alltaf sé tiltæk björgunarþyrla í landinu. Þetta þyrluleysi er einn ömurlegasti bletturinn á orðspori á þessari ömurlegu ríkisstjórnar. Það virðast alltaf vera til peningar til alls sem hefur "menningu" sem viðbót í nafni.

Og mikið gerði nú þessi sem virðist allaf sofandi á myndum úr þingsölum þjóðinni mikinn greiða ef felli hann stjórn Jóhönnu & co út af útskriftum á minna en 100 leikstjórum á ári. Að hans mati eru peningar betur komnir til þess en að bjarga fólki í nauð á sjó eða landi. Kært kvödd


mbl.is Hróplegur þyrluskortur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fórnfýsi

Ég hef haldið út síðu á 123.is sem heitir http://fragtskip.123.is/ Ég var um daginn að fjalla um siglingar íslendinga á stríðsárunum seinni. Og við undirbúninginn hef ég leitað fanga í timarit.is. Og þótt ég hafi ekki birt það hef ég oftar en ekki lesið um mikla fórnfýsi margra sjómanna. Helsærður skipstjóri sagði t.d.við skipsmenn sína þegar þeir eftir hatrama árás kafbáts : "Hugsið þið um Steina fyrst"En Steini var bróðir hans sem líka var helsærður.

Og mér finnst satt að segja allar siglingar til og frá landinu á stríðsárunum  lýsa fórnfýsi. Ég hef átt orðastað við menn sem sigldu öll þessi ár, og þeir sögðu; "menn þurftu bara að gera þetta". Það þurfti að koma nauðsynjum til landsins og  það þurfti að afla gjaldeyris. En fórnfýsi er sennilega jafngömul manninum. Þó sumir hafi haldið sig til hlés hvað hana varðar Jón Guðmundsson frá Gamla Hrauni á Eyrarbakka átti 9 syni sem komust upp og uru þrír þeirra skipstjórar á vélbátum í Vestmannaeyjum og einn á Akranesi Elstur var Þórður á Bergi ( 1887 - 1939 ) var formaður m.a á Enok VE 164

 Top.bmp Enok VE 164 

Guðmundur eldri á Háeyri (1888-1976) formaður m.a á Olgu VE 139 Jafnhliða formennskunni smíðaði Guðmundur þrjá 11 lesta báta árið 1915 og voru þeir allir tilbúnir fyrir vertíð.

Olga  Olga VE 139

Gunnar Marel ( 1891- 1979 ) Öðu VE VE 146  Gunnar byggði ásamt öðrum Dráttarbraut Vstmannaeyja 1925. Og byggði eftir það fjöldan allan af bátum Þ.á.m m/b Helga VE sem þá var stærsta  tréskip sem smíðað hafði verið á Íslandi Langafabarn Gunnars er Tryggvi Sigurðsson löngu landskunnur skipalíkanasmiður og nv vélstjóri á Frá sem Óskar afabarn Guðmundar (eldri) á og gerir út

Aða Aða VE 146

Guðmundur yngri ( 1908-1972) sem frægastur varð þegar hann hélt skipi sínu á floti, þrátt fyrir að margir töldu bátinn af í fárviðri í jan 1952´

Hér er blaðsíða úr "Eyjar gegn um aldirnar" þar sem þrír af bræðrunum koma við sögu

Top.bmp Þarna segir frá þegar Eyjabátar komu úr róðri einn daginn í febrúar vantaði einn bátinn Enok VE 164 þar sem einn af þeim Gamlahraunsbræðrum Þórður var formaður á. Þrátt fyrir slæmt veður A hvassviðri og brim fer bróðir hans Guðmundur (eldri) formaður á Olgu aftur út í sortan að leita að bát bróður síns Og finnur hann vélavana á reki V við Eyjar Tekur hann í tog. Þá er veðrið orðið svo slæmt að höfnin var ófær. Komst Olga með hinn bilaða bát undir Eiðið. Og lágu bátarnir þar um nóttina. Daginn eftir var veður orðið skaplegra og komust þá báðir bátarnir klakklaust til hafnar.

Á  sömu síðu segir frá hrakningum Öðu VE 146 í apríl sama ár. En vél bátsins bilaði er hann var á leið heim úr róðri. Tókst bátsverjum að heisa segl og sigla undir Ofanleitishamar og legjast þar við akkeri. En legufærin gáfu sig svo bátinn rak fyrir sjó og vindi til haf, Það á að vera hægt að stækka myndina af blaðsíðunni svo að hægt sé að lesa um þetta þar. Þessir umræddu bræður voru sjöundi ættliðurinn af skipstjórum. Svo féll einn úr en nú eru tveir liðir komnir í viðbót þeir Óskar Þórarinsson  (sonarsonur Guðmundar Jónssonar eldri) fv skipstjóri ávallt kenndur húsið sem afi hans byggði 1911 og sonur hans Sindri sem nú er skipstjóri á bát pabba sins Frá. 

P7040002 Frár VE

Það eru svona sögur sem á að segja börnum á Íslandi en ekki einhverjar Spidermans eða einhverjar nútíma ofurhetjusögur Þessir menn voru heimasmíðaðir ekki innfluttir fra USA. Kært kvödd


" reykur frá þessu."

Var ekki töluverður reykur frá þessu. Voru slökkviliðsmennirnir, (með mikilli virðingu fyrir þeim og þeirra störfum) bara kátir í lokin. Kært kvödd
mbl.is Talið er að kviknað hafi í út frá fjöltengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" til að dáðst að"

Jæja vantaði femínistunum fyrir sunnan eitthvað til að dáðst að. Ég var nú að spegúlera nei þetta rýrnar víst svo komið í spíra. En þær sem þekktu vinsælan fjalla bílstjóra náið ættu að geta sagi manni það. Kært kvödd
mbl.is Reðasafnið til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hvað segja"

Gvöð. Hvað segja Femínistarnir um svonalagað. Maður er fyrirfram dolfallinn Kært kvödd
mbl.is Koma naktar fram á dagatali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Ágúst 2011
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 79
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 537404

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband