"týndi sonurinn"

Ef hann er "týndi sonurinn" hvenær var þá alikálfinum slátrað??? Eða er það eftir. Er þá Steingrímur J bróðir hins týnda sonar
mbl.is Forsetinn er týndi sonurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"haga mér"

Nú lofa ég að hætta öllum fíflaskap og fara að haga mér eins og siðuðun rúmlega sjötugum "eldri" borgara sæmir. Ég er alltaf að sjá það betur og betur hve rétt ákvörðun það var ( sennilega ein af fáum virkilega réttum í lífinu) þegar ég ákvað hálfheilsulaus komin að lokum starfsævinnar (sem stóð allt í allt 53 ár eitt bættist við þegar hingað var komið) að flytja hingað til Vestmannaeyja eftir 15 ára sjálfskipaða útlegð í Svíþjóð 2005.

 

P1060763 Í morgun Arnarfell 2 Wilsonar, Axel auk loðnubáta

Ég hafði verið hér um stundarsakir nokkrum sinnum hér á árum áður. Var að vísu giftur konu héðan í 10 ár og tengslin slitnuðu þá kannske ekki alveg. En hvað um það, ég er alltaf að sjá það betur og betur hve marga virkilega góða vini ég átti hér í raun og veru. Og hve virkilega góða vini ég hef eignast hér síðan. Ég vona að þessir menn leyfi mér að kalla þá vini mína.

DSCN0514

 

 

Og ég ætla að leyfa mér að vera ennþá skáldlegri þegar ég segi að það er vegna svona vinatengsla sem þessar fallegu myndir birtast hér á blogginu mínu. Einn úr klúbbnum í litla snyrtilega húsinu við höfn friðarins Stefán Geir Gunnarsson fékk myndavélina hjá "klúbbsstjóranum" Torfa Haraldssyni til að taka þessar myndir yfir athafnalífið við höfnina í dag af Heimakletti. Og nú segi ég bara ég þakka fyrir mig strákar og við hin, njótið.

DSCN0506 

 

DSCN0474

 

Það er nefnilega hér sem hlutirnir eru að gerast. Hér voru í dag sex svokölluð "fragtskip" fyrir utan Herjólf. Eitt að vísu ekki sérlega velkomið. En það er að sjálfsögðu sandæluskipið Skandia. Sem samt var beðið eftir að kæmi en verðrátta hefur hamlað störfum síða það kom.

DSCN0486 Hér siglir nýjasta skip Þórunn Sveinsdóttir út vonandi í enn eina velheppnaða veiðiferð eftir löndun

Með þessu kveð ég ykkur kært sem og endranær

 


"Recent attack of gout"

Maður nokkur notar furðulegar aðferðir til að  vekja á sér athygli

 þv.bmp Fékk þvasýrugiktarkast

Hann fékk nýlega þvagsýrugiktar kast  („Recent attack of gout"myndi það heita á frummálinu) Þar sem hann er mikið upp með sér af þessum sjúkdómi sem á miðöldum hrjáði aðallega ríka aðals menn með Henri VIII  í fararbroddi þurfti hann helst að láta allan bæjinn vita af kastinu.

 Henri VIII Einn frægasti þvagsýrugiktar sjúklingur Henri VIII

 

Hann byrjaði á að plata heiðvirta konu í bænum til að „skutla" sér upp á spítala. Þar æpti hann og vældi þegar auminga konan „dröslaði" honum framhjá að minnsta kosti  tveim hjólastólum svo hún kæmi ekki auga á þá.

 article400 tudors jonathanrhysmeyers 420x0 Úr Trudor sjónvarpsmynd um Henri VIII

Þegar hún komst svo með hann hangandi á baki sér, dröslandi úr lyftunni inn í biðstofuna mændu að minnsta kosti 50 augu á þetta furðuverk. Til að bjarga heiðri konunnar allavega í horn kom ein hjúkrunarkonan hlaupandi með hjólastól sem „sjúklingurinn" var settur í  Honum var svo „plantað" við dyrnar á blóðssuguherberginu meðan fylgdarkonan settist ein langt frá honum og húsrúm leyfði. Bóðprufa tekin og hálf sigri hrósandi var honum dröslað heim aftur með ný meðul

0 Ýmislegt sem ekki má borða ef menn fá þvagsýrugikt

 

Þetta endaði svo allt með því  að af slolti yfir að ganga með þennan "konunglega" sjúkdóm gleymdi vinurinn að setja bensín á bílinn sinn. Varð bensínlaus á miðri aðalgötu bæjarins. Og þá varð einni vinkonu hans að orði "Er ekki nóg að þú sért hálf ná.....laus þarftu að verða bensínlaus líka"  Við þetta sljákkaði aðeins í manninum með hin konunglega sjúkdóm. Kært kvödd


" við höfn friðarins í kaupstað"

Miklar umræður voru í gær í litla snotra húsinu við höfn friðarins í kaupstað  úti á landi. Fundar  menn sem aðallega voru gamlir togveiðiskipstjórar og fyrrverandi og  núverandi  verkstjórar. Fyrir utan furðufuglinn mrð hattinn

P2240021 Uppsala uppvakningurinn þarna í horninu til hægri þykist allt vita þessvegna er honum „plantað" þarna í hornið. Hann er sennilega svona feitur af því að hann hefur þurft að éta allan andsk..... ofan í sig aftur.

Þar sem þeir eldri  töluðu af mikilli sannfæringu um hvernig allt var betra hér í „den" Og töluðu hve þetta hefði allt verið liprara  Fv trollaraskipstjórarnir slettu í góm og sögðu t.d að þessi veiðiskapur þ.e.a.s  á „loðnu" væri nú lítill vandi. Bauju væri hent út  hún fundin og tekin aftur um borð eftir ca  einn hring  Híft í einhvern (vonandi réttan) vír og svo pumpað og „ alles klar".

P2240019 Gamlir verkstjórar og trollaraskipstjorar 

Fv verkstjórar í vinnslu slettu líka í góm og sögðu að  lítill vandi væri að vinna fyrrgreint fiskkríli „to day" Og við að hlusta á þetta kemur óneitanlega Tómas Guðmundsson aftur upp í hugann „Og  daprar  sálir söngva vorsins yngja  / Og svo er mikill ljóssins undrakraftur / að jafnvel gamlir símastaurar syngja / í sólskininu og verða grænir aftur /   

P2240022 Ekki mikið fjör í umræðunni Enda þarna  fáir í fundarsal sem títt er um alvöruþing Einhverir í hliðarsölum eða þannig

 

Þar sem „hornamaðurinn" hafði enga aðra reynslu af loðnuveiðum  en að vera skráður á loðnubát sem svo „datt" í slippnum á Akranesi. hefur hann lítið vit á þeim veiðum. Og tilraunir hans til togveiðaskipstjórnar enduðu yfirleitt með mörgum hringum til að vinda ofan af þeim snúningum  sem trollið tók á sig í köstun.  Svo lítið var vitið á þeim veiðum. Að maður tali nú ekki um hringina sem stundum voru teknir þegar helv.... fragtdallarnir voru ekki "rétt handel" og bökkuðu í allt aðra átt en til var ætlast. Þessi samsuða er  eins mikil lýgi og það er sannleikur að mennirnir á myndinni voru staddir þarna þegar myndirnar voru teknar. Og er allavega 99.9 % lýg!cid FC62ABA0463D4782A0E4F099326334BB@NotandiPCi Með von um að allir komi ósærðir út úr þessu kveð ég alla kært. 


"Við höfnina"

Maður kemst eiginlega ekki hjá að rifja upp ljóð Tómasar Guðmundssonar „Við höfnina" þegar maður ók hér um Vestmannaeyja höfn í dag. Þótt hann hafi haft allt aðra höfn í huga

P2240001 Hér eiga að sjást þrjú af flutningaskipunum auk Herjólfs Til hægri sést í aftur endann á flutningaskipinu Axel svo Selfoss svo Herjólfur og svo var ætlun ljósmyndarans að Wilson Leer sæist þarna fyrir aftan Álseyna sem losaði loðnu

Hér heilsast fánar framandi þjóða/ Hér mæla skipin sér mót / sævarins fákar sem sæina klufu / og sigruðu úthafsins rót / Og höfnin tekur þeim opnum örmum  / og örugg vísar þeim leið / því skip er gestur á hverri höfn / þess heimkynni djúpin breið. 

P2240007 Axel að lesta frosið

Allt iðaði hér af lífi, Fjögur flutningaskip að lesta afurðir til útflutnings og bátar að losa loðnu og bolfisk sem svo önnur flutningaskip eiga eftir að flytja út í formi lýsis m mjöls og allslags frystiafurða. Það var virkilega gaman að fyrir gamlan sjómann að fylgast með þessu öllu saman

P2240004 Wilson Leer að lesta mjöl

 

P2240009 Selfoss og Wilson Gool sem lestaði mjöl

 

P2240011 Selfoss, Axel og Suðurey

 

P2240016 Selfoss á útleið

Það væri gaman að vita hve mikil verðmæti hafa farið um höfnina í Vestmannaeyjum í dag. Kært kvödd

 

 


"að taka mann af lífi svona " í beinni"

Ekki ætla ég mér að reyna að geta mér til um ástæðuna fyrir þessu mikla slysi. En að taka mann af lífi svona " í beinni" eins og norskir fjölmiðlar gerðu við skipstjóra Goðafoss finnst mér eiginlega gengið einu skrefi of langt í nútímafjölmiðlum.

 

 

En eru bara Norðmenn ekki að beina sjónum frá sínu stóra vandamáli. Skorti á hæfum leiðsögumönnum lóðsum. Dálítið áður en ég hætti að sigla endurskipulögðu þeir allar siglingar við strendur landsins hjá sér. Staðir þar sem maður hafði oft áður siglt (mér kemur í hug Mo i Rana en þangað út og inn var ég nokkrum sinnum með í að sigla lóðslaus) þurfti maður nú lóðs.

 

Og nú þurfti maður stundum að bíða fleiri tíma eftir þeim. Á þessum tíma sögðu fleiri en einn og fleiri tveir lóðsar í mín eyru að þetta "system" myndi springa því ekki væru til í landinu menn til að fylla allar þessar nýju lóðsstöður.

 

Og við sem höfum fylgst með í heimi siglinga vitum hvernig norski farskipaflotinn hefur verið nú í mörg ár mannaður. Við vitum líka hina venjulegu leið manna upp í lóðsstöður. Þessir fg lóðsar töluðu um að eftir nokkur ár (þetta sagt fyrir ca 10 15 árum) yrðu það lóðsar frá Philipseyjum sem yrði sennilega undirstaða lóðsa í Noregi En það var nú í gríni sagt.

 

 

Er bara ekki svo komið fyrir norðmönnum að þeir verða að taka t.d menntaskólastráka og setja á nokkra daga/vikna námskeið. Og henda þeim svo um borð sem lóðsa. Því það er ég alveg með það á hreinu að ástandið hefur versnað síðan þessir fg lóðsar deildu sínum áhyggum með mér. Og var það bara ekki alltof  upptekin lóðs sem yfirgaf Goðafoss fyrr en hann átti að gera.

 

Í þessu lenti maður oft víða um heim Að lóðsar vildu sleppa fyrr og þá út af mikilli umferð Í þessu tilfelli hef ég þá sannfæringu ef hann hefði farið nokkrum skipslengdum lengra hefði ekkert skeð. Skipstjórinn þá ekki verið einn þegar farið var fram hjá skerinu Því stýrimaður og háseti hafa fylgd lóðsinum niður þessvegna var maðurinn einn.

 

Þá hafi hann allavega verið sloppinn við skerið sem hann lenti á Ég kannast vel við manninn og ég óska honum og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni. Það má varla grautur brenna við í mötuneyti öðruvísi en að fólk fái áfallahjálp. Hún var ömurleg áfallahjálpin sem norðmenn veittu þessum manni.

 

Rifu hann eiginlega um leið í lögregluyfirheyrslur. Og dæmdu af honum réttindin "í beinni" Hvað með fjölskyldu hans. En ég hef nú samt þá trú á stjórnendum Eimskips að á því máli hafi verið tekið. Maður kannast við suma starfsmenn félagsins og ég held að sá hópur standi vel saman að ég tali nú ekki um þegar svona skeður. Og maðurin búinn að starfa sleitulítið hjá félaginu í 47 ár Verið kært kvödd


mbl.is Lóðsinn fór of snemma frá borði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"alþingismenn skuli viðurkenna "

Skelfing er það nú gaman og þeim sjálfum til sóma að til séu  enn íslenskir alþingismenn sem viðurkenna að þeir séu bara mennskir og  geti gert misstök. Ég tek hattinn ofan fyrir þessum tveim, Alþingismönnum. Kært kvödd
mbl.is Mörður biður Vigdísi afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það "skítur" ekki með því skráþurru"

Það "skítur" ekki með því skráþurru þetta  andskotans pakk sem ræður yfir flestun fjölmiðlum þessa lands Og búnir að sölsa undur sig lungan af  fjölmiðlunum og besta fjölmiðafólkið. En gaman verður að sjá hvernig  handsprenjan sem  búið er að henda inn frá Luxenborg verðiur handeruð Topp sala mun vera á róandi og kvíðastillsandi  Kært kvödd

 

 

Og Býkó mun toppa söluna á sterkum.krókum nú um stundi Og þeir munu vera sterkari þeir er eru til hjá Bykó en hjá Múrbúðimmi  Sagan segir að 4 menn hafi ætlað að henga sig í kjallaraholu í gjaldþrota fyrirtælki þeirra: þrír  dutu niður strax óhengir  

En sá fjórði heyrðiist muldra áður en hann hann andann."Ég sagði ykkur að krókarnir  frá  Bykó væru sterkari en þeir úr Múrbúðinni". 
Verið ávalt kært kvödd

mbl.is 35-40 milljarða afskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"að íslenskur ráðherra segi"

Það þarf nú ekkert að tilkynna  það sérstaklega að íslenskur ráðherra segi ekki af sér Það virðist ekki finnast í þeirra orðabókum Það er strundum talað um að fólk þykis vera svo ómissandi vegna einhverra verka. En það verður að viðurkennast að þetta gólk er algerlega ómissandi til að gera ekki

 

Ég hef hreinlega ekki geta skilið þá óskiljanlegu glópsku  Samfó að láta skarið Jóhönnu  ekki fara frá og hleypa ljúfmenninu Guðbjarti Hannessyni í formannsstólinn. Þvergirðiðngsháttur forustu manna stjórnarinnar er með endemum.

 

Sama væri mér hver tækji við VG flakinu bara ef Lilja Mósesóttir og Guðfríður Lilja og dalamaðurinn kæmu sér þar út. Og hafa t.d. þarna inni á þingi persónu sem af mörgum vitnum hagaði sér eins og meri í hestalátum í búsáhaldabyltingunni. Gaman væri að vita hvernig rannsókn á hegðan þingmanna þegar á þeim stóð, standa..

 

Menn tala þannske um tvískinnungshátt í mér varðandi alþingi. En það fer nefnilega eftir hve reiður ég er út í þetta lið. Reiður stigbreitist með afbrigði Reiður reiðari reiðastur og svo hæsta stigip "arfavitkaus, En af því ég átti dálítið langt samtal við góðan vin í kvöld þá koma hann  mér niðir á neðsta stigið. Og af þvi kveð ég ykkur kært.


mbl.is Telur ekki þörf á afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vonlausi vinstrisirkus"

Þessi  vonlausi vinstrisirkus  á allur að segja af sér  Sem allt gerir með vinstri hendinni  En það alvesta er nú samt að þessi andsk..... vonlausa vinstri hönd vill ekkert með máttlausa hægri höndina að gera sem þó  er að balsa við að reyna gera eitthvað en með engum árangri..

 

Ég vil senda þetta vonlausa og afflvana alþingi heim. Þeir geta hunskast til að finna sér annað starf. Þau eru óhæf í núverandi  Það hefur ekkert legið eftir þá þannig að eftirlaun eru óþörf, 

 

Setja þessa ráðherra á mínitaxta Tryggingarstofnun næsti 10 ár og fá svo einn mann með viti til að stjóran landinu Einræðisherra 

 

T.d Lee Bucheit,láta hann endurskipulegga þetta spillta dómkerfi sem við búum við og losa okkur við alla spillta embættismenn   Láta hann koma skikki á þetta og taka so aftur upp lýðræði þegar hann hefur mokað flórinn.

Svo má kjósa heiðarlegt fólk til stjórnarstarfa  Ekki fólk sem byrjar á að hygla sér og sínum með bensínkortum og þvílíku

 

Því það er ekkert lýðræði til í þessu landi nú um stundir Þvi er stjórnað af gerspilltim háttlaunuðum embættis og menntamönnum. Er það t,d, lýðræði í því að láta lífeyrislitlar bænda,verka og sjómannsekkjur gráta sig í svefn því þær eiga ekki aur til að gleðja lítil ömmu, lang eða langalangömmubörn sín

 

Það verður fv og núverandi (sem við losnum vonandi fljótlega við) alþimgismönnum hvers flokki þeir tilheyra til ævarandi skammar og verður skrifað á síður siðlausrar glæpamennsku Íslandssögunnar  hvernigt þetta lið er að launa því fólki sem nú er 80 -90 ára og kom löppunum undir fólkið í landinu

 

Meðtöldum þessum rumpulýð á alþingi og ríkisstjórn að maður tali nú ekki um stórþjófana sem leika lausum hala úti í löndum Koma stundum hálfglottandi í sjónvarp og hreinlega gera gys að öllu saman.

Menn sem engin lög hafa enn verið sett svo hægt sé að búra þá ævilangt inni fyrir að stela lífeyri velgjörðafólks þeirra. Einn  drattaðist heim seint um síðir af því hann komst ekki í sólina í Dubai. 

Það á að svifta þessa menn ríkisfangi  Og í því framhaldi að gra þá útlæaga ævilangt. Því þeir koma aldrei til að sitja einn dag inni. Því þótt Sérlegur saksóknari sem er mikill drengskapar maður og vili láta réttlætið hafa sinn gang  þá á nefnilega dómskerfið  sitt síðasta orð.

Og þar eru menn sem ég myndi ekki treysta yfir þröskuld hvað þá meir og ég er ekki einn um þá skoðun. Þar ríður skólafélaga-stúku- starfsfélaga og vinskaparklíkur öllum hugsanlegum röftum.

 

Svo er verið að taka um einhver hryðjuverkalög sem bretar settu á okkur Hvað með hryðjuverkaslögin sem þessi. hópur fíf.. sem sýnir grinrevíuna  "fyrsta hreina og tæra vinstri stjórn á Íslandi" nú um stundir setti á eldri borgara. Þetta lið ætti að afnema þau áður en lengra er haldið og farið að heimta einhver afnám laga sem bretar settu. Ávallt kært kvödd


mbl.is Umhverfisráðherra segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"séu ekki hlaðnar "

Það eins gott að þessar byssur séu ekki hlaðnar ef svo ólíklega vildi til að einhverir af þessum andsk.... stórþjófum sem settu landið á hausinn villtust þarna inn.

 

Og þessi andsk..... ríkistjórn sem hælir sér af að vera fyrsta "tæra vinstristjórn" þessa lands (sem er nú orðið að aðalbrandara þessarar aldar hingað til) má þakka fyrir að eldri borgarar eru ekki blóðheitari en þeir eru því annars væri einhver af þeim gömllu búnir að skj... eitthvað af þessun rumpulýð.

 

Fyrir ca 80 árum sagði ónefndur stjórnmálamaðu þetta m.a. " Ég get líka fengið atvinnuleysngum peninga svo að þeir geti fullnægt brýnustu þörfum sínum . Á þann hátt skapa ég kaupmátt  og aukin viðskifti Þetta eru einfaldar og óflóknar aðgerðir sem vér munum hafa vald á með því einu, að einsetja oss að hopa ekki á hæli fyrir óhjákvæmillegum erfiðleikum. Ekkert af þessu er nein dulvísindi eins og prófessorarnir vilja vera láta heldur komið undir heilbrigðri skynsemi og viljaþreki".

 

 

Myndir þetta ekki ganga í fólk ef eittvað af svokölluðum grínistum landsins myndi gera þessi orð að sínum. Hræddur er ég um það en sá sem þetta sagði stóð nú held ég  við flest af þessu á sínum tíma en reyndist svo vera versti lýðskrumari sem nokkurntíma hefur náð völdum  

Þessi öflugusta afturhalds  og  íhaldsstjórn sem hefur stjórnað þessu landi hingað til  og gerir það með vinstri hendinni er búinn að varða veginn fyrir að svona fífl næðu völdum hér. 

En það alvesta er nú samt að þessi andsk..... vonlausa vinstri hönd vill ekkert með máttlausa hægri hönd er að basla við að gera með eingum árangri.Kært kvödd 


mbl.is Byssur til sýnis í sláturhúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"étið börnin sín"

Svona getur byltingin étið börnin sín  Það er með endemum og fyrir neðan allar hellur hvernig það fólk sem kemst í valdastöður misnotar aðstöðu sína.

Sama hvaða stjórnmálaflokki það tilheyrir. Þessi kona hélt hvorki vatni eða vindi yfir misnotkun fv bæjarstjóra á fé almennings.  Og mér finnst þetta nánast neyðarlegt hjá henni í meira lagi.  Kært kvödd


mbl.is Mun ein nota bílinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var allt betra hér í "den" eða var það ekki ?? 2

Já það skeði fleira á bernsku árunum t.d. lýsið, Hérlendir þ.e.a.s Eyjmenn tala um skólahjúkrunarkonu. T, d þessi sem rak út úr sér tunguna þegar hún kleip í ti.... á honum sagði að hún hefði neytt krakkana til að taka lýsi á hverjum skóladegi við misjafnar undirtektir. untitleba

Á mínum bernskuslóðum var ekki svo hátt menningar stig að sérmenntaðir lýsispyntingarfræðingar störfuðu við skólan

. cod liver oil Slíkar pyntingar sá stjúpa mín algerlega ólærð í fræðunum um gagvart mér Lýsi hafragrautir eða hræringur voru pyntingartólin. Ég man

 hvað ég hataði þessa þrenningu  cb cv 

Já og lýsið. Það fékk læknirinn í að mig minnir 200 lítra tunnum.Þarna getur nú verið að í minningunni skakki þessi tala um nokkra tugi jafnvel hundruði lítra. En ég man eftir sonum læknisins vera að tappa á flöskur úr tunnu sem lá á hliðinni í stokk og krani í öðru sponsgatinu. Personalised%204%20litre%20Drinks%20BarrelÞetta er nú að vísu bjórtunna á stokk en einhvernvegin svona leit lýsistunnsn ú Eins og mér þykir lýsi gott í dag man ég þráa bragðið af því í "den". Og eitt er það sem einn vinur minn fullyrðir það er það að hjúkrunarkonan hafi gefið þeim stólpípu

 einu sinni á vetri. 39700846 44e4a137fb 

Þetta þurfti ekki á mig allavega ekki síðustu árin sem ég var í skóla. Það sáu vinberin um þegar þau komu í búðirnar seinni part vetrar eða á vorin.efw Þegar vínberin komu.

Svo vorum við saman í leikfimi með stelpunum. Þá þótti ekki neitt athugavert við að allt liðið færi í bað saman, Þá sá ég fyrst það sem stundum varð mér fjötur um fót seinna í lífinu Hvort eitthvað svona skeði man ég ekki broken penis joke 

En minnið er nú farið að brenglast og manni finnst eiginlega að maður hafi upplifað þetta einhvernvegin

 svona      tumblr lfgs4sLq7x1qd7ygho1 1280  allavega komu þær allar til að líta svona úr seinna meir. Og þá hefði maður nú gjarnan vilja baða með þeim.  það er satt að segja  furðulegt að leyfa ýmslegt þegar maður hefur ekki hunsvit á hlutunum  en harðbanna það svo þegar maður hefur fengið smá hvolpavit í kollinn.  Já það var allt betra hér í "den".með smá undantekningum En ég hef velt mikið þessum tveim vöngum sem  ég hef yfir hvað hefði skeð hjá vini mínum þessum með ja þið munið ef hjúkrunar konan hefði ýtt á nefið á honum skildi þá tip... hafa sprungið út,school nurse 420w 420x0 Og skildi hún þá hafa þurft að klípa hann í tunguna til að fá það inn afturNurse Image ekki veit ég. Já það var allt betra hér í "den", Nú lufsat maður þetta eiginlega áfram án þess að mega nokkurn skapaðan hlut. Búið að skera úr manni þau líffæri sem einhverja ánægju veittu.arthritis Maður má ekkert éta sem er gott og það sem maður má gera  því  nennir maður ekki. Það er best að hætta þessu bulli og draga sig í lúsina eins og stundum var sagt hér í "den" þegar allt var betra. Eða er það bara brenglun í minniskubbunum sem lýsir "dennið" svona upp Verið þeir sem nennu hafa haft til að lesa þetta rugl ávallt kært kvaddir


"einhverja stórglæpamenn"

Ég er sammála um að það sé oft talað um Útgerðarmenn sem einhverja stórglæpamenn. Ég þekki nokkra útgerðamenn hér í Eyjum og það eru gegnheiðarlegir menn. Og mér hreinlega sárnar Þegar þessir menn eru úthrópaðir sem einhverjir  "sægreifar"

Ég vil af mínu litla viti um öll þau skúmaskot sem hýsa allar reglur og reglugerðir um þennan andsk..... kvóta ekki tjá mig mikið um þessi mál. Annað enn um heiðarleika fg manna. Og ég tek sem sagt undir með Pétri Pálssyni.

 

En það er annar hópur manna sem talar um enn annan hóp sem um glæpamenn sé að ræða. Þetta er Vilhjálmur Egilsson & Co talandi um bræðslumenn sem að mati Vilhjálms & co eru að setja landið á hausinn fái þeir mannsæmandi laun Það er eiginlega hlálegt 2011 að hlusta á þetta aukna atvinnuaukningarraus.

 

Villi  & co vill bara að laun hækki hjá hverjum og einum með aukinni vinnu. Þessi verkanannalýður sem þessir menn virða vart viðlits nema kannske þá verkalýðsforinga sem standa þeim nærri jafnfætis launalega séð, eiga bara, til að fá hærri laun að vinna lengri vinnudag.

 

Einn verkamaður i loðnubræðslu  fær enga launahækkun þótt atvinnan aukist í byggðarlaginu. Vitaskuld þarf að eyða atvinnuleysi. En kjör bræðslumannsins í Vestmannaeyjum aukast lítið þótt störfumum hjá bænum þar aukist um helming. Aukavinnu við viljum aukavinnu, Villi og co vill bara að lýðurinn vinni meðan hann stendur í lappirar. Það er allt í lagi að borga tugum % meir í yfirvinnunni

 

Það virðist ekki komast inn í hausin þá þessum mönnum að bræðslumennirnir eru þokkalega launaðir meðan á t. d. loðnuvertíð stendur. Þá er unnið myrkranna á milli og yfirvinnan hífir kaupið upp í sæmilegan skala. Á milli eru einhverjir skítaslattar bræddir öðru hvoru. 8 lélega borgaðir vinnutímar. En það hefur nú lítið farið fyrir loðnubræðslu fyrr en nú, Og mikið skil ég mennina vel að þrýsta  nú á hærri laun.

 

Setjum svo að Vilhjálmur sem að mínu viti er skarpgreindur og athugull maður væri foringi bræðslumanna. Myndi honum detta í hug að fara í einhverjar aðgerðir til launabætingar þegar ekkert væru um að vera hjá bræðslunum ? Vilhjálmur er örugglega  vænsti maður ekki efa ég það en hann á að hætta þessu skítkasti í látt launaða bræðslumenn.

 

Styðum við bakið á bræðslumönnunum Hlustum ekki á þessar verðbólgu hótanir. Vilhjálmur & co ættu að þrýsta á stjórnvöld um að það náist í rassg.... á þessum stórþjófum sem leika lausum hala vítt og breitt um heiminn og láta þá borga þá verðbólguaukningu sem þeir eru að boða.  Kært kvödd


mbl.is Talað til útgerðar eins og glæpamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var allt betra hér í den eða var það ekki ???

Já það er furðuleg bólga þessi verðbólga sem hreinlega var kölluð "dýrtíð" í mínu ungdæmi Hún mun stafa af því ef Pétur sem vinnur verkamannavinnu, Segjum í Loðnubræðslu fær 5% launahækkun og lætur eftir sér vínarbrauð normal clip image002með kaffinu sundags í staðin fyrir tvíbökurnar rusks   þá bólgnar verð út Sem sagt verður verðbólga. En ef Páll sem er svokallaður fjárfestir sem á hreinni, að vísu gamalli íslensku hét braskari hækkar við sig launin um 100% og kaupir sér sérútbúinn jeppa. 2008 renegade Þá er allt slétt og fellt. Ekki einu sinn filapensill verður úr því En af frægari þjóðarleiðtogum síðustu aldar sagðin eitt sinn. "Verðbólga er brestur á aga hjá kaupendum og vöntun á aga hjá seljendum". germany inflation Ég læt ykkur um hver maðurinn var. En hvað um það þetta segir manni að við þessir sauðsvörtu megum bara éta okkar hafragraut hvurndags og undanrennu út á hann sundags. Mér dettur í hug vinur minn þar sem samspil tungu og annarar totu mikli neðar var markvisst. imagesCAEYMF4A Í skólanum þegar hjúkrunarkonan kleip hann neðra rak hann alltaf tunguna út úr sér. Þetta gæti flokkast undir orsök og afleiðing. En svo var það önnur samtenging, Einn virtur læknir og mikill vinur minn fullyrti einusinni að kreppti maður vissan vöðva ( sem maður gerir stundum ef maður vill ekki missa allt í buxurnar) þá ætti totan fyrrnefnda að rísa Number1PenisEnlargementDevice  Nú í mínu tilfelli gengur þetta allsekki upp og ástæðuna veit ég ósköp vel., Þarna er líka orsök og afleiðing. Nú fyrst svona er hægt að aftengja afleiðingarnar frá orsökinni inflation 106135Af hverju þarf þá allt að fara fjandans til ef Pétur Loðnubræðslumaður eignast nóg fyrir vinarbrauði sundags. En allt er þetta runnið undan rifjum (held ég) einvers Feders sem var vist uppi í "den gamle gode dage"hyperinflation1 Já i "den gamle gode dage" Þá var maður ungur og og upplifði lífið á annan hátt en nú  Sá veröldina með bernskuaugunum Og svo voru það bernsku brekin. Sum setur maður í þann  flokk sem heiti "mig minnir það " Þangað fara þau brek sem maður vill ekki hafa í fersku "En það er mér í fersku minni " er annar og vinsælasti flokkur bernskuminnis."Mér er það í barnsminni" er sá þriðji flokkurinn og næst vinsælastur.olgaprivyrusselllee Ég er nú ekki svo gamall að ég muni vel hin litlu vinalegau hús er kamrar voru nefndir, Ég er nú ekki komin af ríku fólki og sem voru leiguliðar hvað húsnæði varðaði lungan úr minni bernsku  Og þar tíðkuðust vatnsalerni. En í einu húsinu þurfti maður að fara í annað hús ef maður átti þangað erindi. En kamrar voru á reglubundnu undanhaldi. Vitanlega voru óknytta strákar á mínum bernsku slóðum.

 

 

Og þeir gerðu oft at í sumum mönnum Aðallega bráðum mönnum sem ekki skildu um hvað leikurinn snerist. Einu sinni tóku 3 strákar af fg gerð sig til og ætluðu að stríða einum svodanna. Þeir stálu dínamít túpu frá Hreppnum og útbjuggu sprengu úr púðrinu. Þetta var á undanhaldi kamrana. En við hús umrædds mann var einn þannig Gæjarnir settu nú sprenguna undir fötuna sem tilheyrði þessu smáhýsi. Leiddu svo kveikjuþráð frá stórum steini nálægt fg smáhýsi.

 

Biðu svo átekta. Fyrst kom kona mannsins en  þar sem gæjarni áttu ekkert vantalað við hana var hún lýst friðhelg. Svo kom maðurin sem atlögunni hafði verið beint að. Nú var kveikt í þræðinum og hlaupið í ennþá öruggara skjól. En ekkert skeði. Svo opnaðist hurðin og fórnarlambið birtist  Skellti hurðinni harkalega á eftir sér gekk eitt eða tvö skref og já til að gera langa sögu stutta sást sá kamar aldrei meir. imagesCAQJ3Y32 Ég hef oft hugsað hvort hann hafi ekki lokað dyrum varlegar á eftir þetta. Þetta var nú eins og fyrr sagði á undanhaldi kamranna en ekki veit ég af neinu eins hvatvíslegu og þessu. Nú ekki man ég nú eftir svokölluðum "súkkulaðibíl" eins og mínir góðu vinir hér í Eyjum státað sig svo mikið af.En sá bíl mun hafa verið notaður einnnig til fiskflutninga og jafnvel vatnsflutninga ef mikið lá við.old ford truck near rosetown  custom  jpg  jpeg im lrg Og mennirnir sem sáu um súkkulaðiflutningana voru hörku menn sem unnu sitt verk að alúð. Og þeir lifðu sig inn í hlutverk sin. T.d þegar ein frúin var að koma heim og þeir við skyldustörfin við húsið. "Ja ég sé að þér hafið haft gesti um helgina frú NN" varð einum þeirra að orði. Það mun vera orðið fátitt að menn lifi sig svona inn í vinnu sína nú um stundir. poopmobile Einn minn bestu vinar lygnir aftur augunum og réttir úr bakinu þegar þessir tímar berast í tal. Hann segi þá frá sinni fyrstu WC reynslu. Þeir voru 3 vinir sem alltaf léku sér saman. Faðir eins hafði eitthvað svolítið meira milli handanna en feður hinna tveggja. Og það kom svo WC með niðursturtun í húsið. Þið munið þessi með arminum sem keðja með postulín handfangi hékk niður úr.  Nú þessi ósköp voru svo nýkomin í húsið og vinirnir að leika sér þar fyrir utan þegar heimastrákurinn spyr vini sína hvort þeir vilji prufa. Vinur minn þáði það en þeim þriðja var ekki mál. USA Pail LatrineNú af sinni alkunnu hæversku ætlaði hann bara að nota eina afrifu af WC pappírnum sem vfitanlega var þar nærtækur að athöfninni lokinni. Taktu tvær annars fer puttin í geng sagði þá heimastrákurinn en félagarnir höfðu fylgst með þessum ja fyrstu skrefum vinar míns á vegum þessara hluta. no toilet paper 123675  Jæja hvernig var spurði svo heimastrákurinn stoltur af græjum hússins. Ja sagði vinur minn sem ekki var tilbúinn að sleppa hendinni af kömrunum: það slettist upp ras.... á mér. Þú ert asni sagði þá heimapeyinn önugur .Þú átt að rífa fyrst eiit blað og setja ofan á vatnið þá slettist ekkert upp í rassg.... á þér xcba Og þessum reglum hefur vinur minn fylgt nú í 65 ár. Hve ungur nemur það gamall temur segir einhverstaðar. Læt þetta duga af "deninu" í bili Verið ávallt kært kvödd


"Það var eins gott "

Það var eins gott að þyrlan var klár. Ég skora á menn að setja upp svona síma eins HSÍ notar. Þannig að ef þú hringir í visst númer þá renna 1000 kr til þyrlusveitar LHGÍ. Því þessir hálvitar sem þessu landi þykast stjórna eru ekki enn komnir í skilning um að þeir menn sem skipa fg sveit þurfa að fá nægt fé til að halda út 4 þyrlum og menn séu alltaf í  toppþjálfun

 

Því sæmd er hverri þjóð sem eiga slíka menn sem við.Það er ekkert hægt að miða við aðrar þjóðir. Okkar menn gera þetta af skyldurækni og einurð við mikið verri aðstæður en aðrar þjóðir Þar sem herir þeirra þjóða blandast jafnvel inn í dæmið. Og þið þessir helv.... , ja þið vitið við hverja ég á við, sjáið sóma ykkar í að þessi sveit manna sé ekki í fjársvelti.

 

Því að gæti hlaupið hland fyrir hjartað á ykkur og þið þyrftuð að komast strax á spítala(þið fyrirgefið orðavalið en gamlir sjóarar eru margir reiðir yfir goggunarröðinni á peningum hjá þessu hyski) Og þá er eins gott að allt sé eins og það á að vera. Kært kvödd


mbl.is Þyrla sótti hjartveikan mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" í pípunum?"

Eitthvað er að gerjast á bak við tjöldin. Bjarni ja gerir það sem ég held að sé ekki ílla til fundið, Er ekki þjóðin búin að fá sig fullsadda af þessu and....... Icesave kjaf....  ? 

Og hvað er Sigmundur Ernir að leggja til ? Varla stjórnarsamstarf við Hreyfinguna. Hvað er eiginlega í pípunum? En eitt er víst að það er óhreint með þessu liði sem situr í húsinu við völlinn. Þar rennur ekkert tært. Verið samt tært, nei ég meina kært kvödd


mbl.is Tilbúinn að mynda nýja ríkisstjórn um atvinnumálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það hlýtur að vera erfitt "

Það hlýtur að vera erfitt fyrir bræðslumennina( sem kannske fá sæmilegar tekjur 1 eða 2 mánuði á ári) að sitja hiumeginn borðs við menn sem hafa kannske 1 eða 2 miljónir á mánuði.

 

Þessir hálaunamenn hinum megin borðs hafa aldrei deilt og koma adrei til með að deila kjörum við verkafólk Og þess vegna hafa þeir ekki hugmynd um hvernig lifa þarf að lægstu launum þessa láglaunalands. Svo er verið að samsama sig saman við "norrænt"velferðarkerfi,

 

En verkafólk á hinum Norðurlöndunum lifir góðu lífi af sínum 8 stunda vinnutíma. Og stjórnvöld það finna aðrar leiðit til fjáröflunar en ráðast á þá lægst settu. Og íhaldið stjórna í Sverige Yfirvinna er þrælsköttuð og hana vilja menn ekki. Við vitum að sumir verkalýðsforkólfar eru líka með slíka innkomu að það hreinlega sæmir ekki Og hvað liggur svo eftir þessa hálaunaforkólfa.

 

Akkúrat ekkert.0 stórt 0 Það liggur áræðanlega meir eftir hina óbreyrttu foringa sem ekki eru haldnir þeirri fé og valdagræðgi sem hrjáir suma á SV horninu. Þeir sem eru að vafrast í málum sem alltaf skjóta up kollinum í samskiftum atvinnurekenda og launþega.

 

Þeir vinna heimavinnuna sína.Sumir hinna voru búir að hlaða svo á sig bitlingum að þeir vegna anna gátu ekki lesið yfir A 4 skjal. Og það er hrein móðgun við verkalýðinn í þessu landi  að þessir flokkar sem þykjast stjórna skuli vera runnir undan rifjum dugmikilla verkalýðforinga og stjórnmálamanna sem báru hag verkalýðsins fyrir brjósti

 Ég óska "bræðslumönnunum"góðs gengis. Kært kvödd


mbl.is SA: Loðnubrestur af mannavöldum yfirvofandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Feb. 2011
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 537325

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband