"Tapað fundið"

Ég hef svolítið verið að fylgast með þessu sérstaka máli Og það er margt sem vekur undrun mína í því. Þann 13 þ.m. átti skipið að hafa fundist í höfnini í San Sebastian á N-Spáni. Ég ætlaði að fara að blogga um það en þá kom frétt um að það væri misskilningur. Og nú á það að hafa sést út af Cap Verde. Rússar vilja ekki staðfesta það.Arctic Sea Artic Sea, Þarna með timburfarm á dekki.Mér finnst fréttaflutningurinn af þessu máli vera fullharður hvað varðar fjölskyldur áhafnar skipsins. Að kvíði breytist í gleði en svo  kvíða aftur og kannske í restina í sorg er slæmur ferill.

 

 

Ég man líkan ferli hér á landi. Það var þegar b/v Egill Rauði strandaði og Mogginn (sem þá var með"síðustu fréttir" glugga í Austurstræti) kom með þá frétt í fréttagluggann að allir hefðu bjargast. sem svo reyndist misskilningur.

 

 

Menn ættu að halda kja... þar til eitthvað bitastætt er í hendi. Svo er það eignarhaldið á Artic Sea Ég hef séð það kallað Lettneskt. Rússneskt og Finnskt.  Einnig  þessi lausnargjalds krafa getur hreinlega verið bull.  Ég man eftir "ráninu" á Danica White. 

 

 

Þá ætluðu dönsku stéttarfélög mannana um borð að borga lausnargjald. Ég hef það eftir 1stu hendi innan útgerðarinnar að þeim (stéttarfélögunum og hreinlega útgerðinni sjálfri) hefði verið bannað að reyna slíka hluti því þeir gætu allsekki verið vissir um að gjaldi færi í réttar hendur. Slíkt hefði skeð. Þ.e.a.s. að gerviræningum hefði verið greitt lausnargjald fyrir skip. En vonandi fáum við botn í þetta mál  Og áhöfnin sé hult.  Myndin af Shipspotting. Kært kvödd


mbl.is Lausnargjalds krafist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 535375

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband