"og elstu taugar"

Mikið fer það í mínar fínustu og elstu taugar þetta andsk..... háðsglotti sem mér finnst vera á andlitum sumra "þessara" manni í fjölmiðlaviðtölum. Kært kvödd
mbl.is Yfirheyrslu lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ásættanlegt samkomulag"

Vonandi er þetta ásættanlegt samkomulag fyrir þessa "dýrmætu" menn Kært kvödd
mbl.is Slökkviliðsmenn sömdu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

""mættur og VEL undirbúinn""

"mættur og VEL undirbúinn" sagði þessi "Wanted%20Dead%20or%20Alive maður Það er nefnilega það. Þessir kumpánar eru með okkar fé búnir að njóta aðstoðar fokdýrra og kænna lagasnápa og eru "VEL UNDIRBÚNIR" Hræddur er ég um ef hann reynir að sleppa út aftur þá verði það aðrir en lögjafinn sem stoppar hann ef til þess kemur.  það sem svíður hvað mest í augun er að sjá þessa glæpamenn sællega og skælbrosandi framan í fjölmiðla á meðan að fátæklingar verða, af þeirra völdum að svelta. Kært kvödd
mbl.is Sigurður mættur í yfirheyrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"komin á botninn"

Ég er viss um að við hérna niðri á jörðinni erum ekki enn komin á botninn. Þessir háloftasérfræðingar eiga eftir að finna einhvað til að geta mergsogið okkur áfram. Við hérna niðri megum ekki fá krónu fram yfir lægstu hungurmörk. Vissir hópar geta t.d. ekki látið eftir sér að kaupa ávexti lengur, Kært kvödd
mbl.is Vísbendingar um að botninn sé að baki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"bölvaða spillinguna."

Hugsið ykkur bölvaða spillinguna. Í siðmenntuðu landi hefi nú einhverjir "rokið" í fangelsi út af svona athöfnum ef satt reynist . Nei ekki í hinu spillta stjórnkerfi Íslands. Kært kvödd


mbl.is Segir Landsbankann hafa staðið á bak við Jón Ásgeir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Og hvað nú???"

Og hvað nú???? Spyr sá sem ekki veit. Nú er þessi maður búin að fá allan tím sinn í samráði við hina til að "laga" sinn málflutning. Það er furðulegt af þessari svokölluðu "hreinu vinstristjórn" að hún skuli ekki vara búin að setja lög sem ná yfir þessa amdsk..... lögbrjóta.

 

Þetta sýnir manni svo ekki verður um villst hve íslenskir alþingismenn eru algerlega gagnlausir. Getið þið ímyndað ykkur hvernig t.d.´Steingrímur Joð. Álfheiður Ingadóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og fl og fl myndu láta í ræðustólum væri þetta lið í stjórnarandstöðu. En og aftur er valtrað yfir réttvísina og hinn sauðsvarta almennig sem ekki á upp á pallborðið hjá þessu liði. Kært kvödd


mbl.is Sigurður Einarsson kominn til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gúrkutíð"

Það verður "gúrkutíð" hjá framleiðendum á heyrnatækjum á komandi árum. Unga fólkið verður orðið heyrnalaust um þrítugt. Kært kvöd
mbl.is Fleiri með heyrnarskemmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" næsti grínisti "

Þetta er fínt. Nú getur næsti grínisti sem býður sig fram lofað meðvindi á hjólabrautum eins og daninn Jacob Haugaard lofaði á sínum tíma. Og komst inn í Folketinget út á það Hér í ræðustól þar 1994

 20071030 205057 pic 270255505

Kært kvödd


mbl.is Hjólreiðastígur á Hverfisgötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sakfelldur fyrir spillingu "

"sakfelldur fyrir spillingu " Þetta er setning sem þyrfti að koma að í íslensku máli. Kært kvödd
mbl.is Blagojevich sakfelldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ofurlaunalið í stjórnarráðinu"

Enn og aftur minna þessar þyrlur á sig. Þetta ofurlaunalið í stjórnarráðinu ætti að lækka við sig launin um nokkur % sem svo rynni til þyrlusveitar LHGÍ 

 

Það liggur við að maður voni að eitthvað af þessu liði fái hjartakveisu einhverstaðar í óbyggðum og þyrlurnar ekki í standi til að koma til hjálpar. Þá myndi það kippa þessu í lag á stundinni. Það er virkilega ljótt að hugsa svona það veit ég. En er nokkuð annað sem kemur að gagni, Ég bara spyr??? Kært kvödd


mbl.is Fjórða þyrluútkallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"heimtar skýringar"

Ráðherra forsætis heimtar skýringar. En hvernig væri nú að þetta lata lið fari að skýra málin fyrir okkur hérna niðri í hinum "deep shit" Það eru bara skipaðar nefndir sem kosta okkur hérna niðri stórfé. Ef einhver ráðherra opnar kja..... er það,svei mér þá einhver lygaþvæla sem út úr honum kemur, Með kærri kveðju upp á yfirborðið


mbl.is Krafðist skýringa frá Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vonlausa tæra"

Þessi vonlausa tæra vinstri stjórn sér engin önnur tækifæri á öðru en að setja skatta sem yfirleitt bara bitnar á þeim sem minna mega sín

 

Eins furðulegt og það hljómar þá þá þarf ég að borga skatt hér af lífeyrisgreiðslum sem ég fæ frá Svíþjóð fyrir þessi ár sem ég bjó þar. Þó borga ég skatt af þeim þar.

 

En vegna þess að gengið hefur verið mér hagstætt virðast þeir sjá ofsjónum yfir því og heimta mismuninn. Þetta ofurlaunahyski sem t.d situr í ríkisstjórn og í fíflafabrikkunni við völlinn ættu að skammast sín fyrir að kenna sig við eitthvað til vinstri. Grængolandi væri betra nafn á þennan lýð. Kært kvödd


mbl.is Líst vel á bankaskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú er hún við dauðans"

Nú er hún við dauðans dyr þessi merkilega kona. Zsa Zsa varð sennilega frægust  fyrir sitt "Jet set" líf og fyrir hjónabönd sín og ástarsambönd Hún var löglega gift átta sinnum sinnum: 1.Burhan Asaf Belge (1937-1941) 2 Conrad Hilton. Langalangafi Parisar Hilton ?? (1942-1947) 3. George Sanders (1949-1954) (Þarna gengu sögusagnir um að systir hennar Magda Gábor hafi stungið undan henni. 

Zsa Zsa Gabor with playboy Porfirio Rubirosa Ariza, circa 1954 Hér með velvopnuðim Porfirio Rubirosa velþekktum (á sínum tíma) polospilara og playboy Myndin tekin 1954

 

Magda giftist Sanders eftir að hann skili við Zsa Zsa) 4. Herbert Hutner (1962-1966) 5. Joshua S. Cosden, Jr. (1966-1967) 6. Jack Ryan hönnuði Barbie dúkkunar. Sagan segir að Zsa Zsa hafi verið fyrirmyndin  (1975-1976) 7. Michael O'Hara (1976-1982)   Felipe de Alba (1983) Hjónabandið dæmt ógilt vegna áfrágengnis skilnaðar frá Felipe de Alba. 8. Frédéric Prinz von Anhalt (1986-) Hún þáði gjafir frá mörgum frægum karlmönnum t.d.frá Rafael Leónidas Trujillo fv einræðisherra Dóminikanska Lýðveldinu.

George Sanders in All About Eve trailer George Sanders  3ji eiginmaðurinn

Og  hlaut fyrir bragðið nafnbótina" dýrasta mella heims síðan Madame de Pompadour leið" frá einum þingmanni á United States Congress. Síðasti eiginmaður Zsa Zsa Frédéric Prinz von Anhalt er furðufugl af heldur vafasömum aðalsættum . Í sannleika sagt engum aðalsættum. Heldur ættleiddur af Marie-Auguste prinsessu  af Anhalt. Þau hjón hafa svo ættleitt fullorðna menn m.a Marcus Prinz von Anhalt áður Marcus Eberhardt sem sjálfur vill láta kalla sig "Prince Germany" Oliver Prinz von Anhalt áður Oliver Bendig Michael Prinz von Anhalt áður Michael Killer.(engin furða!!!) 

 4935 Hér með prinsinum? sínum

Þessar ættleiðingar gefa þessum mönnum leyfi til að kalla sig Prinz von Anhalt að eftirnafni þrátt fyrir andstöðu hinnar réttu ættar. Frédéric Prinz von Anhalt  komst á forsíður blaðanna í sept 2006 þegar hann uppástóð að hann væri faðir að barni hinnar frægu Vickie Lynn Hogan öðru nafni Anna Nicole Smith.

En DNA skar úr að svo var ekki.Og nú í febrúar tilkynnti hann að hann myndi gefa kost á sér við ríkisstjórakosningar í California 2012 ??. Zsa Zsa hefur líka ekki síst verið fræg fyrir tilsvör sín við fjölmiðla. "það eru engar djúpar hugsanir til hjá konum"  var eitt sinn haft eftir henni "Ef hægt er að tala um einhverja dýpt hjá þeim þá er það bilið á milli brjóstanna"

faar02a zsazsacut Nýleg mynd af parinu von Anhalt  

Einnig " Mér var sagt það í fyrsta skólanum sem ég settist í að peningar væru ekki allt í lífinu,aðalatriðið væri að vera góður við náungan, Mamma tók mig strax úr skólanu þegar hún heyrði þetta"

Um menn:" þeir eru eins og varðeldur ef maður hlúir ekki að honum slokknar hann"

Og " maður læri aldrei að þekkja manninn fyrr en maður skilur við hann"

Zsa Zsa Gabor er fædd sem Sári Gábor í Budapest þá í "Austro-Hungarian Empire"  07-02-1917 og er því 93 ára. Læt hér staðar numið í grúski mínu um þessa, að mínu mati stórmerkilegu konu Kært kvödd


mbl.is Zsa Zsa Gabor við dauðans dyr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Gylfi þetta Gylfi hitt"

Gylfi þetta Gylgi hitt, Ég gef skít í hvort þessi ráðherra lýgur eða ekki . Þetta lið bæði í stjórn og inni á alþingi lepur lýgina hvert uppúr öðru En hér er hluti úr viðtali við fræðimann sem undarlegt nokk stjórnendur landsins hlusta  aldrei á. Þorvald Gylfason sem ber þó nafnbótina prófessor fyrir framan nafnið sitt. Og ætti þesvegna að ná eyrum þessa snoggliðs

"„Stjórnmálastéttin er óhæf og spillt og hún stendur núna berskjöldð fyrir skapara sínum, það er að segja fólkinu í landinu, og hún virðist ekki skilja kall og kröfur tímans. Hún lætur bankanna halda áfram, að miklu leyti með sama fólki og fyrir hrun, að hjakka í gömlu fari. Bankarnir brutu lög. Það stendur skýrum stöfum í rannsóknarnefndarskýrslunni," sagði Þorvaldur.

Þá sagði hann að stjórnvöld verði að temja sér meiri auðmýkt og tók sem dæmi að ríkisstjórnin komi í veg fyrir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði þýdd yfir ensku þrátt fyrir ítrekaðar óskir þar af lútandi frá útlöndum.

„Þetta gekk svo langt að æðsti embættismaður Alþingis lýsti því yfir að það væri ekki vandamál Íslendinga að útlendingar skilja ekki íslensku. Hverskonar viðhorf er þetta í landi sem hefur bakað erlendum mönnum fjárhagstjón sem nemur fimmfaldri landsframleiðslu? Stjórnvöld mála sig út í horn ef þau ætla ekki að temja sér meiri auðmýkt frammi fyrir þeirri gríðarlegu áskorun sem hrunið leggur á hendur þeirra," sagði Þorvaldur.

Þetta segir sonur eins af forustumanna Alþýðuflokksins áður en samkrulls nafni kom á flokkinn  Kært kvödd


mbl.is Fráleitt að Gylfi hafi logið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"í þágu LHGÍ"

Af hverju í andsk...... eru eigur eins eða tveggja af þessum margumtöluðu glæpamanna ekki gerða upptækar og notaðar í þágu LHGÍ. Nei því þorir stjórnin ekki

 

Og of mörg núll að eiga við. En að níðast á þeim sem minna mega sín, það getur hún  Svo eru þessir djöf... að reyna að kaupa sér frið í sálinni með sýndarmennsku tittlingaskit til líknarféaga. Ja svei Kært kvödd


mbl.is TF-SIF á heimleið frá Mexíkóflóa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" stærsta smákóngalýðveldi heims"

Það mætti halda að það væri ekki einusinni búið að finna upp morsið. Slík eru þessi "hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir" vinnubrögð hjá stjórnendum þessa lands. Virðist vera hvert sem litið er. Við erum sennilega stærsta smákóngalýðveldi heims, Kært kvödd
mbl.is Æskilegt að álitin hefðu borist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"milljarðamæringarnir í ráðherrastólum "

Hvern varðar um einhvern þingmeirihluta. Er það ekki þjóðin sem á að ráða. En mér finnst nú þegar vantar peninga þó ekki væri nema til að stuðullinn fyrir hungurmörkunum hækki ekki þá mætti fresta þessu í bili.

Bök lítilmagnas þola ekki meiri byrgðar. Því milljarðamæringarnir í ráðherrastólum kunna enga aðra leið til fjáröflunar en að þynga þær. Kæt kvödd


mbl.is Ekki þingmeirihluti fyrir ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

""setuliðið"þarna við völlinn "

Það verður engin þjóðarsátt fyrr en "setuliðið" þarna við völlinn og þeir við Lækjartorg fara öll heim og láta aldrei sjá sig framar á þessu sviði. Ef einhver þjóðarsátt er í spilunum með þetta fólk í farabroddi þá er bara ekkert að marka bullið í fólkinu  sjálfu,

 

Maður er farin að kannast við bullið sem kemur úr ónefndu póstnúmeri, En ég meina almúgamrnninum Og ímyndið ykkur ráðherrar og þingmenn sem kenna sig við vinstri og gefa sig út sem málsvara alþýðunnar eru milljarðamæringar. Hvernig á ráðherra/þingmaður sem þannig er ástatt fyrir að geta barist fyrir kjörum og lífsháttum þess sem hefur 120,000 eftir skatt á mánuði.

 

 

Þeir borga þá upphæð jafnvel þrefalda í einhverja hátekjuskatta, Og ég er orðin viss á að Steingrímur & co skilja ekki núllin sem eru á upphæðum yfir milljarð. Þessvega er alltaf ráðist á lítilmagnan því þar eru færri núll að fást við. Kært kvödd


mbl.is Bauð Steingrími til fundar um þjóðarsátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" Þegar skeleggur stofnandi glerverksmiðju"

Í sambandi við þetta dettur mér í hug Arsenikið sem fannst inn í Vogum hér um árið, Þegar skeleggur stofnandi glerverksmiðju pantaði og fékk sent hingað til lands 2 ton af arseniki. Sem hefði dugað i 10 kjarnorkusprengur og í 2000 ár til þeirra nota sem fyrirhugað var.

 

Eitrið var svo geymt í tunnum við hálfbyggða verksmiðjuna í nokkur ár þar til það uppgötgvaðist. Mig minnir að krakkar að leik hafi komið við sögu. Þá tóku snillingarni við sér og tonnin 2 voru flutt á Hólmsheiði. Rétt við Gvendarbrunna aðalvatnsból Reykvíkinga.

 

Mig minnir að ég hafi lesið að þessar birgðir hefu dugað til að drepa hvern íslending níutíu sinnum Menn geta hugsað sé afleiðingarnar hefði nú eins og ein eða tvær tunnur byrjað að leka ig innihaldið seytlað inn í vatnsleiðslur borgarbúa  

 

Menn tóku sem betur fer við sér og efnið var flutt af í snatri af staðnum Enn seinna svo af landri brott. Þetta var í kring um 1970. Kært kvödd


mbl.is Mjög bakteríuríkt vatn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Ágúst 2010
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband