"íslenska þingmenn"

Það ætti að skikka alla íslenska þingmenn og sérstaklega þá sem valdir eru til ráðherradóms til þess að lifa af 100.000 krónum á mánuði. Eins og þeir eru búnir að skikka suma okkur gamlingana að gera.Kært kvödd
mbl.is Lifði á lágmarkslaunum í mánuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri sannleikur eða þannig

Það gerist lítið enn í litla snyrtilega húsinu við höfn friðarins í bæ úti á landi.  Menn eru þar sammála um þýðingu hinnar nýju Bakkafjöruhafnar. En menn greinir á um hvað mun ske þar á næstunni. Þetta ætti nú að skýrast á næstu dögum eða þegar tilboðin verða skýrð eða réttara sagt hver hlýtur sandælingar hnossið.

 

P1050630 Perlan og Pétur Mikli 

Mönnum ber heldur ekki saman hver komi til með að hljóta það. Einn fastagestur fullyrti að eitt skip sem danir ættu væri svo öflugt að ef það kæmi til dælingar yrði stórhættulegt að vera akandi á smábíl á sandinum því bíllinn gæti hreinlega  sogast um borð í skipið. Þetta hefði nú kannske mátt athuga fyrr þá hefði mátt sleppa við ýmiss mannvirki. Já eða þannig. Nú aflabrögð eru góð. En það er spurning um hvort Vestmannaey hafi fengið svo mikið  af karfa af byrjenda sundnámskeiðum að Haraldur á Jóni Vítalín hafi hreppt helling af kennurunum

 

6686681 4870a92665 Sundnámskeið??

 

Þetta mun víst vera af því að karfamömmurnar og pabbarnir eru hætt að skifta sér af rollingunum og sent þá í leikskóla, Sem svo fór í skólaferðaleag niður á botn. En þar hafi Birgir nælt í þá .En stóru sundkennarnir hafi í svo atvinnuleysinu rolast niður á botn líka.

 

30521 Clipart Illustration Of A Friendly Orange And Red Fish Swimming Near A Reef Lítill karfastrákur??? stelpa 

Og þar hafi Haraldur hirt þá.En eins og góðir trollarakallar vita er stóri karfinn oft uppi í sjó að kenna litlu körfunum að synda. Þessu hélt algerlega ólyginn togaraskipstjóri að minnsta kosti alveg blákallt fram við sinn útgerðarmann þegar eitthvað var tregt hjá honum. Þ.e.a.s skipstjóranum.

122509redfish540 Þetta er ekki Haraldur á Jóni En stærðin á fiskunum mun vera svipuð og hann kom með 

En eins og geta má næri er þetta ekki umvafið sannleikanum.. Svo að því sem giftir menn kalla sinn betri helming. Betri eða ekki betri látum það liggja milli hluta. En ég gat að minnsta kosti aldrei legið á hægri hliðinni fyrr en  eftir að ég skildi. Það skildi ég nú aldrei alveg en konan lá alltaf hægramegin í rúmminu  En einn af aldursfosetum þingsins lumar oft á góðum sögum af samskiftur fyrrgreindra helminga. þ.a.e.a.s þeaarar betri helmingaskifta.

 malebrain2

 Hann hjóðaði söguna upp á tvo vini sína A og B Sannleikann í því látum við liggja milli hluta  En þetta átti að hafa skeð hann var ungur.  A sem gekk ílla í báðum helmingum kom til B  sem var virkilega vel að sér í betri helmingum og baðst ráða. Þetta er enginn vandi sagði B. Á næsta balli hefur þú bara vasaljós í vasanum. Málið leist. Þetta gerði  A Svo bauð hann kúltiveraðri dömu upp. Rétt eftir að dansinn hófst hrinti hún honum frá sér og æpti "Gvöð hann er með tvo." Ég  sjálfur ætla á morgunn og kíkja á vasaljós hjá Sigmari í Geisla. Vonandi eiga þeir eitthvað annað en þessi litlu pennaljós. En þetta ætla ég mér að hafa prívat fyrir mig. En mikið er nú lagt á okkur karlmennina,. Ég birti hérna tvær skýringamyndir máli mínu til sönnunnar

EngineersView Kveikt á körlum 

 untitle+ .bmp Á konum

 

Þarna sjáið þið svart á hvítu hve miklar ábyrgðar eru settar á okkur karlana

 Bicycle Ábyrðin er á karlmönnum

Svo var það unga nýgifta parið sem var komið í rúmmið á brúðkaupsnóttina. Maðurinn sem var stór og þrekinn henti buxunum sínum í konuna. „Farðu í þær sagði hann". Hún gerði sem hann bauð. En af skiljanlegu ástæðum toldu þær ekki oppi á henni. „Ég get ekki verið í þeim" sagði hún. „Það er nefnileg það" sagði hann.  „Mundu að eftirleiðis er það ég sem er í buxum hér á heimilinu". Nú fór daman úr sínum buxum. Henti þeim í manninn „Farðu í þær" bauð hún. Maðurinn reyndi en kom þeim ekki nema upp að hnjám. "Ég get ekki farið í þessar buxur" sagði  hann." Það er nefnileg það og þannig verður það þangað til þú breytir um skoðun" sagði daman þá.

 

fat gaulois costume men s 1 large

Já það er með ólíkindum hve kvenfókl lætur ílla að stjórn. Svo var það drengurinn í skólanum sem fannst skólabróðir sinn alltaf hafa nóg af peningum handa á milli. „Hvernig ferðu að þessu spurði hann félagan, Yss það er enginn vandi. Þú segir bara við einhvern „Ég veit allan sannleikan"Hann byrjaði á mömmu sinni :" Ég veit allan sannleikan" „Uss sagði hún og leit flóttalega í kring um sig. „Þú færð 20 ,000 ef þá heldur kja.... Sama sagan hjá föður hans nema þar fékk hann 40.000. En svo þegar aurarnir voru búnir ákvað hann að prufa þetta á blaðburðarmanninum. En þá sagði hann „komdu og gefðu pabba knús". Læt eina enska enda þetta í dag og læt þetta svo það duga í bili

 

In the hospital the relatives gathered in the waiting room, where their family member lay gravely ill. Finally, the doctor came in looking tired and somber."I'm afraid I'm the bearer of bad news," he said as he surveyed the worried faces. "The only hope left for your loved one at this time is a  brain transplant. It's an experimental procedure, very risky but it is the only hope. Insurance will cover the procedure, but you will have to pay for the brain yourselves. The family members sat silent as they absorbed the news. After a great length of time, someone asked,

 

"Well, how much does a brain cost? The doctor quickly  responded, "$5,000 for a male brain, and $200 for a female brain." The moment turned awkward. Men in the room tried not to smile, avoiding eye contact with the women, but some actually smirked. A man, unable to control his curiosity, blurted out the question everyone wanted to ask, "Why is the male brain so  much more?" The doctor smiled at the childish innocence and explained to the entire group, "It's just standard  pricing procedure. We have to mark down the price of the female brains, because they've actually been used." Svo kveð ég ykkur kært með snillingnum Edith Piaf

http://www.youtube.com/watch?v=XBW-UEbOfyQ&feature=related


Það sem sannara reynist

Ég hef steinhaldið kja... um hríð Og sé enga ástæðu til að rífa hann mikið nú um stundir. því ekkert virðist vera að gerast að nokkru viti.Og lítið hægt að gera neitt í því. En ég ætla að leyfa mér "to have a bit of madness"Það hefur verið frekar rólegt á samkomunum í litla snyrtilega húsinu við höfn friðar í bæ úti á land. Þetta er langt nafn á litlu húsi. Menn eru að skila sér ofan af landi úr ferðalögum og flakki. En umræðan sem þar fer fram er mjög svo „kúltiveruð"

 

Og menn deila upplifun sinni með okkur þessum rótföstu eins og mér sem ekki nennir að hreifa sig spönn frá rassi. Aðalveiðigúrúin sem einnig er annar aðal jass sérfræðingur hússins var kammpakátur. http://www.youtube.com/watch?v=xotoDy5806Y&feature=related   Hafði fengið tvo silunga á ég man ekki hvort það var á  randa- eða hunangsflugu. En þetta mun heimsmet.

 

Enn eitthvað þótti honum  „Bogið" við rafmagnið í veiðihúsinu. En bara snilingar í faginu komu víst einhverju tauti við það. Þar sem ég gruna þennan góða vin minn  að vera lítið betur að sér í þessum fræðum en ég þá held ég að hann hafi bara ekki kunnað á „systemið"

 

Þannig mun hafa verið að þegar hann ætlaði í sturtu þá slökkti hann á uppáhaldsþætti frúarinnar í sjónvarpinu. Og svo þegar hún ætlaði að kveikja undir kartöflunum byrjaði Dizzy Gillespie: http://www.youtube.com/watch?v=F0Hc2EKj1Hw&feature=related að belja á grammifóninum. Og þegar vinur minn var búinn að hreiðra um sig í sínum „lazy boy"og setti Louis Armstrong á fóninn  http://www.youtube.com/watch?v=wyLjbMBpGDA  þá varð black out í húsinu. Það útheimtir víst mikið rafmagn til að spila trompetleik Louis .

 

 

Annar góður maður kominn yfit miðjan aldur sagði sínar farir ekki sléttar í sambandi við konuna sína. Hann hafði alltaf langað til að kaupa sér „cowboy" stígvél. Hann lét verða af þessu um daginn þegar hann fór einn í Kolaportið og  keypti alvöru svoddan. Þegar hann var komin heim fer hann í stígvélin og spyr svo konuna : „ Tekur þú eftir einhverju sérstöku við mig" 

„Nei" svaraði hún „ég sé að þú ert í þessum ljóta bol einusinni enn" Hálf dapur fer maðurinn inn á WC ið og klæðir sig úr öllu og kemur fram alsnakinn í stígvélunum. „Sérðu eitthvað núna" spyr hann. „Ég veit ekki hvað það ætti að vera" svaraði hún: „Hann hangir þarna niður enn eins og hann hefur gert í gær, fyrradag og margar vikur þar áður og eins og hann mun gera á morgun og hinn daginn" „Sérðu ekki afhverju hann hangir svona niður"spurði þá vinurinn "Nei svarar hún"  Vinurinn:"Hann er að horfa á nýju stígvélin mín" "Þá hefðir þú nú betur keypt þér hatt sagði þá frúin bara si svona. 

 

 

Ég veit það ekki en nokkrir íuðu nú að því, að þarna væri komin skýringin á að"sumir"gengu alltaf með hatt eða þannig. Svo var til umræðu mismunur á vinkonum og vinum. Ef t.d kona einhvers kemur ekki heim næturlangt. Hún segir manni sínum að hún hafi sofið hjá vinkonu. Hann hringir í 10 bestu vinkonur  hennar en engin þeirra vill staðfesta söguna. En ef maðurinn kemur ekki heim fyrr en um morgunin og segist hafa sofið hjá vini og konan hringir í hans tíu bestu vini. Þá geta sjö staðfest söguna og þrír haldið því meira að segja fram að hann sé þar enn.

 

 

Svo gaf aðalvélfræðingur hússins okkur upp munin á olíuskiftingu eftir kynferði. Hjá  konum 1. Renna inn á verkstæði eftir 15000 km frá síðustu skiftingu 2 Drekka kaffi meðan beðið er. 3. Eftir 15 mínútur ekið út Kosnaður 15000 kaffi innifalið. En hjá karlmönnum: 1. Kaupa olíu síu tvist pakningar og sag. 2. Uppgötgva að olíutankurinn er fullur af óhreinni olíu. 3.opna einn bjór áður en hola er grafin í bakgarðinn, 4. Leita að tjakknum.það tekur klukkutíma. 5 Drekka tvo bjóra af ánægju yfir að hafa fundið tjakkinn. 6. Setja ílát undir bílinn sem á að taka við óhreinu olíunni. Það tekur 2 tíma að finna það. 7. 1 öl út á að það finnst. 8. Finna stjörnulykil no 16. Hann finnst ekki.  9 Nota skrúflykil. 10. Losa botntappan.11 tappin týnist í ílátið og sjóðandi olían hellist yfir hendurnar. 12. Það krefst tveggja bjóra til að minnka sársaukan.13 Nábúinn kemur og  tveir sixpakk af öli tæmdir.14 Aðgerðum frestað til morguns.

 

 

 

15. Óhreina olían grafin, 16. Sagi kastað yfir oliuna á bílskúrsgólfinu. 17 Farið í „ríkið" til að kaupa meira öl.. 18 Ný olíusía sett á. 19 Finna út að botntappinn týndist. 20 Tveir bjórar drukknir til að reyna að muna hver fjan.... varð af tappanu, 21, Muna allt í einu að hann datt ofan í ílátið með óhreinu olíunni.22. Grafa þar til tappinn finnst, 23. Einn bjór afgreiddur af því tilefni. 24 Reynt að ná nýju olíunni sem hafði runnið beint á gólfið, þaðan. 25 Við að reyna að herða botntappan skreppur skiftilykillinn af og fjórir hnúar særast illilega. 26  Rekur höfuðið illilega uppundir  sem viðbrögð af nr 25. Tvinnar saman óprenthæfum orðum í smátíma. 26 Róar sig á einum bjór  27. Kastar skiptilyklinum það langt að hann finnst ekki meir.28 Fer inn til konunnar sem bindur um höfuð og hnúa. 28 Einn  bjór til kvalatstillingar á meðan á því stendur. 29 Fjórum lítrum hellt á bílvélina. 30. Bílnum slakað niður af tjakknum. 31 Þessu fagnað með einum bjór.

 

 

32 Pruvukeyrsla. 33 Lögreglan grípur inn og sektar fyrir ölvunarakstur. 34. Bílinn færður af staðnu með kranabíl. 35 Konan kemur og leysir mann og bíl út. Kostnaður alls: Olía og hlutir henni tilheyrandi 4500.00 kr Sekt fyrir ölvunakstur: 55.500 kr. Kranabíll: 20.000. kr  Öl: 30.000 kr Samtals 110.00 kr. Og svo eru konur að tala um hve mikið sé á þær lagt með barneignum og slíku. En hvað megum við karlar segja miðað við þetta

 

 

Og svo barst talið að órtrúmennsku og sannleiksást. NN hafði átt í ástarsambandi við vinnufélaga, Þegar hann var að læðast heim í kolniðamyrkri rak hann fótinn í grasþúfu og datt um hana. "Hvar í andsk...... hefur þú verið" spurði frúin æfareið þegar hann kom inn. NN ákvað nú að segja allan sannleikan,:" Ég sængaði hjá henni MM" sagi hann bljúfur. „Djöf...  lýgi er þetta alltaf í þér, heldur þú að ég sjái ekki að þú hefur verið að spila golf einu sinni enn"sagði hún þá ennþá reiðari.

 

 

Það er akkúrat sem ég hef alltaf sagt : „sannleikurinn er sagna bestur"  En  við þá staðreynd hef ég nú ekki haldið mig að neinu leiti við þessi skrif. Og enn og aftur vil ég ítreka um konur er alltaf talað með umhyggju hlýju og virðingu í litla snyrtilega húsinu við höfn friðarins í bæ úti á landi. Ég ætla að láta drottningu jassins( að mínu mati) enda þennan pistill því til sönnunnar http://www.youtube.com/watch?v=lMFIejZgJSM&feature=related  Verið ávallt kært kvödd


"have a bit of madness" "

Ég hitti góðan vin minn í morgun. Og hann minntist á grikkjann Zorba. En margt eldra fólk man skáldsögu Nikos Kazantzakis um hann og Bouboulinu. En í samnefndri mynd gerði snillingurinn Anthony Quinn námuverkamanninn  Zorba ódauðlegan. Sérstaklega muna menn dansinn sem Zorba dansar við Basil, bresk-grískan rithöfund og  námuerfinga sem Alan Bates lék í lok myndar.Á einum stað í sögunni segir Zorba við Basil:" If a man wants to be truly free and truly alive, he has to have a bit of madness"  Hér eru nokkrir snillingar að spila og dansa Zorba

http://www.youtube.com/watch?v=690_48tCzfE&feature=related

http://www.youtube.com/watch?v=FP01tyimA6Y&list=QL&playnext=1

http://www.youtube.com/watch?v=Wx_QZzONqvs&NR=1

 http://www.youtube.com/watch?v=qPROXhnoUm8&feature=fvw

http://www.youtube.com/watch?v=Vg9gLWzHoSA&feature=more_related

Ég held að íslendingar þurfi svolítin bita af madness nú um stundir Allavega gott af að hlusta svolítið á tónlistina eftir „Mikis Theodorakis" Tónlist sem kemur mér alltaf í gott skap. Ég vona að einhverjir hafi haft gaman af þessari upprifjun. Kært kvödd

 


"steinhættur að trúa"

Já þetta segir Steingrímur. En ég allavega, er steinhættur að trúa einu orði sem hann eða Jóhanna segja. Jóhanna þóttist hafa rétt fram "sáttarhönd"

 

En einhver hulduhönd hefur það verið því henni eða Steingrími var ekki hnikað frá þeirri stefnu sem mótmælt var á Austurvelli á mánudag. Og ef Þór Sari segir satt um að hann t.d. hafi alls ekki verið boðaður á fund í dag þvert á tilmæli stjórnarliða. Þá er það hneyksli.

 

Sama segir VF XD. Að hún hafi ekki verið boðuð á neinn fund. Að vísu afsaka stjórnarliðar sig með því að þeir hafi "talið" sig hafa gert það skiljanlegt á síðasta fundi. Þetta er ekkert nýmæli hjá þeirri tæru. Hagræða sannleikanum sér í vil. Kært kvödd


mbl.is Réttlátari skattbyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Við þetta verður ekki unað"

Þessi hreina, tæra, vinstri útburðarstjórn lofaði almenningi því í byrjun, að í fyrsta skifti í sögu lýðveldisins yrði nú allt uppi á borðinu. Þetta yrði nú allt annað en hjá íhaldinu 

 

Allt yrði gert fyrir opnum tjöldum. Þetta var eitt af aðal loforðunum sem fólkið glaptist á að trúa og kaus þessi óhræsi. Eitt af því sem þessi tæra hreina vinstri útburðarstjótn skuldar þjóðinni nú það er listi yfir þessi átta fyrirtæki sem fá afskrifaðar 54.7 milljarða. Frá því að Ísland byggðist hefur aldrei neinn notað setninguna:"Við þetta verður ekki unað" eins oft og Jóhanna Sigurðardóttir  Hún á heimsmet í framsetningu þessarar orða.

 

 

Og ég held satt að segja að frá landnámi hafi aldrei eins miklir andsk..... þverhausra verið við stjórn þessa lands. Og þapð er alveg öruggt eins og 2 eru ca 2 þá bar þetta bara byrjunin á mánudagskvöldi´Og þá kemur Jóhanna, tími fólksins. Og þinn tími kom sem sagt aldrei.Og í sögubækur verður skrifað "argasta íhaldsstjórn" frá 1944. Kært kvödd


mbl.is 54,7 milljarðar afskrifaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" harðfiskhjall"

Það mætti brjóta allar rúður í húsinu og nota það svo sem harðfiskhjall. Þá yrði notagildi þess  allavega meir en það er í dag. Kært kvödd
mbl.is Yfir 30 rúður brotnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þverpólitískt samráð!!!!!!!!."

Þverpólitískt samráð!!!!!!!!. Ja hérna!!!!! Vonandi hefur ráðherrann hlustað á kvöldfréttirnar. En þetta er ekki fyrsta bullið sem kemur frá þessum ráðherra. Hann virðist enganveginn vera jarðtengdur
mbl.is Þverpólitísk samstaða um aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"áfram þessu skotgrafahernaði."

Ætla þessir hálvitar sem ekki skilja mótmæli fólksins og kröfur að halda áfram þessu skotgrafahernaði. Þar til einhverjir fleiri trúðar og jafnvel nasistar nái völdum í landinu.

 

Ef svona heldur fram sem horfir verður þetta fólk sennilega hrakið frá völdum og kosningar óumflýanlegar Og þá getur allt skeð. Ástandið í dag og reiði fólksins er hin ákjósanlegasti jarðvegur fyrir allslags öfgar. Þetta virðast rugludallarnir íá alþingi ekki skilja. Kært kvödd


mbl.is Ekki stórfelld frávik frá hagspá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þrátta og þvarga"

Það á sem sagt að halda áfram að þrátta og þvarga um ekki neitt. Það á að halda skotgrafahernaðinum áfram. Þvert á vilja stærsta hluta fólksins í landinu.

 

Hún náði styttra "sáttarhönd" heilagrar Jóhönnu en skjaldborgin fræga. Þetta lið sýnist ekki kunna að skammast sín. Engin af þeim vill gefa tommu eftir. Þessvegna heim:" með þetta helv.... þrasara og algerlega nýtt fólk þarna inn". 

 

Svo á hreinlega að banna sitjandi liði að bjóða sig fram í næstu kosningum, Kannske má undanskilja eina manneskju. Kært kvödd


mbl.is Vilja ekki breyta um stefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" ekki íhaldið"

Sjáið þessa mynd. Skoðið hana vel.Nú er það ekki íhaldið sem stjórnar landinu. Heldur hrein og tær vinstri stjórn Sú fyrsta í sögu lýðveldsins Þetta er ekki Grikkland þetta er Ísland í dag. Og það er alveg öruggt að nú stjórnar fv ráherra ,þingforseti m.m ekki aðgerðum innanhúss i gegn um GSM síma. Kært kvödd
mbl.is Girðing um Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bréfið frá Björk

Þetta er með endemum. Hvað er fólk eiginlega að hugsa Að vísu eru um 30% sem eru óákveðnir eða vilja ekki gefa upp skoðun sína. En ég rakst á bréf sem ákveðin kona af landsbyggðinni sendi alþingismönnum. Og nú er bara að fara að dæmi hennar. Ég tók mér bessaleyfi að birta það hér svo getur fólk bara aðlagað það að sinni persónu og sent. Ég skora á fólk að gera það.  En bréfið var birt í DV

"

„Uppsagnarbréf til þeirra Alþingismanna á Alþingi Íslands sem setið hafa þar síðan fyrir hrun.
Afrit sent til allra Alþingismanna.


Ágæti Alþingismaður

Ég er Íslendingur. Ég er líka háskólamenntuð kona sem hef kosið að búa á landsbyggðinni og vinna að uppbyggingu atvinnu og samfélags, án þess að átta mig á hversu tilgangslaust það gæti verið á tímum eins og nú, þegar aðgerðir Alþingis virðast miða að því að lama atvinnulíf í landinu og hrekja fólk frá dreifbýli og úr landi með öllum tiltækum ráðum.

Nú heyrast fjölmargar fréttir af niðurskurði grunnþjónustu og vænleg fyrirtæki í tryggum rekstri eru keyrð í þrot af ‘ríkisbönkum’. Sveitarfélögum eru settar þröngar skorður og draga saman í rekstri sínum.
Á sama tíma og samdráttur er á öllum stigum samfélagsins er ekkert það að finna sem mætti kalla mótvægi við þessa þróun. Mótvægið mætti t.d. finna í skattakerfinu sem í öðrum löndum er notað til að hvetja aðila til að stofna og reka lítil og meðalstór fyrirtæki. Nei, hér virðist einungis áhugi á að hampa þeim ríku og stærstu fyrirtækjunum.

Mikið er fjallað um erlendar fjárfestingar og þörfina á þeim en samt situr frumvarp um ívilnanir (og þar með opna gegnsæja stjórnsýslu) fast í ráðuneytum (sem nota bene hafa ekki löggjafavald) og áberandi virðist að einungis varasamir fjárfestar, með grugguga fortíð, fjárfesti hér, umluktir orðrómi um arðrán og mútur til íslenskrar stjórnsýslu og stjórnmálamanna. Heiðarlegir fjárfestar forðast svona óreiðu og munu ekki láta sjá sig fyrr en hér hefur verið skapað eðlilegt viðskiptaumhverfi.

Það þrengir að fjölskyldunum í landinu, fjölmargir eru að missa heimili sín og enn fleiri geta ekki séð sjálfum sér og börnum sínum fyrir mat. Lágmarks framfærsla er í dag óviss stuðull sem hið opinbera þorir ekki að reikna út þar sem ljóst er að fjölmargir íslendingar lifa langt undir fátækramörkum.

Ágæti þingmaður: Þú berð ábyrgð á að skapa þetta umhverfi. Þú hefur brugðist í því verkefni að laga ástandið. Þar sem það er nú orðið ljóst að velferð okkar skiptir þig engu vil ég tilkynna þér að það er gagnkvæmt. Það er því einlæg ósk mín að þú segir starfi þínu lausu svo fljótt sem auðið er og gefir öðrum tækifæri til leiða þjóðina út úr þessum erfiðleikum.

Björk Sigurgeirsdóttir“ ""

Kært kvödd

 


mbl.is Litlar breytingar á fylgi flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Botninum náð"

Hvar endar þetta allt saman. Sjáið nú ruglið. Botninum náð heyrði ég talað um einhverstaðar um daginn  Nú ætti þetta lið bara að ganga hreint til verks.

Þessi andskotans óþjóðalýður sem kennir sig við gamalmenni öryrkja o.sv.fr ætti bara að hætta að væla. Það á bara að bjóða hverjum einum í þessum aumingahópum að velja um 1 milljón og blásýrutöflu eða bara éta það sem úti frýs. (sem margir eru farnir að gera)

 

Ef einhverjir af  þessum aumingum taka fyrri kostinn geta þeir látið sér líða eins og manneskju meðan þeir eyða milljóninni svo er bara að bryðja blásýruna. Þetta væri miklu hreinlega en murka líftóruna ú þessu fólki  að hætti stjórnvalda.

 

Enda næst ekkert meir út úr þessum aumingum. Maginn er kominn upp í kok á fólki svo er búið að herða sultaról þess

Þetta sparaði mikla peninga sem svo mætti nota í einhver gæluverkefni. Málið leyst og þessi hreina tæra útburðar vinstri stjórn getur andað léttar. Að þetta fólk skuli samsama sig við norræna velferð er hrein móðgun.

 

Aldrei hafa nútíma íslensk stjórnmál sannað eins tilgangsleysi sitt og undanfarna daga. Ímyndið ykkur. Stjórnarliðar mega ekki taka undir hagsmunamál sem  kæmu sér vel fyrir fólkið í landinu af því að :"STJÓRNARANDSTAÐAN STAKK UPP Á ÞVÍ FYRST"

 

Þvílík fjarstæða. Svo talar þessi lýður um sannfæringu sína. Jú hún er sennilega til fyrir flokkinn en ekki fólkið í landinu það er á hreinu Þetta er með hreinum endemum  Poul Schlüter stjórnaði Danmörk að mig minnir í 11 ár alltaf með minnihluta stjórnum.

 

Þetta væri óhugsandi hér á landi. Algerlega óhugsandi allavega með því fólki sem situr alþingi í dag. Hvað skildi vera búið að álykta mikið og oft innan þings og út í flokkunum eftir hrunið til hagsbóta fyrir alþýðuna. Og hvað hefur komið út frá því. Ekkert, 0  Það þarf að eyða þessu stjórnkerfi mennta og auðmanna sem stjórnar þessu landi í skjóli svokallaðra VINSTRI manna.

 

Það þarf að fara langt aftur í aldir til að finna aðra eins andsk.....  íhaldsfauska og nú eru við völd. Og ef þetta lið sem situr á alþingi fer ekki að renna í grun hverju fólkið er að mótmæla þá held ég að uppúr sjóði og það alvarlega á næstunni. Kært kvödd


mbl.is Hollvinir mótmæla niðurskurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ekkert í pípunum "

Ja svei !!! Þetta fólk "harmar" svokallaða aðför að Geir en það harmar ekki aðförina að fólkinu í landinu. Það er eins víst  og 2x5 voru 10, allavega í mínu ungdæmi að þessi maður verður aldrei dæmdur.

 

Og það er ekkert í pípunum um að hann verði "borin út" Eins svo mörg hundruðir manna nú um stundir. En úr því að dæma þurfti einhvern því var ekki öll stjórnin sem bar ábyrgð á landinu fyrir hrun dæmd. Ingibjörg Sólrún hafi tromp uppí erminni sem heilög Jóhanna varaði sig ekki á.

 

Og það hlýtur að vera erfitt að reyna að vera heiðarlegur í svona gerspilltu stjórnarfari. Ég vorkennni Geir ekkert en ég vorkenni því fólki sem er að reyna það.

 

Ég held að að XD ætti að athuga það og álykta um það fólk sem er á götunni en ekki að vera vorkenna manni sem situr í fínu og öruggu húsaskjóli og hefur allt til alls. Það sjáum við borgarar þessa lands um, með ríflegum eftirlaunum. Og hann hefur sennilega engar áhyggur af framtíðinni. Kært kvödd


mbl.is Harma aðför að Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"mergurinn málsins"

Þetta er mergurinn málsins En það er engrar bótar að vænta frá þessu liði sem situr í húsinu við völlinn. Þetta lið snýr öllum atburðum sem ætti að ýta við þeim upp í að ekki sé verið að gagnrýna það. Ég er drulluhræddur  að efnt verður til kosninga nú.

 

Drulluhræddur um vegna ástandsins þjóðfélagsins að enn meiri fífl verði kosin til að stjórna en sem gera það í dag, En það skeður ekkert af viti hvor sem er svo þetta lið getur bara drullað sér heim og loka búllunni. Þetta svolallaða alþingi situr á púðurtunnu og það er bara tímaspursmál hvenær hún springur. Kært kvödd


mbl.is Auðmenn græða á uppboðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gæluverkefni "

Enn og aftur minna þessi nauðsynlegu tæki á sig.. Á sama tíma og milljörðum er hent í ýmiss gæluverkefni svokallaðra ráðherra er  LHGÍ svelt.

 

Á meðan bankarnir eru að springa af peningu getur þessi útburðarstjórn ekkert ekkert annað gert en spara þar sem síst skyldi.. Loka t.d dæmis nokkrum sendi ráðum. Fyrir hugað er að bjóða forseta USA til landsins hvað skyldi sú heimsókn kosta.

 

Hvað skyldi hafa kostað að senda Össur til NY til að sofa ?. Var bara ekki hægt að senda hann heim ef hann var þreyttur ?. Hvað haldið þið að þetta svokallaða haustþing hafi kostað okkur hér niðri á jörðinni. Því þangað eru peningarnir alltaf sóttir Og hvað kom út úr því  eitt stórt 0 SÍRÓ.Kært kvödd


mbl.is Þyrlan send austur vegna slyss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hálfa stöng"

Það þarf að breyta fánalögum. Það á að skylda bankana að til að flagga í hálfa stöng hvern einasta dag sem húseign er tekin af skuldara.

 

Það yrði sennilega fáir dagar í mánuði sem ekki yrði flaggað. Þá er ég að meina virka daga. Þessir drullusokkar gera slíkt sennilega ekki um helgar. Þ.e.a.s. henda fólki úr húsum sínum.Kært kvödd


mbl.is Flögguðu í hálfa stöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Út með ruslið."

Út með ruslið. Vanhæf ríkisstjórn stóð m.a. á spjöldum fólksins í dag. Er Steingrímur ekki læs. Hann er akkúrat gleggsta dæmið um gagnleysi þessara andsk... sem sitja á þingi. Munið þið hvernig hann og t.d Álfheiður djöfluðst eftir hrunið. Þá stóð það sama á spjöldunum. Steingrímur strikar með rauðu undir tilgangsleysi stjórnmála á Íslandi í dag. Kært kvödd
mbl.is Óánægja vegna skuldavanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"eigin forsendum"

Ef stjórnmál eiga sér einhverja von hér á landi þarf að moka þessu gjafa - styrkjaliði út af þessu svokölluðu alþingi. Ef fólk kemst ekki  öðruvísi en að það þurfi stórgjafir og styrki til að komast inn á þing þá hefur það ekkert erindi þangað.

 

Ef það kemst þangað ekki á eigin forsendum hefur það ekkert erindi.  Ef það þarf stórfé til að fjölfalda ágæti sitt stundum með upplognum og sviðsettur upplýsingum hefur það ekkert erindi.  Inni á þingi á að vera fólk sem ekki er merkt neinum flokki. Fólk sem vill að ÖLLUM í landinu líði vel, það á erindi þangað. Allt í lagi að það fari þangað inn á einhverjum bókstöfum

 

En eins og  þessi andsk..... flokksánauð virkar í dag er algerlega út í hött. Meira segja Hróa. Að ekki megi taka undir mál sem einhver annar flokkur sé höfundur  er bull. Þarna eru flokkshagsmunir teknir fram yfir almenning.Sjá fésið á þessum lýð það vanta ekki alvörusvipinn. En hann er það eina sem það hefur fram að færa

 

Og að oft sé lygi hreinlega höfð frammi til að koma höggi á andstæðinginn er fásinna og menn eiga hreinlega að vera látnir svara til saka hjá lögreglu sannist slíkt  Og svo vinavæðingin sem viðgengst í dag á að hverfa. Og fv ,nv menntamálaráðherrar ættu að sæta rannsóknar vegna liðkindar við ónefndan skólastjóra

.

Þessi andsk..... lýður og þessi útburðarstjórn ættu að sjá sæng sína útbreidda og hypja sig heim og loka búllunni. Embættismennirnir hafa næg laun til að annast hana eins og þeir gera hvort sem er. Kært kvödd 


mbl.is Verðum að standa saman sem þjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hvað segir"

Hvað segir Álfheiður Ingadóttir nú?. Gaman væri að fá álit hennar á þessum mótmælum. Kært kvödd
mbl.is Hreinsað til eftir mótmælin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Okt. 2010
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband