Kynlíf og fl

Þetta eru nú engin ný sannindi.Þegar maður var í landi í gamla sá maður alltaf tvöfalt og kynlífið svo í 3ju víddini
mbl.is Kynlíf í þrívídd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Zsa Zsa

Þessi fræga leikkona?á að hafa sagt einu sinni""Þegar ég byrjaði í skóla var reynt að kenna mér að peningar væru ekki allt.Og það væri nauðsynlegt að vera góður við alla",Strax og mamma frétti af þessu setti hún mig í annan skóla"
mbl.is Zsa Zsa tapaði stórfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"útblástur"

Á gömlu síðutogurunum(já á öllum gufuskipum)þurfti að blása út af kötlunum.Síðan þurftu menn að skríða inn um allan ketilinn og hreinsa hann.Ég man eftir mjög lávöxnum manni(sem mig minnir að hafa heitið Elli,þó ekki viss) sem hafði þetta að ævistarfi.

 

 

Þetta var gert svona á 3ja mánaða fresti.Ég man einusinni eftir að eitthvað bilaði og við þurftum inn til lagfæringar,Einhverra hluta vegna sem ég ekki lengur man þurftum við að nota sjó inn á ketilin,En það var mikið hættuspil.Milil hætta á ketilsprengingu vegna niðurfellingar frá saltinu.Ég hef aldrei gert mér það ljóst þvílíkt sóðastarf þetta var fyrr en ég sá á Discuvery Channel þáttinn hjá Mike Rowe sem heitir"Dirty jobs"En þar fór hann í ketilhreinsun á gömlu gufuskipi sem gengur enn.

 

 

Það þurfti að hreinsa hvern krók og kima.Öllu sótinu var sópað burt.Það er akkúrat sem þarf hér á landi nú.Hræddur er ég um að stjórnkerfið sé keyrt á sjó undanfarið.Og það sé hætta á ennþá stærri sprengingu en kæmið sé.Nú þarf að gera"ketilhreinsun"í stjórnkerfi landsins.Hreinsa öll skúmaskot.Burt með fégráðuga ofurlauna stjórnendur ríkisfyrirtækja.Menn eiga skilið að fá einhverja umbun menntunnar sinnar en enga fyrir neina svokallaða ábyrgð.Það hefur sýnt sig.Menn drul.... ekki til að víkja fyrr en búið er að setja allt á annan endan.

 

 

Og sumir virðast allsekki ætla aðgera það.Mér finnst það mikil skömm fyriir ónefndan aðila sem ætlar sér(það virðist allt benda til þess)sem einu sinni þótti merkur stjórnmálamaður að vera svo veruleikafyrrtur að hann verði að hrökklast úr starfi með skömm.Fyrr en seinna.Læt þetta nægja af röfli í dag.Kært kvödd   


mbl.is Geir: Má ekki missa dampinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starfslok

Gaman verður að vita hvað Jónas fær í laun í starfslokasamning.Svíar kalla þetta"Fallskärmsavtal "Svona fólk verður að fá mjúka"lendingu"
mbl.is Jónas hættir 1. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Feigum ekki forðað"

Einhversstaðar stendur"Feigum er ekki forðað eða ófeigum í hel komið"Á Sjómannadaginn þ 7 júni næstkomandi verður mikið tilefni til að fagna.Fagna því að á árinu 2008 fórst enginn sjómaður við landið,En þá er einnig mikil ástæða til að syrga fallna félaga.Í febrúar nk eru 50 ár síðan 2 stórslys urðu.Þ.e.a.s þegar b/v Júlí fórst við Newfoundland og v/s Hermóður við Stafnnes.

 

isbilde4 

Talið var að Júlí hafi farist af völdum þess mikla"óvinar"ísingar

image 1b/v Júlí

 v/s Hermóður

Í þessum slysum fórust 42 íslenskir sjómenn.Næsta ár einnig í febrúar verða 85 ár síðan svokallað"Halaveður"varð en þá fórust 68 íslenskir sjómenn og 6 enskir.Í þessum 2 febrúarmánuðum misstu  sem sagt til samans 118 sjómenn á besta aldri lífið.Ég man þegar Júlíslysið varð þá var ég sjálfu rétt rúmlega tvítugur og búinn að vera togarasjómaður í rúm 4 ár.Ég þekkti nokkra úr áhöfn Júlí persónulega þ.á meðal var æskufélaga minn.

 

image 8image 9image 7

Forsíða Moggans í febrúar 1969

Og marga kannaðist maður við frá þeim stöðum sem togarasjómenn sóttu í landlegum.Margir af þessum mönnum fundust mér"gamlir kallar"en ef maður skoða aldur þeirra í dag sér maður að flestir af þessum mönum voru á aldrinum 20 - 30 ára.Sá yngsti 16 ára elsti 48 ára.Svona er tími og aldur dálítið afstæður.

 

Iceberg Grænlandsísinn

hanshedtoft Hans Hedtoft

 

Á föstudag eru einnig 50 ár liðin frá hinu hörmulega slysi er skip Grænlandsverslunarinnar Hans Hedtoft  fórst 1959 og með því 40 manna áhöfn og 55 farþegar.Þar á meðal 19 konur og 5 börn. Í þessu veðri sýndi þýskur skipstjóri mikla hugdirfsku um leið og hann setti sjálfan sig og skipshöfn sínaí stóra hættu þegar hann sigldi skipi sínu á fullri ferð í áttina að þeim stað sem loftskeytamaður Hans Hedtoft sem hét því sérkennilega nafni C.J.Dejligbjerg  gaf upp

 dejlig Hinn"rólegi"loftskeytamaður  C.J.Dejligbjerg 

Skipið átti eftir yfirlýsingum frá hönnuðum og skipasmíðastöð ekki að geta sokkið.Sama og sagt var um annað farþegaskip Titanic fyrir tæpum 50 árum þar á undan(1912)Ég hef stundum hugsað getur það verið að þarna hafi forlögum verið storkað og þau sagt til sín.Hans Hedtoftslysið skildi eftir sig mörgum ósvöruðum spurningum.Menn undrast t.d rógsemi loftskeytamannsins.Og að aldrei var minnst á farþegana í skeytasendingum hans..

f2ee6e8e47a829482f1e20436ea31aab50db199bb57a27ef0896cba1836ad244544f54b27d115827d475e4653e 

Capt Smith á Titanic og yfirmenn hans á SS Titanic

titanic 3titanic 

SS Titanic 

Min skoðun er sú að menn undir svona kringumstæðum öðlist óskiljanlega ró.Ég hef einusinni lent í sjóslysi þar sem báturinn sem ég var á sökk.Ég var"sallarólegur"allan tíman sem þó var ekki langur,eða c.a 20 mín frá að vart var við að mikill sjór var kominn í vélarúmið og þangað til báturinn var sokkinn.Og ekki er ég nein hetja.Ég er að vísu ekki hræddur við dauðan sem slíkan en ég er skíthrædur um hvernig fer að því að deyja.Og mér hefur oft verið hugsað til manna sem hafa lokast inni í skipum sem hafa hvolft t.d.Í Hans Hedtoft dæminu velta menn mikið fyrir sér hvað hafi eiginlega skeð.Ég skrifaði blog í fyrra um þetta slys og vísa til þess hér að neðan,En á föstudaginn(30 jan) kemur eru nákvæmlega 50 ár síðan að þetta hörmulega slys skeði.Og eins og ég sagði í febrúar eru 50 ár síðan b/v Júlí og v/s Hermóður fórust,

 

rogue wavethumbship rough sea 4 Rudda veður

Ég hef oft hugsað til þessara manna sem ég t.d. þekkti á Júlí.Sérstaklega eins æskufélaga míns.Hvað ætti þessi maður af afkomendum í dag?Hér í Vestmannaeyjum sér maður oft á götunni eldri mann.Hann gengur yfirleitt með 2 göngustafi.Hann gengur skakkur en hratt.Hann fékk(að ég held)heilablóðfall fyrir nokkrum árum.Hvað skildu margir sem sjá  þennan mann vita hans fortíð?Þessi maður heitir Örnólfur Grétar Hálfdánarson og er í dag.65 ára.Fyrir 40 árum bargaði þessi maður skipshöfn sinni þegar v/b Svanur ÍS 214 fórst út af Vestfjörðum þ 29 janúar 1969.Eftir að báturinn hafði fengið á sig brotsjó og lagst á hliðina náðu skipverjar bjargbát sem var á brúarþaki.Báturinn skemmdist við það og var illnotandi vegna skemmda á tjaldi og efri flotholtum

image 1 Svanur ÍS 214 

image 5 Baksíða Moggans 30 jan 1969

En þá  kastaði Örnólfur sér í sjóinn og tókst með miklu harðfylgi að ná björguarbát sem var bundinn frammi á flakinu..Þeim var síðan bjargað af varðskipi eftir að m/b Sólrúnu hafði fundið þá og vísað varðskipinu á staðinn.Með tilliti til afkomenda hvað skildi Örnólfur hafa bjargað mörgum mannslífu þarna?En áhöfnin á Svani taldi 6 menn. Manni er líka hugsað til ýmissa annara sjóslysa hvað til dæmis ef Þorvaldur Axelsson þá stm  á v/s Albert hefði ekki séð blysið frá skipbrotsmönnnum frá m/b Ver KE 45 sem var gerður út frá Bíldudal og sem fórst 26 jan 1968.

 

image 4 Bjarnarey sem seinna hét Sólrún 

v/s Albert var fyrir tllviljun staddur á Bíldudal,En skipið var þangað komið til að flytja Hannes Hafstein erindreka SVÍ þaðan til Patreksfjarðar.En Hannes átti brýnt erindi til Patreksfjarðar og fjallvegurinn um"Hálfdán"var ófær.Rétt áður en að skipið lagði af stað frá Bíldudal kom skipstjórinn á m/b Andra og bað skipherra(Helga Hallvarðs)um að fá froskmann úr áhöfn varðskipsins til að skera úr skrúfu bátsins.Þetta tafði varðskipið um 1 ½ tíma.Rétt áður en  Albert lagði af stað frá Bíldudal var fólki á staðnum farið að lenga eftir Ver.

 

image 3V/S Albert

image 2 V/S Albert

Með það í huga hélt Albert út með landi og var í sambandi við aðra báta sem ekki höfðu heyrt neitt í Ver.Þegar út fyrir Kóp var komið var komið NA fárviðri,blindhríð og hauga sjór.Þegar svo skipið var komið fyrir Kóp var sem allt í einu kæmi aðeins rof í hríðina og í sama bili kallar Þorvaldur Axelsson yfirstm á Albert að hann hefði séð rautt neyðarljós.

 

image Ver KE 45 

Varðskipsmenn náðu miði af ljósinu og gátu svo stýrt í þá átt leið ekki á löngu uns þeir sáu björgunarbátinn"dansandi"í hafrótinu.Og gátu varðskipsmenn bjargað skipbrotsmönnum.Þarna mátti ekki tæpara standa því gúmmíbátinn var að reka upp í stórgrýtta fjöruna.

image 6 Baksíða Moggans 27 jan 1968 

Alger tilviljun olli einnig því að Snæbjörn skipstjóri kveikti á neyðarblysi en ekki neyðarrakettu.Var hald manna ef hann hefði nota  rakettuna hefði hún þotið þúsund metra upp í loft upp og borist svo með vindinum út í sortan og varðskipsmenn kannske ekki séð hana.Það má líka leiða hugan að hvað hefði skeð ef Pétur Jóhannsson skipstjóri á Hvalfellinu hefði ekki séð hættuna af b/v Ólafi Jóhannessyni og sett á fulla ferð og látið gefa bremsurnar á togspilinu lausar um leið og hann reyndi að sveigja skipinu frá hættunni?

 

                   Skemmdir Hvalfelli 

Það hafa örugglega verið sofandi menn á sinni frívakt framm í á Hvalfellinu.Þarna er ég að meina í árekstri skipanna sem varð 16 apríl 1960.Já við höfum stórt tilefni til að fagna og og kannske ennþá meira tilefni til að syrga á næsta sjómannadegi..Ég er að rifja þetta up nú til að íslenska þjóðin missi ekki sjónar af  mikilvægi þess að Sjómanadagurinn sé haldin og hafður hafðu í heiðri.Ég myndi líka vilja leggja til að sjómenn myndu hafa t.d einhverja þögn í einhverjar x mínútur í febrúar til að minnast þeirra miklu sjóslysa sem hafa átt sér stað í þessum mánuði fyrir 50 og 84 árum síðan.

 

isbilde3 Sjómenn á ísuðu skipi 

Við Íslendingar megum aldrei gleyma því hvað.rík/fátæk eða hvað menntuð við verðum að forfeður okkar voru að mestu leiti sjómenn og bændur sem lyktuðu af slori og kúaskít.Þetta voru hetjur sem börðust eiginlega með handafli og berhentir við óblíð náttúruöfl.Fólk getur tekið fyrir nefið þegar það finnur umrædda lykt en það má aldrei gleyma þessum staðreyndum.Ég bið allra sjómana guðs(þess er ég trúi á allavega enn)blessunar og bið að veturinn verði þeim og fjölskyldum þeira hliðhollur.Kært kvödd


Í kosningabuxurnar

Já nú er Geir neyddur í kosningabuxurnar strax.Alveg eins og við vorum neydd í þær hörmungar sem dynja yfir okkur Nú er ég hræddur um að einhverjir"hausar"fjúki þegar menn verða að reyna að forða algeru hruni Sjálfstæðisflokksins.

 

Og reynt verður að þrýfa skítinn úr bælinu,Að mínu viti er eina leið flokksins og kannske beggja stjórnarflokkana að fara"Framsóknarleiðina"Moka flórinn.Þó Stengrímur J sé ekki á mínum"top 10"lista fannst mér valtra yfir Geir í Kastljósinu.Veikindi Ingibjargar Sólrúnar eru grafalvarleg og svona inngrip hljóta að taka tima að jafna sig,Svo nú er þetta finnst mér allt að galopnast.Kært kvödd 


mbl.is Samþykktu ályktun um stjórnarslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Buxnamál

Geir Hinn Harði er ekki á kosningabuxunum.Það vitum við nú.Í hvaða buxum ætli málpípa Samfylkingarinnar Össur sé?Nærbuxunum ?.Ja maður skildi nú bara vona að svo sé allavega næst sér.Maður er farinn að halda að að"Sjallarir"séu á fullu að leita að einhversskonar buxum nú um stundir.Þvi þeir virðast vera buxnalausir.Allavega virðast þeir  komnir með allt niður um sig.Hræddur er ég um að G.H.H.verði að klæðast kosningabuxunum fyrr en hann órar.Allavega í kvöld.Og Steingrimur J á kominn í biðilsbuxur fyrir framan Framsókn.Svo allt getur gerst.Kært kvödd
mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Rússarnir koma"????

Þetta skildi þá aldrei verða örlög Moggans.Að Rússar keyptu hann..Engin veit sína ævi fyrr en öll er.Kært kvödd


mbl.is Gamall KGB-njósnari eignast The Evening Standard.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppa í byrjun og í endan

Jæja maður kom í heiminn í kreppu.(1938)Og maður yfirgefur hann í kreppu.En maður fer ja ég veit ekki hvað mörgum miljónum skuldugri en maður kom.Og á hreinlega enga sök á því.Það þykir mér verst.Faðir minn og móðir voru smiðir að mínu lífi.En ég sjálfur að mínu líferni og hef orðið að bíta í hið súra epli gerða minna.

 

Það neyddi mig enginn til þess að lifa því lífi sem ég lifði.En þessum skuldum er neitt upp á mig af mönnum sem ég,allavega flesta aldrei hef séð.Og það finnst mér með endemum Það var líka hægara að fæðast inn í kreppuna sem ég fæddist í en fyrir barn sem fæðist á þessu landi í dag.Og því miður held ég að það eigi eftir að versna.

 

Nýfædda barnið á eftir að verða skuldugra eftir nokkra mánuði,miklu skuldugra.Og foráðamennirnir virðast vera að byrja á"afréttaranum"ef marka má nýjustu fréttir.Ég heyrði fyrir nokkrum dögum að de Code væri gjaldþrota.Nei nú fá þeir hvað,1,4 milljarð að láni.Gaman að vita hvaða veð eru sett.Ég hef nú alltaf verið hliðhollur þessu fyrirtæki og talið það vera að gera góða hluti.

 

En mér finnst að jafnt skuli yfir alla ganga.Er þarna um að ræða einn"vinargreiðan"enn? Ég bara spyr.En svona í framhjáhlaupi það verður gaman að vita hvaða dóm"kókosbolluþjófarnir"fá.Svo er ég eiginlega viss um að það verður farið að"þagga"niður í Indriða H Þorlákssyni.eða hvað hann heitir fv ríkisskattstjóri sem furðar sig á Jómfúareyja samningum og sennilega tilbúnum erlendum auðmönnum.Beitning var og er starf í sjávarútvegi og þá er yfirleitt beitt síld eða loðnu.Á bankahluthafaveiðum er beitt sh.... já ekki meir um það

Það má ekki styggja fínu bankaræningana.Þó ég sé andvígur ópum og öskrum og eggja og skyrkasti þá skil ég hreint ekki doða stjórnvalda.Geta þeir ekki skilið að þolinmæði fólksins er á þrotum.Ég óttast að eitthvað alvarleg eigi eftir að ske.Hver er þá ábyrgur?Hverjir eru upphafsmenn að öllu saman?Læt þetta nægja af krepputali í bili.Kært kvödd


mbl.is Búið að rýma Alþingisgarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Stæli ég glóandi gulli"

"Stæli ég glóandi gulli / úr greipum hvers einasta manns / þá væri ég örn minnar ættar / og orka míns föðurlands"kvað skáldið mikla frá Skáholti.Það er með endemu að á meðan sýslumaður í Árnessýslu gefur út 370 handtökuskipanir á einstaklinga(almennan borgara)vegna fjárnáms skulu stæðstu þjófar og bankaræningar íslandssögunar ganga lausi.

uu

Spóka sig bara í auðmannahverfum í London og gefa svo"ordur"til leppa sinna hér.Geta kannske kost á bullsímtali sem enginn botnar hót í.Þeir hljóma eins og fermingarstrákur að segja frá hjólinu sem hann fékk í fermingagjöf  og býttaði kannske á því og hljómflutningstæki við annan fermingastrák.Allt sársaklaust og engin plataður.Hversvegna eru þessir menn ekki kallaðir heim og settir í farbann þangað til að búið er að rannsaka fjármál þeirra niður í kjölinn.

money

Eru yfirvöld ekkert hrædd um að þegar réttvísin fer að þrenga að þessu fólki að það hreinlega gufi bara upp.Manni skils að vont sé að fá fólk framselt frá mörgum S Ameríkulöndunum.Ég man að sænska lögreglan var á höttum eftir kerlingu sem skuldaði fleiri miiljarða(ísl)í skatta.En þeir komu bar að vígirtum búgarði sem þeir fengu aldrei neinn aðgang að.Það er umhugsunarvert þetta með ábyrgð manna.Ekki man ég eða hreinlega veit tölur úr hve laun þessara manna sem töldu sig þurfa svo mikil laun vegna allrar ábyrgðarinnar sem þeir báru voru.

 

saving money during hard financial times 01 af Þetta er nú ekki rétti Grísinn

En hvað skyndi Flugstjórinn á Airbus þotunni sem hann svo fagmannlega lenti á Hudson fljóti og bjargaði 155 mannslífum ef ég man rétt fá í laun.Svo þykst jafnvel stærstu ræningarnir eiga kröfu á ríkið.Étiði bar það sem úti frís nei það væri of gott.

margot money1cat money Óvitar með peninga

Étiði bara skít.Það er oft talað um að oft sjáist bara toppurinn af ísjökunum.Það er örugglegs svo í öllum þessum málum.Hvert einasta lýðræðisríki væri búið að herinsa svo út úr sínum ranni að engin óvissa ríkti hjá hinum almenna borgara.Of stutt er í 80 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins til að það verði hægt að birta myndir af núverandi forsvarsfólki með yfirsögninni:"Þetta er fólkið sem gekk af Sjálfstæðisflokknum dauðum"

iceberg2 Oft sést lítið af ísjakanum

En ég er viss um að það verður enginn 81 afmælisdagur til.Ef forustumenn þessa lands fara ekki að sýna eitthvað annað en undanflæming og jafnvel lygar í málum málanna þá er ég hræddur um að hér fari að gerast atburðir sem menn ráða ekki við.Það er eins og það sé gert í því að storka fólki.Ég kalla þessa handtökuskipanir sýslumannsins í Árnessýslu ekkert anað en storkun við fólk og að það heyri jafnvel undir niðurlæingu þess.

 

handcuff20Black M 867BK 02Sumir menn eiga eftir að komast í kynni við þessa hluti

Á meðan gengur þessi íslenski glæpalýður, sem ætti að vera í strangri geymslu í Flatey á Skjálfandagengur(er hún ekki óbyggð) laus í stórborgum erlendis í startholunum  að flýa af hólmi.Ég get nú ekki annað en brosað að Pétri Blöndal nú um stundir.Þó ég taki undir margt af því sem hann segir;Nú er annað hljóð í strokknum en þegar hann er að ltala um "aumingana"öryrkja ellilífeyrirþega og þannig fólk.Þá eru stóru orðin notuð um gjörningana en nú er farið fínt í sakirnar.Talað um að það geti verið að menn leiðist út í þetta eða hitt sem sé kannske ekki alveg löglegt.Orðin stela eða svíkja detta út úr orðaforða þingmannsins.

massimo chindamo 468x707 spain mafia gangstercarmen cheeseman dinunzio 02 Mafíósar á Sikiley handteknir.Hvenær átlum við að taka okkar???

 

Ef maður/kona úr hópnum sem Pétri er svo uppsiga við reynir að bæta bágan hag sinn með svildli þá er það lögbrot í augum okkar beggja.En svindli auðmaður út milljarða er það stórglæpur í mínum huga en bara smáfiff í hans.En þetta er mín skoðun á manninum.Ég læt þetta duga geðheilsu fólks að sinni.Ég þakka þeim sem nennt hafa að lesa þetta og kveð þá kært að venju


mbl.is Hátt í 400 handtökuskipanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja nú skilur maður málið

Ja nú fer maður að skilja af hverju manni já eða þannig.Ég sem kenndi alltaf brennivíninu um allt saman
mbl.is Ríkir menn betri í rúminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt konum að kenna

Sagði Gunnar Bragi Sveinsson að hann vildi ekki standa í vegi fyrir því að fönguleg kona kæmist í stjórn flokksins.Öllu má nú koma á blessað kvenfólkið


mbl.is Dróg sig til baka úr ritaraslagnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilji fólksins

Þetta formannskjör segir manni margt.Aðallega þó það að hinn almenni framsóknarmaður hafnaði þeim mönnum sem komið hafa að stjórn flokksins undanfarið.Þetta finnst mér að gömlu flokkarnir allavega þeir 2 sem nú  stjórna ættu að taka til alvarlegrar íhugunar.Hinn almenni borgari vill ekki þá"kúkalabba"sem stjórnað hafa þessu landi undanfarin ár.Sérstaklega held ég að Íhaldið ætti að fara að athuga sinn gang og stokka upp spilin.


mbl.is Sigmundur kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilisiðnaður m.m

Hver er nú sekari.Sá sem bruggar 1 tunna af gambra eða þeir sem"brugguðu"þann"mjöð"sem fólkið er að súpa seyðið af í dag.Ég vona að fólk skilji hvaða mjöð ég er að tala um.Ég er óvirkur alkahólisti og hef verið um nokkurt skeið.Ég þekki sjúkdóminn(ég kalla þetta sjúkdóm því það heldur mér edrú.Mér er fjandans sama hvað aðrir kalla alkahólisma)Og því þekki ég afleiðingarnar af honum.Margt af fólki er hreinlega neitt til að taka afleiðingum af alkahólisma.

 

 

Þá meina ég aðstandendur alkans þótt það sjálft sé ekki í neinskonar neyslu.Mér er stundum hugsað til þess í dag að svona sé komið fyrir fólkið í landinu.Það sé að takast á við afleiðingar af einhverskonar"isma"sem það á enga sök á en aðrir hafa kallað yfir hana.Talaði ekki einn stjórnmálaforinginn um að "fjárglæframennirnir"þyrftu í einhverskonar"meðferð"Og þá er meint"meðferð"en ekki að vera"með í ferð"eins og þessum helv.... mönnum leyfist enn í dag.Maður opnar hvorki útvarp,sjónvarp eða blað öðruvísi en sagt sé frá einhversslags fjármálabraski sem háttsettir menn eru meira eða minna flæktir í.

 

 

Sama fólkið sem bara var hækkað upp fékk að leika lausum hala í bönkunum.Það er löngu gengið fram af allri heilbrigðri skynsemi og búið að brengla svo heiðarleikaskyn almennings að bara það hálfa bæri í bakkafullan lækinn.Ég er viss um að það tekur fleiri áratugi að bæta þann skaða sem komin er á"þjóðarsálina"hvað þetta varðar.Svo eru það fjölmiðlarnir.Í síðustu viku varð ég vitni að hvernig hægt er að slíta setningar svo úr samhengi að það hugnist allt öðrum aðilum en þeim sem setninguna sagði.Hann Georg Arnar hefur bloggað um þetta á sinni síðu og ég bið fólk sem áhuga hefur að lesa um það á henni.Hér er linkur á hana:

http://georg.blog.is/blog/georg/

Nú ætti að taka alla fjandans bruggara hvers kyns þeir eru og láta þá standa fyrir máli sínu.En það eina sem stjórnvöld virðast hafa til málana að legga er:"haldiði kja... og takið utan um hvert annað.Faðmlög er allra góðra gjalda verð og nauðsynleg.En sum slík hafa kannske stundum líka bara aukið á"kreppuna"Þ.e.a.s það hefur komið í ljós 9 mánuðum síðar.

 

Á 1stu árum þar síðustu aldar voru ung hjón dæmd til ævilangrar þrælkunnar(á 1sta dómstigi) í hegningarhúsi fyrir stuld á 2mur veturgömlum ám.Það sem vakti furðu að þau voru það efnuð að þau hefðu geta komist af án þessa þjófnaðar.Það má kannske segja að"græðgin"hafi orðið þeim að falli.Á þessum tíma voru dómstigin 3 sem kannske ætti að endurvelja það.En"sumir"eru kannske svo ætt og vinamargur að þeir gætu komið vinum og vandamönnum inn í öll stigin.Að þessu mæltu kveð ég þá er lesið hafa kært

 


mbl.is Lokuðu bruggverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Kominn af fjöllum"

Mikið var það nú gott að ráðherrann sé komin af fjöllum.En mín skoðun er sú að hann ætti að snúa þangað aftur.Og halda sér þar og til hlés.En umrædd Sigurbjörg hlýtur að þurfa að nafngreina þann ráðherra sem sendi henni þennan boðskap.Því svona fullyrðingar hafðar frammi á mótmælafundi hljóta að þurfa sönnunar við.

 

 

Annað er óhugsandi og þá bara vopn í höndunum á stjórnvöldum.Að mótmælin séu bara innantómt þvaður.Mótmælendur þurfa  að hafa sinn málstað á föstum grunni svo að ekki sé hægt að bera upp á þá að málflutningur þeirra sé bara bull og þvaður.Þó svo að ég trúi konunni frekar en ráðherra þá finst mér hún komin út á hálan ís.En svo má athuga það að senda fleiri ráðherra til fjalla.En það þarf að gera á raunsæjan hátt.Ekki með einhverjum orðum sem maður getur svo ekki staðið við.Læt þetta duga í bili.Kært kvödd


mbl.is Guðlaugur kemur af fjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndir funda í Vestmannaeyjum

Fundarboð

Mynd 0509625 Kolbrún     Mynd 0509623 (1) Grétar

Kolbrún Stefánsdóttir ritari Frjálslynda flokksins og Grétar Mar Jónsson alþingismaður Frjálslynda flokksins efna til fundar með Eyjamönnum og konum, n.k. fimmtudag, 15. janúar.  Fundurinn verður haldinn á Café Kró, Tangagötu 7 og hefst kl. 20:00.  Á dagskrá eru m.a: Samgöngur, fiskveiðistjórnun, hafrannsóknir og velferðarmál.

Fólk er hvatt til að mæta fá sér kaffisopa og heyra hvað Frjáslyndiflokkurinn er að aðhafast.Fjölmiðlar allavega ríkisfjölmiðlar hafa leitt flokkin algerlega hjá sér.Núna gefst Vestmannaeyingum tækifæri til að spyrja þingmannin og ritaran um það sem því liggur þyngst á hjarta:Sérstaklega eru öryrkjar og aldraðir og þeir sem minna mega sín í þjóðfélaginu og hlusta á hvað þau 2 hafa fram að færa


Kviðsvið???

Hvern fja.... var hann að kássast upp á annara manna jússu.Gat hann ekki notað sín svið bara til heimabrúks.Kært kvödd
mbl.is Kveikti í eiginmanninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryggis hvað?

Maður skilur ekki alveg stefnu ríkisstjórnarinnar í þessu máli(frekar en kannske í fleirum)Þarna sést líka hve þessi stofnun sem hent var milljónum í til að komast inn í er gersamlega gagnlaus þegar á reynir.

Og kallar sig Öryggisráð.Sem betur fer höfðu aðrar þjóðir vit fyrir okkur í því máli.Meðan USA Rússland og Kína eru með neitunarvald í þessu svokölluðu ráði er þetta algerlega gagnlaus klúbbur slæpinga.Kært kvödd


mbl.is Fordæmir innrás á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru foreldrar???

Hvað er að ske?Vopnaður unglingur setur allt á annan endan.Gengur laus í fleiri klukkutíma vopnaður skammbyssu föður síns.Byssu sem er bönnuð í landinu.Furðuleg í fréttaflutningi af þessum atburði var fyrirsögn í Mogganum."Viðbúnaður í Gerðunum"

 

 

Þegar ég renndi yfir fréttir í gærkveldi hélt ég að einhver í Gerðum í Garði hefði fengið sér fullmikið í tána og væri að veifa byssu.En svo kom sannleikurinn í ljós.Ég hef stundum beðið þann guð sem ég trúi á að hjálpa okkur Íslendingum nú um stundir.Mikið var ég ánægður að heyra í fréttum að íslenskir múslimar séu að biðja Allah líka að hjálpa til.Kannske tekst það,ef þessir 2 tækju saman höndum.Kært kvödd


mbl.is Gekk um með hlaðna skammbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harður húsbóndi

Bakkus er harður húsbóndi.Það vitum við sem honum hafa þjónað.Sem betur fer hefði enginn kráareigandi tekið svona í mál hér á landi(eða hvað?)En hefði ég átt íbúð og átt kost á svona samning hugsa ég að ég hefði verið til í"dílinn".

 

En ég hef heyrt um menn sem töpuðu íbúðum í spilum.Og það leiðir hugan að öðru.Hvenær fór pókerspil í flokk íþrótta.Sem svo er tilefni til að sýna það á svokölluðum íþróttarásum.Ég bara spyr.Kært kvödd


mbl.is Skipti á íbúð og áfengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Jan. 2009
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 537313

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband