---------frelsi

Það er með ólíkindum hvað maður getur mislesið þegar maður verður að spara við sig gleraugnakaup. Hjarta mitt tók kipp áðan þegar ég með vitlausum gleraugu las inn á Mogganum: "Fylltu á pun.... fyrir 1490 kr". þarna var eitthvað fyrir blöðruhálskirtilslausan mannin.

 

Ég skifti með skjálfandi höndum í snatri yfir í sparigleraugun en þá blasti við mér orðið" pungfrelsi ".Þá fór mig að gruna að ekki væri allt með felldu. Enda vissi ég ekki til að menn misstu frelsið yfir þeim hluta líkamans. Allavega ekki að ástæðulausu.

 

Vissi náttúrlega um að menn yrðu fyrir skerðingu á því eins og .......Já ég fer ekki lengra út í þá sálma. En þarna var þá bara allt í plati frá Björgúlfi Thor eða þannig. Og hann getur mín vegna haft "frjálsar" hendur um eins marga punga og hann vill. Ekki á ég þannig pung sem fylla má á. Og kemur því þetta ekkert við.

 

Og nú er þessi fja..... pungauglýsing komin inn á síðuna mína. En mikið djöf.... væri gaman ef einhver finndi upp áfyllingar á venjulega pu.... Já ég fer  ekki lengra út í það mál. En kveð ykkur  kært   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll kæri bloggvinur, þetta er skemmtileg færsla sem fær mann til að brosa og hlæja. Það er í raun of litið af svona skemmtilegum færslum hér á blogginu. Það var alltaf gaman að lesa föstudagsgrinið hans Jóhanns Elíassonar. Kannski ættum við bloggarar að reyna að hafa meira af bröndurum eða skemmtilegum sögum á bloggsíðum okkar þegar fer að hausta og skammdegið færist yfir. Það léttir lundina Óli minn.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 9.9.2009 kl. 23:37

2 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Frábær færsla hjá þér.

Kveðja.

Þráinn Jökull Elísson, 10.9.2009 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 535250

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband